Morgunblaðið - 13.08.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.08.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982 5 Bókaútgáfan Vakæ Gefur út heimildaþætti um þjóðlíf og mannleg örlög — eftir Gunnar M. Magnúss „Ingimundur fiðla og fleira fólk“ er heiti á nýrri bók eftir Gunnar M. Magnúss rithöfund sem Bókaútgáf- an Vaka mun gefa út með haustinu. Olafur Ragnarsson hjá Vöku sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að þetta væru heimilda- þættir um þjóðlíf og mannleg örlög. Byggt væri á raunverulegum atburð- um frá öldinni sem leið og frá byrj- un þessarar. Einkum væru þetta sög- ur er tengdust Vestfjörðum og suð- vesturlandi, þar sem höfundur hefði með einum eða öðrum hætti komist í kynni við sögupersónur, vettvang sagnanna eða atburði þá sem lýst er. Sögur þessar og frásagnir hefði Gunnar svo fært í læsilegan bún- ing, en heiti bókarinnar sagði Ólafur að dregið væri af einum þeirra manna er sagt væri frá. Það væri Ingimundur Sveinsson er oft var nefndur Ingimundur fiðla. Hann var bróðir Jóhannesar Sveinssonar Kjarval, og ferðaðist víða um landið, lék á fiðlu og skemmti fólki. Þessi nýja bók er 56. bókin sem út kemur eftir Gunnar M. Magn- úss á 54 árum. Fyrsta bók hans kom út árið 1928, og síðan hefur hann verið sískrifandi og skrifar enn í hárri elli. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi: Aðalfundurinn settur í kvöld AÐALFUNDIIR kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða- kjördæmi hefst í dag, 13. ágúst, en fundinum lýkur á morgun. Fundur- inn verður haldinn i heimavist Menntaskólans á ísafirði og verður hann settur klukkan 21. Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins flytur ræðu við setningu fundarins og einnig tala alþingismennirnir Matthías Bjarnason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Öllum sjálfstæðis- mönnum er heimilt að sitja setn- ingarfundinn. Aðalfundarstörf hefjast klukkan 9.30 laugardaginn 14. águst. Klukkan 19 verður minnst 20 ára afmælis kjördæmisráðsins við kvöldverð í menntaskólanum. Allt sjálfstæðisfólk getur tekið þátt í kvöldverðinum á meðan húsrúm leyfir. Geir Hallgrímsson t Ein myndanna á sýningunni sem ber nafnið Síðdegi jökuls- ins. Myndlistarsýn- ing á ísafírði Guðmundur Thoroddsen opnar sýningu á grafíkmyndum á Hótelinu á ísafirði á morgun, laugardaginn 14. ágúst. Þetta er hans fyrsta einka- sýning, en hann stundar nú nám við grafíkdeild Ríkisakademíunnar í Amstcrdam. Hann var fyrst tvo vetur við nám í Myndlistarskólanum við Freyjugötuna, 1974—76. Þá var hann við Myndlistardeild París- arháskóla 1976—78 og á sama tíma frjáls nemandi við akademí- una í París, Beaux-Arts. Á sýningunni verða sýnd tíu verk frá síðastliðnum vetri og eru þau myndasögur um landslag og náttúrufyrirbæri og stemmningar af sjónum. Sýningin stendur til 21. ágúst og verður opin meðan hótel- ið er opið. Allar myndirnar eru til sölu. . ■ Misjafnar frétt- ir af heyskap MJÖG er mismunandi eftir lands- hlutum, hvað bændur hafa að segja um heyskap og heyfeng, eins og málin standa í dag, eftir þeim sam- tölum sem Morgunblaðið átti við þrjá bændur víðs vegar um land. Fara þau hér á eftir. Byrjað um mánaða- mótin á Ströndum „Heyskapur er nýbyrjaður hérna, byrjaði svona um mánaða- mótin,“ sagði Guðmundur Jónsson hreppsstjóri í Munaðarnesi, þegar við höfðum samband við hann. „Það hefur allt gengið vel hingað til, en það er ótíð núna eins og er og við erum því stopp í bili. Sprett- an var hægfara, en það er nú eitthvað að rætast úr henni, ég held að hún sé orðin sæmileg víð- ast hvar. Ástæðan var að það var kalt framan af, vorið kalt og þurrkar miklir, en það hefur ræst úr því. Það hefur verið skínandi góð tíð undanfarið, logn og blíða, en sprottið hægt, og það er fyrst núna um mánaðamótin og upp úr mánaðamótum sem menn fóru að byrja að slá. Það tekur nú yfirleitt ekki langan tíma hérna að slá, ef tíðarfarið leyfir, því það er eigin- lega allt verkað í vothey hérna, það er bara lítið eitt sem er þurrk- að, en það hefur verið rigning og kuldi núna i tvo daga og þá er ómögulegt að fást við þetta. Ann- ars er eitthvað að stytta upp núna, svo þetta er held ég að komast í gang aftur. Ég held að heyfengur geti orðið sæmilegur, ef tíðarfarið það sem eftir er verður sæmilegt," sagði Guðmundur að lokum. Hefur gengið á ýmsu á Suðurlandi „Þetta hefur nú gengið dálítið misjafnlega, til dæmis leit út fyrir þurrk og var spáð þurrki í morgun, en nú er komin bullandi rigning," sagði Markús Jónsson á