Morgunblaðið - 28.07.1982, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.07.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ1982 31 Það verður hart barist í 1. deildarkeppninni í kvöld, en þá fara fram þrír leikir. Þessi líflega mynd var tekin í leik Fram og Breiðabliks fyrr á þessu keppnistímabili. Þrír stórleikir í 1. deild- arkeppninni í kvöld ÞRÍR leikir fara fram í I. deild fs- landsmótsins í knattspyrnu i kvöld og eins og allir leikir 1. deildarinnar á þessu keppnistímabili, er um stór- leiki að ræða. A Laugardalsvellinum eigast við Víkingur og ÍBV, á Kópavogs- vellinum Breiðablik og ísafjörður og loks á Akureyrarvelli KA og Fram. Yfirstandandi íslandsmót hefur sýnt fram á, að aliir geta unnið alla, en þó hefur reynst áberandi erfiðast að eiga við Vík- ing, íslandsmeistara síðasta árs, enda er liðið í efsta sæti deildar- innar þó svo að deila megi um hvort liðið sé eins sterkt nú og í fyrra. í leik Víkings og ÍBV eigast við meðal annarra markakóngur síðasta keppnistímabils, Sigurlás Þorleifsson, og markhæsti leik- maður mótsins nú, Heimir Karls- son. Heimir fyllti einmitt skarð Lárusar Guðmundssonar í Vík- ingsliðinu, en Lárus var marka- kóngur ásamt Sigurlási síðasta sumar. Lása hefur gengið illa að skora í sumar, en þó sýndi hann fjörbrot á dögunum, er hann skor- aði þrívegis í sama leiknum. Það er varla hægt að skilja að topp og botn í 1. deildinni nú, en hinir tveir leikir kvöldsins eru þó milli liða ofarlega annars vegar og neðarlega hins vegar. Fjórði leik- urinn var einnig á dagskrá í kvöld, í A og KR áttu að leika á Akranesi, en Skagamenn fengu leiknum frestað til 19. ágúst vegna þess að hinn 15 ára gamli Sigurður Jóns- son er á keppnisferðalagi um Norðurlönd með landsliði 15—17 ára. Fjórir leikir eru einnig á dagskrá í 2. deild. Völsungur og Þór mætast á Húsavík, FH mætir Einherja á Kaplakrika, Þróttarl- iðin tvö eigast við á Neskaupstað og í Njarðvík mætast Njarðvík og Skallagrímur. Allir umræddir leikir hefjast á sama tímanum, eða klukkan 20.00. Mikið stjörnuflóð í ágóða- leik fyrir Barnahjálp SÞ Bandaríska knattspyrnusamband- ið er nú að undirbúa heljarmikinn góðgerðarleik, sem fara á fram 7. ágúst i leikvelli New Youk ('osmos. Rennur allur ágóði af leiknum til Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna, og liðin sem eigast við verða Evrópu- úrval og úrvalslið úr öðrum heims- álfum. Nú er Ijóst að margir bestu leikmenn í heimi hafa þegið boð um að koma og taka þátt í leiknum, og þeir síðustu til að þiggja boðið voru þeir Boniek, Platini og Antognoni, þrjár af stjörnum HM á Spáni. Þeir gáfu jákvætt svar á mánudaginn, einum degi eftir að Dino Zoff og Paolo Rossi höfðu ákveðið að mæta til leiks. Er þeir tveir síðastnefndu ákváðu að koma urðu forráða- menn knattspyrnusambandsins himinlifandi, því að þeirra mati HIÐ ÁRLEGA Jaðarsmót í goifi verður haldið dagana 31. júlí til 2. ágúst. Tvo fyrstu dagana verður hið eiginlega mót og er þá öllum opin þátttaka. Verða þá spilaðar 18 holur hvorn dag en þriðja daginn leikur meistaraflokkur einvörðungu, og þá 36 holur. Gefur keppni þeirra síðasta daginn stig til landsliðs. Frans Beckenbauer verður fyrirliði Evrópuúrvalsins. Jafnframt Jaðarsmótinu fer fram kvennakeppni — Ragnarsmótið. Keppendur þurfa að tilkynna þátttöku fyrir hádegi næstkom- andi föstudag, til Jónínu Pálsdótt- ur eða í Golfskálann að Jaðri við Akureyri. koma þeir til með að laða mest að, og þá sérstaklega Rossi, marka- hæsti leikmaður HM á Spáni. Aðrir frægir kappar sem verða með eru Kevin Keegan, Oleg Blokhin, Frans Beckenbauer, sem verður fyrirliði Evrópuliðsins, Jo- han Neeoskens, Rudi Krol, Marco Tardelli og Nanad Sojkovic, varn- armaður frá Júgóslavíu. Þjóðverj- inn Jupp Derwall stjórnar liðinu. í hinu liðinu, sem Tele Santana, þjálfari Brasilíu, mun stjórna, eru að sjálfsögðu einnig margir þekkt- ir leikmenn. T.d. Zico og Junior frá Brasilíu, Thomas N’Kono, mark- vörður Hondúras, Uribe frá Perú, Yanes frá Chile, Moreira