Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ1982
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ1982
15
iltofgpiiifrlftMfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 8 kr. eintakiö.
Vinstri menn allra
flokka sameinist!
Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, hefur
valið tímarit Máls og menningar til að draga nýja
víglínu fyrir flokk sinn eftir afhroðið í sveitarstjórnakosn-
ingunum. I stuttu máli er boðskapurinn þessi: „vígvélar
íhaldsins æða hér yfir akurinn á næstu vikum, mánuðum
og árum“ ef vinstri menn allra flokka sameinast ekki undir
forsjá Alþýðubandalagsins. Flokksformaðurinn spáir því,
að vinni Sjálfstæðisflokkurinn næstu alþingiskosningar
myndi hann stjórn annað hvort með Framsóknarflokki eða
Alþýðuflokki. Gegn þeim „ósköpum" ætlar Alþýðubanda-
lagið að berjast: „Þótt úrslit bæjarstjórnakosninganna hafi
um margt verið vond þá er enn tími til stefnu. Þann tíma
verður að nota til þess að byggja upp samstöðu," segir
Svavar Gestsson.
Ætlun formanns Alþýðubandalagsins er að brjótast út
úr kosningaósigrinum í maí með því að draga aðra ofan í
svaðið til Alþýðubandalagsins. Á þessum forsendum hefur
Svavar Gestsson þreifað óformlega á krötum í því skyni að
þeir gangi til samstarfs við framsókn og kommúnista í
ríkisstjórn fyrir kosningar og síðan til kosninga undir
merki vinstra samstarfs að kosningum loknum. Svipaðar
áþreifingar hefur formaður þingflokks Alþýðubandalags-
ins, Ólafur R. Grímsson, stundað, þó ekki endilega til að
lengja líf þessarar ríkisstjórnar, enda á hann ekki sæti í
henni, heldur til að tryggja stöðu sína í baráttunni innan
flokks við Svavar Gestsson. Svavar Gestsson leggur
áherslu á sameiningu vinstri manna gegn sjálfstæðis-
mönnum, Ólafur R. Grímsson vill mynda breiðfylkingu í
þágu friðar.
Þegar metið er, hvort áform Svavars Gestssonar nái
fram að ganga, þarf að hafa tvær meginforsendur í huga: í
fyrsta lagi setjast framsóknarmenn í hvaða ríkisstjórn
sem er. Þeirra markmið er aðeins eitt í stjórnmálum að
vera í fyrirgreiðsluaðstöðu og þeir meta ráðherraembættin
ofar öllu. I öðru lagi er Alþýðuflokkurinn forystulaus. Eng-
inn þingmanna hans veit, hvert flokkurinn stefnir. í sveit-
arstjórnakosningunum hölluðu kratar sér að kommúnist-
um. Sú skoðun er ríkjandi hjá frekustu öflunum meðal
toppkrata, að vinstri stjórn sé æskilegust fyrir Alþýðu-
flokkinn. Með ályktun sinni um sovéska samninginn um
efnahagssamvinnu hafa þingflokkur og framkvæmd-
astjórn krata búið sér til aðgöngumiða að ríkisstjórn með
framsókn og kommúnistum.
Annar tónn
hjá Pétri Sigurðssyni
Það kveður við annan tón hjá Pétri Sigurðssyni, þing-
manni Sjálfstæðisflokksins, en Svavari Gestssyni. í
grein eftir Pétur hér í blaðinu í gær segir, að næsta ríkis-
stjórn hljóti að verða undir forystu Sjálfstæðisflokksins
„eins og ætíð þegar vinstri menn hafa siglt öllu í strand."
Pétur segir, að þá þurfi sjálfstæðismenn að velja sam-
starfsmenn sem þora og vilja takast á við vandann. Og
hann lýsir síðan brýnustu úrlausnarefnunum með þessum
hætti:
I fyrsta lagi ný og rétt vísitala. í öðru lagi skilyrðislaust
bann við fölsun þessarar vísitölu. I þriðja lagi fráhvarf frá
ofsköttun og óstjórn. í fjórða lagi lækkun á óbeinum skött-
um, eins og söluskatti, „tímabundnu" vörugjaldi, innflutn-
ingsgjaldi og bensínskatti til að lækka vöruverð í áföngum.
