Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 44
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiöslunni er 83033 LAUCARDAGUR 26. JUNI 1982 Tillaga Alberts samþykkt í borgarrádi: Könnuð þörf á bygg- ingu dvalarheimilis fyrir þroskahefta BOK(íAKKÁl) samþykkti samhljóða á fundi sinum í gær tillögu frá Albert Guómundssyni, sem kveður á um að könnuð verði þörf á dvalarheimili fyrir þroskahefta í Reykjavík. Tillaga Alberts er svohljóðandi: „Borgarráð samþykkir að kjósa nefnd borgarfulltrúa til að kanna þörfina fyrir að byggja dvalar- heimili fyrir þroskahefta, þar sem þroskaheftir gætu dvalið til lengri eða skemmri tíma, ýmist til endurhæfingar eða til að hvíla heimilin. Þörfin fyrir slíka starfsemi í Reykjavík er það brýn, að óþarft er að hafa langa greinargerð mál- inu til stuðnings." „Þessi tillaga er til komin vegna þess, að í starfi mínu sem borgar- fulltrúi hef ég orðið var við að fólk, sem er með þroskaheftan ein- stakling á framfæri sínu, hefur ekki í nein hús að venda með að- stoð í sambandi við uppeldi og að- allega þó hvíld frá sínum störfum í þágu þessa einstaklings,“ sagði Albert Guðmundsson, borgarráðs- maður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það eru ótrúlega mörg heimili sem þurfa á aðstoð að halda, ýmist til skamms eða langs tíma. Þetta er málaflokkur sem orðið hefur útundan, en þarna eru einstakl- ingar sem hafa nákvæmlega sama rétt og allir aðrir einstaklingar, til þjónustu af hendi hins opinbera," sagði Albert. Albert kvaðst búast við því að fljótlega yrði kosið í nefnd vegna þessa og sagðist hann hugsa sér að að þessu máli yrði staðið á svipað- an hátt og gert var þegar staðið var að framkvæmdum á vegum byggingarnefndar fyrir aldraða. • • 01 og gos- drykkir hækka VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sinum í gærdag, að heimila 8% hækkun á öli og gosdrykkjum, sem hefur í för með sér, að Pepsi, 0,35 cl., hækkar úr 5,00 krónum i 5,40 krónur, Coke Cola, 0,33 cl., hækkar úr 4,25 krónum i 4,60 krónur, App- elsin, 0,25 cl., hækkar úr 3,65 krón- um í 3,95 krónur og loks má nefna, að Thule hækkar úr 6,90 krónum i 7,45 krónur. Verðlagsráð heimilaði ennfrem- ur 11,1 — 14,7% hækkun á brauð- um og kemur hækkunin mismun- andi fram eftir tegundum. Þá samþykkti ráðið ennfremur 8% hækkun á flugfargjöldum inn- anlands. Loks samþykkti ráðið að heimila 8,5—11,3% hækkun á smjörlíki. Ísafjarðarhátíð hófst i gær með sjóstangaveiðimóti. Sveitir frá Vestmannaeyjum, Reykjavik, Hafnarfírði og ísafírði tóku þátt í mótinu, sem hófst klukkan 7 árdegis og iauk klukkan 15.00. Stærsta fískinn, þorsk, sem vó 4,3 kíló, veiddi Hans Georg Bærings- son. Mestan afla fengu Jón Ingi Steindórsson, Vest- mannaeyjum, 258,6 kíló, Arnþór Sigurðsson, 200,2 kíló og Þuríður Bernódusdóttir, 193,6 kíló. í sveita- keppninni sigraði 2. sveit Vestmannaeyja, veiddi alls 719,3 kiló, 2. varð 1. sveit Vestmannaeyja með 650,8 kiló, en hana skipa eingöngu konur. í 3. sæti varð svo 3. sveit ísafjarðar, sem veiddi 547,6 kíló. Aðeins veiddust tvær tegundir fisks, þorskur og lúða. Reynd- ar veiddist aðeins ein lúða og vó hún 1 kíló og hana dró Þórir Hálfdánarson. Samtals voru veidd 2.799,9 kíló á fímm bátum og á 21 stöng. Borgarráð samþykkir: 4,1 milljónar kr. fjárveiting til sumarvinnu skólafólks 60 þúsund trjáplöntur gróðursettar í borgarlandinu í sumar Engir hnökrar hafa enn komiö upp á borö hjá ASÍ og VMSS SAMNLNGAVTDRÆÐL'R Alþýðusambands íslands og Vinnumálasamband.' samvinnufélaga héldu áfram í gærdag hjá sáttasemjara og að sögn Ásmundai Stefánssonar, forseta ASÍ, ræddu menn saman í vinsemd og fóru yfir ýmis atriði BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær aukafjárveit- ingu vegna sumarvinnu skólafólks, að upphæö 1,6 milljónir, aö tiilögu atvinnumálanefndar, en á borgarráðsfundi nýlega var ákveðin fjárveiting sem nemur 2,5 milljónum til þessa. Samtals veröur því varið 4,1 milljón króna tii sumarvinnu skólafólks af Reykjavíkurborg. — Það var síðan ákveðið, að báðir aðilar færu yfir málin, hvor um sig, áður en haldið yrði áfram. Næsti fundur hefur síðan verið boðaður á mánudag klukkan 14.00, sagði Ás- mundur Stefánsson. Ásmundur Stefánsson sagði ennfremur aðspurður, að engir hnökrar hefðu komið upp í viðræð- um aðila í gærdag og því yrði haldið áfram á sömu braut eftir helgina. 