Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1962 Halldór Laxness Norræna húsið: Fyrirlestur um Halldór Laxness og Island Á nmmtudagskvöldió 29. júlí kl. 20.30 verður OPIÐ HÚS að venju í Norræna húsinu fyrir ferðamenn fri Norðurlöndunum og aðra gesti. Vésteinn Ólason lektor heldur fyrirlestur, sem hann nefnir „Halldór Laxness og ísland“, en þar fjallar hann um íslenskar bók- menntir og þá einkum bækur Laxness. Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku. Að loknu kaffihléi verður sýnd kvikmynd um Halldór Laxness, sem Osvaldur Knudsen tók á sín- um tíma. í myndinni má m.a. sjá, þegar Halldór Laxness tók á móti Nóbelsverðlaununum í Stokk- hólmi og heimkomu hans til Reykjavíkur. Myndin er með ísl. tali og sýningartíminn er 32 mín. Kaffistofa og bókasafn eru opin til kl.22.00. í anddyri Norræna hússins er sýning á íslensku flórunni og um- hverfis húsið eru höggmyndir danska myndhöggvarans Johns Rud.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.