Morgunblaðið - 13.08.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.08.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982 23 Ragnheiöur Ara- dóttir — Minning Fædd 23. september 1933 Dáin 1. júlí 1982 Allt í einu var náin frændkona og vinkona horfin af sjónarsviði þessa lífs. Hún dó inn í hásumarið nákvæmlega á miðju nýju ári — svipað og hún væri komin hálfa leið að áfanga á nýrri lífsgöngu. Hverju nýju ári fylgja stundum ný mið, jafnvel ný sjónarmið, nýjar leiðir og síðast en ekki sízt nýtt takmark í innra og ytra lífi. Lífið krefst aðhaids og jafnframt breyt- ingar og ekki hvað sízt andlegrar hreyfingar. Sú látna yfirgaf þennan heim snögglega 1. júlí síðastliðinn og skilur eftir óþægilegt tóm og sökn- uð hjá aðstandendum og vinum og velunnurum og frændaliði. Fréttin um andlát Ragnheiðar Aradóttur kom þeim, sem þetta skrifar, harkalega á óvart. Það at- vikaðist svo, að eftir nokkurra vikna Evrópuferð var hann ný- kominn vestur á fjörðu og staddur i góðu húsi á ísafirði, hafði þá ekki séð reykvísku blöðin langa lengi. Hann rakst á stafla af Morgun- blaðinu, og þá hann fletti einu ein- taki blaðsins hálfsmánaðargömlu rak hann augun í þakkarorð fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför Ragnheið- ar. Þessi orð voru frá manni henn- ar, Sigurði Þ. Guðmundssyni lækni, og öðrum nánustu aðstand- endum, og þá þau voru lesin þarna í blaðinu, var liðinn töluvert lang- ur tími frá því allt var um garð gengið. Það er sálarlegur auður að kynnast sumu fólki á lífsleiðinni. Það verður eins og innistæða á hlaupareikningi lífsins með vöxt- um. Hins vegar er andlátstíðindin spurðust með fyrrgreindum hætti þangað langt vestur, þar sem lífsbaráttan er harðari og virðist tekin fastari tökum en víðast hvar annars staðar og nánast talin dauðasynd að vera með vol og víl — þá var eins og erfitt væri að átta sig á því fyrst í stað, hvað gerzt hafði. En svo var eins og til- hugsunin um miskunnarleysi mannsins með ljáinn græfi sig inn úr skelinni og festi þar rætur. Það var eins og höggvið hefði verið stórt skarð í höfuðstól lífsauðs og tilfinningaverðmæta. Ragnheiður sáluga skilur eftir minningu um glæsilega og ríka sál, sem gædd var sérstökum þokka í lífsstíl og viðmóti. Hún var einstaklega vel af guði gerð með eðlisþáttu sumpart ofna úr hárfínum þráðum og hún hélt allt- af sínum persónutöfrum og sinni eðlislægu reisn. Allir, sem kynnt- ust henni, löðuðust að henni. Ljúf- leiki hennar var engin tilgerð — og varmi hennar var gullekta. Hún var kona kurteis eins og sagt var um konu í fornri sögu, gædd fasi og upplagi fyrirkonu; slíkt hafði hún hlotið að erfðum — og var hvorttveggja „í blóðinu", en ekki leikið. Hún var skapfelldleg mann- eskja, sem manni leið alltaf vel í návist við — það stafaði einungis hreint og jákvætt frá nærveru hennar — og hún sagði aldrei of mikið. Hún kunni þá list að undir- segja eða það, sem Bretinn kallar „understatement" — og hún var örnæm á lífið, en dul. Það var yfir henni eitt, sem er fátítt, eins kon- ar „dignity" — eða innri virðu- leiki, svo að það var ekki hægt annað en að virða hana mikils. Enginn hefði til að mynda átt að ætla sér þá dul, að gera sér dælt við hana — hún bauð ekki upp á það fremur en ýmsir af ætt henn- ar. Hins vegar var hún gædd kímnikennd — undirsagðri kímni, sem sannaði greindarstig hennar og hugsæi. Nú er í sjálfu sér margt verra til en að deyja, en hins vegar er hast- arlegt að sjá á bak manneskju, sem gaf meiri sálarauð inn í um- hverfi en títt er, manneskju, sem hefði átt að eiga mörg hamingju- rík ár eftir ólifuð. — Heimilið, sem hún bjó sér og manni