Morgunblaðið - 20.05.1982, Blaðsíða 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1982
Hjólreiöadagurinn 23. maí:
„Látum öldruðum líða
vel“ er kjörorð dagsins
I Ijólreiftadanurinn mikli eins og
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
kallar hann verður haldinn í annað
sinn sunnudaginn 23. maí nk.
Að þessu sinni verður væntan-
legum hagnaði varið til stuðnings
velferðarmálum aldraðra. Eins og á
sl. ári fær hver þátttakandi söfnun-
arkort og gerir sitt besta í því að
safna fé til stuðnings málefnum
aldraðra. Engin sérstök upphæð er
áskilin, en geta má þess, að algeng
upphæð hjá þeim sem söfnuðu á
síðasta hjólreiðadegi var 300— 500
krónur.
I Reykjavík verður safnast sam-
an á 10 stöðum í borginni, sunnu-
daginn 23. maí kl. 13.00. Þessir stað-
ir eru: Hagaskóli, Hvassaleitisskóli,
Hlíðaskóli, Langholtsskóli, Rétt-
arholtsskóli, Laugarnesskóli,
Breiðholtsskóli, Arbæjarskóli,
Seljaskóli og Fellaskóli.
í Mosfellssveit, Kópavogi, Garða-
bæ, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi
verður einnig safnast saman á
sama tíma og verða brottfararstað-
irnir þar tilkynntir síðar.
Þegar lagt verður af stað frá
framangreindum stöðum, fá allir
þátttakendur sérstök þátttöku-
númer, sem þeir festa framan á sig.
Þannig skapast meiri heildarsvipur
á hjólreiðadeginum, en auk þess
gildir hvert þátttökunúmer sem
happdrættismiði. Dregið verður um
mörg reiðhjól og fer útdráttur vinn-
inga og afhending þeirra fram á
Laugardalsvellinum.
í fararbroddi hvers hóps verður
lögreglumaður á mótorhjóli og
ennfremur verða félagar úr Hjól-
reiðafélagi Reykjavíkur á undan og
eftir hverjum hópi, m.a. til að gæta
alls öryggis gagnvart annarri um-
ferð.
Allir sem vilja og eru orðnir 10
ára eða eldri mega taka þátt. Ef um
yngri þátttakendur er að ræða, er
þess óskað að þeir séu í fylgd með
fullorðnum, að pabbinn eða mamm-
an eða einhver annar hjóli með
þeim.
Nemendur fá afhend söfnunar-
kortin í skólunum og nota tímann
fram að hjólreiðadegi til að safna
fé. Á hverju korti er gert ráð fyrir
10 nöfnum gefenda, og er ætlast til
að þeir riti sjálfir nöfn sín og upp-
hæð á kortin, en eins og áður grein-
ir er hverjum og einum í sjálfsvald
sett hvað hann leggur af mörkum.
Þegar þátttakendur koma svo inn
á Laugardalsleikvanginn á hjól-
reiðadaginn 23. maí, hafa þeir með-
ferðis söfnunarfé og söfnunarkort-
in. Þar taka á móti þeim um 40
konur úr Kvennadeild styrktarfé-
lagsins og frá „Svölunum" — félagi
fyrrverandi og núverandi flugfreyja
— en þátttakendur fá afhent á móti
litprentuð viðurkenningarskjöl.
Skemmtiatriði ýmis verða á
Laugardalsvellinum meðan afhend-
ing söfnunarfjárins fer fram.
Þegar svo farið verður af Laug-
ardalsvellinum og lagt af stað heim,
mun lögreglan setja viðurkenn-
ingarmiða á reiðhjólin, en fyrirtæk-
ið Vörumerking hf. í Hafnarfirði
gefur Styrktarfélaginu límmiða til
stuðnings málefninu.
Kjörorð hjólreiðadagsins að
þessu sinni er: „Látum öldruðum
líða vel.“ Áhersla er lögð á að hér er
ekki um neina keppni að ræða en
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
sem stendur fyrir þessum degi
hvetur alla, sem hafa reiðhjól til að
taka þátt í hjólreiðadeginum.
Dagana 14.-22. maí bjóðum við ykkur að
skoða sýningu á gjafavörum frá DANSK
INTERNATIONAL DESIGN og öðrum
vörum í gjafavörudeild okkar við Smiðjustíg 6.
Gjafavörudeildin er opin á venjulegum
afgreiðslutíma, og laugardag til kl. 4 e.h.
Verið velkomin.
Cú
c3
KRISTJfifl
SIGGEIRSSOn HF
LAUGAVEG113.
SMIOJUSTÍG 6, SÍMI 25870
Að loknu froskkafaranámskeiðinu í Vestmannaeyjum. Sigurður Óskarsson
er í fremstu röð, lengst til vinstri, við hlið hans er Friðrik Ásmundsson
skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum og maðurinn með kafara-
gleraugun er Þorvaldur prófdómari, og lengst til hægri er Sigmar Þór
Sveinbjörnsson aðstoðarmaður.
8 froskkafarar
luku prófi í Eyjum
Nýlega Iauk í Vestmannaeyjum
froskkafaranámskeiði sem Stýri-
mannaskólinn í Vestmannaeyjum
stóð fyrir, en kennari var Sigurður
Óskarsson kafari með meiru. Átta
froskkafarar luku prófi, en prófið
er þríþætt; bóklegt, í sundlaug og
úti á rúmsjó. Síðasti þáttur prófs-
ins fór fram með Lóðsinum, en
það er erfiðasti hluti prófsins og
byggist á allerfiðri köfun.
Lagt í siðasta ifanga prófsins i
rúmsjó.
Akranes:
Glæsileg kosninga-
skemmtun
Á KJORDA hundrað manns komu i
kosningaskemmtun D-listans i Hótel
Akranesi síðastliðið laugardagskvöld
og var húsið troðfullt.
Valdemar Indriðason setti
skemmtunina, en ávörp fluttu Guð-
jón Guðmundsson og Ragnheiður
Ólafsdóttir. Mjög góður rómur var
gerður að máli þeirra. Benedikt
Jónmundsson stjórnaði skemmtun-
inni. íslandsmeistararnir í diskó-
dansi, sjö ungar stúlkur af Skagan-
um, sýndu við mikla hrifningu gesta
og Ómar Ragnarsson skemmti af
sinni alkunnu snilld. Að lokum var
stiginn dans við undirleik hljóm-
sveitarinnar Alfa Beta. Gífurleg
stemmning ríkti á skemmtuninni og
voru samkomugestir einhuga um að
sjálfstæðismenn á Akranesi væru í
mikilli sókn þessa dagana. Nú er
það stuðningsmanna D-listans að
fylgja þessum sóknarhug eftir og
endurheimta fjórða sætið í bæjar-
stjórn.
— Ragnheiður
DAG TIL AÐ
SLÁ ÞÉR Á
KASSETTUTÆKI
FRÁ AKAI MEÐ
20% VERÐLAUNA-
AFSLÆTTI.*
Laugavegi 10
sími 27788
* Miðað vió
staðgreiðslu
80 67
FARÐU EKKITÆKJAVILLT
- TRYGGÐU ÞÉR M IGÆÐI