Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.07.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1982 Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrUasel Chicago Dyflinni Feneyjar Frankturt Gent Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kairó Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca Mexíkóborg Miami Moskva Nýja Delhi New York Osló París Perth Reykjavík Rio de Janeiro Rómaborg San Francisco Stokkhólmur Sydney Tel Aviv Tókýó Vancouver Vinarborg Þórshötn 19 skýjaó 22 heióskírt 32 heiöskirt 29 léttskýjaó 28 heióskfrt 25 heiöskírt 27 heióskirt 19 heióskfrt 30 léttskýjaó 26 skýjaó 25 heióskírt 25 heióskfrt 32 heióskirt 31 heióskfrt 18 heióskfrt 36 heióskfrt 22 heióskfrt 23 skýjaó 23 skýjaó 23 heióskfrt 25 heióskfrt 31 heiðskfrt 24 léttskýjaó 34 heióskfrt 25 heióskfrt 31 heióskfrt vantar 37 skýjaó 36 skýjaó 27 skýjaó 28 skýjaó 13 rigning 15 alskýjað 26 skýjaó 32 heíóskfrt 16 skýjaó 26 heiöskfrt 12 skýjaó 31 heiðskfrt 28 skýjaó 19 skýjaö 26 skýjað 14 hélfskýjaó Lögreglumenn skoíla lik manns sem beið bana þegar sprengja sprakk við hljómsveitarpall í Regent Park í Lundúnum i gær. Sex manns biðu bana þegar sprengjan sprakk og fleiri slösuðust. Símamynd — Al‘. Haglél í Nebraska og hitabylgja í New York New York, 20. jólí. AP MIKIL hitabylgja gengur yfír norð- austurriki Bandaríkjanna um þessar mundir og mældist hitastigið viðast hvar 35—40 gráður. Búist er við mikl- um hita áfram, en 36,5 gráður mældust í New Vork í dag. Á sama tíma geysa fellibyljir í miðvestur-ríkjunum og hefur þar orðið milljónatjón á korn- og soya- baunauppskeru af völdum flóða og vinda. I Nebraska gerði haglél og voru höglin á stærð við hænuegg. Var Bruno Hauptmann sak- laus af „Glæpi aldarinnar“? Marijúanaskipið: New York, 20. juli. Ar. KKKJA mannsins, sem tekinn var af lífi fyrir 46 árum, sekur fundinn um að hafa myrt 20 mánaða gamlan son Lindberghs-hjónanna, hélt því fram i gær, mánudag, að saksóknarinn hefði stungið undan miklilvægum gögnum, sem bentu til sakleysis eiginmanns hennar. Á blaðamannafundi með lög- fræðingi sínum sagði Anna Hauptmann, að hún væri viss um að yfirvöld í New Jersey hefðu vitað, að þau voru að lífláta sak- lausan mann þegar þau sendu Bruno Hauptmann í rafmagns- stólinn fyrir morðið á Charles A. Lindbergh jr., syni þess fræga manns, Lindberghs, sem fyrstur flaug yfir Atlantshafið á flugvél sinni „Spirit of St. Louis". Lögfræðingur Önnu Haupt- mann, Robert Bryan, kvaðst hafa rekist á ýmis merkileg gögn þeg- ar hann blaðaði í skjalasafni lög- reglunnar, en þau hefðu hins veg- ar ekki legið á lausu fyrr en hann höfðaði opinbert mál. Þessi skjöl ætlar Anna að nota í máli, sem hún höfðaði á hendur yfirvöldum í október sl., en þar fer hún fram á að sakleysi manns hennar verði viðurkennt og henni greiddar 100 milljónir dollara í skaðabætur. Fimm áratugir eru liðnir síðan „Glæpur aldarinnar" var frétta- efni um allan heim en Anna kveðst aldrei hafa fundið frið í sálu sinni. „Eg vissi að ég varð að gera eitthvað. Mér bar skylda til þess vegna mannsins míns. Ég vissi að hann var saklaus," sagði hún. Anna Hauptmann heldur því enn fram, eins og hún gerði við réttarhöldin á sínum tíma, að þau hjónin hafi verið saman á heimili þeirra í Bronx daginn sem barninu var rænt. Charles Lindbergh við flugvél sína, Spirit of SL Louis, sem hann flaug á yfir AtlanLshafíð fyrstur manna árið 1927. Komið með „Trio Senior“ til hafnar i Boston. Skipið var ekki með sements- farm, eins og stóð í skipsbókinni, heldur allt að 100 tonn af