Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ1982 Opna Pepsi Cola- mótið í aolfi í opna Pepsi Cola-mótinu í fyrra létu 157 kylfingar skrá sig til keppni og þar meó varó þetta fyrsta Pepsi ('ola-mót langstærsta helgarmót, sem haldió hefur verið á fslandi. Aóstandendur mótsins urðu auó- vitað himinlifandi yfir þátttökunni, enda hafói þaó mót, sem Pepsi ('ola-mótið tók við af, misst aðdrátt- arafl sitt, svo að þakka mátti fyrir, ef 60 kylfingar tóku þátt í því. I>að má sjálfsagt lengi deila um það, hvað gerði þátttökuna svo glæsilega, sem raun varð á, en senni- legast er að nýstárlegt fyrirkomulag keppninnar og hagnýt verðlaun til sigurvegara, hafi þar ráðið mestu um. Urn næstu helgi, eða dagana 24. og 25. júlí nk. verður annað opna Pepsi Cola-golfmótið haldið á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti. Sama fyrirkomulag verður á keppninni og í fyrra og eins og fram kemur í reglum um keppnina, hefur forgjafarmörkum verið litillega breytt og nánar sagt frá forgjafarmörkum kvenna. Þá hafa verið sett inn ákvæði um lág- marksfjölda kvenna í framhalds- keppnunum. Keglur fyrir keppnina Meistarakeppni: Þátttökuréttur: karlar, forgjöf 1 — 11, konur, forgjöf 1—22. Teigar: karlar — gulir, konur — bláir. Laugardagur: Keppnin hefst kl. 8.00 og verður ræst út í þriggja manna „hollum". 1. flokks kylfingar verða ræstir út fyrst. Sunnudagur: 30 bestu kylfingarnir á laugar- dag og þeir sem jafna við 30. sætið halda áfram í keppninni. Auk þess sem tryggt skal, að minnsta kosti þrjár konur haldi áfram í keppn- inni. Keppnin hefst eftir hádegi og verður ræst út í tveggja manna „hollum", þannig að þeir bestu verði ræstir út síðastir. Forgjafarkeppni: Þátttökuréttur: karlar, forgjöf 6-24 (30), konur, 16-30 (36). Gefin forgjöf % hámark karla 18, hámark kvenna 23. Teigar: karlar — hvítir, konur —rauðir. Laugardagur: Ræst verður út í keppnina strax og ræsingu er lokið í meistara- keppninni. Ræst verður út í þriggja manna „hollum", þannig að lágforgjafarkylfingar fari fyrst. Sunnudagur: 45 bestu kylfingarnir (nettó) á laugardag og þeir sem jafna við 45. sætið halda áfram í keppninni. Auk þess skal tryggt, að minnsta kosti sex konur haldi áfram í keppninni. Keppnin hefst kl. 8.00 og verður ræst út í þriggja manna „hollum", þannig að þeir bestu verði ræstir út síðastir. Verðlaun Meistarakeppnin: 1. sæti: Verðlaunapeningur, pútt- er, regnhlíf og 24 golfkúlur. 2. sæti: Verðlaunapeningur, regnhlíf og 12 golfkúlur. 3. sæti: Verðlaunapeningur, regnhlíf og 6 golfkúlur. Forgjafarkeppnin: 1. sæti: Verðlaunapeningur, regnhlíf og 12 golfkúlur. 2. sæti: Verðlaunapeningur, regnhlíf og 6 golfkúlur. 