Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982 í heimsókn á Hoffsósi Hofsósi. Núna er fiskurinn nær eingöngu verkaður í frost þar sem aflabrögð hafa verið heldur léleg í vetur. í frystihúsinu hefur í allan vetur verið tíu tíma vinna á dag. Árið 1976 var byrjað að endurbyggja frystihúsið og var smíðað utan um gamla húsið þannig að fyrir aðkomumann lít- ur út fyrir, að nýlegt frystihús sé á staðnum. Ýmsar breytingar, og þá einkum tæknibreytingar, eru á döfinni í húsinu, en erfiðleikar í frystingu um land allt hafa ekki sneitt hjá Hofsósi óg því hafa tafir orðið á framkvæmdum. Fyrirtækið Kögurvík á Hofsósi gerir út 90 tonna bát, Richard, og var ætlunin að gera hann út frá Hofsósi í vetur, en vegna ótíðar og ördeyðu var ákveðið að fara suður á vertíð. Stærsta málið á Hofsósi í ár er lagfæring og dýpkun hafnarinn- ar. Árið 1980 var dýpkunarskipið Hákur um tíma við vinnu á Hofs- ósi, en það verk tókst ekki sem skyldi og í sumar er von á dýpk- unarskipinu Gretti. Höfnin er vart örugg nema sem sumarhöfn, að sögn Gísla og Garðars Sveins. Áætlað er, að hafnarfram- kvæmdirnar, sem ráðgerðar eru í sumar, kosti 1,3 milljónir króna. Auk þessa er á döfinni að leggja varanlegt slitlag á vegarspotta í Á HOFSÓSI lifir fólk af físki og hljóðkútum, sagði góður maður í spjalli við Morgunblaðið á dögunum. Nokkuð til í því. Frystihúsið á staðnum er stærsti atvinnurekandinn, en Vélsmiðjan Stuðlaberg er einnig drjúgur vinnuveitandi og mikinn hluta ársins er kröftunum beint að hljóðkútagerð. Auk þessara fyrirtækja má nefna útgerð, saltfískverkun, byggingafyrirtæki, bifreiðaverkstæði og að sjálfsögðu „bless- að“ kaupfélagið, sem auk verzlunar rekur saumastofu á staðnum. Á Hofsósi bjuggu 310 manns 1. desember síðastliðinn og hefur íbúafjöldi nokkurn veginn staðið í stað síðustu ár. Á staðnum er næg atvinna og húsnæði er í boði fyrir ótrúlega lítinn pening. Sem dæmi má nefna, að ný raðhús voru seld þar í fyrrahaust fyrir 450 þúsund krónur og verða þau afhent tilbúin um næstu mán- aðamót og 25 ára gamalt einbýl- ishús var til sölu fyrir 270 þús- und krónur. Enn lægri, og nánast ævintýralegar, tölur hafa verið nefndar þegar húsnæði hefur verið boðið til sölu eða eftir því verið falazt á Hofsósi. Hvað segja menn til dæmis um einbýl- ishús fyrir 70 þúsund krónur? Garðar Sveinn Árnason er sveitarstjóri á Hofsósi, en oddviti Gísli Kristjánsson. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við þá á ferð sinni norður á dögunum og er eftirfarandi rispa byggð á spjalli við þá. Kjölfestan í atvinnulífinu er togaraafli, en Hofsósbúar eiga tæplega þriðjung í þeim þremur togurum, sem gerðir eru út frá Sauðárkróki af Útgerðarfélagi Skagfirðinga. Reyndar er togar- inn Skafti skráður á Hofsósi. Þrjú frystihús vinna afla togar- anna, tvö á Sauðárkróki og eitt á Gísli Kristjánsson, oddviti og fram- kvemdastjóri frystihússins. Næg atvinna og húsnæði í boði fyrir lágt verð Garðar Sveinn Árnason, sveitarstjóri, fylgist með starfinu í leikskólanum. Jiri Hlavacek frá Tékkóslóvakíu kennir söng á Hofsósi. Framleiðir um 10 þúsund hljóðkúta á ári og smíð- aði sjálfur helztu tækin Litið við hjá Fjólmundi Karlssyni í Stuðlabergi hf. FJÓLMUNDUR Karlsson hefur rekið vélsmiðjuna Stuðlaberg á Hofsósi frá því árið 1965 og nú vinna þar á annan tug manna, nokkuð breytilegt eftir árstímum. Er