Pétur Sigurðsson segir réttilega, að aðeins með gjör-
breyttri stjórnarstefnu komist þjóðin út úr ríkjandi efna-
hagsöngþveiti. Línurnar eru skýrar. Alþýðubandalagið vill
halda áfram óbreyttri ofstjórnarstefnu með krötum og
framsókn. Sjálfstæðismenn spyrja: Hver þorir að takast á
við vandann með okkur?
LEYFISSVIPTING STEINGRÍMS HERMANNSSONAR
„Málið sett á svið og
skipulagt frá byrjun“
— segir Örn O. Johnson stjórnarformaður Flugleiða
„AÐ sjálfsögðu kom þessi ákvörð-
un Steingríms Hermannssonar
okkur mjög á óvart. Við höfðum
að vísu heyrt getgátur í þessa
átt, en trúðum ekki að þær kæmu
til framkvæmda," sagði Örn O.
Johnson, stjórnarformaður Flug-
leiða, er Mbl. innti hann álits á
þeirri ákvörðun samgöngumála-
ráðherra að svipta félagið flug-
leyfum til Amsterdam og Diiss-
eldorf.
„Ég tel,“ sagði örn, „að ráð-
herra fari hér í raun og veru
langt út fyrir sitt valdsvið, að
minnsta kosti siðferðilega séð,
því hafi hann slíkt valdsvið laga-
lega þá tel ég að það þurfi að
breyta því. Það er ósennilegt að
einn ráðherra geti afmáð það
sem ríkisstjórn og Alþingi hefur
samþykkt. Hér á ég við þau fyrir-
heit sem gefin voru þegar Loft-
leiðir og Flugfélagið voru sam-
einuð árið 1973. Þessi fyrirheit
voru þess efnis að félagið gæti
eitt sinnt öllum þeim áætlunar-
leiðum milli landa sem það vildi
sinna. Þetta varð til þess að
hluthafar beggja félaga sam-
þykktu sameininguna."
Örn sagði að Flugleiðir hefðu
sinnt áætlunarleiðunum til
Amsterdam og Dusseldorf óað-
finnanlega og þess vegna engin
ástæða til að taka þær af þeim.
Hann bætti við: „Standist þessi
leyfissvipting fyrir lögum, er hér
um að ræða verulega brotalöm.
Það gefur auga leið að hér er um
mikla fjármuni og hagsmuni að
Örn O. Johnson
tefla. Flugleiðir hafa eytt mikl-
um fjármunum til að kynna ís-
land í Dússeldorf og Amsterdam,
þar sem félagið hefur meðal ann-
ars opnað skrifstofu."
— Hvað veldur þessari
breytni ráðherra?
„Hann brynjar sig með óraun-
hæfum afsökunum. Ég tel að
þetta mál hafi verið sett á svið og
skipulagt frá byrjun til enda. Það
hefur verið ákveðið að láta þetta
þróast svona og réttlæta svo ákv-
örðunina með því að ekki hafi
náðst samkomulag milli flugfé-
laganna. Ráðherra kveðst vilja
eðlilega og hóflega samkeppni.
Þegar svo félögin ná ekki sam-
komulagi — mér liggur við að
segja eðlilega ekki — þá sviptir
hann annað félagið leyfum. Ef þá
á að verða samkomulag um að
það eigi ekki að vera samkeppni,
til hvers er þá verið að stofna til
samkeppni? Nei, ég sé ekki betur
en að ráðherra valdi ekki því
valdi sem hann hefur. Mér virð-
ist sem annarlegar hvatir liggi
að baki þessari ákvörðun," sagði
Örn O. Johnson, stjórnarformað-
ur Flugleiða.
Gunnar Þorvaldsson
Ákvörðunin bæði flugfélög-
unum og neytendum til góðs
— segir Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs
„ÉG ER mjög ánægður með
ákvörðunina. Ég held að hún sé
bæði flugfélögunum og neytendum
til góðs,“ sagði Gunnar Þorvalds-
son, framkvæmdastjóri Arnar-
flugs, er Mbl. spurði hann álits á
ákvörðun samgöngumálaráðherra.
