Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982 15 Fylgi Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi Eftir Gísla Gunnarsson í leiðara Morgunblaðsins 19. júní sl. var m.a. staðhæft að „þrír af hverjum 10 kjósendum Al- þýðubandalagsins í Kópavogi sögðu skilið við það nú.“ (Þ.e. í sveitarstjórnakosningunum 1982.) í Staksteinum Morgun- blaðsins 22. júní var staðhæfing- in endurtekin. Hlutfallstala þessi er röng. Hér er sígilt dæmi um gagnrýn- islausa heimildarnotkun, einhver hefur reiknað (ranglega) út þessi 30% og síðan hafa aðrir töluna eftir og aðrir eftir þeim o.s.frv. En einmitt röng talnanotkun eins og þessi veldur sívaxandi tortryggni hjá öllum almenningi gagnvart öllum tölum. Kópavogi 1982 og Alþýðubanda- lagið fékk af þeim 1.620 eða 23,3%. 1978 voru gildu atkvæðin 6.373, af þeim fékk Alþýðubanda- lagið 1.738 eða 27,3%. Hlut- fallslegt tap Alþýðubandalagsins frá 1978 til 1982 var þannig 14,7% og er það helmingur þess taps sem Morgunblaðið hefur greint frá. Fyrir stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins er raunar alger óþarfi að ýkja breytingarnar á fylgi Alþýðubandalagsins í Kópavogi frá 1978 til 1982. Nær- tækara og viturlegra væri að benda á þá langtímaþróun sem orðið hefur í Kópavogi undanfar- in 20 ár. Þar hefur upprunalegt vinstra vígi verið að eyðast smám saman og í staðinn hafa kosningaúrslitin þar farið að líkjast úrslitunum í Reykjavík í vaxandi mæli. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur unnið þar fylgi í flestum kosningum og Alþýðu- bandalagið tapað hlutfallslega. Þannig var Kópavogur eina stóra kjördæmið þar sem Alþýðubandalagið bætti ekki hlutfallslega við sig fylgi 1978. Úrslit Sjálfstæðisflokksins þá í Kópavogi eru ekki marktæk til samanburðar þar sem flokkurinn gekk þá þríklofinn til leiks en var í einu lagi bæði á undan og á eftir. 1974 fékk Sjálfstæðisflokkur- inn 37,1% atkvæða í Kópavogi en 1982 42,1% eða aukning um 5% af heildarfjölda kjósenda. Tap Alþýðubandalagsins af heildar- fjölda kjósenda á sama tímabili var 4,6%. Þessi breyting er ein- stæð á iandsvísu og hana er að- eins hægt að útskýra að mati mínu með eflingu „reykvíska kosningamynstursins" í ná- grannabyggðinni Kópavogi. Þetta er raunar ekkert furðulegt því að Kópavogur er í atvinnu- málum hluti Reykjavíkur og horfinn er sá öreigabragur sem einkenndi bæjarfélagið fyrir 1960 og atvinnu/stéttaskipting þar er nú lítt frábrugðin því sem gerist í Reykjavík. Eigi að síður ætti þróunin í Kópavogi að vera stuðningsmönnum Alþýðubanda- lagsins sérstakt áhyggjuefni því að hún kristallar vangetu flokks- ins að ná til nýrra kjósendahópa. Að Austurlandi undanskildu hafa flestir nýir kjósendur Al- þýðubandalagsins komið úr röð- um menntamanna og því hefur ekki tekist að ná launþegafylgi frá Alþýðuflokki eða Sjálfstæðis- flokki. Á sama hátt ætti þróunin í Kópavogi að vera stuðnings- mönnum Sjálfstæðisflokksins sérstakt ánægjuefni því að þau kristalla áframhaldandi styrk hans í öllum þjóðfélagsstéttum á Stór-Reykjavíkursvæðinu, svo og fjölmiðlayfirburði hans. Reykjavík, 23. júní 1982, Gísli Gunnarsson. Ath. ritstj. I fréttafrásögn Mbl. af heildar- úrslitum kosninga í kaupstöðum landsins, bls. 14, 20. maí sl., varð sú prentvilla, að fylgi Alþýðu- bandalagsins í Kópavogi var talið 1220 atkvæði í stað 1620. Hlutfallslegt tap, sem síðar var vitnað til, byggðist á þessari tölu, sem reyndist röng. Ábendingar greinarhöfundar eru því réttar að þessu leyti. Mbl. biður velvirð- ingar á þessum mistökum. Félag áhugamanna um íslenskan sjórétt: Stofnfundur á mánudag MÁNUDAGINN 28. júní 1982 verð- ur haldinn stofnfundur félags áhugamanna um íslenskan sjórétt. Verður fundurinn haldinn í Lög- bergi, húsi Lagadeildar Háskóla ís- lands, og hefst hann kl. 17.15 sd. Allir áhugamenn um íslenskan sjó- rétt, lögfræðingar jafnt sem aðrir, eru hvattir til að mæta á fundinn og ganga í félagið. írréuatilkynning) Svarta perlan á Skólavörðustíg 3 er að opna. Við bjóðum glæsilegan kvenfatnað frá Frakklandi og íslandi. Kvenfatnað, sem hannaðurer af færustu fatahönnuðum og framleiddur er úr úrvalsefnum. Svarta perlan býður fatnað á konur sem þora! Komdu við - ef þú þorir! 5vok1ðí peHöm Skólavörðustíg 3 Reykjavík Sími: 25240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.