Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 30
3 0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982 Carl-Gunnar Ahlen í Svenska dagbladet: Silkitromman — frumflutn- ingur sem markar tímamót Tónlistargagnrýnandi Svenska dagbladet, ('arl-Gunnar Ahlcn, var viðstaddur frumsýningu á Silki- trommunni, óperu Atla Heimis Sveinssonar, í Þjóðleikhúsinu hinn 5. júni sl., og birtist gagnrýni hans um verkið í blaðinu 12. júní. Greinin fer hér á eftir: Islenzk ópera er enn svo ung að hún er ekki búin að slíta barns- skónum. I annálum hennar eru nokkrar barnaóperur frá sjöunda áratugnum og Þrymskviða Jóns Asgeirssonar frá 1974, en þessi verk urðu því miður ekki til að hvetja önnur tónskáld til að fylgja fast á eftir með fleiri verk. Þegar þess er gætt að fyrsta óperusýning á Islandi fór fram 1905 er eftirtektarvert að Þjóð- leikhúsið skuli hafa sett upp hátt í fimmtíu óperur og söngleiki, al- gjörlega með aðfengnum hljóð- færaleikurum og söngkröftum. Það var ekki fyrr en í vetur að fyrsta söngleikahúsið var innrétt- að og það var að þakka örlátum arfleiðanda sem gerði kleift að breyta gömlu kvikmyndahúsi í slíkt hús. Það gerði nokkrum full- hugum mögulegt að fylla húsið af fólki sem vildi sjá Sígaunabarón- inn. Slíkt verkefnaval veitir að sjálfsögðu ekki möguleika á endurnýjun, fremur þvert á móti, en á hinn bóginn hefur Þjóðleik- húsið á að skipa þjálfuðum kröft- um sem koma til góða í framtíð- inni. Þau skilyrði sem framtíð ís- lenzkrar óperu eru búin leiða hug- ann að íslenzkri kvikmyndagerð sem einnig er vöknuð úr dái og er í listrænni viðbragðsstöðu. Það hefur komið ánægjulega á óvart æ ofan í æ síðustu tíu árin hversu góðum árangri samræmt átak í innlendri dramatík hefur skilað, og þetta hefur einnig orðið til að auka sjálfstraustið. Þannig er sem sé í stórum drátt- um grundvöllur þeirra tímamóta sem frumflutningur óperunnar „Silkitrommunnar“ eftir Atla Heimi Sveinsson á laugardags- kvöldið markar, en Atli fékk reyndar tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976 fyrir flautukonsert sinn. Með honum hafa Islendingar nú eignast sinn fyrsta tónlistardramatíker, sem beinast liggur við að líkja við Sví- ana Werle og Edlund eða Finnana Sallinen og Kokkonen. Þetta er meistaraprófraun hans — sönnun- in fyrir hæfni hans til að velja lífvænlegt efni og skapa fólk og umhverfi sem stimplast inn í vit- und hlustandans. Sjálfsvitund íslendinga tengist ekki einungis fornsögum og hinni gömlu norrænu ljóðlist. Frásagn- argleðin er líka íslenzkur eigin- leiki, rétt eins og viðurstyggðin á úrkynjaðri ríkismenningu. Hvort tveggja sameinast í japanska no- leikritinu frá fjórtándu öld, sem fært er yfir í skrumskælda nútíð: tízkuhús fyrir viðrini. Eina raunverulega manneskjan meðal þeirra afskræmdu og ást- lausu vera, sem fram koma í óper- unni er gamall gluggafæginga- maður, sem lætur sig dreyma fyrir framan sýningargluggann og þann varning sem þar er að finna og stendur honum ekki til boða. Þrá hans er bundin við fremstu sýningarstúlku tízkuhússins og til hennar skrifar hann eldheit ást- arbréf og úr hátölurum berast okkur glefsur úr þeim. Eitt þeirra hrifsar tízkuhússtýran sem hæðist óspart að því. Tilheyrendur henn- ar eru þrír karlar sem snúast í kringum hina fögru stúlku án þess að gera annað en að misnota hana peningalega og kynferðislega. Þeim kemur saman um að gera at í manninum. Honum er fengin silkitromma sem hann á að berja úr sönnun þess að stúlkan endur- gjaldi tilfinningar hans. Það er óhugnanlegt að horfa upp á gamla manninn verða að engu af skömm á meðan hann hamast á hinni þöglu trommu. Hann fellur fyrir eigin hendi og sá atburður skilar sér vegna einstæðrar hæfni í leikstjórn Sveins Einarssonar. Við verðum vitni að dauðastundinni sem sýnd er með kvikmynd á nettjaldi — nærmynd af brostnu auga, nær- mynd af hnífnum og blóðinu sem sóðalegum ádrepum frá mér. Hitt grunar mig frekar að hér hafi Rögnvaldur tekið „tempóið of hratt og komið inn einum takti of snemma", eins og sagt er á „tónlist- armáli". Miklu efni hefur Rögnvaldur ver- spýtist, þannig að atriðið líkt og drukknar í blóði. Tónlistin í þessu atriði hefur reyndar djúpa pers- ónulega þýðingu fyrir tónskáldið sem skrifaði hana fyrir útför ná- ins vinar. Eitt af verkum hans sem orðin eru sígild er tónsetning „Landsins sem er ekki“ eftir Edit Södergran. Óperan hafnar líka í