Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982 41 Hrein torg fögur borg Bergþóra hringdi: „í útvarpinu fyrir skömmu kom frétt frá bæjar- stjórnarfundi þar sem skýrt var frá því, að mikil aðsókn væri í það að fá leyfi til verslunarreksturs á úti- markaðinum í Austurstræti. Eg vil benda bæjarfulltrúum á það, hvort þeir vilji ekki endurskoða þessa starfsemi sem þar fer fram, því það er álit margra, sem um þessa fallegu kvos fara og er eina göngugatan í borginni, að þar sé stundum nokkuð sóðalegt, svo ekki sé meira sagt. Það vantar mikið á að þarna sé gætt fyllsta hreinlætis. Austurstræti er nokkuð þröng gata og falleg, en þolir tæpast allt þetta söluálag, sem þar fer fram. Gerum Austurstræti að þeim fagra reit, sem hann upphaf- lega var hugsaður. Tökum undir kjörorðið, hrein torg, fögur borg. Sagnfræðileg villa Gestur Steingrímsson hringdi vegna leiðara sem birtist 21. júní í Dagblaðinu og Vísi og fjallaði um heimsókn Ingiríðar fyrrum Dana- drottningar hingað til lands. „Þessi leiðari er svo sem ágætur, en þó er þar ein sagnfræðileg villa, sem mig langar til að leiðrétta. Þar segir orð- rétt: „Það varð íslendingum einnig til bjargar, að oft á tíðum komust til valda í Danmörku þjóðhöfðingjar og stjórnmálamenn, sem gerðu sér far um að skilja Islendinga, sinna þeirra málum og greiða götu þeirra. Einn þessara þjóðhöfðingja var Friðrik Danakonungur, sem var síðasti kon- ungur íslendinga. Hann var kvæntur Ingiríði, sem er í heimsókn hér á lanid". Þetta er ekki rétt. Kristján tíundi, faðir Friðriks níunda, var Lonungur íslands i 32 ir. ristján liuncU var konungur í Is i 32 ár og kom fjórum sinn- hingaö til lands. Meö ljuf- insku sinni ivann hann ser ein- t vináttu íslenzku þjóðarinnar. eymanlcgust aUra hinna löngu iskinta .Kristjáns konungs ti- la og islenzku þjóOannnar eru llaóskirnar, sem hann sendiis- zka lýðveldinu á stofndegi þess, I júní 1944. Sú vinarhönd, cr ^ in rctti þá yfir hafifi, var<5 til s, adraga mætti til heilla sátta gagnkvænis skilnings milli ria og íslcndinga Vil minnast þings Þjóðræknis- félags Vestur-íslendinga Velvakandi! Ég minnist þess ekki að hafa séð þess getið í Mbl. að haldið hafi verið 63. þing Þjóðræknisfélags Vestur-Islendinga, en það fór fram vestur í Kanada í vor. Ég hef séð sagt frá þinginu í vestur- íslenska blaðinu Lögbergi- Heimskringlu. Segir þar frá því að komið hafi fram á þinginu þakk- læti til þeirra aðila hér á íslandi, sem staðið hafa fyrir útgáfu á „Vestur-íslenskum æviskrám". Eins hafði komið fram þakklæti til ísl. stjórnvalda fyrir marghátt- aðan stuðning við blaðið Lögberg- Heimskringlu og við félagið (Þjóð- ræknisfélagið). Loks er þess getið í þessari frásögn Lögbergs- Heimskringlu að á þinginu hafi verið rætt um fyrirhugað 200 ára kaupstaðarafmæli Reykjavíkur og hvað íslendingar hygðust gera til þess að minnast þessa merkisaf- mælis. Um það lágu ekki fyrir neinar haidgóðar upplýsingar á þinginu. Þess er getið í blaðinu að fulltrúi frá íslandi hafi að þessu sinni verið Magnús M. Sigurjóns- son (fyrrum starfsmaður Raf- magnsv. Reykjavíkur). Ég leyfi mér, Velvakandi, að koma þessu á framfæri við þig, í þeirri von að þú segir frá þessu. N.N. í Reykjavík. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þeir hermdu eftir hver öðrum. Rétt væri: Þeir hermdu hver eftir öðrum. læiðréttum börn sem flaska á þessu! konungur íslands og Danmerkur þegar lýðveldi var stofnað 17. júní 1944 og var þar með síðasti konung- ur Islands. Hávaðinn ætlar að æra mann Kona nokkur hringdi og vildi koma fram þeirri spurningu til réttra aðila, hvort einhverjar breyt- ingar hafi orðið á lögum um hljóð- deyfa á ökutæki. „Þurfa bílar og mótorhjól ekki lengur að hafa hljóð- kúta. Mér finnst það orðið allt of algengt að ökutæki skorti umræddan hlut. Hljóðkútslaus ökutæki valda óskaplegum hávaða og ætla mann alveg að æra.