Morgunblaðið - 07.08.1982, Síða 1
36 SÍÐUR OG LESBÓK
170. tbl. 69. árg.
LAIJGARDAGUR 7. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Mor{;unblaðsins.
Washington:
Stálsamkomu-
lagið var fellt
í gærkvöldi
Washington, B. ágúst. AI*.
BANDAKÍSKA stálfélagið felldi seint í kvöld samkomulag, sem náðst
hafði í gærdag á milli fulltrúa Bandaríkjastjórnar og 10 ríkja innan
Efnahagsbandalags Evrópu. Ákvöróun félagsins hleypir deilunni í hnút
á ný og mikil óvissa ríkir nú um framhald samningavióræðna.
Þetta samkomulag hefði get-
að orðið endapunkturinn á
löngum erjum þar sem leiðtog-
ar bandaríska stáliðnaðarins
hafa ásakað Evrópu um að hafa
notað opinbera fjárstyrki til
einkafyrirtækja til að klekkja á
bandaríska stálmarkaðnum.
Tilkynning um samkomulag-
ið var birt í dag að loknum
samningaviðræðum, sem staðið
hafa alla síðastliðna viku. Sam-
komulag þetta átti ekki að
ganga í gildi fyrr en búið var að
bera það undir leiðtoga stál-
framleiðslu þessara ellefu
þjóða.
Samkomulagið mun ekki ná
yfir hömlur á útflutningi á
leiðslum sem framleiddar eru í
Evrópu, en haft er eftir óstað-
festum fregnum að reynt verði
að komast að samkomulagi um
framleiðslu þessa um miðjan
september.
Stofnandi friðar-
hreyfingar á hæli
Moskvu, 6. ágúsi. AP.
LÖGREGLA handtók í dag
annan tveggja stofnenda einu
óháóu frióarhreyfingarinnar í
Sovétríkjunum, Sergei Bat-
ovrin, á heimili hans í
Moskvu. í fréttum seint í
kvöld var frá því skýrt, ad fé-
lagar hans i hrevfingunni
hefðu sannfrétt að honum
hefði verið komið fyrir á geð-
veikrahæli.
Annar meðlimur hreyfingar-
innar, Valery Godyak, var einnig
handtekinn í dag. Batovrin var
gefið að sök við handtökuna að
hafa neitað að gegna herþjón-
ustu, að sögn félaga hans, sem
urðu vitni að henni. Batovrin
hélt því fram við handtökuna, að
hann hefði verið undanþeginn
herþjónustu og hótaði að fara í
hungurverkfall þegar hann var
leiddur á brott.
Lögregla lagði í gær hald á 88
and-styrjaldarmálverk, sem
Batovrin hefur málað. Með þeim
aðgerðum var komið í veg fyrir
að hann gæti haldið sýningu á
þeim í dag þegar 37 ár eru liðin
frá því kjarnorkusprengju var
varpað á Hiroshima. Lögregla
kom einnig í veg fyrir, að vest-
rænir fréttamenn fengju aðgang
að blaðamannafundi, sem halda
átti nokkrum klukkustundum áð-
ur en húsleit var gerð á heimili
Batovrins.
Táknræn mynd frá Beirut. Örvingluð móóir heldur á tveimur börnum sínum í matarleit eftir aó heimili hennar hafði
verið sprengt í loft upp. sfmamynd Al’.
„Nú er framhaldið allt
undir ísraelum komið
— segir Philip Habib að loknu samkomulagi við leiðtoga PLO um brottflutning þeirra frá Beirut
Beirút og SameinuAu þjódunum, 6. ágúst. Al*.
ÍSKAKLAK GERÐU í dag harðar loft
árásir á vesturhluta Beirút um svipað
leyti og leiðtogar PLO tilkvnntu, að
endanlegt samkomulag hefði náðst i
viðræðum þeirra við Khilip Habib, sér-
legan sendifulltrúa Bandaríkjastjórn-
ar, um hrottflutning l’LO-manna frá
Beirút. Aðeins örfá smáatriði eru söeð
eftir.