sínum, Sigurði lækni, á Seltjarnarnesi að Barðaströnd 1, örskammt frá upp- runa sínum, Mýrarhúsum, ber þess vitni, hve mikla sál og tilfinn- ingu hún lagði í að skapa fegurð í kringum sig. Hún lagði mikið upp úr garðrækt kringum hús þeirra hjónanna, og í vor var hún sýknt og heilagt að hlúa að gróðri — það er raunar rík í fólki hennar af Mýrarhúsaættinni þessi alúð við það, sem lifir og grær í náttúrunn- ar ríki. Það vildi svo til, að á tíma- bili í vor féll það í hlut greinar- höfundar að aka syni sínum nokkrum sinnum út á Seltjarn- arnes í prentsmiðju — og þá var í örfá skipti áð hjá Ragnheiði frænku. Það var eins og að fá and- legt veganesti í hvert sinn sem var heilsað upp á hana. Einhvern veginn er vont að sætta sig við það að fá ekki að sjá aftur grand lady Ragnheiði. Ensk kona, sem vann um skeið með henni á skrifstofu Loftleiða í Reykjavík, en vinnur nú á skrif- stofu Flugleiða í London, minntist á Ragnheiði, þegar greinarhöf. hitti hana að máli snemma í júlí sl. (þá vissi hvorugt um andlát hennar). Hún sagði: „She is a nice lady — one of the nicest." Ragnheiður ólst upp á læknis- heimili af gamla skólanum á Austurlandi. Faðir hennar, Ari Jónsson, var nettmenni; hann var héraðslæknir í Fljótsdalshéraði og sat að Brekku. Hann var bróðir Ólafs heitins Jónssonar læknis í Reykjavík, sem lengi var aðstoð- arlæknir Matthíasar heitins Ein- arssonar á Landakotsspítala. Sagt er, að þeir bræður Arasynir hafi unnið hug og hjörtu fólks og al- mennt verið taldir góðir læknar. Móðir þeirra og amma Ragnheiðar var Guðríður Ólafsdóttir, kona síra Jóns Arasonar prests á Húsa- vík; hún var frá Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi og dó fjörgömul. Amma greinarhöfundar, frú Þór- unn Ólafsdóttir, kona síra Ólafs Finnssonar í Kálholti í Holtum, Rang., og frú Guðríður, amma Ragnheiðar, voru alsystur. Ein systir þeirra var Halldóra Ólafs kaupkona í Reykjavík, sem rak lengi Sápubúðina í Reykjavík. Hún var sögð hafa verið verzlun- arkona af lífi og sál og skildi eftir töluvert digran sjóð, þá hún lézt. Hún hafði gert ráðstafanir til þess að stofnaður yrði eftir sína daga Minningarsjóður Halldóru Ólafs, sem nánir ættingjar hennar skyldu njóta góðs af til menntun- ar, einkum og sér í lagi til náms í verzlunarfræðum og í ensku við skóla í Englandi. Ragnheiður var á vissan hátt „klanisti" í góðri merkingu, og amma hennar, Guðríður, virtist hafa verið stór þáttur í lífi henn- ar. Eitt sinn fyrir æði löngu hitti greinarhöf. Ragnheiði frænku á gangi í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Þetta var að haustlagi. Hún virtist ekki glöð í bragði, en bar sig vel að vanda. Hún heyrðist aldrei kvarta og gaf yfirleitt aldrei skýringar. Það var líka ein- skis spurt. Þegar kvaðzt var, sagð- ist hún ætla að heimsækja ömmu Guðríði, sem var trúnaðarvinkona hennar og sennilega eins konar sáluhjálpari — bezti vinur henn- ar, sem hún treysti fullkomlega. Og þegar hún gekk burt, hafði maður á tilfinningunni, að Ragn- heiður heitin hefði farið til þess að fá eins konar aflausn hjá Guðríði ömmu sinni, sem var í vissum skilningi dýrlingur vegna mann- kærleika síns, að þvLer sagt er. Guðríður hafði verið stór í öllu og með vítt tilfinningasvið. Það var oft minnzt á Mýrar- húsaklanið þá þremenningar hitt- ust. Þetta hefur löngum verið hörkufólk öðrum þræði, gat á stundum verið ómennskt að dugn- aði og aflamanneskjur samkvæmt því og jafnvel orðið steinríkt. Hins vegar hefur sumt af „klaninu" ver- ið haldið veiklund gagnvart lífsins lystisemdum og jafnvel orðið því fjötur um fót. En flestu af þessu fólki — og óhætt er að segja það í