1 samtali við Morgunblaðið sagði Magnús L. Sveinsson, for- maður atvinnumálanefndar Reykjavíkurborgar, að með þess- ari fjárveitingu yrði um 130 skóla- nemum tryggð vinna í sumar. Borgin hefði þá ráðið samtals tæplega 740 nemendur til starfa á sínum vegum í sumar. „Aukafjárveitingin, sem ákveð- in hefur verið, verður að mestu varið til vinnu við skógrækt," sagði Magnús. Trjáplöntur verða gróðursettar á eftirtöldum svæð- um í borgarlandinu: í Elliðaár- hólma, 15 þúsund plöntur, í Breiðholtshverfi 10 þúsund plönt- ur, í brekku við Breiðholtsbraut, ofan Arnarbakka, 15 þúsund plöntur, á svæði Fáks austan Ell- iðaáa, 4 þúsund plöntur, og í Hólmsheiði ofan golfvallar, 16 þúsund plöntur. Hér er samtals um 60 þúsund plöntur að ræða. „Ennfremur verður unnið að ræktun í Breiðholti III, á svæði á milli Austur- og Vesturbergs, Norðurfells og Suðurhóla. Þetta svæði var á áætlun ársins 1981, en var frestað vegna fjárskorts," sagði Magnús L. Sveinsson. * Alagning fryst og bundin? Á FIINDI Verðlagsráðs i gærdag lagði Þórir Einarsson, prófessor, fulltrúi Hæstaréttar í ráðinu, fram tillögu þess efnis, að álagning byggingarmeistara yrði fryst og bundin við ákveðna krónutölu í kjölfar nýgerðra kjarasamninga Meistarasambands byggingar- manna og byggingarmanna. Þórir Einarsson staðfesti í samtali við Mbl., að hann hefði lagt fram slíka tillögu. — Þetta er mjög viðkvæmt mál, og mér finnst sem fulltrúa almanna- hagsmuna í Verðlagsráði eðlilegt að það fái umræðu í ráðinu, sagði Þórir Einarsson ennfremur, en hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Efnahagssamningur viö Sovétmenn í utanríkismálanefnd: Þingmenn óska skýringa hjá viðskiptaráðuneytinu „JÚ, ÞAÐ er rétt, að utanríkismálanefnd kom saman til fundar í morgun og ræddi meðal annars áformin um að gera almennan efnahagssamvinnusamn- ing við Sovétríkin," sagði Geir Hallgrímsson, formaður utanríkismálanefnd- ar Alþingis, í gær. „Það var engin afstaða tekin til þessa samnings í nefnd- inni en annar fundur hefur verið boðaður um málið á mánudag og er ætlunin, að viðskiptaráðherra, Tómas Árnason, og Þórhaliur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, komi á þann fund og geri grein fyrir Lánskjaravísitala hækkaði um 3,9% milli júní og júlí: V erðbólguhraðinn er nú tæplega 57% SEDLABANKI íslands hefur reiknað út lánskjaravísitölu fyrir júlímánuð og reyndist hún vera 373 stig. Hefur því hækkað um 3,9% úr 359 stigum frá síðasta mánuði. malimi." Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins ræddi ríkisstjórnin samninginn á fundi sínum síðast- liðinn þriðjudag og ákvað fyrir sitt levti, að hann yrði undirritað- ur í næstu viku, þegar Manzhulo, aðstoðarutanríkisviðskiptaráð- herra Sovétríkjanna, kemur hingað til lands. Þórhallur Ás- geirsson, ráðuneytisstjóri, hefur eindregið mælt með því, að þessi samningur verði gerður við Sovét- ríkin. Tómas Árnason, viðskipta- ráðherra, var því upphaflega and- vígur, að efnahagssamningurinn yrði gerður en skipti síðan um skoðun. Þegar samningsdrögin voru send utanríkisráðuneytinu neitaði Olafur Jóhannesson í fyrstu að ljá þeim lið sitt, en mun síðar hafa snúist hugur. Stein- grímur Hermannsson, sjávarút- vegsráðherra, segir, að Sovétmenn hafi ekki rætt þennan samning við sig, þegar hann dvaldist í Moskvu á dögunum, hins vegar hafi sov- éski sjávarútvegsráðherrann tekið því mjög vel, að framhald gæti orðið á fisksölu héðan til Sovét- ríkjanna. Sovétmenn hafa um nokkurt skeið óskað eftir því, að slíkur samningur um efnahagssamvinnu sé gerður. Hann snýst ekki um verslunarviðskipti heldur um efnahagssamvinnu milli fyrir- tækja og stofnana í Sovétríkjun- um og á íslandi. Telja Sovétmenn, að slík efnahagssamvinna hafi jákvæð áhrif á þróun viðskipta milli Islands og Sovétríkjanna og geti aukið fjölbreytni þeirra. Síð- an 1953 hefur viðskipta- og greiðslusamningur verið í gildi milli landanna. Þessi nýi samn- ingur hróflar ekki við samningn- um frá 1953, enda allt annars eðlis eða almennt um • efnahagssam- vinnu. Á einu ári, frá júlí 1981 til júlí í ár, hefur lánskjaravísitala hækk- að um 48,6%, úr 251 stigi í 373 stig. Sé hækkun lánskjaravísitölunn- ar milli mánaðanna júní og júlí, eða 3,9%, framreiknuð næstu tólf mánuði kemur út um 56,9% hækk- un, sem má segja að sé verðbólgu- hraðinn í dag. Þess má geta, að framfærslu- vísitala hækkaði á tímabilinu frá maí 1981 til maí 1982 úr 3.559 stig- um í 5.186 stig, eða um 45.72%. Hins vegar hefur verðbótavísitala hækkað á umræddu tímabili um 42,1%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.