Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ1982 3 1 VÖTN Á HIMNI m Kristinn Pétursson Myndlist Bragi Ásgeirsson Framlag Listasafns alþýðu til listahátíðar er kynning á verk- um Kristins heitins Péturssonar, en hann lést fyrsta september sl. ár, nær 85 ára gamall. Með Kristni Péturssyni hvarf af sjónarsviðinu aldinn og sér- kennilegur persónuleiki, sem setti svip á borgarlífið enda maðurinn mikill vexti og skar sig úr fjöldanum. Hann var mik- ið á ferli en sérsinna og ómann- blendinn að mér virtist svo að fæstir vissu hvern mann hann hafði að ge.vma fyrr en nú eftir andlát hans og skoðun kynn- ingarsýningarinnar. Fram kemur, að hér var um misskilinn listamann að ræða með miklar náttúrugáfur, sem honum tókst þó ekki að rækta til fulls og mun ástæðan í senn vera skapgerð hans og svo mun hann ekki hafa notið æskilegrar upp- örvunar og því dregið sig inn í skel sína. Allt eru þetta getgátur mínar því að ég þekkti manninn næsta lítið þótt við værum góðkunn- ingjar í fjarlægð og heilsuðumst með vinsemd á götum úti og á mannamótum. En aldrei komst ég nær honum því að við áttum erfitt með að hefja viðræður inn- byrðis og þó sátum við alloft í næsta nágrenni á Mokkakaffi á árum áður. Til eru fleiri dæmi um slíka öfugþróun í íslenzkri myndlist- arsögu, viðkvæmar sálir hafa ekki þolað andstreymi né harða listpólitíkina hér heima og hafa því gengið í gegnum lífið sem hreggbarðar sálir, sem aldrei náðu að minnast við dýpstu strengi listgáfu sinnar. Þá hefur mér verið sagt að Kristinn hafi fengið mjög slæma listrýni í sambandi við sýningu er hann hélt í Listamannaskálanum gamla eftir stríð, og viðtökurnar voru víst ekki betri hjá almenn- ingi. Þá skal þess getið að Krist- inn hafði orðið að ganga í gegn- um illkynjaða berklaveiki á unglingsárum sínum og slíkt gerir marga viðkvæmari gagn- vart veraldlegu andstreymi. Þetta er eitt dæmið um það, að farsælla er að lyfta undir ný- gróðurinn og hlúa að honum en að troða hann niður og þá er það einkum sýnu verst er slíkt er gert í eiginhagsmunaskyni, svo sem stundum á sér stað. Ég minnist þess, að svo langt gekk misskilningurinn og van- þekkingin á þessum hægláta manni, að ungir fullhugar og sjálfskipaðir brimbrjótar og frelsarar íslenzkrar myndlistar áttu það til, að senda manninum glósur á Mokka er honum voru veitt listamannalaun. Svo ríkt getur siðleysið verið hjá landan- um og einkum hjá þeim er halda margt en vita lítið. Væri farsælla að enginn dæmdi náungann fyrr en hann hefur kynnst honum og verkum hans persónulega og taka hverj- um neikvæðum framslætti um menn og málefni með varúð þekki þeir ekki til hlutanna. — Sjálfsagt þykir mér, að allt þetta komi hiklaust fram í þessu skrifi mínu því að öll sýningin í Lista- safni alþýðu staðfestir hve miklu merkari listamaður Kristinn Pétursson var en flestir héldu. Hann var mjög fjölhæfur í list sinni, var málari, myndhöggvari, teiknari og vann að auki í grafík á tímabili. Þá gerði hann sér- kennilega tréskúlptúra er hann málaði gjarna í sterkum litum og minna dálítið á tilraunir kon- strúktívistanna í gamla daga og nýlistamanna seinni tíma. Þess- ir skúlptúrar, sem hefðu máski haldið nafni hans lengst á lofti voru því miður eyðilagðir og veit enginn hvað kom til en þó er ætl- að að Kristinn sjálfur hafi viljað varðveita þá. Hann hafði einnig taugar til nútímamálverksins en þar mun öðru fremur hafa háð honum, að hann kom myndum sínum ekki á framfæri til samanburðar og lærdóms. Miðað við afköst Kristins voru sýningar hans alltof fáar og því vissu sárafáir hvað hann aðhafð- ist og héldu margir hann iðju- leysingja er gerði sér það helst til dundurs, að ráfa um götur borgarinnar