einlægni, enda þótt málið sé ofur skylt — langsamlega flestu af Mýrarhúsakyni fylgir ákveðinn lífsblær siðfágunar og kurteisi samfara stórlyndi — stórlæti. En þetta er auk þess frændrækið og vinfast fólk, svo að fegurð er að, og að því leyti „klan“ með hefðir aftan úr öldum. Á vissan hátt minnti Ragnheiður frænka ævin- lega á einhvern hátt á hefðarkonu — grand landy, sem hafði til að bera sálfræði frá annarri öld og eins og hún hefði alizt upp við aðra siði og aðra herra en nú eru við lýði. Það var hennar ævintýra- legi sjarmi. Guð blessi minningu Ragnheið- ar og veiti aðstandendum hennar styrk. — stgr Ragnheiður Jónína Arnadóttir Fædd 25. júni 1890 Dáin 29. mars 1982 Mig langar að skrifa fáein kveðjuorð um hana ömmu mína, Ragnheiði Jónínu Árnadóttur frá Tröllatungu, sem var mér alltaf svo góð. Ég dvaldi hjá þeim ömmu og afa í Tröllatungu eitt sumar og þá sá ég hvað hún amma mín var mikill fugla- og blómaunnandi. Hvenær sem færi gafst þá var hún komin út í garð að vinna, en hún hafði mjög stóran og fallegan garð við — Minning bæinn, og þar sem hún sat þarna flötum beinum að reita illgresi og hlú að blómunum, þá komu þrest- irnir til hennar og settust bæði á handleggi og fætur. Þetta fannst mér, sem þá var bara 10 ára, alveg undarlegt hvað þrestirnir voru spakir hjá henni. Annars kynntist ég henni varla að nokkru marki fyrr en að hún fluttist suður og bjó hjá foreldrum mínum og á Hrafnistu, þá sá ég hvað hún var iðin, hún sat aldrei auðum höndum. Hún var ann- aðhvort að hekla eða lesa í bók, og Lára Pálmadótt- ir - Minningarorð Fædd 8. ágúst 1892 Dáin 7. ágúst 1982 Látin er í Reykjavík frú Lára Pálmadóttir, síðast til heimilis að Stóragerði 28, ekkja Aðalsteins heitins Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra Sambands ísl. sam- vinnufélaga. Hún lézt á Elliheim- ilinu Grund þ. 7. ágúst sl. Frú Lára fæddist að Æsustöð- um í Eyjafirði 8. ágúst 1892 og vantaði því einn dag í nírætt er hún dó. Foreldrar hennar voru hjónin Pálmi Jónsson trésmiður og Jónína Jónsdóttir, er þar bjuggu unz þau fluttust til Akur- eyrar og síðar Reykjavíkur. Lára minntist oft uppvaxtarára sinna á Æsustöðum með nokkrum söknuði og víst er að sú rósemi hugans, sem oft einkennir þá sem í sveit búa, fylgdi henni alla tíð og gaf henni sérstæða reisn. Eftir að Lára fluttist með for- eldrum sínum til Akureyrar gekk hún í gagnfræðaskólann þar og síðan Kvennaskólann í Reykjavík og fékk þannig þann undirbúning er þá þótti beztur við hæfi kvenna. Hún starfaði síðan við verzlun Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri unz hún þann 24. júní 1916 giftist Aðalsteini Kristinssyni, er þá veitti forstöðu firma Nathan og Olsen á Akureyri. Fyrstu hjúskaparár Aðalsteins og Láru urðu því á Akureyri, en 1921 fluttist þau til Reykjavikur þegar Aðalsteini var boðin fram- kvæmdastjórastaða Sambandsins hér. Eftir nokkur ár í Reykjavík keyptu þau húseignina Bergþóru- götu 21, en byggðu síðan í félagi við foreldra Láru stórt og vandað hús við Fjölnisveg 11. Aðalsteinn lézt 13. janúar 1947, en Lára bjó áfram á Fjölnisvegin- um í sambýli við móður sína, dæt- ur og tengdasyni til ársins 1961 er húsið var selt. Pálmi Jónsson féll frá 1935 en frú Jónína lifði til 1951, en Lára annaðist hana alla tíð af mikilli alúð og kærleika. Eftir að Lára fluttist af Fjöln- isveginum keypti hún sér íbúð í Stóragerði 28, þar sem hún bjó síðasta hluta æfinnar eða þar til hún af heilsufarsástæðum flutti í Elliheimilið Grund á þessu ári. Aðalsteinn og Lára eignuðust tvær dætur, Heiði, gift Karli Stef- ánssyni verzlunarmanni, d. 1971, seinni maður Sigurður Jónsson prentari, og