Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNI 1982 25 ion, Ingólfur Guöbrandsson, Nancy Arqeuta, Friðrik Eiríksson og Guömundur í orgum udagskvöld Pólýfónkórnum. Ég er svo heppin að hafa verið valin ein af 12 söngvur- um víðs vegar að úr heiminum til að vinna í nokkrar vikur í sumar með Gerard Souzay að flutningi franskr- ar tónlistar og það er því ýmislegt framundan hjá mér, sagði söngkon- an einnig. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning ferðarinnar að sögn forráðamanna Pólýfónkórsins, m.a. í fjáröflun, og hafa ýmis fyrirtæki verið beðin um fjárstuðning. Ingólf- ur sagði nokkur þegar hafa brugðist vel við og kvaðst einnig vona að fleiri myndu leggja eitthvert fé fram, þannig að fjárhagslegur grundvöllur ferðarinnar og frekara starf kórsins yrði tryggara. Sem fyrr segir flytja Pólýfónkór- inn, hljómsveitin, einsöngvarar og einleikarar, undir stjórn Ingólfs Meö þessu veggspjaldi Baltasars er tónleikafcröin kynnt. Ljósm. KÖE. Guðbrandssonar, efnisskrá Spánar- ferðarinnar í Reykjavík næstkom- andi þriðjudagskvöld 29. júní. Hefj- ast tónleikarnir kl. 21.30 og eru í Háskólabíói. Leggur tónlistarfólkið síðan upp í hina vikulöngu hljóm- leikaferð um Spán hinn 1. júlí, en að henni lokinni munu margir þátttak- endanna ráðgera að láta þreytuna líða úr sér á sólarströndum í nokkra daga. Greinargerð frá Alþýðusambandi íslands: „Hvað fólst í tilboði VSÍ?“ Morgunblaðinu hefur bor- izt eftirfarandi greinargerð frá Alþýðusambandi íslands, sem ber vfirskriftina: „Hvað fólst í tilboði VSÍ?“ Talsmenn Vinnuveitendasam- bands íslands hafa á opinberum vettvangi látið mjög að því liggja, að tilboð það sem VSI lagði fram í samningaviðræðunum 21. júní sl. hefði tryggt kaupmátt ársins 1981 á komandi samningstímabili. Hverjar eru staðreyndir þessa máls? Vinnuveitendasambandið lagði fram með tilboði sínu út- reikninga á áætluðum kaupmætti á samningstímanum. VSI kaus þó ekki að leggja á borðið áætlun um meðaltalskaupmátt á öllu samn- ingstímabilinu. Þess í stað lögðu þeir fram tölur um áætlaðan kaupmátt á sex toppdögum, þ.e. á þeim dögum sem verðbætur koma til útborgunar. Þetta yfirlit var á þessa leið: 1. júní 1982 100,0 1. sept. 1982 100,6 1. des. 1982 98,9 1. mars 1983 99,7 1. júní 1983 99,3 1. sept. 1983 97,8 í þessu yfirliti eru allar breyt- ingar á kjarasamningum að sjálfsögðu reiknaðar samkvæmt eigin mati VSÍ. Þá er spurningin: er þetta ekki einstakt kostaboð? Það segir auðvitað strax sína sögu, að VSI taldi sig þurfa að reikna kaupmátt toppdaga samn- ingstímans, en forðaðist hins veg- ar að nefna aðrar tölur. VSI mið- aði útreikninga sína að auki við, að ekki kæmi til frádráttar vegna viðskiptakjaraskerðingar og að ekki yrði um frádrátt að ræða vegna samdráttar í sjávarafla. Er þetta þeim mun einkennilegra vegna þess að VSI gerði þennan nýja skerðingarpóst að úrslitaatr- iði í viðræðum sínum við ASI. Verður því að álykta, að VSÍ- menn hafi talið meira en líklegt að þetta nýja skerðingarákvæði vísi- tölunnar kæmi til framkvæmda á samningstímanum. Hefði því ver- ið eðlilegra að tillit hefði verið tekið til þessa í útreikningum þeirra. Ástæðan fyrir þessum skollaleik er einfaldlega sú, að VSÍ vill fela staðreyndir. Það reynir að gylla tilboð sitt og slá ryki í augu