PLO hefur fallist á, að skilja meg-
inhluta vopna sinna eftir í borginni
og hafa sig á brott innan 15 daga.
Hefur Arafat, leiðtogi PLO, jafnvel í
hyggju að reyna að koma tveimur
herdeildum með um 700 mönnum
sjóleiöina frá borginni áður en al-
þjóðlegar friðargæslusveitir koma
til Beirút. Habib lýsti því yfir, að
hann væri ánægður með hvernig mál
hefðu þróast. „Nú er framhaldið allt
undir Israelum komið,“ sagði hann.
Orrustuþotur ísraela sprengdu í
dag átta hæða hús, sem flóttamenn
hafast alla jafna við í, í loft upp.
Stóð ekki steinn yfir steini þegar
árásunum lauk. Fjöldi manna lét líf-
Bygging eldflauga-
palla Bandaríkja-
manna hafin
Nýtt bandarískt flugskeyti, Patr-
iot, er hér til sýnis í Giessen í
Vestur-Þýskalandi í tilefni þess, að
undirbúningur við fyrstu
eldflaugarpallana eru að hefjast.
Eldflaugum þessum er ætlað að
koma í stað Nike-Herkúles og
llawk-flauganna, sem nú eru stað-
settar í Mið-Evrópu.
ið. Björgunarsveitir voru enn að
grafa í rústunum í leit að einhverj-
um, sem kynnu að hafa grafist lif-
andi undir þeim, er geysilega öflug
sprengja sprakk í bifreið í næsta
nágrenni. Margir, sem komist höfðu
lífs af úr loftárásunum og voru að
hjálpa til við björgunarstörf, létu þá
lífið.
ísraelar segjast hafa gert árásirn-
ar á borgina í hefndarskyni fyrir sí-
endurtekin brot PLO á vopnahléinu,
sem á að vera í gildi í borginni. Segj-
ast þeir ekki munu linna árásum sín-
um fyrr en þeir sjái áþreifanlegt
tákn þess, að PLO hyggist yfirgefa
Beirút.
Bandaríkin beittu í dag neitunar-
valdi í Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna er gengið var til atkvæða um
tillögu Sovétmanna um allsherjar
vopnasöluhann á ísraela. Óratími
leið frá því tillagan var lögð fram og
þar til hún fékk afgreiðslu, þar sem
fulltrúar ríkja þriðja heimsins vildi
milda orðalag hennar áður en gengið
yrði til atkvæða. Ellefu ríki greiddu
atkvæði með henni, eitt á móti,
Bandaríkin, og þrjú sátu hjá.
Ríkisstjórn Nicaragua tilkynnti í
dag, aö hún hefði ákveðið að slíta
öllu stjórnmálasambandi við ísrael
vegna innrásarinnar í Líbanon.
Sagði í opinberri tilkynningu frá
stjórninni, að hún virti og skildi
skýlausan rétt Palestínumanna til
að fá að lifa sem frjáls og sjálfstæð
þjóð. Um leið var stjórn Bandaríkj-
anna harkalega gagnrýnd fyrir að
snúa ekki bakinu við ísraelsmönnum
í þeirri gereyðingarstarfsemi, sem
þeir stunduðu í Beirút.
Fyrsta þing kommún-
ista í Kína í 5 ár
Peking, 6. ágúst. Al*.
KVRSTA landsþing kínverskra kommúnista í 5 ár hefur verið boðað þann I.
september nastkomandi. Er talið fullvíst að þá niuni fara fram talsverð uppstokk-
un og yngri menn verði settir í áhrifastöður.
Ákvörðun þessi var tilkynnt í dag legar breytingar í landinu. Er talið
eftir að miðstjórn flokksins hafði að Kínverjar muni t.d. leita eftir
setið á fundi. Erlendir fréttaskýr- frekari samvinnu við erlenda aðila í
endur telja að í vændum séu veru- iðnva?ðingu.