Morgunblaðið - 13.06.1982, Síða 29

Morgunblaðið - 13.06.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 77 1^L?AKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MANUDEGI TIL FÖSTUDAC TIL FOSTUDAGS Ljóðin óskast í heild Kæri Velvakandi. Eg hef orðið þess var að þú leys- ir svo mörg vandamál annarra, og þá tel ég þig líklegan að leysa einnig mitt vandamál. Arið 1920 kom ég í hús á ísafirði og þar lá bók á borði og tók ég hana og fór að lesa hana yfir. I henni voru tvö ljóð, sem mér eru enn þann dag í dag hugstæð, en ég kann þau ekki öll. En það sem ég kann úr þeim er á þessa leið: í litlum bæ, langt frá sæ laugaðan í dögg og blæ móðir mín þar sefur morgunljósið vefur enni hennar bjart og ? blítt og rótt hún sefur. Hitt kvaeðið er svohljóðandi: I*á var það, hann kom og kvaddi mig hann kvaðst þurfa að sigla um ókunn lönd og gæfunnar gengi að reyna. En aldrei síðan sá ég hann né sagnir af neinum frétta vann en báran hún brotnar við steina. Ég tek það fram að þetta eru slitur úr þessum ljóðum, en mér hafa þau alltaf verið hugstæð og væri þakklátur, ef þú gætir upp- fyllt sextíu og tveggja ára hugsun mína að fá ljóðin í einni heild. Með bestu þökk fyrir væntan- lega aðstoð. NN. Þessir hringdu . . Oendurgreitt þátttökugjald frá ráðningarþjónustu 7608-2588 hringdi vegna þess að dóttir hennar hafði nú í vor leitað til ráðningarþjónustu við Laug- arveginn, sem hafði auglýst sig sem slíka. Þetta hefur sennilega verið um mánaðamótin apríl-maí, sem hún fór og skráði sig þarna og borgaði 70 krónur. Síðan gerðist ekkert, hún fékk ekkert atvinnu- tilboð, þangað til fyrir svona um það bil þrem vikum að það var hringt frá ráðningarþjónustunni og sagt að þeir væru að hætta starfseminni, og dóttur hennar yrði endursent þátttökugjaldið sem hún hafði greitt. En það hefði ekkert bólað á því ennþá, og hún vissi um fleiri sem hefðu orðið fyrir sömu reynslu. Hún vildi vekja athygli á þessu, ef það væru fleiri sem eins væri ástatt fyrir. Það væri einfalt mál, fyrir þann sem kærði sig um, að stofna svona fyrirtæki, taka inn á því peninga, og leggja það síðan niður eftir nokkra daga. Ef það væru margir, sem hefðu borgað 70 krónur, þá væri þetta fljótt »ð safnast saman í töluverða upp- hæð. Efni Listahátíðar illa kynnt Listunnandi hringdi og sagði að sér fyndist efni Listahátíðar illa auglýst, það hefðu verið atriði sem hann hefði ætlað að sjá, sem hefði verið búið að sýna áður en hann vissi af, þótt hann kæmist vissu- lega ekki yfir að sjá og heyra allt sem hann langaði til, því það væri vissulega ýmislegt á Listahátíð sem væri mjög áhugavert. Þá þætti honum hart að missa af áhugaverðu efni. Þá fannst honum að kynna mætti það efni betur sem ætlunin væri að sýna, bæði til að auka áhuga fólks, og eins svo það viti betur hverju það má búast við. Þannig væru slegnar tvær flugur í einu höggi. Frá Listahátíð 1980. Gáta NN sendir okkur gátu: Glugga veit ég væna tvo vera húsi einu á, enginn þeirra missa má, margt er gegnum þá að sjá kostur sá er einn þeim á, að innum þá ei neitt má sjá, þar sem æskan á sér ból í þeim speglast von og sól, þegar fjölga elli ár i þeim stendur sorg og tár, hvar sem gifta og gengið er gleðin í þeim vaggar sér, æskumorgunn, ellikvöld á þá mála hulin völd, margt þá hugsar húsbóndinn, hlátur, ótta, grát, ástar heiðan himininn, hatur, reiði, fát, ótal litum lífsins með líturðu á það mannsins beð, get og lær nú gátu mina, Gunna litla, Sigga og Stína. 'unKny :j» uiSutupe^ GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Aukningin nemur þrjátíu prósent. Rétt væri: Aukningin nemur þrjátíu próscntum. (Ath.: pró- sent er eitt orð (að sjálfsögðu með áherslu á fyrra at- kvæði: prósent); það er hvorugkyns (prósentið) og merkir hundraðasti hluti.) SIG6A V/öGA fi \iLVt9AU SAGA H0TEL Kaupmannahöfn, Colbjernsensgade 20, DK-1652 Copenhagen, sími (01 >-24-99-67 Staösett 200 fm frá járnbrautarstöðinni, 300 m frá Tívolí og 700 fm frá Ráðhústorginu. íslendingar fá 10% afslátt. Eins manns herbergi án baðs frá kr. 145—165. Tveggja manna herbergi án baös frá kr. 240—260. Eins manns herbergi meö baði kr. 230—240. Tveggja manna herbergi með baði frá kr. 340—360. Morgunmatur innifalinn. Litasjónvarp og bar. Með vinarkveðju frá Bredvig-fjölskyldunni með ósk um gleðilegt sumar. VIDEO-DREIFING Viöskiptavinur okkar vel þekkt norskt fyrirtæki meö einkarétt á videóspólum óskar eftir umboösmanni á íslandi. Umboösmaöur viöskiptavinar okkar kemur fljótlega til Reykjavíkur. Þeir, sem hafa áhuga eru vinsamlega beönir aö hafa samband viö. HAUGAN & ESPESETH ADVERTISING AGENCY A/S P. O. BOX 2467 SOLLI • OSLO 2 - NORWAY TEL. (02) 418290 ALLTAF Á ÞREkJUDÖGUM NYJUSTU FRÉTTIR FRÁ HM Viötal viö Jupp Derwall þjálfara V-Þjóöverja 5. UMFERÐ í 1. DEILD Itarlegar og spennartdi íþróttafréttir \MmM 3 SJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.