Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982 43 Spánverjar fengu heldur betur á baukinn gegn írum - en drattast Norður-írar gerðu sér lítið fyrir í gærkvöldi og sigruðu gestgjafa HM-keppninnar, Spánverja, 1-0 í Valencia og tryggðu sér þannig sæti í milliriðlakeppninni. Sigur þessi er mesta afrek sem norður- írskt landsliö hefur unnið á knattspyrnusviðinu fyrr og síðar og tæplega 50.000 áhorfendur voru allt annað en hrifnir af leik spænska liðsins. írar hafa því sigr- að í 5. riðli, en Spánverjar mörðu þó 2. sætið á betri markatölu en Júgóslavía sem verður að halda heim við svo búið ásamt liði Hond- úras. Sigur íra var enn merkari fyrir þær sakir, að Mal Donaghie var vikið af leikvelli um miðjan þo i milliriðil síðari hálfleik og var dómur sá um- deildur. En tíu Irar höfðu þó í fullu tré við Spánverja, sem sóttu þó mjög lokakaflann. Það var Gerry Armstrong sem skoraði sigurmark Ira á 47. mín- útu, Billy Hamilton sendi fyrir markið og Arconada í marki Spánar blakaði knettinum til Armstrong og hann þakkaði kurteislega fyrir sig með því að skora. Fyrri hálfleikurinn var markalaus, en þá var mikið bar- ist og hlaupið, hraðinn mikill. Eftir markið mæddi mjög á vörn Ira, en þeir vörðust snilldarlega með hinn síunga Pat Jennings sem besta mann. IBK sigraði Fram ÍBK sigraði Fram í 1. deild ís- landsmótsins í knattspyrnu í gærkvöldi er liðin mættust á Laug- ardalsvellinum. Lokatölur leiksins urðu 2—0 fyrir Keflavík eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1—0 fyrir sigurliðið. Ólafur Júlíusson skoraði fyrra mark ÍBK, en í síðari hálfleik bætti Óli Þór Magnússon öðru marki við. Fleiri urðu mörkin, ekki, en nánar verður greint frá leiknum i Mbl. á þriðjudaginn. iKnattspyrnal Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri sjónvarps: „Ekki bjartsýnn á að við sýnum úrslitaleikinn beint“ „VIÐ erum að reyna að fá piáss í gervihnettimim 11. júlí til aö sýna úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar beint, en ég held því miður að ekki sé mikill möguleiki á að það takist,“ sagði Pétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri sjónvarpsins, er Mbl. ræddi við hann í gær. Aðspurður um það, hvort sjónvarpið myndi sýna ein- hverja leiki í milliriðlunum beint, sagði hann að þeir væru ekki með neitt annað í sigtinu í júlí en sjálfan úrslitaleikinn. í sambandi við leikina, sem leiknir yrðu snemma í júlí, sagði Pétur að þeir yrðu sýndir í ágústbyrj- un. Pétur sagði að ef svo ólík- lega færi að leika þyrfti aukaúrslitaleik, gæti sjón- varpið örugglega fengið pláss í gervihnettinum, annað væri ekki öruggt. — SH Léttur sigur Englendinga Englendingar unnu þriðja sigur sinn í röð í 4. riðli HM i gær er Kuwait-búar voru lagðir að velli með einu marki gegn engu. Það var Trev- or Francis sem skoraöi markið á 24. mín. Mariner sendi knöttinn fallega með hælnum til Francis, sem hljóp áfram eina 10 metra áður en hann hleypti af. Tarabulsi í marki Kuwait snerti knöttinn en tókst ekki að koma í veg fyrir mark. Englendingar sóttu mjög stíft fyrstu mínúturnar, hreinlega tjölduðu á vallarhelmingi Kuwait, og fengu þeir þrjár hornspyrnur á fyrstu 12 mínútunum. Francis átti tvö góð skot áður en hann skoraði markið, en markvörðurinn varði það fyrra og síðara skotið fór naumlega framhjá. Með þessum sigri tryggðu Eng- lendingar Frökkum sæti í milli- riðli. Ef Kuwait hefði sigrað í leiknum með fjögurra marka mun hefðu þeir komist áfram á kostnað Frakka, en þeir gerðu sér grein fyrir þvi að það var varla mögu- legt. I fyrri hálfleiknum reyndu þeir lítið að ógna Englendingum en léku þess í stað góðan varnar- leik og léku þeir Englendinga mjög oft rangstæða í leiknum. í seinni hálfleik voru