og fá sér kaffibolla á veitingahúsum og þá aðallega Mokka. Hann hefur líkast til sótt þangað vegna þess að hann hefur kunnað sig í návist ann- arra listamanna. Ekki má gleyma því, að berklaveikin tók sig upp aftur árið 1931 og hann leið einnig af ilikynjuðum gigtarköstum og varð það til þess, að hann fluttist til Hveragerðis haustið 1940 og leitaði sér þar lækninga, auk þess sem hann byggði sér hús og ílentist þar um árabil. Máski hafa þessi veikindi hans ýtt undir það, að hann tók að skrifa niður hitt og þetta og eru til í handriti hugleiðingar um list og mannlíf. Eins konar sjálfskrufning. Er hann dvelst heilt ár á Akureyri, kynnist hann ýmsum bókum fagurfræði- legs efnis um fræðikenningar í myndlist, t.d. hinni frægu bók Kandinskys. Hafði sú kynning mikil áhrif á Kristin og sýn hans á myndlist almennt. Ævistiklur Kristins Þorgeirs tvinnast þann- ig í fáum dráttum, að hann fæddist á Bakka í Dýrafirði þann 17. nóvember 1896, sonur Guðmundu Jónsdóttur og Péturs Benediktssonar sjómanns. Nam á Núpi í Dýrafirði, Flensborg- arskólanum og Kennaraskólan- um þar sem hann lauk kennara- prófi vorið 1919, þá 22 ára gam- all. Veturinn 1921 sótti hann teikniskóla Guðmundar Thor- steinssonar. Hélt seinna utan og nam við listaháskólann í Osló og var það umtalsvert afrek að fá inngöngu í þann skóla eftir ekki meira undirbúningsnám. Seinna hélt hann til Kaupmannahafnar og síðan til Parísar þar sem hann innritaðist um skeið í Aca- demie de la Grande Chaumiere. Þetta sýnir að Kristinn hefur verið ágætlega skólaður og bæta má við að hann ferðaðist mikið á þessum árum og hélt þeim sið alla ævi er hann kom því við, fór í langferðir á slóðirnar í Land- inu helga, að pýramídunum, til Rómar og Pompei, til Leipzig og Dónár fögru borgar og á bakka Signu. Allar ofangreindar upplýs- ingar um æviferil hans eru tekn- ar úr ágætum formála Björns Th. Björnssonar í sýningarskrá. í niðurlaginu segir Björn: „En einnig því slotaði og yngri Reykvíkingar munu nú helst kannast við Kristin Pétursson á gangi ofan úr Guðlastinu, þar sem hann bjó, eða þangað heim, með sítt, grátt skegg, einfari, nafnlaus í samtíðinni." Sýningin á Listasafni alþýðu gefur ekki tæmandi hugmynd um ævistarf Kristins — til þess hefði þurft stærra húsnæði og svo vantar margt, m.a. gips- myndir, sem voru raunar svo illa farnar, að það þótti skynsam- legra að láta gera við þær. Þær hefðu þó átt að vera með í núver- andi formi að mínum dómi, svo að fólk sjái hvernig verk sumra listamanna eru látin grotna niður í hirðuleysi. Þá hefðu og mátt vera fleiri grafík-myndir. A sýningunni eru ágæt verk, einkum þau er voru gerð fyrir stríð, á stríðsárunum og árin þar á eftir — yfir þeim er persónu- legur blær. Seinni tíma myndir virðast sundurleitari, en margar pastelmyndir hans eru verðar allrar athygli. Myndin „Leitir“ (34) frá 1932 stingur mjög í stúf við margt annað á sýningunni og minnir á ýmislegt er seinna var gert af öðrum listamönnum. Já, hæfileika hafði Kristinn Pétursson til margra átta og er tímar líða munu verk hans fá verðugan sess i íslenzkri mynd- list. Að lokum skál mönnum bent á það, að sýningin stendur aðeins fram að næstu helgi og eru því síðustu forvöð að kynna sér list hins misskilda öðlings — og ég álít að það margborgi sig. Bragi Asgeirsson Yfirlitssýning á verkum Kristins Péturssonar ÚTGERÐARMENN, SKIPSTJÓRAR, VÉLSTJÓRAR KYNNUM OG SÝMUM NOTKUN OLÍUNÝTNIMÆLA, í DAG OG Á MORGUN Reykjavík, laugardag, 26. júní kl. 9—17 í Kaffivagninum á Grandagarði. Þorlákshöfn, sunnudag 27. júní kl. 14—17 í veitingstaðnum „MESSANUM“. Tæknibúnaður HF, Skúlagötu 51. Símar: 28588 og 28480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.