marijúana. Skipstjórmn fvrir dómara Kaupmannahöfn, 20. júlí. AP. SKIPSTJÓKINN á danska flutn- ingaskipinu „Trio Senior“ var í gær, mánudag, dreginn fyrir dómara í Boston í Bandaríkjunum þar sem honum verður gefíð að sök að hafa ætlað að smygla allt að 100 tonnum af marijúana til landsins. í frétta- skeyti frá AP-fréttastofunni sagði, að skipið héti „Grímur Kamban“ en í dönsku blöðunum er það nefnt „Trio Senior". Samkvæmt skipsskjölum átti skipið að vera á leið frá hollensku Antilla-eyjum til Bermuda með sementsfarm, en þegar það var tekið var það á allt annarri sigl- ingarleið. Skipstjóri þess er danskur en að öðru leyti er áhöfn- in skipuð níu Kólombíumönnum og einum Jamaicabúa. Eigandi skipsins, Poul Olsen í Sæby í Danmörku, keypti skipið á nauðungaruppboði og kveðst hafa sent það til Antilla-eyja þar sem hann hafi ætlað að selja það. Skip- ið hafi verið fyrir festum í Kral- endick-höfn og vörður um það og segist hann ekkert skilja í ferða- lagi þess. Poul Nörgaard, skipstjórinn á „Trio Senior“. London: Leynilögreglumenn fá dóma fyrir mútuþægni London, 20. júlí. AP. TVEIR háttsettir leynilögreglu- menn í London voru i dag dæmdir til fangelsisvistar fyrir mútuþægni og eru þessir dómar árangur af um- fangsmikilli rannsókn á spillingu innan lögreglunnar. SOVÉZK yfirvöld létu í dag hand- taka þriðja félagann í óháðu frið- arhreyfingunni þar i landi, og er tal- ið að það hafí verið gert til að koma í veg fyrir að félagar í sovézku frið- arhreyfingunni eigi samskipti við skandinavískt friðargöngufólk, sem nú þrammar áleiðis til Moskvu. Skandinavíska friðargöngufólk- ið er í Sovétríkjunum í boði sov- ézkra yfirvalda, og efnir þar til sameiginlegra mótmælafunda með hinni opinberu friðarhreyf- ingu Sovétmanna. Tveir félagar óháðu friðarhreyf- James Miskin, dómari við Old Bailey, sagði þegar hann kvað upp dóminn: „... rettarfarið í Englandi hefur lengi verið til fyrirmyndar um allan heim og af þeim sökum kemur spilling innan ingarinnar voru teknir fastir á föstudag og dæmdir í tveggja daga fangelsi fyrir óspektir. Kona ann- ars þeirra var í dag vöruð við því að eiga samskipti við erlenda fréttamenn, ellegar ætti hún frels- issviptingu yfir höfði sér. Þrír félagar í hreyfingunni til viðbótar voru varaðir við því að ferðast frá Moskvu, að öðrum kosti ættu þeir á hættu að missa atvinnu sína. Félagar í hinni óháðu hreyfingu eru orðnir 16. Sovézka leynilögreglan fylgist grannt með þeim. lögreglunnar úr hörðustu átt“. Annar leynilögreglumannanna var dæmdur í þriggja ára fang- elsi og hinn í tveggja. Þeir voru fundnir sekir um að hafa þegið mútur og falsað skýrslur um sakborninga þannig að þeir voru sýknaðir. Við réttarhöldin sagði saksókn- arinn, að menn, sem handteknir hefðu verið eftir rán í Williams og Glyn-bankanum og á skrif- stofum dagblaðsins Daily Mirror, hefðu verið látnir lausir gegn tryggingu eftir að hafa borgað leynilögreglumönnunum „þús- undir punda" á veitingastað gegnt lögreglustöð í London. í þessum tveimur ránum höfðu ræningjarnir upp úr krafsinu meira en 10 milljónir ísl. kr. Rannsóknin á spillingu innan lögreglunnar í London lauk með þvi, að Patrick Kavanagh, aðstoð- arlögreglustjóri í London, lýsti því yfir, að „engin merki væri um víðtæka spillingu" en samt sem áður hefur það gengið fjöllunum hærra, að oft hafi rannsóknar- menn verið leiddir á villigötur og þeim beinlínis settur stóllinn fyrir dyrnar af lítt samvinnufús- um lögreglumönnum í London. Friðarsinni fangelsaður Moskvu, 20. júlí. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.