3. sæti: Verðlaunapeningur, regnhlíf og 3 golfkúlur. Aukaverðlaun: Besti árangur kvenna í meistarakeppni: Verðlaunapen- ingar, pútter og 12 kúlur. Besti árangur „brúttó" í forgjaf- arkeppninni: A-karla: Verðlaunapeningur og 12 golfkúlur. B-kvenna: Verðlaunapeningur og 12 golfkúlur. Hola i höggi á 17. holu á laugardag eða sunnudag. Gildir í báðum keppnum. Verðlaun: Farseðill, á Kefla- vik—Glasgow—Keflavík. Sunnudagur: Báðar keppnir: Fæst pútt: Verð- laun „pútter". Báðar keppnir: Lengsta „dræf“ karla á 18. braut — Verðlaun: regnhlíf. Lengsta „dræf“ kvenna á 18. braut — Verðlaun: regnhlíf Báðar keppnir: Næstur holu á 17. flöt — Verðlaun: 24 golfkúlur. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 15.00 á föstu- dag, til þess að tryggt verði, að kylfingar komist í rétta rásröð. Kappleikjanefnd GR áskilur sér rétt til að ræsa af 10. teig, ef nauð- syn krefur. Kylfingum utan af landi er sér- staklega bent á afsláttarfargjöld Flugleiða. Arangur á Pepsi Cola-mótinu í fyrra: Meistarakeppnin: Pepsi Cola-meistari varð Gylfi Kristinsson GS á 156 höggum, annar varð Ragnar Ólafsson GR á 158 höggum, þriðji varð Sigurður Pétursson GR á 159 höggum. Sól- veig Þorsteinsdóttir GR lék best kvenna á 169 höggum og lenti í 10. til 12. sæti. Forgjafarkeppnin: í 1. sæti varð Hallgrímur T. Ragnarsson á 151 höggi nettó. I 2. sæti varð Kári Knútsson á 152 höggum nettó. í 3. sæti lentu sam- an Karl O. Karlsson, Ásgeir Guð- bjartsson og Jóhann Sveinsson á 154 höggum nettó. Lengsta „dræf“ átti Gunnar Finnbjörnsson. Með fæst „pútt“ var Gylfi Krist- insson. Næstur holu á 17. holu varð Karl Hólm. Morgunblaðið/ Kristján Órn Elíasson. • íturvaxnir og ítursterkir frjálsíþróttamenn, kraftakarlar, sem settu svip á Reykjavíkurleikana í frjálsíþróttum. Velsku kastararnir Shaun Pickering, sonur sjónvarpsmannsins fræga hjá BBC, og Paul Edwards eru lengst til vinstri, þá koma John Powell fyrrum heimsmethafi í kringlukasti, Óskar Jakobsson, sovézki kúluvarparinn Sergey Gavry- ushin, bandariski háskólameistarinn í kúluvarpi og kringlukasti, Dean Crouser, og Vésteinn Hafsteinsson. Héðinn Gunnarsson Akureyrarmeistari DAGANA 14.—17. júlí fór fram á Jaðarsvellinum við Akureyri meist- aramót klúbbsins og var um spenn- andi keppni að ræða i nokkrum flokkum en oftar en ekki var all mikill munur á fyrstu mönnum. Af einhverjum ókunnum ástæðum ákváðu Akureyringar að sleppa 3. flokknum að þessu sinni og setja spilarana er tilheyra flokknum í 2. flokk. Kom það á daginn að fæstir áttu erindi þangað. Keppendur á mótinu voru alls 47 en marga fram- bærilega spilara vantaði og var það til þess að draga úr spennu og minnka gæði mótsins. Meistari klúbbsins varð Héðinn Gunnarsson með 328 högg en hann háði mikla keppni við „stóra“ bróður sinn, Jón Þór, er lék á sam- tals 329 höggum. Raunar virtist Jón Þór öruggur með sigur lengst af keppni og hafði t.a.m. 8 högg á Héðinn eftir 54 holur en sá ungi (sem þeir eru raunar báðir) lék afar vel og vann verðskuldað. Veð- ur var fremur leiðinlegt mótsdag- ana en einstök úrslit voru sem hér segir: Meistaraflokkur: 1. Héðinn Gunnarsson 328 högg 2. Jón Þór Gunnarsson 329 högg 3. Baldur Sveinbjörnsson 330 högg 1. flokkur: 1. Jón G. Aðalsteinsson 352 högg 2. Sverrir Þorvaldsson 366 