Kuwait-búar heldur virkari en í þeim fyrri og fengu þeir þrjú ágæt færi. Það besta var er Abdul Aziz átti gott skot úr aukaspyrnu sem Shilton varði vel. Englendingar áttu einnig sín færi og var Mariner fremstur í flokki við að klúðra þeim. Þeir voru einnig nærri því að skora er Francis átti ágætan skalla að marki sem Tarabulsi varði vel. Sigur Englendinga í leiknum var mjög auðveldur, og þurftu þeir aldrei að leika á fullu. Enska liðið var þannig skipað í leiknum: Shilton, Neal, Foster, Thomp- son, Mills (fyrirliði), Coppell, Hoddle, Wilkins, Rix, Mariner, Francis. „Svindl, svindr hrópuðu áhorfendur - er Þjóðverjar sigruðu Austurríki 1—0 Vestur-Þjóðverjar tryggðu sér sæti í milliriölum HM-keppninar í gær- dag er þeir sigruðu Austurríki 1—0 í Gijon. Leikurinn vakti hneykslan, því mönnum þótti sýnt að liðin hefðu ekki hinn minnsta áhuga á öðrum úrslitum. Þjóðverjarnir skoruðu snemma í leiknum og eftir það dútl- uðu leikmenn til og frá og reyndu vart að bæta mörkum við. 3—0 sigur Þjóðverja hefði sett Austurríki út úr keppninni, jafntefli eða tap Þjóð- verja heföi sett þá út. Hálftíma áður en leiknum lauk voru áhorfendur farnir að streyma af leikvelli urrandi NÚ UM helgina eða nánar tiltekið dagana 26.-29. júní munu Færey- ingar sækja okkur heim með drengjalandslið sitt (14—16 ára) og leika tvo leiki gegn drengjalandsliði íslands 14—15 ára sem tekur þátt í Norðurlandamóti drengjalandsliöa sem haldið veröur í Finnlandi 26. júlí til 1. ágúst nk. Fyrri leikurinn verður á grasvell- inum á Akranesi sunnudaginn 27. júní kl. 15.00 og sá seinni á Laugar- dalsvelli mánudaginn 28. júní kl. 20.00. Þessir tveir leikir eru þáttur í þeirri samvinnu sem er á milli ís- lendinga og Færeyinga og munum við íslendingar endurgjalda þessa heimsókn á næsta ári. MÍ15—18 ára MEISTARAMÓT íslands í frjáls- íþróttum fyrir 15—18 ára unglinga verður haldið á Sauöárkróki 10. og II. júlí næstkomandi. Þátttökutil- kynningar berist IIMSS, Box 78, Sauöárkróki, eða Jóhanni Jakobs- syni s. 95-6119, í síðasta lagi mið- vikudaginn 7. júlí. Þátttökugjald krónur 10 fyrir hverja grein, krónur 40 fyrir boðhlaup. FRf af reiði. „Svindl, svindl!“ öskraði skarinn og fjölmiðlamenn sem lýstu leiknum tóku jafnvel svo djúpt í ár- inni að um samning milli þjóðanna hafi verið að ræða. Sigurmarkið skoruðu Þjóðverj- arnir strax á 11. mínútu leiksins, Pierre Littbarski fékk þá knöttinn á hægri vængnum og sendi fyrir mark Austurríkis. Miðherjinn risavaxni, Horst Hrubesch, gnæfði yfir vörn nágranna sinna og skall- aði knöttinn í netið. Nokkrum mínútum síðar fékk Paul Breitner gott tækifæri, en knötturinn fór af Eftirtaldir drengir hafa verið valdir til leikjanna tveggja: Mark- verðir: Björgvin Pálsson, Þrótti, Sigurbergur Steinsson, Víking. Aðrir leikmenn: Frá Fram: Jónas Björnsson, Bjarni J. Stefánsson, Eiríkur Björgvinsson og Grétar Jónsson. Frá Þrótti: Finnur Pálmason, Karl Karlsson og Theó- dór Jóhannsson. Frá Fylki: Ey- steinn Hilmarsson, Guðmundur Magnússon og Skúli Sverrisson. Frá ÍA: Guðmundur Þ. Guð- mundsson og Sigurður Jónsson. Frá ÍR: Jónas Guðjónsson. Frá Þór V.: Elías Friðriksson. Frá Val: Snævar Hreinsson, fyrirliði. Frá FH: Kristján Gíslason. Frá Vík- ing: Stefán Steinsen. Þjálfari liðs- ins er Theódór Guðmundsson. Eins og kemur fram hér að ofan er íslenska liðið ári yngra en það færeyska. Er það vegna nýrra reglna um NM sem settar voru til að Norðurlandaþjóðirnar geti leik- ið með sömu iið í Evrópukeppni drengjalandsliða (14—16 ára) að ári. Munu þessi tvö mót verða haldin sitt árið hvort í framtíð- inni. • Hrubesch skoraði eina mark V-Þjóðverja með skalla eins og hon- um einum er lagið. varnarmanni yfir austurríska markið. Breitner átti einnig