Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ1982 3 Grillveisla í Kofa- borg í Hafnarfirði í GÆR var haldin mikil grillveisla í Kofaborg við Álfaskeið í Hafnar- firði og voru þar á boðstólunum grillaðar pylsur. Að sögn Gunnar, starfsstúlku Æskulýðsráðs Hafn- arfjarðar sem sér um þessa tóm- stundaiðju fyrir krakkana, voru til- drög veislunnar að reynt var að bjóða krökkunum upp á eitthvað annað en bara að byggja kofana. Hún sagði ennfremur að kofarnir hefður verið skemmdir sl. föstudag og krökkunum hefði verið boðið upp á að hjálpa til við að gera við kofana, fengu þau í staðinn þessa pylsuveislu sem var vel þegin. Krakkarnir í Kofaborg sögðu að talsvert væri um stuld á spýtum á kvöldin og að kofarnir væru eyði- lagðir á kvöldin. Við hittum að máli Snædísi Björnsdóttur og sagði hún okkur, að Þorsteinn bróðir sinn, sem væri 5 ára, hefði boðið sér í þessa veislu. Hún sagðist vinna í skólagörðunum og væri bara í heimsókn, og sér þætti mjög gaman. Aron Halldórsson, 9 ára, sagð- ist hafa byrjað í Kofaborg 1. júní. Hann sagði, að þetta væri mjöggaman. Byrjað væri kl. 8.30 á morgnana, farið í hádegismat kl. 11.30 og komið svo aftur kl. 1.00. Unnið væri til kl. 4.30. Hann sagði „að á daginn væru krakkarnir að smíða og mála „Ég er nú bara gestur hérna“ sagði Sigrún. kofana. Einu sinni hefðu þau fengið að fara í bíó og svo væri þessi pylsuveisla núna, og þau fengju meira að segja tvær“. Sigrún Viðarsdóttir, 11 ára gömul sagði, að hún væri gestur á svæðinu, bróðir sinn sem væri 9 ára hefði boðið sér. Hún sagði, að sér „líkaði veislan mjög vel og sér þættu pylsur mjög góðar". VSI um verðlagsþróun á næstu misserum: I ágúst 1983 yrði verðbólgan um 10 prósentustigum meiri en að óbreyttum samningum - verði niðurstaða samninga í takt við hugmyndir ASÍ Vinnuveitendasamband íslands hefur metið hver líklegasta verðlags- þróun yrði á næstu misserum út frá þeim hugmyndum, sem uppi hafa verið í samningaviðræðum að und- anförnu. verðlags frá einu tímabili til ann- ars. Niðurstaða þessara dæma er sú, að með óbreyttum samningum verði verðbólga á seinni hluta þessa árs heldur meiri en framan af árinu og 12 mánaða hækkun til febrúar 1983 verði um 58%. Næsta 69%. í ágúst 1983 yrði verðbólgan um 10 prósentustigum meiri en að óbreyttum samningum. Sé reiknað með magnfrádrætti í tilboði VSÍ hefur það fyrst áhrif á verðlagsþróun á næsta ári, þar í öllum dæmunum er tekið mið af þeim samdrætti þjóðartekna í ár, sem þegar er ljós og miðað við bjartsýnna mat Þjóðhagsstofn- unnar frá 16. júní, en það felur í sér um 4,5% minnkun þjóðartekna á mann. I skýrslu stofnunarinnar frá því í mars sl. var gert ráð fyrir 2% minnkun þjóðartekna á mann. Þessi samdráttur kemur m.a. fram í auknu gengissigi, sem nauðsynlegt er, ef hindra á aukinn viðskiptahalla og halda útflutn- ingsframleiðslu gangandi. Þá er á því byggt að aðrar forsendur hald- ist óbreyttar og ekki komi til að- gerða af hálfu stjórnvalda sem áhrif hafi á vísitölu. Hér er því fyrst og fremst um að ræða mat á verðbólguáhrifum mismunandi þróunar kaupgjalds. I töflunni er annar vegar um að ræða árshækkun framfærsluvísi- tölu á útreikningsdögum hennar, en svigatölur sýna ársfjórðungs- legar hækkanir færðar til heils árs. Þær tölur sýna því þróun haust hafi hins vegar heldur hægt á verðlagsþróuninni og verðbólgan þá komin á svipað stig og nú er. Verði niðurstaða samninga í takt við hugmyndir ASI eykst verðbólga verulega á næstu mán- uðum og í maí 1983 er hækkun vísitölu á síðustu 12 mánuðum um sem hann hefur fyrst áhrif í des- ember nk. Arshækkun vísitölu yrði mest 62% um áramót, en í ágúst 1983 yrði verðbólga orðin svipuð og að óbreyttum samning- um. Annars fer tafla VSÍ um þróun- ina