högg 3. Birgir Björnsson 392 högg 2. flokkur: 1. Þórður Svanbergsson 371 högg 2. Páll Pálsson 385 högg 3. Ragnar Lár 387 högg Sem fyrr segir var ekki keppt í 3. flokki og mun það hafa mælst fremur illa fyrir hjá spilurum úr þeim flokki og er þetta raunar óskiljanlegt þegar þess er gætt að keppendur eru um 20 í þessum flokki, þ.e. 2. flokki. Kvennaflokkur: 1. Inga Magnúsdóttir 367 högg 2. Jónína Pálsdóttir 389 högg 3. Auður Aðalsteinsd. 451 högg Drengjaflokkur: 1. Björn Axelsson 335 högg 2. Ólafur Gylfason 357 högg 3. Örn Ólafsson 358 högg Stórglæsileg verðlaun voru veitt fyrir sigur í einstökum flokkum. - MÞ Meistaramótið í frjálsíþróttum Meistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram á Selfossi 24., 25. og 26. júlí. Hefst keppnin kl. 15 á laugar- dag, en kl. 14 á sunnudag. Keppt verður í eftirfarandi greinum: 1. dagur: konur: 200, 800 m hlaup, 400 m ffrind, kúluvarp, spjólka.st, hástökk og 4x100 m bodhlaup. karlar: 200, 800, 5.000 m hlaup, 400 m grind, kúluvarp, spjótkast, langstökk, stangarstökk og 4x100 m boðhlaup. 2. dagur: konur: 100, 400, 1.500 m hlaup, 100 m grind, lang.stökk, kringluk. karlar: 100, 400, 1.500 m hlaup, 110 m grind, þrístökk, hástökk, kringluk., og Hleggjukaat. 3. dagur: konur: 4x400 m boóhlaup. karlar: fimmtarþraut, 3.000 m hindr- unarhlaup og 4x400 m boðhlaup. Rétt til þátttöku hafa þeir einir sem náð hafa eftirfarandi lág- marksárangri á því ári sem mótið fer fram, eða næsta ári á undan. Undanþágur eru veittar þannig að I------------------------------------ öruggt sé að tíu keppendur keppi hverri grein. Undanþágurnar eru: 100 m 11,3 sek 12,8 sek 200 m 23,5 sek 26,5 sek 400 m 52,0 sek 60,0 sek 800 m 2:02,0 mín. 2:22,6 mín 1.500 m 4:15,0 mín 100 m grind 17,0 sek 110 m grind 16,5 sek 400 m grind 58,5 sek langstökk 6,50 m 5,00 m há.stökk 1,90 m 1,55 m þrístökk 13,50 m sLangarstokk 4,00 m kúluvarp 14,50 m 10,00 m kringlukast 45,00 m 32,00 m spjótkast 60,00 m 32,00 m 3.000 m hindrunarhlaup fer fram í Reykjavík 26. Ekkert lágmark gildir fyrir þátttöku í eftirfarandi greinum: Karlar: 5.000 m, 300 m hindrunarhlaupi, fimml arþraut, né slegipukaati. Konur: 1.500 m, 400 m grindahlaup. Þátttökutilkynningar þurfa að berast skrifstofu HSK fyrir mið- vikudaginn 21. júlí á þar til gerð- um kortum. (FrétUtilkynning) Durham setti vallarmet Það er eins og þeir séu að togast á um stöngina, bandaríski stangarstökkvar- inn Nat Durham, og unglingamethafinn íslenzki, Sigurður Magnússon, ÍR. Myndina tók Kristján Örn Klíasson á Reykjavikurleikunum í Laugardal, en þar vann Durham glæsilegt afrek, stökk 5,32 metra og setti vallarmet. Metið átti Larry Jessee Bandaríkjunum, einn bezti stangarstökkvari heims undan- farinna ára. Durham lét hækka rána í 5,50 metra í Laugardal, en tókst ekki að fara þá hæð. Frammistaða Durhams er góð, kemur beint úr veðursældinni í Kaliforníu í heimskautaveðráttuna íslenzku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.