skot í þverslá á þessum fyrstu mínútum, er Þjóðverjarnir léku eins og menn. En eftir að markið var komið, fór leikurinn í tóma vit- leysu, gutl og göngubolta. Hafði enginn áhuga á honum er á leið, hins vegar styttu alsírskir áhorf- endur sér stundir með því að brenna þýska fána á áhorfenda- stæðunum. Og um tíma lá við upp- þoti er liðið gerði sig líklegt til að hlaupa inn á völiinn. Liðin voru þannig skipuð: Austurríki: Koncilia, Krauss, Obermayer, Degeorgi, Pezzey, Hattenberger, Hintermaier, Web- er, Prohaska, Krankl og Schachn- er. Þýskaland: Schumacher, Kaltz, Stielike, Förster, Briegel, Breitn- er, Magath, Dremmler, Rumen- igge (Matthaus), Hrubesch (Fisch- er) og Littbarski. Leikinn dæmdi Robert Valent- ine frá Skotlandi, en áhorfendur voru 41.000. Knattspypna 1 HM í sjónvarpinu SÝNT verður úr tveimur HM-leikj- um í sjónvarpinu í dag. Eru það leik- ir Belgíumanna og Ungverja og Sov- étmanna og Ný-Sjálendinga. Einnig verða sýnd mörk úr nokkrum öðrum leikjum. Hefst útsendingin kl. 17.00. A morgun verða síðan tveir leikir sýndir í heild. Fyrst leikur Tékka og Frakka kl. 17.00 og síðan leikur Vestur-Þjóðverja og Austurrík- ismanna kl. 22.10. Á mánudag verða einnig sýndir tveir leikir í heild, ann- ars vegar leikur Spánar og Norður- írlands kl. 18.00 og hins vegar viður- eign Sovétmanna og Skota. Hefst sá lcikur kl. 22.10. Sveinn Björnsson: Tryggið heilsu ykkar með hóflegri þjálfun Ágætir landsmenn. A morgun, sunnudag, hefur íþróttahreyfingin ákveðið að efna til sérstaks Trimmdags, ekki að- eins fyrir íþróttamenn, heldur von- ast hún til, að sem flestir lands- menn verði þátttakendur. Almennur áhugi á líkamsrækt hefur aukist mjög á síðustu árum og skilningur fólks á nauðsyn lík- amsræktar er ríkjandi í dag meðal alls þorra fólks og margir stunda reglubundna hreyfingu. Margar ástæður liggja til þess, m.a. sú, að nú er almennt viður- kennt af læknavísindum, að hreyf- ingarleysi og offita hrjái nú hvað mest þjóðfélagsþegna í velferðar- og allsnægtaríkjum. Alltof margir hafa því orðið bölvaldi kyrrsetunn- ar að bráð, sem eru hjarta- og æða- sjúkdómar. Það er að vísu enginn sem segir, að íþróttir og aukin hreyfing sé einhlit lausn á þessum mikla vanda, en það eru allir sam- mála um, að hreyfingarleysið býð- ur hættunni heim. íþróttasambandi íslands finnst það verðugt verkefni að gera trimm að þjóðarhreyfingu. Hver þjóðfélagsþegn ætti að gera trimm að daglegum þætti í lífi sínu og stuðla þannig að sinni eigin heilsu- gæslu. Við lifum e.t.v. ekki lengur, þótt við trimmum, en öruggiega lifum við betur á meðan við lifum. Við þurfum ekki að eignast meist- ara í trimmi, við eigum aðeins að kenna okkur sjálfum að standa vörð um það dýrmætasta, sem við eigum, gott heilsufar. Það eru margir, sem trimma, en þið, sem ekki eruð byrjaðir, því ekki að b.vrja á morgun? Allir geta fundið trimm við sitt hæfi. Við þurfum ekki að þvinga okkur, heldur eigum við að hafa það skemmtilegt á meðan við trimmum og eigum að geta hlakk- að til hinna daglegu trimmstunda okkar. Góðir landsmenn, þið, sem eigið þess kost að taka þátt í Trimmdeg- inum með því að synda, skokka, ganga, hjóla eða með þátttöku í hverskonar íþróttaæfingum, svo sem fimleikum, badminton, blaki, knattspyrnu, handknattleik, körfu- knattleik o.s.frv., verið þið með, ekki bara fyrir okkur, heldur ekki síður fyrir ykkur. Af öllu því mikilvæga og þýð- ingarmikla starfi, sem íþrótta- hreyfingin í landinu hefur með höndum, er >rimm ef til vill það mikilvægasta. Kjörorð til þjóðarinnar er: -Tryggið heilsu ykkar með hóf- legri þjálfun íþrótta, aukinni lík- amsrækt og útiveru." Tveir landsleikir við Færeyjar um helgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.