Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982 DOMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson, predikar, dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Safnaðarheimili Ár- bæjarsóknar kl. 11 árd. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1, kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11. Sr. Jón Bjarman predikar, organleikari Guöni t>. Guðmundsson. Sóknarnefndin. ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl. 10. Sr. Þorsteinn Björnsson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organleikari Árni Ar- inbjarnarson. Kvöldguðsþjón- usta með altarisgöngu, ný tónlist, kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Samleikur á fiölu og orgel: Unnur María Ingólfsdóttir og Höröur Áskelsson. Sr. Karl Sig- urbjörnsson þredikar. Þriðju- daga, fyrirbænaguösþjónustur kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. (Síöasta messa fyrir sumarleyfi.) Ræöuefni: Margur hyggur auð i annars garði. Prestur Sr. Sigurður Hauk- ur Guðjónsson, organleikari Jón Stefánsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugard. 26. júní, guðsþjónusta Hátúni 10B, 9. hæö, kl. 11. Sunnud. messa kl. 11. Altaris- ganga. (Ath. síðasta messa fyrir sumarleyfi starfsfólks kirkjunn- ar.) Hallgrímur Hallgrímsson, Bláskógum 7, Reykjavík, veröur fermdur. NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11. Félagsstarf aldraðra: Fjög- urra daga ferö til Akureyrar, Húsavíkur og Mývatnssveitar 21. júlí. Þátttaka tilkynnist kirkju- verði i síma 16783 sem veitir all- ar upplýsingar í viötalstímanum milli kl. 17 og 18 mánudaga til föstudaga, fyrir miðvikudaginn 7. júlí. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÓKN: Guðsþjónusta Ölduselsskóla kl. 11. Síöasta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi. Fimmtudagur 1. júlí, bænastund Tindaseli 3, kl. 20.30. Sóknar- prestur. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 2. Organleikari Siguröur ís- ólfsson. Prestur sr. Kristján Rób- ertsson. Safnaðarprestur. DÓMKIRKJA KRISTS konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág- messa kl. 2 síðd. Alla rúmhelga daga er lágmessa kl. 6 síöd. nema á laugardögum þá kl. 2 síðd. Guöspjall dagsins: Lúk. 15: Hinn týndi sauóur. FELLAHELLIR Kaþólsk messa kl. 11 árd. KIRKJA ÓHÁÐA safnaðarins: Messa kl. 11 árd. Einleikur og einsöngur. Þetta er síðasta messa fyrir sumarleyfi. Sr. Emil Björnsson. FILADELFÍUKIRKJAN: Almenn guösþjónusta kl. 20. Ræðumenn Hafliöi Kristinsson og Guðni Ein- arsson. Fórn til barnaheimilisins í Kornmúla. KIRKJA JESÚ KRISTS hinna siöari daga heilögu, Skólavörðu- stíg 46: Sakramentissamkoma kl. 14. Sunnudagaskóli kl. 15. GARÐA- og VÍOISTAÐASÓKN- IR: Guðsþjónusta í Garðakirkju kl. 11 árd. Sr. Bragi Friöriksson. KAPELLA ST. Jósefssystra í Garðabæ: Hámessa kl. 2 siöd. HAFNARFJARÐARKIRK JA: Messa kl. 11 árd. Sóknarprestur. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30 árd. Rúmhelga daga messa kl. 8. KAPELLAN St. Jósefsspítala: Messa kl. 10 árd. KEFLAVÍKUR- og NJARDVÍK- URPREST AKÖLL: Messa kl. 10.30 árd. í Keflavíkurkirkju. Fermd verða De Anne Renee Stansberry og Siguröur Stans- berry, Sólvallagötu 10, Keflavik. Sr. Ólafur Oddur Jónsson. ÞINGVALLAPRESTAKALL: Messað í Þingvallakirkju kl. 14. Organleikari Einar Sigurösson. Sóknarprestur. GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. Nokkrir þeirra lisimálara, sem myndir eiga á sýningu l.istmálarafélagsins ad Kjarvalsstöðum. Taldir frá vinstri: Valtýr Pétursson, Gunnar Örn Gunnarsson, Kjartan Guöjónsson, Sigurður Orlygsson, Jóhannes Jóhannesson, Hafsteinn