Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982 Það er mikið ævintýri að skoða bokasafnið nans Stigs bónda Guðmundssonar í Steig í Dyrhólahreppi, þar á hann Vídalínspostillu prentaða 1825 og tímarit Bók- menntafélagsins og Sögufélagsins frá upphafi. Sjálfur hefur hann fengizt við að binda inn bækur sínar og rit, en segist heldur hafa gert minna af því með árunum. Stígur á aukin heldur flestar bækur Laxness, „þó hef ég nú aldrei getað lesið hann“, svo og Hagalíns, sumar þeirra finnst honum góð lesning. „Það var hressilegt þegar hann var að taka kommana af skaftinu,“ eins og hann kemst að orði. Auk þess lumar hann á Lesbókum Morgunblaðsins langt aftur í tímann og var ívið ánægðari með Lesbókina áður og fyrrum, hann telur Árna Óla hafa verið „alveg glimrandi“ í því sem hann gerði. Þótt Stígur sé eldheitur bóka- safnari safnar hann ekki öllu og Ijóð hafa ekki höfðað til hans og hann segist alveg viðurkenna að þessi nýrri skáld kunni hann ekki að meta, en í eldri Ijóðskáld hefur hann gluggað. Við höldum áfram að skoða bókaraðirnar, þarna eru Árbækur Espó- líns, Hallfreðarrímur frá 1851 fyrir nú utan öll helztu sagnfræði- og ættfræðirit sem hafa komið út svo áratugum skiptir. „Það var mest fyrir tilviljun að ég fór út í að safna bókum," segir hann mér. „Engin efni voru í foreldrahúsum. En það var áhugi á bókum samt og föður- bróðir minn keypti svolítið af bókum. Um tíma reykti ég, svo varð ég svo blankur að ég varð að gera upp við mig hvort ég vildi heldur reykja eða kaupa bækur og síðan hef ég ekki reykt. Eg er ánægður með það. Ég er fæddur á Brekku, sem er hérna ögn austar. Þar voru fjórir bæir og þar var ríkisjörð. Foreldrar mínir voru húsmenn þar. Svo losnaði Steigin og þau fluttust hingað. Steig er gamalgróið en líklega þó ekki landnámsjörð. Þeir sem settust hér að upphaf- lega get ég mér til um, að hafi verið komnir frá Steig í Noregi. í Njálu er talað um Steigarháls- inn hér upp af. Á þessum árum átti Halldór Jónsson kaupmaður í Vík jörðina, ég keypti hana reyndar ekki fyrr en löngu eftir að foreldrar mínir komu hingað, en það var upp úr 1930. — Nei, það var ekki mikill búskapur. Hafursá gerði einatt usla og stórskemmdi í leysing- um, en síðan var henni veitt í nýjan farveg og það breytti mjög til hins betra. Það voru engin efni, hvorki hér né annars staðar fyrr en stríðið kom. Það var mis- munandi mikið sultarlíf. Ein- staka heimili sem töldust bjarg- álna þættu ekki burðug núna. Víst mátti þetta breytast og batna en mér finnst við hafa far- línu, en átta voru á netunum. Mér féll sjómennskan ekkert meira en svo og get ekki sagt ég hafi harmað það neitt þegar þetta lagðist af. — Svo kom herinn og þeir voru með nokkra bragga í Vík, en það fór ekki mikið fyrir þeim og ég man nú ekki til að aukin vinna á þessum slóðum fylgdi þeim. Það hefur þá ekki verið neitt sem heitið getur. En þá fór margt fólk að tínast í burtu í Bretavinnu og síðan Kanavinnu. Fæst af þessu fólki skilaði sér heim aftur. Þetta var ævintýra- mennska í flestum, það langaði fólkið að sjá sig um og átti von í aur, það er ekki hægt að HEIMSÓKN TIL STÍGS Á STEIG „Bóndi og bækur — það hefur farið mæta vel saman“ ið of geyst í sakirnar. Þegar for- eldrar mínir settust hér að voru 3—4 beljur og þrjátíu ær, útihús voru handónýt og íbúðarhúsið var flutt að Litla- Hvammi. For- eldrar mínir áttu átta börn en aðeins þrír bræður náðu ferm- ingaraldri og þar yfir. Þegar fað- ir minn hætti tók ég við, í kring- um 1940, þá voru bræður mínir farnir að heiman. Ég fór á tíu vertíðir til Eyja frá 1932, en þá var ég átján ára gamall. Þá til- heyrði það að ungir menn héðan færu á vertíð. Nú er það liðin tíð, þó svo að einn og einn bregði sér þangað í vinnu, ég segi það ekki. En þá fóru allir sem vettlingi gátu valdið og heimilin urðu að missa af vinnukraftinum um sinn, þetta var í eina skiptið sem maður sá peninga. Ég man að ég hafði 175 krónur á mánuði, en lítið eitt meira ef maður