Borgar- eyrum í Rangárvallasýslu, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann. „Þetta hefur verið dálítið erfitt og það hefur gengið á ýmsu. Það var nú lengi vel í vor svo þurrkasamt, að áburðurinn leyst- ist ekki upp. Síðan hafa verið rign- ingar. Það er búið að ná nokkuð miklum heyjum, en það er samt tölvert mikið eftir, sumir kannski komnir langt, en aðrir eiga meira óunnið. Það er erfitt að segja nokkuð ákveðið og almennt eins og sakir standa, en gras var orðið ágætt víðast hvar. Að vísu hef ég farið ósköp lítið um og veit þess vegna ekki eins mikið og annars væri, en ennþá er tölvert eftir af sumri og vonandi verður þetta allt vandræðalaust. Heyin sem náðst hafa inn eru nokkuð misjöfn. Sums staðar hafa þau orðið þriggja vikna gömul á túnum, þeg- ar menn hafa verið of bjartsýnir, en annars staðar, eins og hér til dæmis, eru þau ágæt. Annars eru menn ekkert svartsýnir á að þetta gangi ekki vel, enda held ég að ástæðulaust sé að vera það ennþá, þar sem menn eru nokkuð víða komnir langt með heyskap. Ég held því að menn séu nokkuð bjartsýnir á að þetta verði bara gott,“ sagði Markús ennfremur. Þá lét hann þess getið, að sér fyndist of lítið ræktað í vothey á Suður- landi og að það þyrfti að auka. Mjög léleg spretta í Höfðahverfi „Heyskapur er mjög lélegur, með því lélegasta sem hann hefur orðið, og ég held að það þurfi að fara langt aftur til að finna ár, þar sem hann er jafn lélegur hér í þessari sveit,“ sagði Guðmundur Þórisson í Hléskógum í Höfða- hverfi, þegar Morgunblaðið hafði tal af honum í gær. „Það hafa ver- ið geysilegir þurrkar og kalt í vor, en einkum eru það þurrkar, sem eru ástæðan fyrir þessu. Það má segja að það hafi ekki komið dropi úr lofti í 6 vikur samfleytt. Það kom þarna rigning eða krap um hvítasunnuna og síðan kom ekki dropi úr lofti fyrr en liklega 16.—17. júlí og síðan þá hefur bara verið skúr og skúr, þangað til núna upp úr helginni, að það gerði geysimikla norðaustanrigningu. Annars hefur verið heitt og ágætis veður, það hefur bara skort rign- inguna. Það er sæmilegt veður núna, bara frekar kalt. Hitinn fór niðurundir frostmark, var tvö stig hér á þriðjudagsmorguninn. Menn hafa verið að bíða eftir sprettunni, annars eru sumir búnir að slá, en þetta verður mjög lélegt og nánast engar horfur á öðrum slætti. Ef það hlýnar núna veit ég að það getur sprottið ögn, en gallinn er bara sá að það virðist vera kuldi á næstunni." Þú ert einnig með kartöflur, hvernig eru horfurnar með þær? „Það eru alls ekki slæmar horf- ur með þær, ef það hlýnar, en það sem við erum hræddir við núna er frostið. Það er það mikill loftkuldi, að ef heiðskýrst verður, þá verður frost, svo að menn eru dálítið ugg- andi einmitt þessa dagana, en það eru alls ekki slæmar horfur ef það hlýnar aftur,“ sagði Guðmundur að síðustu. Færeyskur handfærabát- ur sendi upp neyðarblys FÆREYSKUR handfærabátur sendi upp neyðarblys um klukkan 1.40 í fyrrinótt og urðu þrjú íslensk skip vör við blysið. Hins vegar kom á daginn að báturinn var ekki í nauöum staddur, en var að reyna að ná athygli annars færeysks báts á sömu slóðum, samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið fékk hjá Slysavarnafélagi íslands í gær. Atburður þessi átti sér stað suðaustur af Reykjanesi, nánar tiltekið 15 mílur suðvestur af Eldey. Islensk skip svipuðust um eftir þeim sem blysið sendi upp og kom síðar í ljós að um var að ræða færeyska handfærabátinn Rad Hamar. Stefán Skarphéðinsson Barðastrandarsýsla: Stefán Skarphéðins- son skipaður sýslumaður FORSETI íslands hefur skipað Stefán Skarphéðinsson héraðs- dómslögmann til að vera sýslu- maður í Barðastrandarsýslu frá 15. ágúst 1982 að telja. Umsækjendur um embættið auk Stefáns voru Haraldur Blöndal hæstaréttarlögmaður og Ríkharður Másson dómara- fulltrúi. (KrétUtilkynning) Leiðrétting MEINLEG villa kom fram í gær í frétt Morgunblaðsins af kynningu Randaríkjamanna á orkunýtingu, á Kaupstefnunni í Reykjavík (bls. 22). Segir þar að Bandaríkjamenn framleiði um 80% af þeirri orku sem þeir nota og sé sífellt reynt að minnka þetta hlutfall. Þar átti auðsjáanlega að standa að reynt væri að auka þetta hlutfall. Er beðist velvirðingar á þess- um mistökum. Leiðrétting — séra Sigurjón í Saurbæ í Morgunblaðinu í gær, í afmæl- isviðtali við Steindór Steindórsson frá Hlöðum, misritaðist nafn séra Sigurjóns Guðjónssonar prófasts í Saurbæ. Er séra Sigurjón beðinn afsökunar á mistökunum sem urðu við vinnslu blaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.