Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1982
23
Þorsteinsdóttur og Páls Níelsson-
ar, mótorista. Og þau voru ekki
aðeins glöð yfir því að Villi tók á
sig allra þokkalegustu manns-
mynd, heldur tóku þau líka að
hjálpa öðrum við að fara í þrifa-
bað.
Já, af eldmóði hafa þau starfað
innan AA og árangurinn er ævin-
týri líkastur. Hvað skyldu þau
hafa komið inní margar skugga-
holur með ljósið sitt, gleðina yfir
þvi að hjálpa fólki til þess að
verða að mönnum, og hrifið það
Ósló:
Konur særðar
með loftbyssu
Osló, 26. júlí. Frá fréttaritara Mbl.
TUTTUGU konur urðu fyrir skotum
úr kraftmikilli loftbyssu á götum
Oslóar sl. föstudag og laugardag og
særðust nokkrar þeirra svo alvar-
lega, að gera varð á þeim uppskurð á
sjúkrahúsi. Lögreglan í Ósló telur,
að sökudólgarnir séu þrjú ung-
menni, sem óku um á blárri eða
grárri Volvo-bifreið.
Það var raunar fyrst á fimmtu-
dagskvöldið sem 77 ára gömul
kona varð fyrir skoti en á föstu-
deginum urðu ellefu konur fyrir
skoti og átta á laugardeginum. Á
laugardagskvöldinu var einnig
skotið inn um glugga á skrifstof-
um viðskiptasendinefndar Sov-
étmanna í Osló og lenti ein kúlan
rétt við höfuð vaktmanns í húsinu.
Mánuður er liðinn frá spreng-
ingunni á Austurjárnbrautarstöð-
inni í Ósló þar sem ung kona lét
lífið og 11 særðust og þykir nú
Óslóarbúum sem heldur betur hafi
orðið umskipti á borgarbragnum
til hins verra.
með sér út í birtuna? Ekki bara
hér í Reykjavík, heldur um landið
allt? Við veginn þeirra hafa
sprottið upp AA-deildir og hér-
lenda, móðurdeildin Al-anons (fé-
lag aðstandenda alkoholista) hef-
ur getið mörg afkvæmin. Ég hefi
haft lúmskt gaman að heyra þá,
sem Villi og Valgerður eru send til
að hjálpa, lýsa þeim sem bölvuð-
um frekjum og uppátroðandi leið-
indaskjóðum. Slíkt bendir mér þá
á að skrubbstrokurnar bera ár-
angur. Stundum er mér líka sagt,
að þau kunni ekkert í AA-fræðun-
um, opna deildin þeirra sé bara
grín. Éf skemmt tré getur borið
góða ávexti, þá skal ég taka þá
fullyrðingu til athugunar. Þau
trúa því að fjölskyldan þurfi öll að
starfa saman, til að árangur náist.
Mánudagsdeildin sannar að þetta
er rétt. Slík deild var og er bráð-
nauðsynlegt við hlið hinna. Þetta
vitum við og þakklátum huga mun
margur hugsa suður til Spánar í
dag, 28. júlí, þar sem þau hjónin
dvelja á sólarströnd, í leit að
þrótti til meiri starfa. í þessari
kveðju hefi ég spyrnt þau saman
Valgerði og Vilhjálm enda held ég
að frá 1943 hafi verið erfitt að
greina hvort var hvort, hversu
feginn sem Villi hefði nú viljað
losna, hér áður fyrr, við kerl-
ingarskassið sitt. í dag skilur
hann, að hann hefði aldrei orðið sá
Villi Páls sem hundruðir manna
þakka ljósburð inní líf sitt nú
nema af því að Valgerður lét hann
ekki hrekja sig frá sér. Hann er í
raun meistarastykkið hennar.
Til hamingju góðu vinir og hafið
innilega þökk fyrir frábært starf.
8ig. Haakar
son — sextugur
Svo halda menn því fram að
þeir séu fæddir undir forlaga-
stjörnum, ekki þurfi annað en
glugga í hnattahylinn, þá liggi
Ijóst fyrir, hvaðan þig ber og hvert
för þinni er stefnt. Já, mann-
skepnunni er tamt að skjótast
undan ábyrgð, leita uppi einhvern
til þess að klína sökinni á, ef illa
tekst til. í sandkassa bernskunnar
er bent á þann næsta, en er árin
færast yfir er forlagadísum kennt
um. Þetta er þægilegt líf, stígur
apans um aldinekrur skógarins.
Sættumst á, að forlagadísir sitji
við vefinn, en í spunaþráðinn í
þína voð hafa þær það efnið eitt,
er þú réttir fram sjálfur eða sjálf.
Auðveldasta leiðin til þess að
sanna þessa staðhæfing er að
benda á sannan AA-mann. Árum
saman skjögrar hann um lífsvang-
inn, þykist vera að safna í blóm-
vönd handa þeim er hann ann,
tekur ekki eftir að í knippinu hans
eru aðeins surtarlogar úr skugga-
hliðum sorphauga mannlífsins.
Þessi blómhræ skreytir hann ekki
með asparagus, heldur rauðgulum
gaddavírstjásum hroka, blekkinga
og dýrshátta. Já, sumum tekst
meira að segja að leggja allt í rúst,
en forlagadísirnar hafa fátt í vef-
inn annað en fúaþræði. Svo allt í
einu verður á breyting. Náunginn
skríður út úr skugganum og held-
ur yfir í birtuhlíðar lífsvangsins
tekur þar að safna saman gjöfum
handa öðrum úr ljósstöfum. Það
er lögmál í á akri lífsins að sumar
geislarnir lýsa og ylja hann upp.