keypti fæði í einkahúsum. Hagur Eyja- manna var góður eins og alla tíð, miklu jafnbetri en hér. Megnið af bátunum sem var róið á, voru á bilinu 8—20 tonn og aðallega var veitt í salt. Á þessum bátum voru fimm menn ef verið var á hneykslast á því. Ég man eftir að einhver kastaði þessu fram: Komi konuskari kvennasetulið sumt af íslands sonum sykki í ástandið. Það var nú svoleiðis. Og mætti segja mér að kallarnir hefðu ekkert verið betri ef þannig hefðu æxlazt mál. Fólk er alls staðar eins. Nú er búið myndarlega í Steig og þar er hátt á þriðja tug nautgripa og 80—90 kindur. Ég spurði Stíg hvenær hann hefði ráðizt í að fara að stækka. — Ég byrja sjálfsagt eins og fleiri fyrir alvöru í kringum 1948 þegar vélarnar fara að koma. Þrjár dráttarvélar komu í hreppinn og það urðu miklar breytingar þegar menn áttuðu sig á hvað margt var hægt að gera. Ég er á því, eins og ég sagði, að við höfum farið of hratt í þetta, bændur, og það bitnar á okkur nú. En ef ekki væru jafn margir milliliðir í því að selja vörurnar okkar væri hagurinn betri. Ég hef trú á því. Annars á maður ekki að vanþakka fram- farirnar. Hugsa sér til dæmis sláttinn. Áður stóð maður og barði með orfi frá morgni til kvölds, nú lýkur maður þessu á nokkrum tímum. Þetta mátti breytast, en það er bara svo margt sem flæktist með, og ekki allt af betra taginu. En smám saman hefur þetta byggzt upp hjá mér. Nú orðið verka ég nán- ast allt í voth'ey, mér finnst ekk- ert vit í öðru á þessum slóðum, en það eru ekki margir hér um slóðir sem hafa farið út í vot- heysverkun. Stígur festi ráð sitt upp úr 1950. Þá hafði móðir hans staðið fyrir búi hans um hríð, en 1950 kom til hans til ársvistar þýzk stúlka, Gízella, sem síðar varð kona hans. Gízella segir mér að hún hafi komið hingað 17 ára, árinu áður. Hún var ár á bæ undir Eyjafjöllunum og síðan ætlaði hún að halda heimleiðis vorið 1950. Þótt ekki væri björgulegt í Þýzkalandi á þeim árum, langaði hana þó til að fara heim. Þegar til Reykjavíkur kom, varð hún þess vísari að hana vantaði nokkur hundruð krónur til að eiga fyrir farinu. Hún ákvað því að vera ár í við- bót og safna þessum peningum. Þá réð hún sig á Steig, það varð úr að hún ílentist þar. Hún talar sérstaklega góða íslenzku, raun- ar heyrist það naumast á mæli hennar, að hún sé útlendingur og henni verður aldrei á að beygja orð skakkt. Nokkrar af þýzku stúlkunum sem komu á þessum árum í sveitina urðu um kyrrt, ein býr í Vík og tvær austur á Síðu. Aðrar festu ekki yndi og héldu í burtu. Við snúum okkur aftur að því að tala almennt um breytingar á búskaparháttunum eftir að stríðinu lauk. Stígur segir að hann hafi losað sig við hesta, aðra en brúkunarhesta. Hann fékk sér ekki dráttarvél strax, en eftir að hann fór að byggja upp festi hann kaup á vél. — Það var erfitt að kaupa vélar og byggja upp, en dýrtíðin hefur verið mörgum hjálp. Hún hefur verið bæði vond og góð. Margir hafa orðið stórefnamenn á dýrtíðinni. Nú hefur dregið úr framkvæmd- um vegna breytinga á öllum lán- um og þetta lítur ekki björgu- lega út. Okkur stórvantar á, til að við fáum fullt mjólkurverð fyrir sauðfjárafurðir. Hér hefur verið lögð áherzla á kúabúskap eftir að við fórum að stækka við okkur; vegna landþrengsla er ekki hægt að hafa hér fjárbú sem neinu nemur. Ef þessi stöðnun heldur áfram, sem nú er hér í sveit, er viðbúið að unga fólkið fari í bæ- inn, það minnkaði á tímabili en nú hefur það breytzt til hins verra. Það er ekkert við því að segja, unga fólkið hér á ekki kosta völ — ekki að neinu að hverfa. — Að vera bæði bóndi og bókamaður? Það fer ágætlega saman. Mér þykir vænt um bæk- urnar mínar þótt langt sé frá að ég sé alæta á bækur, en ég fylg- ist svona með þeim og lána þær ekki hverjum sem er. Og ég hef vonandi aldrei verið svo óráð- deildarsamur að ég hafi látið þetta rekast á. Bóndi og bækur — það getur farið vel saman, ekki hef ég orðið annars var. Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.