Gunnar sagði: „Ég hef alltaf sagt
að ég teldi samkeppni Flugleiðum
til góðs.“
— En er ekki einmitt verið að
koma í veg fyrir samkeppni?
„Nei, alls ekki. Fólk getur enn
valið á milli ýmissa staða. Félög-
in keppa náttúrlega enn um
þjónustu og gæði, og væntanlega
verð einnig“,sagði Gunnar. í
þessu sambandi rifjaði hann upp
slæma reynslu Loftleiða og
Flugfélagsins af því að fljúga til
sömu staða á sama tíma með
ónýtt sæti, eins og hann orðaði
það. Þetta fyrirkomulag hafi
bæði verið félögunum og þjóð-
inni óhagkvæmt.
Gunnar var spurður hvernig
það mætti vera að hin nýja skip-
an væri bæði Flugleiðum og
neytendum til góðs, hvort Arn-
arflug hygðist lækka fargjöld til
Amsterdam og Dússeldorf.
Hann svaraði:
„I bréfi ráðherra kemur fram
að samkvæmt þessari leiðaskipt-
ingu er okkur er óheimilt að
fljúga áætlunarflug til þeirra
staða sem -Flugleiðir hafa. En
viðvíkjandi fargjöldum vil ég
taka fram að þau hafa verið
mjög lág á þessum leiðum, þann-
ig að ég geri ekki ráð fyrir að
breyting verði á þeim til lækkun-
ar.“
Gunnar kvaðst telja að fyrst
að Alþingi væri búið að ákveða
að tvö félög annist millilanda-
flug, væru aðeins tvær leiðir
færar í því sambandi, annars
vegar að gefa samkeppnina al-
gjörlega frjálsa og hins vegar að
koma á leiðaskiptingu, eins og
ráðherra hefði nú ákveðið. Sjálf-
ur kvaðst hann fylgjandi leiða-
skiptingu. Hann sagði að í dag
hefði fólk um tvo kosti að velja
ef það ætlaði til útlanda, annars
vegar að fara með Arnarflugi og
hins vegar með Flugleiðum. Til
Amsterdam kæmust menn hæg-
lega með því að fljúga fyrst með
Flugleiðum til London og þaðan
áfram til Amsterdam. A sama
hátt kæmust menn til London
með því að fljúga með Arnar-
flugi til Amsterdam og þaðan
áfram til London.
Tillaga um fjárhelda girð-
ingu um höfuðborgarsvæðið
Skipulagsstofa höfuðborgarsvæðis-
ins hefur gert það að tillögu sinni, að
höfuðborgarsvæðið verði afgirt með
fjárheldri girðingu frá Straumsvík að
Kiðafellsá á Kjalarnesi. Lengd þeirrar
girðingar yrði 56 kílómetrar, en hægt
er að nota 22 kilómetra girðingar, sem
fyrir er á hluta svæðisins, svo ný girð-
ing verður 34 kíiómetrar að lengd.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að
nýta eitthvert efni úr girðingum
sem fyrir eru á svæðinu, en mikinn
fjölda þeirra verður hægt að rífa
með tilkomu þessarar nýju girð-
ingar, svo öll umferð um svæðið
ætti að auðveldast. Núverandi
kosnaðaráætlun gerir ráð fyrir 40
þús. króna kostnaði að meðaltali á
hvern girtan kílómetra, en verið er
að mæla girðingarsvæðið upp nú í
sumar, svo að nákvæmari áætlun
mun liggja fyrir í haust.