Þannig fer einnig um þann sem
kærleikanum vígist. Hann tekur
að geisla af innri tign og göfgi,
dreifa um sig sumargjöfum. Hann
sest við sinn eigin lífsvef og reynir
eftir mætti að draga rangtæjur
fyrra lífs úr vefnum. Ef endurfæð-
ing er til, þá er hún áþreifanleg í
lífi margra AA-manna. Fáir hafa
gert mér þetta jafnljóst og Vil-
hjálmur Pálsson, sem verið er að
telja mér trú um að sé sextugur í
dag. Mér þykir þetta lýgileg stað-
hæfing, því að það eru vart nema
tuttugu ár síðan ég hitti hann
fyrst, og hafi einhver birst mér á
stuttbuxum mótþróaskeiðs
bernskunnar, þá var það hann.
Kerlingin hans kom hreinlega með
hann í fanginu, og bað um að hann
yrði hýddur. Með „mér-er-djöf-
uls-sama-svip“ tók Villi á móti. En
hann fór sjálfur að vinna, læddist
niður í AÁ húsið, og fyrr en ég
áttaði mig voru hann og kona
hans orðin meðal mestu ljósbera
er ég hefi kynnst. Með demants-
þjölum sannleikans surfu þau til
þeirrar myndar er skaparinn
hafði ætlað Villa að vera, er hann
lagði hann í fang Elínar Guðrúnar
Vlð verðum tilbúiiir med bfllnn,
þegar þiðkomið!
OSA
ISLANDSREISA
Islandsreisur Fluglei5a eru sumarleyflsíerðir
innanlands íyrir íslendinga. Nútíma ierða-
máti. Flogið er til aðalálangastaðar og ferða-
mannaþjónusta notuð, rétt eins og þegar
íarið er til útlanda.
NÚTÍMA FERÐAMÁTI
íslandsreisur Flugleiða gera ráð íyrir því að þú
og íjölskylda þín geti tileinkað sór nýtískulega
íerðahœtti hér innanlands - eins og terðalolk
gerir á íerðum sínum erlendis. Þess vegna
gerir Reisupassinn þór mögulegt að
að tljúga á ákvörðunarstað, en þar
tekurðu við hreinum og fínum
bflaleigubú, sem þú hefur til
fullra afnota á mjög hag-
stœðu verði. Það er óneit-
anlega þaegilegra en að
flengjast langar leiðir á
misjöínum vegum á eigin
bú.
REISUPASSINN
Flugmiðinn í íslandsreisumar nefnist Reisu-
passi. Hann veitir eiganda sínum aðgang að
ýmis konar þjónustu á sérstöku verði. Reisu-
passa er haegt að kaupa til Akureyrar, Egils-
staða, Homafjarðar, Húsavikur, ísafjarðar,
Sauðárkróks, Reykjavflcur og Vestmannaeyja.
Ef millilenda þarf í Reykjavik er gefinn 50%
aísláttur af fargjaldi þangað.
DVALARTÍMI
Lágmarksdvöl í íslandsreisu er 4 dagar, nema
Reykjavík þar sem lágmarksdvöl er 6
dagar. Hámarksdvöl er aftur á
móti 30 dagar í öllum tilfellum,
gildistíminn er til 1. október
nœstkomandi.
Karlarnir
tala - konurnar
framkvæma
- segir Margaret Thatcher
Lundúnum, 26. júlí. AIV
MARGARKT Thatcher forsætis-
ráðherra i Kretlandi lýsti því yfir á
mikilli kvennaráðstefnu í Lundún-
um í dag að í augum kvenna væri
jafnrétti sjálfsagt en enn mundi
líða á löngu áður en karlmenn
gerðu sér það Ijóst. Hún lýsti því
fyrir samkundunni, hvernig hún
færi að því að kljást við uppvöðslu-
seggi á þingi þar sem karlmenn eru
í yfirgnæfandi meirhluta:
„Maður heldur bara ró sinni og
heldur áfram að sinna sínum
störfum", var svarið þegar hún
var að því spurð, hvernig hún léti
það ógert að bresta í graí „með
alla þessa kalla æpandi á þig“,
eins og spurningin hljóðaði. „Það
eru þeir sem verða sér til sakmm-
ar með því að æpa — ekki ég“,
sagði Thatcher.
„í okkar augum er jafnrétti
sjálfsagt en það verður bið á því
að karlmenn geri sér grein fyrir
því. Ég hef alltaf sagt það, að
þegar vantar einhvern til að
halda ræðu þá er bezt að biðja
karl að gera það, en ef maður vill
fáeitthvað gert þá er nær að biðja
konu að taka það að sér“, sagði
hún ennfremur.
Margaret Thatcher er kunn að
því að vera íhaldssöm í málefnum
fjölskyldunnar og skoðunum á
barnauppeldi. Á ráðstefnunni
kvað hún það skoðun sína að und-
anlátssemi þjóðfélagsins hefði
ekki orðið til þess að bæta hlut
kvenna.
„Sjálfskipaðir sérfræðingar
telja foreldrum trú um að skyldur
hjóna við hvort annað og við
börnin eigi að mótast af aukinni
áherzlu á lífsfyllingu sjálfra
þeirra. Hefur þetta komið konum
til góða? Ekki aldeilis."
Talið barst að tækifærum
kvenna til að komast til metorða
jafnfram því að sinna barnaupp-
eldi og húshaldi. “Persónulega
get ég borið vitni um það að fjöl-
skyldan er í senn okkar mesta
gleði og styrkur. Ég er enn full-
komlega sannfærð um það, að á
meðan börnin eru ung, hversu
önnum kafnar sem við kunnum
að vera, sé mikilvægast af öllu að
helga þörfum þeirra og vandmál-
um nægan tíma og umönnun.“
Vilhjálmur Páls-