fyrirtækið var stofnað var hugmyndin sú að hefja framleiðslu hljóðkúta, en nokkurn tíma tók að koma því í kring. Ýmsir voru lítt trúaðir á þetta og því tók það sinn tíma að sannfæra „kerfíð“ um rekstrar- grundvöll fyrirtækisins. Fjólmundur hefur ákveðnar skoðanir á þessu þjóðfélagi okkar og hann gefur kerfinu langt nef ef því er að skipta. Stuðlaberg hóf starfsemi og hefur verið lyftistöng fyrir atvinnu ífið á Hofsósi og sparað drjúgt fyrir þjóðarbúið í gjaldeyristekjum. Varla er hægt að segja, að hérlendis framleiði aðrir hljóð- kúta en Fjólmundur og starfs- menn hans á Hofsósi. Þar sem um mjög sérhæfða framleiðslu er að ræða þurfti að fá tæki, sem ekki voru til annars staðar á íslandi. Eflaust hefði verið hægt að kaupa tæki erlendis frá fyrir ærinn pening, en það leizt Fjólmundi ekki á. Hann settist niður, spáði í hlutina og spekúleraði, og smíðaði ein- faldlega mikinn hluta nauð- synlegs búnaðar sjálfur. Hann á orðið mörg handtökin í fyrir- tæki sínu og þó Stuðlaberg sé ekki stór vélsmiðja þá er hún tæknilega fullkomin og vel tækjum búin. Áætlað er, að 90 þúsund bif- reiðir séu í landinu og að hver hljóðkútur endist í um tvö ár að meðaltali. Það er því ljóst, að markaður fyrir hljóðkúta er stór. Stuðlaberg hefur þó að- eins hluta markaðarins og mik- ið er flutt inn. Fjólmundur sagði í spjalli við blaðamann á dögunum, að framleiðsla hljóð- kúta væri ekki það, sem skilaði fyrirtækinu hagnaði og því væri ekki lögð áherzla á fram- leiðslu hljóðkúta allan ársins hring. Stuðlaberg er þó betur sett en mörg önnur sambærileg fyrirtæki þar sem hljóðkúta- framleiðslan er trygg og því er ekki um eyður að ræða. Auk hljóðkútanna hefur Stuðlaberg smíðað og sett upp vinnslu- kerfi, færibönd og sitt lítið af hverju fyrir sláturhús. Fyrir- tækið hefur unnið talsvert fyrir Húseiningar á Siglufirði, ofnasmiðjur og fleiri fynrtæki. „Það er víst ábyggilegt, að þetta er erfitt framleiðslusvið," Fjólmundur Karlsson innan um hljóókútana á lager Stuðlabergs. sagði Fjólmundur í heimsókn blaðamanns til Hofsóss. „Við tökum mest 300 hljóðkúta af hverri gerð í gegnum vélarnar í einu, en förum niður í 50, sem er alltof lítið. Ég gæti trúað að við framleiddum núna 160 teg- undir hljóðkúta og samtals um 10 þúsund hljóðkúta á ári. Það er langur vegur frá því, að hljóðkútar fyrir tvær bílgerðir séu svipaðir, sérstök mót þarf fyrir hvern kút, efnið er mis- munandi, festingarnar eru aldrei eins og handtökin verða því mörg, þó reynt sé að nýta tæknina til hins ýtrasta. Fyrirkomulagið hjá okkur íslendingum er þannig, að selj- andi vörunnar gerir kröfur til framleiðandans ef hann er ís- lenzkur og maður verður vessgú að beygja sig. Ef fram- leiðandinn er hins vegar ein- hvers staðar í útlandinu, þá beygir kaupmaðurinn sig og bugtar uppi á Fróni. Þetta kerfi okkar er nú einu sinni svona og það eru stjórnvöld, sem eiga sökina á því hvernig komið er fyrir okkur, sem erum að berjast í framleiðslunni. Við þau skilyrði, sem við höfum þurft að búa við í nokkur ár, er ekki hægt að byggja upp fyrir- tæki, það eru hreinar línur. Þess vegna ætla ég að hætta í þessu í sumar. Þetta er búin að vera þrekraun og ef ég á einhver ár eftir ætla ég að eyða þeim í annað. Ég vona að fyrir- tækið komist í góðar hendur og baráttunni verði haldið áfrarn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.