þvílíku landi — í ríki dauðans þar sem hljómur- inn verður framandi og söngurinn bylgjast án þyngdarlögmáls. Lokadúett stúlkunnar og hins látna manns, sem ná ekki einu sinni saman í söngnum, er yfir- skilvitlega fagur. Hlutverki stúlk- unnar hefur verið skipt á milli tveggja leikara — dansara og Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, sópransöngkonu, sem syngur með fögrum perlandi tón. Guðmundur Jónsson er raunverulegur braut- ryðjandi í íslenzkri óperu, — segja má að hann hafi verið með í næst- um öllum sýningum frá upphafi. Ég get ekki gert mér í hugarlund göfugri og verðugri túlkun á hlut- verki gluggapússarans en þá sem hann skapaði, og heldur ekki snilldarlegri frammistöðu Rutar Magnússon — hinnar ókrýndu drottningar íslenzkrar sönglistar — í hlutverki hinnar tilgerðarlegu tízkuhússtýru. Hið manneskjulega andspænis hinu ómanneskjulega er andstæðustef sem er ekki einungis komið á framfæri með tónlist heldur auðvitað einnig með svið- setningu sem er svo hugmyndarík að hún slær flest met. Búningar Helgu Björnsson eru ævintýralega djarfir í sniðum og útfærslu og skapa skörp skil við svart-hvítan bakgrunn sviðsins. Sem hugmynd um íslenzka nú- tímalist er Silkitromman mótsögn þegar maður hefur kynnzt því hvernig verkið megnar að kalla á viðbrögð við minnstu hreyfingu. Þessi stórkostlegi óperuviðburður mun án nokkurs vafa kalla á bergmál, einnig utan íslands. ið búinn á löngum tíma að safna til að dengja yfir mig og er nú heldur óþrifalegt yfir að líta í garði mín- um. Ekki mun ég reyna að skila honum þessu skrítna dóti hans aft- ur, heldur fyrirkoma því í skarn- eyðingu gleymskunnar. Að bekkjast við fyrstabekking Tónlist Jón Ásgeirsson Nú er á og svona fer fyrir þeim er ekki haslar sér völl með greini- legum hætti. Höggi er ætlað for- manni og framkvæmdastjóra en þá hleypur varaformaður undir og æj- ar hátt. Vandræði mikil gætu af því hlotist, ef fleiri vildu undir högg mín sækja og þá er hætta á að ég yrði orðinn margfaldur lygari er yfir lyki og færi þá ærudulan fyrir lítið sem var orðin bæði skrautlítil, þvæld og slitin. Lygari vil ég ekki heita og auk þess hef ég reynt að vera hrein- skiptin og vil því biðja Rögnvald um að segja hreint út, hvað hann meini með eftirfarandi setningu ... „enda fer maður ekki í grafgöt- ur með það að þessi skrif eru öll til komin af einhverjum annarlegum (leturbr. mín) hvötum ...“ Ráðleggingum Rögnvaldar til ritstjórnar Morgunblaðsins get ég ekki svarað og um samskipti fram- kvæmdastjóra listahátíðar og starfsmanna Kjarvalsstaða get ég heldur ekki fjallað. Hvert félag á sinn fulltrúa í listahátíðarnefnd og Rögnvaldur Sigurjónsson er fulltrúi Félags ís- lenskra tónlistarmanna (FÍT), sem í eru einleikarar, en ekki annarra tónlistarmanna. íslenska óperan, SATT, Sinfóníuhljómsveitin og Tónskáldafélagið eiga svo sína full- trúa. Ef skipan tónlistarmála lista- hátíðar er sérstakt meðferðarmál Rögnvaldar, án afskipta formanns eða framkvæmdastjóra, get ég skil- ið viðkvæmni hans, er hann alls saklaus hyggur sig standa undir Fyrstuhekkingar við misheppnaða setningu Listahátíðar. Hér sést yfir hinn nýja sýningarsal bílasölu Ingvars Helgasonar. Bílasala Ingvars Helgasonar opnar nýjan sýningarsal: Býöur 15-20% lækkun á Datsun-bifreiðum Ingvar Helgason hf. hefur opnað nýjan 360 mz sýningarsal að Mela- völlum við Kauðagerði, og að sogn Ingvars Helgasonar mun það vera stærsti bílasýningarsalur sinnar teg- undar hérlendis. Ingvar sagði enn- fremur að þar yrðu til sölu og sýnis bílar af gerðunum Datsun, Wartburg, Trabant og Subaru. Júlíus Vífill, starfsmaður bíla- sölunnar, kynnti blaðamönnum nýtt sölufyrirkomulag sem tekið hefur verið upp hjá fyrirtækinu, en það er í því fólgið að viðskiptavin- um bílasölunnar er boðið til borðs í sýningarsalnum og þar er fólki boðið upp á kaffi. Ingvar sagði ennfremur að vegna hagstæðra samninga sem fyrirtæk- ið hefði náð við Datsun-verksmiðj- urnar í Japan gæti fyrirtækið nú boðið viðskiptavinum sínum upp á 15—20% lægra verð heldur en það gat áður meðan Datsun-bifreiðir voru fluttar hingað til lands gegn- um Datsun-umboðið í Danmörku. Fyrsta sendingin frá Japan væri nú komin til landsins. Ingvar sagði ennfremur að varahlutir í Datsun- bifreiðirnar myndu einnig lækka um 15—20% og kæmi það út í lækkuðum viðhaldskostnaði bif- reiðanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.