Aust- mann og Kinar G. Baldvinsson. Myndlistarsýning Listmálarafélagsins Aðalfundur Kaup- félags Skagfirðinga Listmálarafélag íslands opnar sina fyrstu samsýningu í dag, laugar- daginn 26. júní, klukkan 15.00 og stendur sýningin yfir til sunnudags- ins II. júlí og verður opin daglega frá 14—22. Allir félagsmenn, 21 að tölu, eiga myndverk á sýningunni, og gera má ráð fyrir að alls verði sýndar 80—90 myndir, sem fæstar hafa verið sýnd- ar áður. Flestar stefnur í málaralist eiga þarna einhvern fulltrúa, verk í anda hlutstæðrar, óhlutstærðar og figúratívrar listar verða, svo dæmi sé tekið, á sýningunni. Segja má að það eina sem þessir listmál- arar eiga allir sameiginlegt sé að mála með pensli, og að sögn þeirra listmálara sem Morgunblaðið hitti á Kjarvalsstöðum við uppsetningu sýningarinnar, er pensillinn aftur kominn í fullt gildi, þannig fari þróunin í hring, þrátt fyrir ýmis tískufyrirbrigði eins og ljósmynd- unina til dæmis. Svo að segja allar myndirnar eru málaðar í olíu eða akrýl, og um það bil 40 ár eru milli þess yngsta og elsta sem sýna á sýningunni. Þeir sem myndir eiga á sýning- unni eru: Ágúst Petersen, Bragi Ásgeirsson, Einar Baldvinsson, Einar Hákonarson, Einar Þor- láksson, Elías B. Halldórsson, Guðmunda Andrésdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Hafsteinn Aust- mann, Hrólfur Sigurðsson, Jó- hannes Jóhannesson, Karl Kvar- an, Kjartan Guðjónsson, Kristján Davíðsson, Sigurður Sigurðsson, Sigurður Örlygsson, Steinþór Sig- urðsson, Svavar Guðnason, Valtýr Pétursson, Vilhjálmur Bergsson og Þorvaldur Skúlason. Listmálarafélag Islands var stofnað 15. apríl 1982. Því er ætlað að gæta hagsmuna félagsmanna og vera vettvangur, þar sem þeir geta hist og rætt sameiginleg áhugamál og viðfangsefni. Félags- menn eru áfram félagar í Félagi íslenskra myndlistarmanna. Á Kjarvalsstöðum eru einnig tvær aðrar sýningar í gangi, sem opnaðar voru meðan listahátíð stóð yfir. Önnur ber nafnið „Af trönum Kjarvals" og er sýning á verkum Kjarvals í eigu Reykjavík- urborgar. Þá er Magnús Tómasson með sýningu á verkum sínum. Sýningarnar eru opnar daglega 14-22. AÐALFUNDUR Kaupfélags Skagfirðinga fyrir árið 1981 var haldinn á Sauðárkróki, laugardag- inn 12. júní. Á fundinum áttu rétt til fundarsetu 58 kjörnir fulltrúar deilda, auk deildarstjóra, stjórnar, endurskoðenda og kaupfélags- stjóra. Einnig sátu fundinn all- margir gestir. I upphafi fundar minntist stjórnarformaður, Jóhann Salberg Guðmundsson, sýslumaður, þeirra félagsmanna er látist höfðu frá síðasta aðalfundi. I ræðu stjórn- arformanns Jóhanns Salbergs Guðmundssonar kom m.a. fram, að heildarfjárfestingar félagsins á síðasliðnu ári námu tæplega 5,5 milljónum króna. Af einstökum fjárfestingarverkefnum bar hæst nýbyggingu félagsins við Ártog á Sauðárkróki, sem hýsa mun aðal- stöðvar þess í framtíðinni. I ræðu kaupfélagsstjóra, Ólafs Friðrikssonar, kom m.a. fram að starfsmenn félagsins voru um síð- astliðin áramót 245 að tölu. Fé- lagsmenn kaupfélagsins voru um síðastliðin áramót tæplega eitt og hálft þúsund og á framfæri þeirra töldust vera þrjú þúsund þrjú hundruð fimmtíu og átta manns, að þeim sjálfum meðtöldum. Heildarvelta kaupfélagsins og dótturfyrirtækja þess nam alls 256,3 milljónum króna og hafði 85009 85988 SÍMATÍMI FRÁ 1—3. 