hér á eftir. Dæmi um líklega þróun vísitölu framfærslukostnaðar miðaö við mismunandi niðurstöðu kjarasamninga. Óbreytíur Leið ASl Tilboð VSl áti Tilboð VSÍ með samn. magnfrádf. magnfrádr. Maí 1981 — maí 1982 46% 46% 46% 46% Ágúst 1981 — ágúst 1982 52% (69%) 56% (90%) 56% (90%) 56% (90%) Nóv. 1981 — nóv. 1982 57% (60%) 63% (68%) 62% (62%) 62% (62%) Febr. 1982 - febr. 1983 58% (51%) 67% (59%) 63% (50%) 62% (46%) Maí 1982 - maí 1983 57% (48%) 69% (60%) 64% (55%) 60% (45%) Ágúst 1982 - ágúst 1983 Gengi dollars: 50% (43%) 61% (57%) 54% (50%) 49% (43%) September 1982 12.50 13.10 13.10 13.10 Desember 1982 13.80 14.50 14.35 14.35 Mars 1983 15.00 15.95 15.60 15.45 Júní1983 16.15 17.60 17.05 ' 16.50 September 1983 17.30 19.35 18.60 17.75 Aðalfundur ÍSAL í gær: Sölutekjur námu liðlega 698,7 milljónum króna Heildarsala fyrirtækisins nam 69.900 tonnum AÐALFUNDUR íslenzka álfélagsins hf. fyrir árið 1981 var haldinn í gærdag og kom þar fram, að liðlega 208 milijóna króna tap varð á rekstri fyrirtækis- ins á árinu 1981 og eru það 28,7% af veltu, sem var 726 milljónir króna. Mesta tap áður var 1975, en þá nam það 12% af veltu. Afskriftir námu 81,7 milljónum króna og launakostnaður fyrirtækisins var á síðasta ári liðlega 125,1 milljónir króna. A árinu voru 74.600 tonn af fljót- andi áli framleidd í kerskálunum, en það er 86% af afkastagetu. Steypuskálinn framleiddi 41.100 tonn af hleifum og 32.500 af börr- um eða samtals 73.600 af sölu- framleiðslu. Heildarsala áls nam 69.900 tonn- um. Útskipað var 64.100 tonnum, þar af voru 73,8% flutt út til Efna- hagsbandalagslanda, 17,5% til EFTA-landa og 8,7% til annarra landa. Hreinar sölutekjur námu liðlega 698,7 milljónum króna. Verðlækkun og sölutregða á áli, er fram kom á síðasta ársfjórðungi 1980, jókst á árinu 1981 þrátt fyrir verulegan samdrátt í álframleiðslu í helztu framleiðslulöndum. Ástæður fyrir tapi ÍSAL árið 1981 eru margar. í fyrsta lagi hrun álmarkaðarins, sem bezt sést á því, Listdans í Norræna húsinu Listdanskonurnar Stephanie Woodard og Patricia Giovenco eru nú staddar hér á landi ásamt tón- skáldinu og trombone-leikaranum Peter Zummo. Þær eru hér á sýn- ingarferð frá New York til Parísar og Reykjavíkur. Þriðjudaginn 29. júní kl. 20.30 sýna þær ný verk sín í Norræna húsinu í Reykjavík. Einnig eru þær með danskennslu á kvöldin í Jazzballettskóla Báru frá 28. júní til 4 júlí. Stephanie Woodard og Patricia Giovenco eru meðal helstu „tilraunalista- manna“ í New York. að markaðsverð er nú 45% lægra en það var fyrir 20 niánuðum. Verðið fór hæst í um 2.000 dollara á tonn, en er nú um 1.100 dollarar. Orkuskömmtun 1979 og 1980 minnkaði framleiðslu fyrirtækisins þegar markaðurinn var góður og skömmtun 1981 og 1982 dró úr framleiðslu, þegar hægt var að selja með jákvæðri framlegð. Þá má nefna styrkingu dollarans, sem minnkaði tekjur ÍSAL af sölu á Evrópumarkaði. Gengishækkun erlendra mynta á síðastliðnu ári nam um 20% á sama tíma og kauphækkanir voru um 40%. Síðast en ekki sízt fóru vextir á dollaralánum yfir 20% á síðasta ári, en flest lán ÍSAL voru í dollurunt. Þetta skapaði gífurlegan fjármagnskostnað, sent nemur raunar um 3/t af tapi fyrirtækisins. Um þessa helgi verður Seglagerðin Ægir í Örfirisey með sýningu á ýmiss konar viðlegubúnaði. Á sýnjngunni verður bæði framleiðsla Ægis og innflutt- ur varningur. Á þessari mynd Olafs K. Magnússonar, Ijósmyndara Morgun- blaðsins, sést starfsfólk Seglagerðarinnar vinna að uppsetningu sýningarinn- Auglýsendur athugið! Auglýsingar sem eiga að birtast í sunnudagsblaði, þurfa framvegis að berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 á föstudögum. I^lor^imhlahih

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.