fólks. Það er auðvitað hverjum manni ljóst, að kaupmáttur fellur veru- lega á milli greiðsludaga verðbóta. Á síðasta ári var kaupmáttur toppdaganna 1. mars, 1. sept. og 1. des. 3 Vá % hærri en meðalkaup- máttur ársins. Ef tekið er tillit til þess að verðbólga fer nú fremur vaxandi en minnkandi, og þegar þar við bætist, að auknar starfs- aldurshækkanir áttu að koma fram 1. mars og 1. júní á næsta árí, má telja líklegt, að toppdag- arnir í dæmi VSÍ hefðu orðið um 4% hærri en meðaltal samnings- tímans. Samkvæmt þessu hefði kaupmáttur á samningstímanum orðið um 95 til 96 stig að meðal- tali. Er þá miðað við sama grunn og VSÍ notar, þ.e. 1. júní 1982 = 100. Samkvæmt þessum grunni reiknast meðaltalskaupmáttur 1981 hafa verið 97,4 stig. Eftir eigin tölum VSÍ vantaöi því 1,5—2,5% á aö kaupmáttur samningstímans næði meðaltalskaupmætti 1981. Ef tekið er tillit til líklegra skerðingaráhrifa sjávarafurðafrá- dráttar hefði kaupmáttur á sama hátt orðið um 5% lakari en að meðaltali 1981. Þetta er „tilboð" VSI. Þetta eru þau kostakaup sem Þorsteinn Pálsson furðar sig á að Alþýðusambandið vilji ekki gera við Vinnuveitendasambandið. Framkoma Vinnuveitendasam- bands Islands á síðustu dögum samningaviðræðnanna telst til tíðinda í samanlagðri sögu samn- ingaviðræðna. Vinnuveitenda- sambandið hefur á undanförnum árum ítrekað lýst hneykslan sinn á því, að kröfur komi seint fram og að verið sé að breyta kröfum eftir að viðræður eru farnar af stað. Nú gerist það að 21. júní er grundvöllur VSI fyrir viðræðum við Alþýðusambandið orðinn allt annar en hann var 18. júní, þegar almennt var álitið að tiltölulega skammt bil væri óbrúað milli samningsaðila. Nú gerist það að Kristján Ragnarsson verður felmtri sleginn þegar forstöðu- maður Þjóðhagsstofnunar segir honum að afli hafi dregist saman. Ætla mætti að þetta sé annar Kristján en sá sem reglulega fær á borð sitt á skrifstofu LIU upplýs- ingar um afla togara í hverri veiðiferð og að þetta sé ekki sá Kristján sem situr í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins og hefur sem slíkur aðgang að öllum fáanlegum upplýsingum um afla og afkomu fiskiskipa. Það mætti líka ætla að Hjalti Einarsson, sá sem sæti á í samningaráði VSI og er varaformaður þess, sé annar Hjalti en sá sem er framkvæmda- stjóri SH og hefur sem slíkur yfir- sýn yfir afkomu meirihluta frysti- húsa í landinu. En Kristján er Kristján og Hjalti er Hjalti rétt eins og Þor- steinn er Þorsteinn og Páll er Páll. Forstöðumaður Þjóðhagsstofnun- ar færði mönnum engar nýjar fréttir í samningaviðræðunum. hann sagði Kristjáni, Hjalta, Þorsteini og Páli og filögum þeirra frá því sem þeir vissu þegar áður en grundvöllur var fundinn að viðræðum aðila. Vinnuveit- endasambandið hefur það hins vegar að yfirskini, að það hafi ekkert vitað og að forsendur hafi gjörbreyst á einni nóttu. Trúi hver sem trúa vill og trúað getur. Forysta Vinnuveitendasam- bands Islands hefur lýst þeirri skoðun sinni, að með því að hafna nú sjálfvirkri skerðingu launa vegna samdráttar í sjávarafla hafi Alþýðusambandið afsalað sér samningsrétti. Þessi skoðun þeirra VSÍ-manna er ofur eðlileg. Kaupskerðing er ráð við vanda hverjum er mottóið á VSI- heimil- inu, þegar eitthvað bjátar á í þjóð- arbúskapnum. Skoðun þeirra