„Það hefur mikið verið rætt um
að koma upp trjágróðri í auknum
mæli hér á höfuðborgarsvæðinu, en
ein grundvallarforsenda þess er að
loka svæðinu fyrir ágangi búfjár og
setja reglur um kvikfjárrækt inn á
svæðinu," sagði Gestur Ólafsson,
forstöðumaður Skipulagsstofu höf-
uðborgarsvæðisins, í samtali við
Morgunblaðið. „Það er ekki mikið
af góðu landi tiT útivistar á þessu
svæði eins og stendur, en við ættum
að geta gjörbreytt því á næstu
10—20 árum. Svæði eins og Heið-
mörkin eru góðra gjalda verð, en ég
hef ekki trú á öðru en að fólk kunni
ekki síður að meta, að gróðursett sé
í næsta nágrenni við það í tengslum
við byggðina. Sem dæmi um
ástandið í þessum efnum má nefna
að Skógræktarfélag Kópavogs er
með ræktunarsvæði upp í Hvalfirði,
í stað þess að vera með það í ná-
grenni Kópavogs sem væri auðvitað
eðlilegra," sagði Gestur Ólafsson
ennfremur.
Nefnd hefur verið sett á laggirn-
ar á vegum Skipulagsstofunnar, til
að sjá um framkvæmd málsins og
ganga frá því í smáatriðum. Ekki
hefur enn verið gengið endanlega
frá skiptingu kostnaðar af fram-
kvæmdunum milli hlutaðeigandi
sveitarfélaga, en tillögur hafa verið
settar fram þar að lútandi. Gert er
ráð fyrir að málið verði lagt fyrir
viðkomandi borgar- og bæjar-
stjórnir í haust og geti því komist
inn á fjárhagsáætlanir fyrir næsta
ár. Málið hefur mætt skilningi og
áhuga Náttúruverndarráðs og fleiri
viðlíka aðila og taldi Gestur ekki
óeðlilegt að hugsa sér, að einhverj-
ar stofnanir ríkisins sem málið
snertir, tækju að hluta til þátt í
kostnaði vegna framkvæmdanna.
Benti hann á, að það eru 53% þjóð-
arinnar sem byggju á höfuðborgar-
svæðinu.
Kort sem sýnir fyrirhugaða legu girðingarinnar, úr Straumsvík að Kiðafellsá á Kjalarnesi.
Steingrimur Hermannsson um skiptingu á flugleiðum:
Ekki hægt að stofna til
slíkrar samkeppni að
bæði félögin skaðist af
*
„Eg sé ekki að það samræmist að veita milljóna styrk og
láta það viðgangast að risinn ætli að drepa dverginn“
„FLUGLEIÐIR fljúga á Frankfurt og
á milli Frankfurt og Dússeldorf er
mjög stutt vegalengd, þannig að það
fæst mjög góður samanburður á verði
og þjónustu. Flugleiðir fljúga auk
þess til Luxemborgar og ég tel það
vera nægjanlegt. Auk þess hefur
þetta farið algerlega út í vitleysu í
sumar, flugferðir hafa verið boðnar á
rúmar tvö þúsund krónur með viku
stoppi í Amsterdam og svipað til
Frankfurt. Þetta eru fargjöld sem
aldrei hafa verið tilkynnt okkur, en
samkvæmt loftferðalögum ber flug-
félögum að tilkynna okkur fargjöld,"
sagði Steingrímur Hermannsson
samgönguráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær. Steingrímur hef-
ur ákveðið einhliða skiptingu flug-
leiða á milli Flugleiða og Arnarflugs.
Hann var spurður um hvort þessi
ákvörðun samrýmdist þeim rökstuðn-
ingi sem viðhafður var þegar Arnar-
flugi var veitt flugleyfi til Hollands
og Sviss, en þá var sagt nauðsynlegt
að tryggja ákveðna samkeppni á
flugleiðom félaganna.
„Ég lét kanna þetta vandlega og
það var gerð ítarleg tilraun til að fá
félögin ofan af svona undirboðum,
en það tókst ekki. Auk þess var
reynt allan síðastliðinn vetur og í
sumar að ná samkomulagi með fé-
lögunum um eitthvað skynsamlegt
í þessu sambandi. Ég ákvað að
skera á hnútinn og gera það á þann
máta sem næstur var samkomulagi
um hjá félögunum síðastliðinn vet-
ur. Flugleiðir lögðu ríka áherslu á
það að halda Frankfurt og ég féllst
á það,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur var spurður hvort
það hefði ekki verið markmiðið
með leyfisveitingunni til Arnar-
flugs á sínum tíma, að lækka far-
gjöldin samfara samkeppni. „Jú,“
sagði hann, „en samt sem áður
verður að fylgja settum reglum og
tilkynna fargjöldin, loftferðalög
krefjast þess. Það er ekki hægt, ef
flugfélögin kunna ekki fótum sín-
um forráð, að stofna til slíkrar
samkeppni að bæði stórskaðist af.