“ Tískusýningin í tilefni Listahátíðar Gerður Hjörleifsdóttir frá ís- lenskum heimilisiðnaði hringdi vegna fyrirspurnar um tískusýn- ingu, sem var á útitaflinu við Lækj- argötu þann 11. júní. „Tískusýningin var frá Islenskum heimilisiðnaði í tilefni Listahátíðar. Það voru stúlk- ur úr Módelsamtökunum sem sýndu. Sýndir voru silfurskartgripir frá Jens Guðjónssyni og handofnir kjól- ar frá Guðrúnu Vigfúsdóttur. Þá voru sýndir batik-kjólar frá Katrínu Agústsdóttur." Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesend- ur til að skrifa þættinum um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja milli kl. 10 og 12 mánudaga til föstu- daga. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð. Þeir sem ekki koma því við að skrifa slá þá bara á þráðinn og Velvakandi kem- ur orðum þeirra áleiðis. Nöfn, nafnnúmer og heimil- isföng þurfa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höf- undar þess óski nafnleyndar. Ráðstefna um þróun landbún- aðar í Miðgarði í Skagafirði RÁÐSTEFNA um þróun landbúnað- ar í tilefni aldarafmælis búnaðar- fræðslu á Hólum í Hjaltadal var haldin á vegum strjálbýlis- og vega- málanefndar Fjórðungssambands Norðlendinga föstudaginn 11. júní síðastliðinn. Hún var haldin í félags- heimilinu Miðgarði í Skagafirði. I framsöguerindum landbúnað- arráðherra, Pálma Jónssonar, og formanns Stéttarsambands bænda, Inga Tryggvasonar, kom m.a. fram, að nú hefur, a.m.k. í bili, þrengst um markaði fyrir af- uriHr landbúnaðarins, sérstaklega sauðfjár. Því er nauðsynlegt að efla sölustarfsemina, ekki síst inn- anlands, en þar hefur að mörgu leyti vel tekist til við sölu mjólk- urafurða, en síður að því er kjöt- framleiðsluna varðar. Þó var gífurleg sala á lambakjöti í maí- mánuði síðastliðnum, og því nokkrar líkur á að heildarsalan á verðlagsárinu verði yfir meðallagi. Fram kom, að á síðasta Alþingi var lögð fram tillaga til þings- ályktunar um stefnumörkun í landbúnaði. Er þar að finna til- lögu um meginmarkmið íslensks landbúnaðar og raktar helstu leið- ir til að ná þeim. Þar er m.a. kveð- ið á um að vinnustöðvar landbún- aðarins greiði bændum 90% af andvirði afurða við innlegg, en óskert grundvallarverð við upp- gjör. Ennfremur að þess verði gætt að breytingar á framleiðslu og atvinnuháttum í landbúnaði valdi sem minnstri búseturöskun. Að auki töluðu Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri, Björn Sigur- björnsson, forstjóri Rannsókn- arstofnunar landbúnaðarins, Jón Bjarnason, skólastjóri á Hólum, og Jón Árnason, tilraunastjóri á Möðruvöllum, um búnaðarfræðslu og tækniþjónustu í landbúnaði. í lok ráðstefnunnar var megin- efni hennar dregið saman af Sveini Jónssyni, formanni Búnað- arsambands Eyjafjarðar, Stefáni Skaftasyni ráðunaut og Aðalbirni Benediktssyni ráðunaut. Ónæmisaðgerðir gegn mænuveiki Breyttur tími. Framvegis fara ónæmísaögeröir gegn mænuveiki fram á þriðjudögum kl. 16.30—17.30. Heilsuverndarstöö Reykjavíkur. ALLTAF A LAUGARDÖGUM NJOSNARINN RAYMOND hundeltur af Gestapó, handtekinn, pyntaöur, en kjaftaöi aldrei frá. ÚTILEGUMANNA- HREYSI VIÐ SNJÓÖLDU VIÐTAL VIÐ GÍSLA SIGURBJÖRNSSON ÁGRUND KÚLUHÚS RÍSA Á ÍSLANDI Vönduð og menningarleg helgarlesning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.