Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ1982
Það er betra að tapa og
senda áhorfendur ánægða heim
en að gera markalaust jafntefli
— segir hinn frægi Ference Puskas
HeimsmeisUrakeppnin á
Spáni, sú 12. í rödinni, undir-
strikaði ad varnarmenn eru
ekki lengur varnarmenn. í þad
minnsta ekki þessir hörðu jaxl-
ar sem þeir voru. Nú skulu lík-
amlegur styrkur og taekni
blandast saman, og í keppninni
fengum við að sjá nokkra mjög
sókndjarfa varnarmenn.
Besta dæmið um slíkan
leikmann er Junior frá Bras-
ilíu. Hann taklaði ekki mót-
herja sina, heldur potaði hann
boltanum frá þeim. Hann er
mjög sterkur líkamlega, mjúk-
ur í hreyfingum, liðugur, og
ótrúiega leikinn með knöttinn.
En við sáum fleiri. Gentiie
og Scirea frá ftalíu, Frakkann
Tresor, Kourichi frá Alsír,
(’ostly frá Hondúras, Pólverj-
ann Amuda, Austurríkismann-
inn Degeorgi og Brassann
Oscar. Allt eru þetta skemmti-
legir og liprir varnarmenn.
Staðreynd sem ekki er hægt
að lita framhjá er, að áhorfend-
ur hafa meira gaman af
knattspyrnu „a la Brasilia“,
heldur en knattspyrnu þeirri
sem flestar Evrópuþjóðir leika.
En í ljós kom í þessari
keppni, að þrátt fyrir að
Brassarnir léku frábæran
fótbolta, er það ekki alltaf
nóg. „Það er ekki lengur nóg
að vera Brasilíumaður" orð-
aði einn danski blaðamaður-
inn það.
En ýmsir knattspyrnu-
frömuðir eru þó á því, að opin
knattspyrna, að hætti S-Am-
eríkumanna sé sú rétta. „Það
er betra að tapa 6—4, og
senda áhorfendur ánægða
heim af vellinum, en að gera
markaiaust jafntefli," sagði
Ference Puskas, Ungverjinn
frægi. „Þetta er mjög ein-
falt,“ segir hann. Þú skorar
mörk, hitt liðið skorar mörk.
Þú skorar fleiri en andstæð-
ingurinn, og stendur uppi
sem 8igurvegari. Þannig
hugsuðum við á velgengnis-
árum okkar hjá Real
Madrid.“
„Við ieikum ekki með sér-
stakar tölur í huga. Brasilíu-
menn hugsa um að hrífa
sjálfa sig og aðra,“ segir
Santana, þjálfari þeirra.
Vissulega hugarfar sem
mætti finnast á fleiri stöðum.
V-þýski markvörðurinn
Harold Schumacher skapaði
sér óvinsældir margra
knattspyrnuunnenda í heim-
inum í leiknum við Frakka,
er hann braut hræðilega illa
á Battiston, sem frægt er orð-
ið. Hvað segir hann um þessa
hlið málsins?
„Mannkærleikur skiptir
ekki máli í atvinnuknatt-
spyrnu. Ég leik ekki tii að
hrífa áhorfendur, heldur til
að sigra ...“
Svo mörg voru þau orö.
STALHR
SINDRA
Fyrirliggjandi i birgðastöð
Rifflaðar álplötur
Gólfál___________________
Þykktir 3—7 mm.
Plötustærðir 1250 x 2500 mm.
Borgartúni 31 sími27222
STALHR
SINDRA
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Bitajárn
Allar algengar stærðir
U.N.P. H.E.B. I.P.E.
u H I
Borgartúni 31 sími27222
# ■
• Erla Rafnsdóttir
Leiörétting
• í frásögn af Bautamótinu í
kvennaknattspyrnu i blaðinu í gær
var rangt farið með nafn annars
markaskorara Breiðabliksliðsins í
úrslitaleiknum gegn KR. Það var
Erla Rafnsdóttir sem skorðai tvö
mörk i leiknum, og er hún beðin
velvirðingar á þessum mistökum.
Varnarmenn nútímans eru margir
hverjir mjög liprir og skemmtilegir
og gott dæmi um það er Junior frá
Brasiliu. Hann taklaði ekki mót-
herja sína i HM-keppninni heldur
potaði boltanum frá þeim. Kappinn
til hægri á myndinni ætti að taka sér
hina „nútímalegu" varnarmenn til
fyrirmyndar, því ekki virðist hann
vera einn þeirra. Myndin var tekin í
landsleik milli Chile og Paraguay, og
er sökudólgurinn frá Chile.
Einar bætir
sig í 800 m
Einar Páll Guðmundsson hlaupari
úr FH setti persónulegt met í 800
metra hlaupi á frjálsíþróttamóti í
Gautaborg í síðustu viku, hljóp á
1:54,79 mínútum, sem er jafnframt
nýtt Hafnarfjarðarmet.
Einar átti bezt áður 1:56,13 minút-
ur, en eldra metið átti Magnús Har-
aldsson, sem hljóp á 1:55 mínútum
rúmum í V-Þýskalandi í sumar. Ein-
ar hefur æft vel í vetur og sumar, og
er talið að hann geti bætt sig veru-
lega.
Vandræði skapast
vegna sölu Mara-
dona til Spánar
EITTHVERT babb virðist nú komið
í bátinn varðandi söluna á Diego
Maradona til Barcelona á Spáni.
Fjármálaráðuneyti landsins hefur
gripið í taumana og neitað félaginu
um gjaldcyrisyfirfærslu fyrir öllu
sem þeir þurfa til að borga strákinn.
Segja stjórnvöld að félagið verði að
gjöra svo vel og vinna sér inn rúm-
lega helming kaupverðsins erlendis.
Varaformaður liðsins lét hafa eftir
sér að þeir yrðu ekki í neinum vand-
ræðum með það. „Við spilum
kannski nokkra æfingaleiki erlendis
og fáum næga peninga fyrir það,“
segir hann.
Stór spurning er einnig hver skuli
fá í hendurnar allt féð sem til
Argentínu fer fyrir leikmanninn,
og hefur knattspyrnusamband
landsins blandað sér í málið.
Þannig er mál með vexti að
Argentina Juniors var í miklum
kröggum er það seldi Maradona til
Boca Juniors og er Boca gat ekki
greitt kaupverðið lánaði knatt-
spyrnusambandið Argentina Juni-
ors um 4 miiljónir. Salan var
seinna kölluð „lán“ þar sem Boca
gat engan veginn greitt uppsett
verð að fullu.
Knattspyrnusambandið mun
ekki gefa út keppnisleyfi fyrir
Maradona fyrr en það hefur fengið
sitt, og stendur hnífurinn þar í
kúnni þessa stundina. Gæti hníf-
urinn orðið þar um kyrrt í vikur
eða mánuði, þar sem félögin tvö
sem hann hefur leikið með í Arg-
entínu virðast ekki sammála um,
hvort þeirra sé eigandi hans.
Barcelona
sektað
SPÁNSKA knattspyrnufélagið
Barcelona hefur verið dæmt til að
greiða u.þ.b. 166.000 krónur (16.666
dollara) vegna óláta áhangenda
þeirra á úrslitaleik Evrópukeppni
bikarhafa gegn Standard Liege í vor.
Ahangendur liðsins voru með
töluverð ólæti á vellinum, hentu
flugeldum og öðrum hlutum inn á
leikvanginn og hlupu síðan inn á
hann að leik loknum.