Þar að auki eru Flugleiðir með
milljóna styrk frá ríkinu og það
hafa fjölmargir kvartað undan því
að þeim sé veittur siikur styrkur og
haldist uppi slík undirboð, en ég vil
taka það fram að ég geri ráð fyrir
að Arnarflug hafi mætt þessu á
svipaðan máta, ég er ekki að segja
að eitt sé betra en annað," sagði
Steingrímur.
Ráðherrann var þá spurður
hvort ekki mætti ætla að flugfélög-
in kynnu fótum sínum forráð. „Þau
þyrftu að kunna það,“ sagði
Steingrímur. Hann var þá spurður
hví þyrfti að taka fram fyrir hend-
urnar á flugfélögunum. „Það virð-
ist stundum þurfa, því miður. Ég sé
ekki að það samræmist að veita
milljóna styrk og láta þetta við-
gangast, að risinn ætli að drepa
dverginn," sagði Steingrímur.
Hann var spurður að því hvort
með þessari ákvörðun væri ekki
verið að tryggja einokun á ákveðn-
um flugleiðum, t.d. til Amsterdam.
„Hinir hafa og hafa alltaf haft það
til Kaupmannahafnar, Osló,
Stokkhólms, samsagt allrar Skand-
inavíu, og Bretlands. Það væri
kannski ráð að leyfa hinum að
fljúga til Kaupmannahafnar og
London og hafa þetta alveg frjálst,
það væri hin leiðin. En þetta getur
ekki verið bara á annan veginn, að
annað flugfélagið hafi arðmestu og
bestu flugleiðirnar sem einokun, en
fái einnig að fljúga á þeim flugleið-
um sem litla flugfélagið flýgur á,“
sagði Steingrímur.
Spurningu um hvort frekari
skipting á milli flugfélaganna væri
fyrirhuguð, svaraði Steingrímur
þannig: „Nei, hún er ekki fyrirhug-
uð. Ég sendi Flugráði tillögur um
hvernig haga eigi leiguflugi, en ég
hef ekki fengið neitt svar við því.
En frekari skipting á áætlunarleið-
um er ekki ráðgerð," sagði Stein-
grímur. Hann var þá spurður hvort
til greina kæmi að gefa flugið
frjálst. „Það er náttúrulega hugs-
anlegt, ég tel að það þurfi að vera á
annan hvorn veginn; alveg frjálst
eða einhver skipting. Ég tel sjálfur
að svona skipting skapi nægilegan
samanburð og samkeppni," sagði
ráðherrann.
Hann var spurður hvort ekki
Steingrímur Hermannsson
væri fallið frá, með þessari ákvörð-
un, þeim rökstuðningi sem fram
var færður á sínum tíma fyrir
flugleyfi til Arnarflugs um næga
samkeppni. Steingrímur svaraði:
„Ég hef alltaf sagt í sambandi við
það, að ég telji að það eigi að vera
nokkur samkeppni og samanburð-
ur, en ég hef alltaf sagt að ég stefni
að þvi að skipta þó leiðum á milli
þessara tveggja flugfélaga og það
hefur margoft komið fram, m.a. á
Alþingi, að viðræður væru í gangi á
milli flugfélaganna um skynsam-
lega skiptingu á flugleiðum," sagði
Steingrímur.
Spurningu um hvort hinn al-
menni neytandi mætti ekki njóta
lágra fargjalda, svaraði ráðherr-
ann þannig: „Sem betur fer þá
njóta þeir þess áreiðanlega til þess-
ara landa. I þessum fargjöldum er
boðið upp á alls konar möguleika,"
sagði hann, og neitaði því að þessi
ráðstöfun byði upp á hækkun flug-
fargjalda. „Þetta er sama mark-
aðssvæðið, Holland, Þýskaland og
Sviss, þetta er Mið—Evrópa og ég
tel að þetta sé nægjanlegt."
