Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
eureka
4300
Ralph McKinzie var íþróttaþjéll-
ari Reagans í skóla.
Henry og Bill Tanton.
búar Eureka eru hreyknir af að Reagan útkrilaóist
fré héskóla bæjarins.
minnst ríkisafskipti, meta fjöl-
skylduna og frelsi þjóðarinnar
mikils, vilja efla varnir landsins
og styðja frjálsa verslun. Af-
koma þeirra byggist að miklu
leyti á útflutningi. Þeir vilja
selja Sovétmönnum sem mesta
kornvöru þótt þeir treysti þeim
ekki hætis hót. Þeir eru flestir
opnir fyrir nýjungum og tilbúnir
að taka áhættu ef hún getur leitt
til betri afkomu í framtíðinni.
Reagan kemur frá þessu um-
hverfi og hann á enn margt sam-
eiginlegt með þessu fólki. Heim-
sókn á mjólkurbýli bræðranna
Bill og Henry Tanton skammt
frá Eureka gaf innsýn í viðhorf
Reagans til lífsins og þessa
lands. Tanton bræðurnir eru
þriðja Tanton kynslóðjin á
Tanwood-bóndabýlinu og Chuck
sonur Henrys er tilbuinn að taka
við. Þeir rækta um 300 hektara
og eiga 300 kýr. Þeir hafa há-
skólapróf í búfræði og nota sér
allar nýtar nýjungar við rekstur
býlisins. Helmingur kúnna er
mjólkaður daglega og tölva
hjálpar til við að reikna út
hvernig hægt er að fá sem mest
úr hverri kú. Mýkjan er geymd
og notuð sem áburður en Tanton
bræðurnir hafa hætt að plægja
akrana þar sem það er ekki leng-
ur talið gott fyrir moldina. Þeir
vonast til að verð á tækjabúnaði
sem mun gera þeim kleift að
vinna metyl úr mykjunni og nota
sem orkugjafa á bænum lækki
fljótt. Nú þegar spara þeir mikið
í orkukostnaði með að nota tæki
sem fundið var upp í sambandi
við tunglferðina og gerir þeim
kleift að nota hitann sem þeir
verða að kæla mjólkian niður
um, áður en hún er hreinsuð til
að hita allt vatn notað á bænum.
Tanwood er mjög snyrtilegt
býli. Mary kona Henrys kennir
ensku í barnaskóla hreppsins
auk þess sem hún sér um heimil-
ið. Börnin hafa öll flutt að
Mary Tanton meó vini Ijölskyld-
unnar Iré Bangladesh.
heiman en þau koma oft og
borða steik og bakaðar kartöflur
með foreldrum sínum og drekka
glænýja mjólk. Þau hafa öll
ferðast víða og hafa áhuga á
fleiru en búfræði. Skiptinemar
hafa dvalið hjá þeim og þau hafa
gaman af að kynnast siðum ann-
arra þjóða. Þau biðja borðbæn
og eru þakklát fyrir það sem guð
hefur gefið þeim. Þau vilja
hjálpa fátækum, sjúkum og öldr-
uðum, en þau vilja gera það sjáif
eða í gegnuim sveitastjórnina.
Þau telja alríkisstjórnina sóa
peningum með því að nota ótrú-
legan fjölda milliliða til að
hjálpa fólki sem þau geta hjálp-
að beint. Þau treysta ekki Sovét-
mönnum og hryllir við tilhugs-
uninni um kommúnisma en vilja
selja þeim sojabaunir og maís ef
þeir vilja kaupa. Framar öllu
vilja þau lifa í friði og spekt,
mjólka sínar kýr og vilja náung-
anum vel.
Regan hefur jafnmikla trú á
einstaklingnum og þetta fólk.
Hann ólst upp við fátækt og
gekk í háskóla á kreppuárunum.
Með því að vera þrautseigur og
missa ekki trúna á sjálfan sig og
framtíðina komst hann áfram og
gegnir nú einu mikilvægasta
eimbætti heimsins í dag. Hann
hefur ekki svör við öllum spurn-
ingum á reiðum höndum, en
hann veit hvað hann vill. Hann
telur að hugmyndir sínar muni
reynast þjóðinni vel og því reyn-
ir hann ótrauður að hrinda þeim
í framkvæmd.
ab
bemskuslóðum
Reagans
Ronald Reagan er kominn heim
úr sinni fyrstu Evrópuferð síðan
hann tók við forsetaembætti. Mik-
ið var gert úr ferðinni í Bandaríkj-
unum. Hann heimsótti m.a. Lond-
on, París, Róm og hitti páfann,
kóngafólk og forseta. Erindið til
Evrópu var að sitja fundi leiðtoga
frjálsu iðnríkjanna og Atlants-
hafsbandalagsþjóðanna. Vonast
var til að frammistaða Reagans
myndi sýna Evrópubúum að hann
er ekki bara einhver „skotglaður
kúreki", eins og margir virðast
halda, og Bandaríkjamönnum að
hann er þjóðarleiðtogi sem þeir
geta verið stoltir af.