2ja herb. íbúðir við: Hjallabraut á 1. hæö. Krummahóla meö bilskýll. Melabraut sér inngangur. Boðagrand meö bílskýll. Laus. Arahóla á 1. og 2. hæö. Álfaskeió meö bílskúr. Eyjabakka á 1. hæö. Suðurhóla á 1. hæö. Hamraborg á 3. hæð. Eiríksgötu. Sér inngangur. Furugrund á 1. hæð. 3ja herb. íbúðir við: Hjallabraut. Sér inngangur. Hraunkamb. Sér inngangur. Hraunbæ á 1. hæð. Hvassaleiti á 1. hæö. Njálsgötu á 1. hæö. Hamrahlíð á 2. hæö. Ásgarð á 3. hæð. 4ra herb. íbúðir við: Kaplaskjólsveg 1. hæö. Álfshólsveg meö bílskur. Breiðvang meö bílskúr. Engihjalla á 5. hæð. Fellsmúla á jaröhæö. Sólheima á 10. hæö. Álftamýrí á 4. hæö. Fífusel á 2. hæð, endi. Ljósheima á 7. hæö. Hraunbær á 3. hæö. 5 herb. íbúðir við: Miðvang á 2. hæö. Furugrund á 2. hæö. Fellsmúla á 1. hæð, endi. Kaplaskjólsveg 4. hæö. Lundarbrekku á 2. hæö. Háteigsvegur á 2. og 3. hæö. Sérhæðir viö: Glaðheima á 1. hæö. Sogaveg á 1. hæð. Kópavogsbraut meö bílskúr, efsta hæð. Móabarð á 2. hæö. Laus. Raðhús við: Ásgarð. Geitland með bílskúr. Bollagarða meö bílskúr. Einbýlishús við: Efstasund meö bílskúr. Grenilund meö tvöföldum bílskúr. Hlíðarhvamm meö bílskúr. Kjöreignr Ármúla 21. Dan V.S. Wiium, lögfræðingur. Ólafur Guðmundsson sölum. aukist um 53,5% frá fyrra ári. Af- koma félagsins reyndist hins veg- ar lakari enn oft áður. Þegar bók- færðar höfðu verið fyrningar að upphæð 4,76 milljónir króna og færð til gjalda verðbreytinga- færsla að upphæð um 138 þúsund krónur, sýndi rekstaruppgjör halla að upphæð 1.358 þúsund krónur. Jóhann Salberg Guðmundsson og Marínó Sigurðsson gengu úr stjórn félagsins og gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. í þeirra stað voru kjörnir í stjórn félagsins þeir Stefán Guðmundsson, alþingis- maður á Sauðárkróki, og Sigurður Sigurðsson á Brúsastöðum. 29555 Opiö 10—3 Skoöum og metum eignir samdægurs. 2ja herb. íbúöir Hraunbær 40 fm einstaklings- íbúð. Verö 600 þús. Boðagrandi 65 fm glæsileg eign meö bílskýli. Fæst ein- göngu í skiptum fyrir 4ra herb. íbúö í vesturbæ. Melabraut ibúö á 1. hæö. Öll nýstandsett. Laus nú þegar. Verð 650 þús. Hverfiagata 60 fm íbúö á 2. hæð. Verö 550 þús. Vantar 2ja herb. íbúð helst í vesturbænum. Möguleg maka- skipti á 3ja herb. íbúð á Hringbraut. 3ja herb. íbúðir Maríubakki 90 fm góö íbúð á 3. hæð. Fæst í makaskiptum fyrir 2ja herb. íbúð í Breiðholti, ekki í Seljahverfi. Efstihjalli 95 fm íbúö á 2. hæö. Selst í skiptum fyrir góöa sér- hæð eða raðhús í Kópavogi. Nökkvavogur 90 fm efri hæö í tvíbýli. Góðar innréttingar. 30 fm bílskúr. Verö 970 þús. Sléttahraun 96 fm íbúö á 3. hæö. Stórar suöursvalir. Nýjar innréttingar. Verö 980 þús. 4ra herb. íbúðir Álfheimar 114 fm íbúð á 1. hæð. Verð 1050 þús. Engihjalli 110 fm á 1. hæö. Furuinnréttingar. Parket á gólf- um. Verð 970 þús. Háaleitisbraut 117 fm á 3. hæö. í skiptum fyrir 2ja—3ja herb. íbúð í Háaleitishverfi, Fossvogi eða Espigeröi. Hvassaleiti 4ra herb. 105 fm íbúð á 2. hæö í skiptum fyrir stóra íbúð með 4 svefnherb. Maríubakki 110 fm á 3. hæö. Stórar suðursvalir. Verð 1050 þús. Glæsibær 2x140 fm. 32 fm bílskúr. Verö 2,2—2,3 millj. Snorrabraut 2x60 fm einbýli. Lítil íbúö í kjallara. Húsiö stend- ur á eignarlóð. Verö 2,2 millj. Kópavogsbraut 140 fm einbýli. Þar er 30 fm kjallari. Stór rækt- uð lóð. Hugsanlegt aö taka 3ja herb. íbúð uppí kaupverð, helst í Hafnarfiröi. Verð 1,6 millj. Úti á landi Keflavík 4ra herb. 110 fm íbúð. Verð 470 þús. Stokkseyri 120 fm einbýlishús á 2 hæöum. Nýuppgert. Tilvaliö sem sumarhús. Verð 600 þús. Grundarfjörður 96 fm einbýli. Verð 575 þús. Tálknafjörður 60 fm einbýli. Verð 1,350 þús. Verslunarhúsnæði Álfaskeið, Hafn. 420 fm fyrir nýlenduvöruverzlun. Verð 2,6 millj. Söluturn — skrifstofuhúsnæöi Bragagata. 22 fm húsnæði með 17 fm kjallara. Mjög hentugt undir söluturn eða skrifstofu. Verö 330 þús. Eignanaust Skipholti 5. Sími 29555 og 29558. Þorvaldur Lúðvíksson hrl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.