frá Uru- guay, og Japaninn Okudera sem leikur með Köln í V-Þýskalandi. Þá eru líkur taldar á því að bæði Ardiles og Maradona mæti til leiksins. Þess má geta að Karl-Heinz Rummenigge var boðið að taka þátt í leiknum, en litlar líkur eru taldar á að hann geti það, þar sem hann á við meiðsl að stríða. Jaöarsmótið á Akureyri HM unglinga í Sao Paulo: Haraldur verður meðal þátttakenda HARALDUR Ólafsson, lyftinga- kappi frá Akureyri, leggur á næst- unni upp í mikið ferðalag. Er ferð- inni heitið alla leið til Sao Paulo í Brasilíu en þar verður haldið heims- meistaramót unglinga í lyftingum dagana 6.—16. ágúst næstkomandi. Haraldur, sem kjörinn hefur verið íþróttamður Akureyrar síð- astliðinn tvö ár, hefur staðið sig mjög vel á mótum erlendis og m.a. orðið Norðurlandameistari. Ferð eins og þessi er að sjálf- sögðu mjög dýr, en Haraldur fer á eigin vegum. Aðstoðarmaður hans í ferðinni verður Ólafur bróðir hans, og eru þeir bræður nú í óða önn að safna fé til að kosta þetta mikla ferðalagi. — SH Lyftlngar • Haraldur Ólafsson, hinn sterki lyftingamaður frá Akureyri. Hann hefur verið kjörinn íþróttamaður Akureyrar síðastliðinn tvö ár, og hér hampar hann bikarnum sem nafn- bótinni fylgir er hann veitti honum viðtöku í fyrra skiptið. Mjað: Itcjair Eiríkwon Frank Stapleton Norman Whiteside Frank Stapleton er talinn einn besti miðherji Bretlandseyja í dag. Hann er írskur, fæddur í Dublin, og hefur leikið marga landsleiki fyrir frska lýðveldið. Arsenal keypti hann frá írlandi er hann var aðeins 17 ára, og komst hann fljótlega í liðið hjá þeim. Hann lék með Lundúnalið- inu þar til í fyrra er United festi kaup á honum fyrir rúmlega eina milljón sterlingspunda. Stapleton er mjög sterkur skallamaður, og einnig lipur með knöttinn. íslenskir knattspyrnu- áhorfendur kannast að sjálf- sögðu við hann úr sjónvarpinu, bæði sem leikmann með Arsenal og Man. Utd. og kynnir frammi- staða hans þar hann sjálfsagt betur en mörg orð. Norman Whiteside hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið. Hann lék með norður-írska landsliðinu í HM á Spáni og varð þar með yngsti leikmaður í sögu HM til að leika í úrslitakeppn- inni. Hann er aðeins 17 ára gam- all, og þykir geysilega efnilegur. Sumir hafa líkt honum við George Best og sagt að þar sé Best nr. 2 á ferðinni, en Whitesi- de sjálfur er allt annað en hrif- inn af því, og segir að aldrei muni koma annar George Best. Þjálfari norður-írska liðsins, Billy Bingham, er á sama máli og segir strákinn aðeins Norman Whiteside númer 1, það sé alveg nóg. Þrátt fyrir lágan aldur er Whiteside mjög stór og stæði- legur og er spáð miklum frama á knattspyrnusviðinu, en hann leikur stöðu framherja. • í tilefni af því aö hió heimsfræga enska knattspyrnustórveldi Manch- ester Utd. er væntanlegt hingað til lands á þriöjudaginn í næstu viku, mun Mbl. kynna helstu stjörnur liösins á næstu dögum. Pistlarnir hér að ofan um framherjana Frank Stapleton og Norman Whiteside eru fyrstu kynningarnar af þessu tagi. Á morgun verða tvær til viðbótar. Finnar jöfnuðu 30 sekúndum fyrir leikslok ÍSLENSKA landsliðið i knattspyrnu skipað drengjum 14—16 ára deildi stigum með finnska landsliðinu á NM-mótinu sem haldið er í Svíþjóð um þessar mundir. Lokatölur leiks- ins urðu 1—1 og voru aðeins 30 sek- úndur til leiksloka er finnska liðinu tókst að jafna metin. íslenska liðið átti góðan leik að þessu sinni og í fyrri hálfleik náði Skúli Sverrisson forystunni fyrir liðið. Fleiri góð tækifæri buðust, en voru ekki nýtt. Átti íslenska liðið skilið að sigra Staðan á mótinu er nú sú, að Finnar hafa 3 stig, íslendingar og Danir 2 stig og Svíþjóð eitt stig. íslenska liðið á frí í dag, en á morgun mætir það danska liðinu. Magnús í Víking Handknattleikslið Víkings hefur fengið liðsauka fyrir næsta keppnis- tímabil, Magnús Guðmundsson, fyrrum Víkingur, er genginn aftur til liðs við félagið eftir að hafa leikið um hrið með Dalvík og KA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.