Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982 Hér hefja þau Fálmi Gíslason, formaður UMFÍ, Kristín Gísladóttir úr Gerplu og Víglundur i’orsteinsson. formaður FII, hjólreiðafórina. * Ungmennafélag Islands: Hjólreiðaför til efling- ar íslenskum iðnaði KLUKKAN 6 í gærdag stigu þau Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, Víglundur Porsteinsson, formaður FÍI, og Kristin Gísladóttir úr Gerplu á reiöhjólin, sem eiga eftir að fara 3.181 kílómetra hringinn í kringum landið í herferð Ungmennafélags Islands til eflingar íslenskum iðnaði, en þessi þrjú fara fyrsta spölinn. Ungmennafélag Islands, sem er 75 ára á þessu ári, ákvað aö tileinka þessu málefni krafta sína undir kjörorðinu „Eflum íslenskt“. Til að vekja athygli á málefninu er ráðgert að hjóla í kringum landið eins og áður segir og væntanlega munu um 6.000 hjólreiðamenn úr hinum ýmsu ungmennafélögum vítt og breitt um landið skiptast á að hjóla þessa leið. Á Lækjartorgi, þar sem hjólreiðin hófst, var saman kominn nokkur fjöldi fólks, til að fylgja hjólreiðafólkinu úr hlaði og voru haldnar ræður af þessu tilefni. Fyrstur talaði Sigurður Geir- hygli á að lakari tímar væru dal, framkvæmdastjóri UMFl, og sagði hann msðal annars, að ungmennafélaginu hefði fundist við hæfi á þessum tímamótum að skipuleggja hátíðarhöld, sem kæmu allri þjóðinni til góða, og búa þannig unga fólkinu betri framtíð. Næstur tók til máls Pálmi Gíslason og sagði hann í ræðu sinni, að ungmennafélögin vildu með þessum aðgerðum vekja at- framundan. Nú tækju sjávarút- vegur og landbúnaður ekki við fleirum til starfa og í framtíð- inni hlyti það að vera iðnaður- inn, sem tæki við megninu af því fólki, sem kæmi á vinnumarkað- inn. Að iðnaðinum þyrfti því að hlúa, til að komist yrði hjá at- vinnuleysi, sem hrjáir mörg nágrannalönd okkar. Sagði hann efnnfremur að brýn nauðsyn væri á að við Islendingar létum af þeim ósið að kaupa erlenda vöru, þegar við gætum keypt jafn góða innlenda vöru. Að lokum tók Friðjón Þórð- arson ráðherra til máls og talaði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Gat hann í upphafi ræðu sinnar þess góða hlutverks, sem ung- mennafélögin í landinu hefðu gegnt í gegnum tíðina og þeirra hugsjóna, sem þau hefðu ávallt haft að markmiði. Hvatti hann að lokum alla landsmenn til að taka undir með ungmennafé- lagsmönnum, „íslandi allt“. I tilefni af þessu verkefni Ungmennafélags íslands, hefur það gefið út blað, sem heitir „Eflum íslenskt" og dreift því um allt land. Blaðið er gefið út í 50 þúsund eintökum og er til að vekja athygli á þessu átaki ungmennafélaganna til að fá fólk til að styðja íslenska fram- leiðslu. r Þorsteinn Pálsson um samningaviðræður ASI og VMSS: Gera ekkert annað en að tefja fyrir samningum „ÞAÐ er augljóst, að þessar síend- urteknu uppákomur, sem Alþýðu- sambandiö stofnar til, fyrst með byggingamönnum og siðan með SÍS-mönnum, gera ekkert annað en að tefja fyrir samningum. Því þrátt fyrir þessar uppákomur á Alþýðu- sambandið eftir að semja fyrir 85% af sínum félagsmönnum,“ sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, t samtali við MbL, er hann var inntur álits á samningavið- ræðum ASÍ og VMSS. — Það má öllum vera ljóst hvaða afleiðingar bygginga- mannasamningauppákoman hafði, sem Alþýðusambandið óneitanlega ber ábyrgð á. Hún bæði tafði og flækti málið mjög. Þessi uppákoma, sem Alþýðu- sambandið hefur stofnað til núna með SÍS-mönnum, hlýtur að hafa sömu afleiðingar. Ég hef því ekki mikið álit á svona vinnubrögðum, sem hljóta að vera sízt til fram- dráttar hagsmunum umbjóðenda Alþýðusambandsins, sagði Þor- steinn Pálsson ennfremur. — Varðandi það, að SÍS telur sig geta samið án svona fyrirvara, þá geta ekki verið nema tvær for- sendur fyrir því. Annars vegar óhemjuhagnaður af rekstri SIS- fyrirtækjanna, að þau þoli að lofa óbreyttum kaupmætti þrátt fyrir 4,5—7% samdrátt þjóðartekna á mann. Hins vegar hlýtur hin for- sendan þá að vera einhver fyrir- heit frá stjórnvöldum, sem okkur er ekki kunnugt um, um að stjórn- ÞORVALDUR Guðmundsson, eig- andi Hótels Holts, hefur opnað nýjan sýningarsal, sem ber heitið Háholt, að Dalshrauni 9b, Hafnar- firði og er salurinn 450 fermetrar að stærð. Þorvaldur sagðist opna þenn- an sal vegna þess að enginn slík- ur salur væri til í Hafnarfirði og hann ætti þetta húsnæði ónotað Hann sagði ennfremur að vand- að hefði verið mjög til saiarins bæði í sambandi við lýsingu og annað. Eftir salnum eru súlurað- völd muni niðurtelja vísitöluna með lögum. Því ekki dettur mér í hug, að SÍS-forystan fari í þessar viðræður af ábyrgðarleysi, sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri VSÍ að síðustu. ir, þannig að mjög auðvelt er að setja upp skilrúm bæði til að auka sýningarrúm og breyta uppröðuninni í salnum, og hann hentaði því vel, bæði til vöru- og mál verkasýn i nga. í fordyri salarins er einnig að- staða til að sýna myndir og þar hefur Þorvaldur m.a. komið fyrir eina flosteppinu sem til er eftir Asger Jorn. I sama húsi er einnig geymt Lífshlaup Kjarvals í traustri geymslu. Þorvaldur er sem Þorvaldur Guðmundsson opnar nýjan sýningarsal í Hafnarfirði: Margar skoðanir á lofti um hvað eigi að gera við Lífshlaup Kjarvals Japanir íhuga kaup á kindakjöti VEGNA örðugleika á sölu kindakjöts erlendis hafa íslensk stjórnvöld falið einkaaðila að eiga viðræður við aðila í Japan um hugsanlega sölu þangað. Þetta kom fram í samtali Mbl. viö Pálma Jónsson, landbúnaðarráöherra, i gær. Pálmi staðfesti að frumviðræður hefðu þegar farið fram og hann gerði ráð fyrir að Japanir sendu fulltrúa hingað til lands í sumar til að ræða málin frekar og ganga úr skugga um hvort þessi möguleiki væri raunhæfur. Ráðherra sagði: „Ef þarna opnast markaður, er ljóst að framleiðsla okkar íslendinga er ekki nema dropi í það haf.