Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1982 2 1
Björgunarsveitarmenn búa sig undir fjallgöngu á Kistufell og í hlídar Esju frá bænum Gröf í Kjalarneshreppi í gærkvöldi en þyrla Landhelgisgæzlunnar er aö
taka sig á loft á túninu viö bæinn. Ljósmyndir Mbl. (iuAjón.
með tíu kafara innanborðs
til leitar. Það kom þó fljót-
lega í ljós þegar leitað var
nánari staðsetningar neyð-
arsendinganna og einnig
þegar unnt var að hlusta á
ný á síðustu sendingar vél-
arinnar, sem teknar höfðu
verið upp á myndsegul-
bandstæki flugumferðar-
stjórnar á Keflavíkurflug-
velli, að vélin hlaut að hafa
verið stödd mun austar og
tókst síðar með hjálp flug-
vélar flugumferðarstjórn-
ar, sem var um líkt leyti að
koma frá Vopnafirði,
Flugleiðavélar og með mið-
unartækjabúnaði hjálpar-
sveitarmanna að finna
nákvæma staðsetningu sem
var ofarlega í hlíðum
Kistufells, skammt fyrir
ofan Breiðageira. Fyrstu
leitarmenn komu gangandi
að flaki vélarinnar um kl.
11.20 og tilkynntu skömmu
síðar að allir væru látnir
sem um borð voru.
Þrátt fyrir hin lélegu
leitarskilyrði gekk leitin
mjög vel og tók skamman
tíma. Auk aðalstjórnstöðv-
ar leitarmanna, sem stað-
sett var í flugturninum í
Reykjavík var sett upp sér-
stök stjórnstöð á leitar-
svæðinu þar sem fulltrúar
allra björgunaraðila störf-
uðu.
Flestir leitarmanna
héldu til byggða á ný eftir
að flakið fannst, en vakt
var við flakið. Upp úr mið-
nætti var rannsóknarnefnd
flugslysa auk Skúla Jóns
Sigurðarsonar, fulltrúa hjá
Loftferðaeftirlitinu, á leið
á slysstaðinn.
Gísli J. Johnsen að leggja af stað til leitar á Sundunum með flokk manna frá SVFÍ, en um 200 leitarmenn voru komnir til
leitar innan við klukkustund eftir að vélarinnar var saknað.
Leitarmenn leggja upp Esjuhlíðar frá bænum Gröf.