Höllu, gift Guðmundi Árnasyni framkvæmdastjóra. Lára Pálmadóttir var dæmi- gerður fulltrúi síns tíma, sem helgaði heimili og ástvinum alla krafta sína en átti að sjálfsögðu sín áhugamál, m.a. málefni Hall- grímskirkju en þar starfaði hún í stjórn kvenfélags safnaðarins um nokkurra ára skeið þegar Aðal- steinn var á lífi. Mikil risna fylgdi starfi Aðal- steins og var gestagangur því tíð- ur á heimilinu bæði innlendra og erlendra manna. Hjónaband Láru og Aðalsteins var mjög farsælt og hamingju- samt og var mikill harmur að Láru kveðinn við skyndilegt frá- fall hans. hún las mikið bækur um andleg efni. Hún heklaði mjög fallegar mottur og dúka en á síðari árum var hún líka farin að sauma út. Þrátt fyrir þennan háa aldur, bar hún hann mjög vel og var hress og ekki sást grátt hár á höfði hennar og einnig hafði hún ágæta sjón, þannig að hún gat les- ið blöðin og fylgst með hvað var að ske í kringum hana. Börnin mín, Rúnar, Örn og Rak- el Ösp, senda langömmu bestu kveðjur og þakkir fyrir hvað hún var þeim góð. Henni rétt auðnað- ist að sjá Rakel Ösp nýfædda áður en hún kvaddi þennan heim, svo er Guði fyrir að þakka. Vonandi hef- ur amma mín það gott fyrir hand- an. Guðmunda Þeir sem kynntust Láru munu minnast góðvildar hennar og hógværðar samfara persónulegri reisn. Margir nákomnir munu við lát hennar hugsa til mikillar fórn- fýsi hennar, sem þekkti engin takmörk. Ég, sem þessar línur rita, átti samleið með frú Láru í 35 ár og man ekki eftir að hafa heyrt hana tala styggðaryrði til nokkurs manns, né gera kröfur til annarra. Með framkomu sinni og lífs- breytni mun Lára Pálmadóttir seint gleymast þeim, sem kynnt- ust. Henni verður án efa vel fagnað þegar hún nú gengur á fund skap- ara síns. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur Arnason í dag kveðjum við ömmu okkar, Láru Pálmadóttur, hinstu kveðju. Öll eigum við henni mikið að þakka. Við barnabörnin áttum því láni að fagna að vera samvistum við ömmu okkar öll uppvaxtarárin að Fjölnisvegi 11. Þegar húsið var selt, árið 1961, og hún fluttist í Stóragerði 28, vorum við enn í nábýli, en eitt okkar, Aðalsteinn, bjó áfram hjá ömmu. Við hin, systkinin fiögur, vorum því áfram tíðir gestir á heimili ömmu okkar. Uppvaxtarárin með ömmu á Fjölnisveginum sköpuðu dýrmæt- ar minningar, sem eru okkur öll- um hjartfólgnar. Hún skakkaði leikinn, þegar í óefni var komið, sagði okkur sögur af uppvaxtarár- um sínum á Æsustöðum, hvatti okkur og huggaði. Á þessum árum var það svo eðlilegt og sjálfsagt, að amma væri ávallt til taks, þeg- ar eitthvað bjátaði á, einhver þarfnaðist hennar. Með aldrinum skildum við hins vegar betur, hversu sérstök hún var okkur öll- um. Líf ömmu, eins og við kynnt- umst því, snerist allt um að hjálpa öðrum. Hún óskaði einskis fyrir sjálfa sig, en hugsaði sífellt um að gera öðrum gott. Þess nutum við barnabörnin í ríkum mæli. Hún vakti athygli okkar á því góða og göfuga í fari annarra og gaf okkur sjálf gott fordæmi. Hún æðraðist aldrei, þrátt fyrir mót- læti. Aldrei sagði hún styggðar- yrði við nokkurn mann. Trú henn- ar á lífið var óbifandi. Fram í andlátið bar hún um- hyggju fyrir öðrum, þótt máttur- inn færi þverrandi. Að lokum brast heilsan, þótt hún héldi and- legum styrk til hinstu stundar. Hana skorti dag í nírætt. Við ætluðum að samfagna henni á níræðisafmælinu. En eitt sinn skal hver deyja. í stað þess biðjum við henni blessunar, þakklátum huga, fyrir alla þá ástúð, um- hyggju og hlýju, sem hún veitti okkur barnabörnum sínum. Guð veri með henni. Alli, Árni, Steini, Helga Lára og Margrét.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.