Steingrímur var spurður um af
hverju mál þetta hefði ekki verið
sent Flugráði til umsagnar. Hann
svaraði: „Flugráð fjallaði á sínum
tíma um umsóknir Arnarflugs og
ég taldi þess vegna búið að fjalla
nægjanlega um það.“
Borgarráð:
29 einbýlishúsalóðum á
Laugarási úthlutað í gær
BORGARRÁÐ úthlutaói 29 lóðum
fyrir einbýlishús á I>augarási á fundi
sínum í gær, en lóðir þessar voru
auglýstar snemma í maí.
Átján umsækjendur höfðu 100
stig eða fleiri og hlutu úthlutun sam-
kvæmt því. Þeir eru:
Vesturhrún 3,
(auðmundur R. Bjarnleifss., Rlönduhakka 12.
Vesturbrún 5,
Þorsteinn Marinósson. Drápuhlíd 21.
Vesturbrún 7,
Þorsteinn Kiríksson, lláteigsvegi 38.
Vesturbrún 13,
Jón l»orvaldsson. Austurbergi 6.
Vesturbrún 17,
Þorvaldur W.H. Mawby, Mávahlíó 6.
Vesturbrún 19,
Sveinn Sveinsson, l.járskógum 16.
Vesturbrún 21,
Scvar llalldórsson, Álfheimum 27.
Vesturbrún 23,
l*orsteinn Tryggvason, Fífuseli 14.
Vesturbrún 25,
Kristinn Magnússon, (>oóheimum 4.
Vesturbrún 29,
Emil Petersen, Sogavegi 72.
Vesturbrún 31,
l>orbjörn Ásmundsson, Hávallagötu 44.
Vesturbrún 33,
Helgi Bergþórsson, Dalseli 34.
Vesturbrún 35,
(■uðni Jónsson, Klúóaseli 88.
Vesturbrún 39,
Kristján (luðbjartsson, Keilufelli 12.
Austurbrún 12,
Haukur Snorrason, Hlunnavogi 5.
Austurbrún 14,
Bragi Sigurósson, Dalseli 38.
Austurbrún 16,
Siguróur M. Magnússon, Jörfabakka 10.
Austurbrún 24,
Sigurjón Torfason, Fagrabc 17.
Fftirtaldir aóilar fengu lóó samkvcmt út-
drctti, en þeir voru allir meó % stig. lH*ir voru
dregnir úr hópi 62 umsckjenda.
Austurbrún 8,
Hrönn (■uómundsdóttir, Dvergabakka 36.
Austurbrún 10,
Robert G. Boucher, Ránargötu 14.
Austurbrún 18,
Jón liaukur Baldvinsson, Byggóarholti 8.
Austurbrún 20,
Arngrímur B. Kinarsson, Keilufelli 2.
Austurbrún 22,
Magnús Pálsson, Sólheimum 23.
Austurbrún 28,
Oddur J. Oddsson, Noróurbrún 6.
Austurbrún 30,
Siguróur Ingason, Safamýri 23.
Austurbrún 32,
Siguróur E. Þorvaldsson, Safamýri 77.
Austurbrún 34,
Pétur Ingólfsson, Engjaseli 56.
Þá var eftirtöldum aóilum úthlutaó lóó á Laug-
arási, meó tilvísun í grein 3.9. í Reglum um
loóaúthlutun. en þcr fjalla um úthlutun vegna
séstakra ástcóna.
Vesturbrún 15,
llalldóra Eyjólfsdóttir, Gnoóarvogi 22.
Vesturbrún 37,
Kristin Helga Waage og Knútur Signarsson,
Kambsvegi 16.
Ncstu rétthafar lóóa veróa:
1) Kristín Olafsdóttir. Básenda 1.
2) Höróur Sigurjónsson, Hofsvallagötu 55.
3) Kyjólfur Arthursson, Ásgarói 3.
4) J. Anton Bjarnason, Laugarásvegi 1.
5) Karl Finnbogason, Tunguvegi 50.