Undirbúningur að ferðinni
stóð lengi. Dagskráin var samin
með sjónvarpsáhorfendur í huga
og séð til þess að fundir og mót-
tökur ættu sér stað á þægilegum
tíma fyrir morgun- og kvöld-
fréttir. Sú skoðun er algeng að
Reagan liti heiminn of einföld-
um augum og hann sé ekki nógu
vel heima um ýmis mál og smá-
atriði. En hann þykir koma ein-
staklega vel fyrir og vinnur sér
marga stuðningsmenn með
framkomunni einni saman.
Hann þykir hafa nokkuð áreið-
anlegt „pólitískt nef“ og oft sýna
mjög góða dómgreind. Andstæð-
ingar Reagnas segja hann
skotglaðan og kærulausan um
velferð almennings. Stefna hans
í utanríkismálum sýnir hins veg-
ar að hann vill beita ýmsum ráð-
um til að koma í veg fyrir heims-
styrjöld og Helmut Schmidt,
kanslari Vestur-Þýskalands,
segist t.d. aldrei hafa talið Reag-
an hættulegan forseta. Sjálfur
segist Reagan finna sárt til með
þeim sem minna mega sín í þjóð-
félagingu. Lífsskoðun hans kem-
ur í veg fyrir að hann vilji grípa
til ríkissjóðs í tilvikum þar sem
hann telur einkageirann geta
gert meira og varanlegra gagn
fyrir einstaklinga og þjóðina
alla.
Reynsla Reagans sem kvik-
myndaleikara í Hollywood var
notuð gegn honum í forsetakosn-
ingabaráttunni. Hún hlýtur þó
að koma honum vel nú þegar
dagskrá forsetans er sett saman
með sjónvarpsfréttir í huga.
Hann hefur aldrei skammast sín
fyrir fortíð sína og hefur gaman
af að rifja upp gamlar sögur frá
Hollywood-árunum. Flestir vinir
hans eru frá þessum árum og
þegar hann var ríkisstjóri í Kali-
forníu. Lífsskoðun hans mótað-
ist þó ekki í Kaliforníu. Hún á
rætur sínar að rekja til Illinois,
hjarta Bandaríkjanna, þar sem
hann er fæddur og uppalinn.
Reagan hefur haldið tryggð
við sitt gamla heimaríki og hann
metur litla háskólann sem hann
sótti í Eureka mikils. Hann
hlaut almenna menntun þar og
fáir höfðu heyrt skólann nefnd-
an áður en Reagan varð forseti.
Hann var ekki nema meðal góð-
ur nemandi, en hann segir að
fátt hafi komið sér að jafn góðu
gagni í lífinu og menntunin sem
hann hlaut í Eureka. Gamli
íþróttaþjálfarinn hans, Ralph
McKinzie, er 86 ára og lifir enn.
Regan heldur ávallt sambandi
við hann og McKinzie hefur
heimsótt hann í Hvíta húsið.
„Hann er einstaklega einlægur
og auðmjúkur maður," sagði
McKinzie um Dutch eins og
hann kallar Reagan. „Ég er ekki
sammála öllu sem hann gerir en
ég veit að hann er sannfærður
um að hann er að gera það sem
þarf að gera og hann meinar vel.
Hann var ekki sérstaklega góður
í (amerískum) fótbolta en hann
lék vel með liðinu. Það sást strax
í skóla að hann hafði forystu-
hæfileika."
McKinzie sagði að Reagan
hefði verið stilltur og prúður
piltur. Einn nemandi í skólanum
sagðist hafa heyrt að hann hefði
þó átt það til „að detta í það“.
Eitt sinn brá hann sér upp í tré á
leiðinni heim seint um kvöld.
Þegar honum varð litið niður sá
hann glitta í skínandi stjörnu
lögregluþjóns. Hann brosti sínu
blíðasta, veifaði og sagði:
„„Twinkle, twinkle little star,
who the hell do you think your
are?“
Einu gróðursælustu akrar
Bandaríkjanna liggja allt í
kringum Eureka. Bændurnir
sem rækta þar eru meira fyrir
mjólk en mjöð. Þeir eru yfirleitt
íhaldssamir. Þeir vilja sem
Reagan é sér marga aödéendur é heimaslóöum sínum.