Morgunblaðið - 20.05.1982, Page 2

Morgunblaðið - 20.05.1982, Page 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1982 Það getur oltíð á þér Texti: Jakob F. Ásgeirsson / Myndir: Ólafur K. Magnússon „Ég óttast ekkert nema andvaraleysið. Látum ekki mistökin frá ’78 endurtaka sig!u Hvað heitir þú? Ég heiti Þorsteinn. Er hann pabbi þinn heima? Nei, pabbi er á fundi. En mamma er heima. Og Astríður býður mér að gjöra svo vel og ganga í bæinn; hann Davíð sé rétt ókominn af fundi. Davíð Oddsson, borg- arstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Kona hans er Ástríður Thorarensen, dóttir Unu Petersen og Þorsteins Thorarensen, borgarfógeta. Ég er Reykvíkingur í húð og hár, segir Ástríður. Fædd á Þórsgötunni og alin þar upp og í Hlíðunum. Það má kalla að ég hafi ekki farið innfyrir Elliðaár og ég vona að það eigi ekki fyrir mér að liggja að enda á Rauðavatnssvæðinu! Það er friðsæl gata Lynghagi. Ástríður segir að þau Davíð kunni prýðilega við sig í húsi númer fimm. í kjallaranum er ein af kosningaskrifstofum Sjálfstæðis- flokksins. Við áttum heima við þessa götu fyrstu fimm árin í okkar hjúskap, segir Ástríð- ur. Það var í 2ja herbergja íbúð í húsi númer tuttugu. Annars höfum við átt heima á fjórum stöðum í borginni síðan við giftum okkur. Fyrst á Lynghaganum, svo í Hlíðunum, þá á Reynimel og nú erum við komin aftur á Lynghagann. Hér verður væntanlega framtíðarbústað- ur okkar, ef guð lofar. Ástríður bregður á sig gúmmíhönskum og þvær í snarhasti upp nokkra diska og glös. Ég var að koma úr prófi, segir hún. Já, ég stunda nám í Háskólanum. Læri þar hjúkrunarfræði. Ég hafði starfað í nokk- ur ár sem læknaritari og fékk mikinn áhuga á hjúkrunarstarfinu. Nú á ég að- eins eftir eitt ár í náminu, ef allt gengur vel. Þorsteinn kallar á mömmu sína. Hann vill sýna henni nýju íþróttapeysuna sína, fagurgræna markmannsskyrtu. Ég held með Skagamönnum, segir hann. Ég er æstur Skagamaður! Ég veit eiginlega ekki af hverju, en ég hef alltaf verið það síðan ég vissi hvað knattspyrna var, og er að hugsa um að vera það áfram. Þó held ég líka svolítið með KR, af því að ég æfði með þeim. Ékki með Víkingum? spyr ég og bendi á litla mynd af íslandsmeisturum Vík- ings á eldhúsborðinu. Nei. Það var vinkona hennar mömmu sem sendi mér þetta kort bara til að skaprauna mér! segir Þorsteinn fullorð- inn tíu vetra. Við göngum til stofu. Það er bjart; sér útum stóran gluggann í vel hirtan garð. Það er komið vor, segir Ástríður. Ég hafði áhyggjur af garðinum, eins og fleiri sjálfsagt, þegar það gerði hretið, en síðustu dagar hafa verið góðir og mér líst orðið ágætlega á garðyrkjuna í sumar. Ég brenn í skinninu að komast út í garð. Heyrðu, segir Þorsteinn. Finnst þér gaman að vera blaðamaður? Ég og frændi minn einn gefum út blað og það tekst ágætlega. Það heitir Þor-Þór. Það eru þrír fyrstu stafirnir í nöfnunum okkar. Nei, Þor-Þór kemur ekki út reglu- lega. Stundum ekki nema einu sinni í mánuði. Við seljum það bara ættinni. Ömmunum og öllu því liði. Okkur vantar eiginlega fleiri áskrifendur. Og hvað skrifiði í blaðið? Allt milli himins og jarðar ... Þeir taka viðtöl við valinkunna ætt- ingja, segir Ástríður brosandi. Svo höfum við fréttaritara á Húsavík, segir Þorsteinn. Það er frændi minn. Okkur finnst stundum erfitt að taka við- tölin, því það þekkjast allir í ættinni og það getur verið strembið að finna spurn- ingar. En hver skrifar leiðarana? Ég. Og fylgirðu ekki pabba í pólitíkinni? Jú, það geri ég. Kötturinn Pollý gengur til stofu að heilsa uppá gestinn. Það er mikill selskapsköttur, Pollý. Hefurðu nokkurn tíma lent í því að taka viðtal við kött, spyr Þorsteinn. Það hafa ábyggilega fáir gert, en við gerðum það í gærkveldi. Tókum öll mjálmin hennar uppá segulband. Nú birtist bóndinn. Hann var að koma af borgarráðsfundi. Við byrjuðum klukkan ellefu í morgun, segir Davíð, og ég var að losna núna klukkan hálf fjögur. Davíð er varla kominn inn úr dyrun- um, þegar spurt er eftir honum í símann. Ég spyr Ástríði hvort hún sé jafn póli- tísk og bóndi hennar. Nei, ekki get ég sagt það. Ég var ákaf- lega lítið pólitísk þegar við Davíð kynnt- umst, en þú getur rétt ímyndað þér, hvort maður fari ekki að fylgjast með þegar naumast er talað um annað í kringum mann en pólitík. Maður vill ekki vera utangátta og smám saman hefur myndast með sér töluverður áhugi á póli- tík. Við getum sagt að hann sé „hæfi- legur“ minn pólitíski áhugi, en auðvitað reyni ég að fylgjast með þjóðmálaum- ræðunni. Varstu sátt við það að Davíð gæfi sig að stjórnmálum? Já. Davíð hefur geysilegan áhuga á borgarmálefnum og þjóðmálum yfirleitt. Ég tel að hann eigi fullt erindi í stjórn- málabaráttu og geti komið góðu til leið- ar. Mér hefur aldrei dottið í hug að draga úr þessari löngun hans að helga sig stjórnmálum. Hann hefur heldur ekki reynt að gera úr mér fyrirmyndareigin- konu stjórnmálamannsins. Við erum sammála um að reyna að halda einkalífi okkar hæfilega aðskildu frá stjórnmála- lífinu. En ég hef fundið það, að mörgum finnst ég sem eiginkona formanns borg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.