Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ1982 29 Stórbæting hjá Brynjólfi í 800 Brynjólfur Hilmarsson UÍA stór- bætti sinn fyrri árangur í 800 metra hlaupi á frjálsíþróttamóti í Gauta- borg á laugardag, hljóp á 1:51,10 minútum. Brynjólfur átti bezt 1:53,53 áður, frá því í fyrra. Þetta er gött stökk sem hann hefur tekið og hefur hann fært sig upp um fjögur sæti á skrá beztu manna frá upphafi, er kominn i fimmta sæti. A mótinu í Gautaborg setti Ein- ar Guðmundsson FH einnig per- sónulegt met i 800 metrum, hljóp á 1:54,39 og bætti vikugamalt Hafnarfjarðarmet sitt um fjögur sekúndubrot. Einar hefur bætt sig um rétt tæpar tvær sekúndur frá í fyrra. Hann hljóp einnig 400 metra á 50,48 sekúndum í Gauta- borg. Þá kepptu þau Lilja Guð- mundsdóttir ÍR og Guðmundur Rúnar Guðmundsson FH á mótinu í Gautaborg. Lilja hljóp 800 metra á 2:11,34 og Guðmundur stökk tvo metra slétta í hástökki. • Roberto Maneini • Liam Brady Brady til Sampdoria ÍRSKI knattspyrnumaöurinn Liam Brady hefur nú verið seldur til fé- lagsins Sampdoria á Ítalíu. Hann lék sem kunnugt er með Juventus, og var einn besti maður liðsins. En þar sem aðeins er leyft að tveir útlend- ingar leiki í hverju liði á Ítalíu varð liðið að selja Brady, er það festi kaup á HM-stjörnunum Platini og Boniek. Hið nýja lið Bradys, Sampdoria, hefur safnað að sér nýjum leik- mönnum að undanförnu, og eru fimm aðrir nýkomnir til félagsins. Meðal þeirra er hinn 17 ára gamli Robert Mancini, sem keyptur var frá Bologna fyrir tæplega 30 millj- ónir ísl. króna. Sampdoria greiddi um 20 milljónir í peningum og þrír af fastamönnum í liðinu hingað til fylgdu með í kaupunum. Sögusagnir að undanförnu hafa hermt að Brady hefði áhuga á að snúa aftur til Englands, en nú er það úr sögunni. „Ekki nóg að hafa bara stóra dómara!“ Víkingsstúlkur með fyrirspurn til KSÍ Við erum héma nokkrar stelpur úr Knattspyrnufélaginu Víkingur og okkur langar til þess að segja nokk- ur orð um leik Vals og Víkings í undanúrslitum bikarkeppni kvenna þ. 23. júlí. Snúast þessi skrif aðallega um það, sem dómarinn sagði. Viðkom- andi dómari heitir Baldur Þórðarson úr Þrótti, fyrrverandi landsdómari. Hann sagði meðal annars að: Ef þjálfari annars liðsins myndi ekki hætta að mótmæla dómum, þá myndi hann bara framlengja leikinn. Ef við neituðum að leika vegna þess að það vantaði línuverði, þá sagðist hann ætla að flauta leik- inn á og dæma svo Val bæði stigin. Geta leikmenn neitað að leika vegna þess að það vantar línu- verði? Hann þyrfti ekki neina línu- verði, vegna þess að hann hefði svo góða yfirsýn. Hafa dómarar leyfi til að segja svona? Væri þá ekki bara hægt að sleppa alltaf línuvörðum og hafa stóra dómara? Hann dæmdi aldrei vitlaus inn- köst, þó að mörg þeirra væru vit- laust tekin. Hann leyfði tæklingar á báða bóga, og voru mörg brotin ansi ljót. Nú langar okkur til þess að beina nokkrum spurningum til KSÍ. 1. Hefur dómari leyfi til þess að framlengja leik ef þjálfari mót- mælir dómum? 2. Hefur dómari leyfi til þess að flauta leikinn á, ef annað liðið neitar að leika vegna þess að það vantar línuverði, og dæma svo hinu liðinu bæði stigin? Hvað myndi dómarinn gera ef að bæði liðin neituðu að leika? 3. Segjum svo að Valur hefði neitað að leika, þá hefði Víkingi verið dæmd bæði stigin. Ef leikur- inn yrði svo kærður, yrði kæran þá tekin til greina? 4. Ef kæra yrði send á hendur Val, vegna þess að þeir standa ekki við það sem þeir eiga að gera, yrði sú kæra tekin til greina? Og myndi Víkingur þá vinna leikinn, eða yrði leikinn nýr leikur? Kvennadeild Knattspyrnu- deiidar Vfkings NÝJUNGIN í SGMARSKÓM: GYLMIR ♦ G&H 3 19 SÖLUSTAÐIR: REYKJAVÍK OG MÁGRENNI Torgið, Austurstræti Herraríki, Snorrabraut og Miðvangi Domus, Laugavegi Hvannbergsbræður, Laugavegi Mílanó, Laugavegi Skóbúðin, Snorrabraut Steinar Waage, Domus Medica Stjömuskóbúðin, Laugavegi Skæði, Laugavegi Skóhornið, Glæsibæ Vörumarkaðurinn, Ármúla Skóverslun Kópavogs, Hamraborg Axel Ó Lárusson, Laugavegi Skóv. Geirs Jóelssonar, Hafnarfirði Skóhöllin, Hafnarfirði Skóbúð Austurbæjar, Laugavegi 100 Skóver við Óðinstorg Topp-Skórinn Veltusundi VESTGRLAMD OG VESTFIRÐIR Kaupf. Borgfirðinga Kaupf. Stykkishólms Kaupf. Hvammsfjarðar Kaupf. Króksfjarðar Kaupf. V-Barðstrendinga Kaupf. Önfirðinga Kaupf. Steingri'msfjarðar Versl. Ara Jónssonar, Patreksfirði Skóverslun Leós, Isafirði Versl. Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík Verslunin Staðarfell, Akranesi Kaupf. N-Þingeyinga Kaupf. Langnesinga AUSTGRLAMD Kaupf. Vopnfirðinga Kaupf. Héraðsbúa Kaupfélagið Fram Pöntunarfélag Eskfirðinga Kaupf. Fáskrúðsfirðinga Kaupf. Berufjarðar Kaupf. A-Skaftfellinga MORÐURLAMD Kaupf. V-Húnvetninga Kaupf. Húnvetninga Kaupf. Skagfirðinga Kaupf. Eyfirðinga M.H. Lyngdal, Akureyri Leðurvörur, Akureyri Kaupf. Þingeyinga Skóbúð Húsavíkur SUÐURLAMD Kaupf. V-Skaftfellinga Kaupf. Vestmannayja Skóv. Axels Ó. Lárussonar, Vestmannaeyjum Kaupf. Rangæinga Kaupf. Arnesinga Skóbúð Keflavíkur Verslunin Báran, Grindavik VANTARÞIGVINNUQ VANTAR ÞIG FÓLK i I>1 AIGI.VSIR l M ALLT LAM) hEGAR VC Al'G- I.VSIR I MORGLNBLAÐIM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.