“ Ingi Tryggvason, formaður Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins, kvaðst ekkert hafa heyrt um þennan hugs- anlega sölumöguleika nema af af- spurn. Hann sagði, að ef ekkert nýtt gerðist í sölumálum væri ljóst að við upphaf sláturtíðar í haust yrðu á milli 1 og 2 þúsund tonn af kinda- kjöti óseld. Að sögn Inga Tryggvasonar eru ástæður vandans nú fyrst og síðast breytt viðhorf Norðmanna, en þeir hafa á undanförnum árum keypt rösklega helming þess kjöts sem við höfum haft til útflutnings. í stað þeirra 2 til 3 þúsund tonna, sem þeir hafa jafnan keypt, kaupa þeir nú aðeins 600 tonn. Ástæður þessa eru hvort tveggja minnkandi niður- greiðslur þar í landi og framleiðslu- aukning samfara minnkandi sölu. Ingi Tryggvason sagði, að útflutn- ingsuppbætur hefðu farið hækkandi að undanförnu og næmu nú 60 til 70% af heildsöluverði. Þessu vlli dræm sala, verðbólga, auk vaxta- og geymslukostnaðar. Dr. Finnur Sigmundsson fyrr- verandi landsbókavörður látinn DR.FINNUR Sigmundsson, fyrrver- andi landsbókavörður, lézt í Reykja- vík síðastliðinn fimmtudag, 88 ára að aldri. Finnur fæddist 17. febrúar 1894 að Ytra-Hóli í Kaupangssveit í Eyjafirði. Foreldrar hans voru Sigmundur Björnsson bóndi þar og kona hans, Friðdóra Guð- laugsdóttir. Finnur lauk gagn- fræðaprófi frá Akureyri 1917 og stúdentsprófi utanskóla frá Menntaskólanum í Reykjavík Jón Gunnarsson opnar sýningu í Hafnarfirði I DAG, laugardaginn 26. júní, opnar Jón Gunnarsson, málverkasýningu í nýjum sýningarsal „Háholti", Dalshrauni 9b, Hafnarfirði. Á þessari sýningu sýnir Jón um 70 verk, bæði olíumyndir og vatns- litamyndir, og eru flestar mynd- irnar frá sjávarsíðunni. Þetta er 15. einkasýning Jóns, en hann hef- ur auk þess tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22 og lýkur henni 11. júlí nk. Finnur Sigmundsson 1922. Hann lauk magistersprófi í íslenzkum fræðum frá Háskóla ís- lands 1928 og árið eftir varð hann aðstoðarbókavörður við Lands- bókasafnið í Reykjavík, fyrsti bókavörður þess 1943 og lands- bókavörður frá 1944 til 1964. Hann var sæmdur hinni íslenzku Fálka- orðu og Dannebrogsorðunni fyrir fræðistörf sín og gerður að heið- ursdoktor við heimspekideild Há- skóla íslands fyrir fræðistörf á hálfrar aldar afmæli Háskólans 1961. Finnur var afkastamikill út- gefandi og rithöfundur á sviði þjóðlegra fræða og gaf út fjölda rita. Finnur kvæntist Kristínu Aðal- björgu Magnúsdóttur frá Bitru í Eyjafirði 1924 og varð þeim tveggja barna auðið, Ernu, sem gift er Geir Hallgrímssyni, alþing- ismanni, og Birgi, sem er forstöðu- maður Tjaldanessheimilisins og er kvæntur Hildi Knútsdóttur, kenn- ara. Kona Finns lézt síðastliðinn vetur. kunnugt er eigandi þessa verks og sagði hann „að vel færi um verkið, hann hefði engin kaup- tilboð fengið í það, en hefði sagt á sínum tíma að það ætti hvergi heima nema á Kjarvalsstöðum, en á því máli væru margar skoð- anir.“ Þorvaldur sagði ennfrem- ur að um núverandi söluverð verksins gæti hann ekkert sagt, en staðan væri sú „að þeir sem ekki vilja þegar þeir fá, fá ekki alltaf það sem þeir vilja, þegar þeir vilja". Hann vildi undir- strika það, að það væri sín skoð- un að Lífshlaup Kjarvals, ætti hvergi heima nema á Kjarvalsst- öðum og á 100 ára afmæli Kjarv- als, sem væri nú á næstunni, væri ekki víst að Lífshlaupið yrði í Reykjavík, það gæti allt eins orðið í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.