nú er því rökrétt framhald fyrri af- stöðu. Alþýðusambandið er einfald- lega ekki sömu skoðunar. Það eru til fleiri bjargráð en kjaraskerð- ing. Það er að mati ASÍ aldeilis ekki sjálfgefið að skerða skuli kaup hverju sinni sem illa gefur á sjó eða LÍÚ lætur binda togara. Alþýðusambandið gerir þá kröfu til stjórnvalda, að aðrar leiðir verði þrautreyndar áður en til þess úrræðis er gripið að skerða laun verkafólks. Með því að sam- þykkja sjálfvirkni af því tagi sem VSÍ gerði að úrslitaatriði í við- ræðum sínum við Alþýðusam- bandið hefði ASÍ einmitt verið að afsala sér samningsrétti. Þetta vildi og vill viðræðunefnd Alþýðu- sambandsins ekki gangast undir. Því var á hinn bóginn aldrei hafnað af viðræðunefndinni að kaupliðir gætu verið til endurskoðunar ef þjóðhagslegar forsendur breyttust verulega. Það getur svo farið að óáran til lands og sjávar skammti okkur naumari kjör en við búum nú við. Ef til þess kemur er þá til of mikils mælst að rætt sé við verkalýðshreyfinguna? Forysta VSÍ er greinilega þeirrar skoðun- ar. Hún sveipar um sig fjölmiðla- hjúp föðurlegrar umhyggju fyrir hag allra landsins barna. Við samningaborðið fellur gríman. Þó að þar hafi oft verið naumt skammtað vill VSÍ nú enn á ný freista þess að minnka, skera og skammta naumar en nokkru sinni fyrr. Hrafnsttnd að hefja slg til flugs. Straumönd með unga sina. spurningu, hvað þeir eigi að gera við hrafnsandareggin, því gráöndin verpir fyrr en hrafnsöndin og ungar því fyrr út og hvað verður þá um hrafnsandareggin? Eiga bænd- ur að henda þessum eggjum Hávellan er ein þeirra fuglategunda. sem er alfriðuð við Mývatn. eða hafa af þeim skattfrjálsar tekjur? Hingað til hafa bændur ekki verið upplýstir nógu vel um hvernig friðunarlögin eru og því hafa komið upp mál eins og þau, sem undan eru gengin." Ekki eru allir útlendingar, sem eru að líta eftir eggjum, að gera það með hagnaðarsjón- armið í huga? „Nei, það kemur fyrir að fólk taki fágæt egg til handargagns í algjöru vammleysi. Um dag- inn gengum við fram á fólk, sem var að sjóða fjögur straumandaregg sér til matar. Þau gerðu sér ekki grein fyrir, hvað þau voru með í höndun- um. Það eru margir útlend- ingar, sem hingað koma, sem halda að hér sé allt svo frjálst og sjálfsagt og telja sig geta gert hvað sem er.“ Eru ekki upplýsingar við Mývatn um hvernig umgang- ast eigi varplöndin? „Við erum með kort, þar sem fólk er frætt um hin alfriðuðu varplönd. Varplöndin eru líka afmörkuð með skiltum þannig að það á ekki að fara fram hjá neinum, hvað um er að ræða.“ Telur þú að gera mætti betur i því að upplýsa bæði íslend- inga og útlendinga um fuglalíf- ið við Mývatn? „Það tel ég hiklaust og þyrfti að koma upp almennri upplýs- ingarmiðstöð á svæðinu, þar sem meðal annars væru veittar upplýsingar um fuglalífið.“ Hvað með gæsluna sjálfa á varplöndunum, telur þú að þ.vrfti að auka hana frá því sen nú er? „Það sýnir sig að egg eru tekin úr hreiðrunum og það þýðir að varplandanna er ekki nógu vel gætt, það þyrfti því að auka gæsluna að nóttu sem degi. En hér er um stórt svæði að ræða og erfitt er að vakta það allt í einu, nema að til komi mjög aukinn mannafli, og þá er spurning, hvort að yf- irvöld telji slíkt svara kostn- aði?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.