Morgunblaðið - 13.08.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982
7
AKUREYRI
Bifreiöaverkstæðið
Þórshamar hf.
<3iVÍIAPEHP
WÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Höfðabakka 9 49 8 67 50
OMRON búðarkassar fyrir minni og
stærri fyrirtæki fyrirliggjandi.
Verð frá6.895.-kr.
Tll UMHUGSUN ftR
„LauA heimsins eru vanþakklæti”
Olafur Ragnar kvartar yfir þvfad
Mogginn vilji eMú tala vii sig
Glókolli „misboðið
vegna afskiptaleysis Moggans“!
„Morgunblaöiö hefur bara hringt tvisvar eöa þrisvar í Ólaf
Ragnar Grímsson, þingmann Alþýðubandalagsins, síöustu árin
og leitað frétta. Frá þessu sagöi þingmaðurinn sjálfur í viðtali,
sem við hann var tekið í þættinum „Á vettvangi" í útvarpinu í
fyrrakvöld (þ.e. sl. þriðjudag). Mátti heyra á þingmanninum, að
honum væri „misboðið vegna þessa afskiptaleysis Moggans"!
„Útvarpið létti þó geö guma í fyrrakvöld þegar þaö spjallaði við
ÓRGr í þættinum „Á vettvangi“ um allt og ekkert."
Framanritað er tekið upp úr baksíðuþönkum Alþýðublaðsins í
gær.
Mr. Ó. Gríms-
son og Eggert
Haukdal
Alþýðublaðid segir í
baksíðuþönkum í gær
„Annars átti grundvöllur
þessa viðtals (ríkisútvarps-
ins) við Ólaf Ragnar
Grímsson víst aö vera for-
kostulegar yfirlýsingar
hans um afstoðu Kggerts
Haukdal til ríkisstjórnar-
innar og aðgerða hennar,
sem enginn veit hverjar
verða. I>ar lýsti Olafur því
yfir, að Kggert væri með
ríkisstjórninni, en Kggert
svaraði síðan fyrir sig og
sagðist ekki hafa ráðið
Ólaf sem blaðafulltrúa
sinn.
Ólafur Kagnar var meira
en lítið hneykslaður á Kgg-
ert að vefengja yfirlýsingar
sínar. Sagði Olafur það
furðulegt af þingmanni að
halda landsmönnum milli
vonar og ótta um það,
hvort hann styddi rikis-
stjórn eða ekki.
Sagði Ólafur að það væri
skylda þingmanns í lýð-
ræðisþjóðfélagi að gera
fólki það Ijóst með óyggj-
andi hætti, hvort hann væri
á móti ríkisstjórn eða ekki.
— Þennan farsa endurtók
Ólafur Ragnar ekki sjaldn-
ar en þrisvar í nefndu við-
Lali.
Var Ólafur
þegar stuðn-
ings maður
þess, sem
hann vissi
ekki hvað var?
„Annars lét þingmaöur-
inn gamminn geisa í
nefndu útvarpsviðtali og
hélt sig ekki við afmarkað-
an tilgang viðtalsins, held-
ur fór víða. Lét fjúka gagn-
rýni á fréttamat sjónvarps-
ins, viðskipti sin við fjöl-
miðla almennt og í þeirri
umfjöllun kom hann ein-
mitt inn á kulda Morgun-
blaðsins í sinn garð.
Annars vakti það nokkr-
ar spurningar hjá ýmsum
útvarpshlustendum, hvaða
raunhæfum tilgangi það
þjónaði í nefndum útvarps-
þætti að ræða við Olaf
Ragnar. „Haukdalsfrétt
Ólafs“ hafði þegar verið
leiðrétt af Bergþórshvols-
bóndanum sjálfum. Hann
segist ekki búinn að gera
upp hug sinn til ríkisstjórn-
arinnar ennþá, vill gjarnan
sjá tillögur til úrræða um
efnahagsmál, áður en hann
tekur afstöðu. I>að þykir
sumum skynsamlegt að
hafa upplýsingar á borðinu,
áður en afstaöa er tekin.
Meira að segja ætla ak
þýðubandalagsmenn að
vera tilbúnir í kosningar, ef
þeir verða ekki ánægöir
með tillögur samstarfsaðil-
anna í ríkisstjórninni um
efnahagsúrræði.
I>að gleymist því að
spyrja Ólaf Ragnar í hinu
makalausa Vettvangsvið-
tali, hvort hann væri til-
búinn að styðja væntanleg
bráðabirgðalög ríkisstjórn-
arinnar á þessu stigi máls-
ins! Varla hefði þingmaður
þá sagt: Já, ég styð hráða-
birgðalög ríkisstjórnarinn-
ar um efnahagsúrræði, þótt
ég viti ekki á þessu stigi
málsins, hver efnisatriði
þeirra verða!!“
Að troða sér
inn á fjölmiðla
„Spurningu sína um
viðskipti Ólafs Ragnars við
íslenzka fjölmiðla orðaði
Sigmar B. Hauksson,
stjórnandi þáttarins, eitt-
hvað á þessa leið, hvort
rétt væri að hann (Olafur)
væri laginn með afbrigðum
við að troða sér inn á fjöl-
miðla, og að viðtöl við hann
væru því langtum fleiri en
við aðra stjórnmálamenn.
Ólafur neitaði þessu og
vitnaði Þ« til vondra
manna á Mogganum, sem
vildu ekki tala við sig! Sig-
mar B. Hauksson hefði ef
til vill átt að varpa þessari
spurningu til sjálfs sín og
spyrja: hvers vegna er ég
að taka þetta viðtal við
Ólaf Ragnar Grímsson?“
Já, von er að Alþýðu-
blaðið leggi Vettvangs-
stjóra þessa spurningu ■
munn. Kn fyrrum frétta-
stjóri, bæði á Vísi og síðar
á Dagblaðinu og Vísi, hefur
lýst því í blaðagrein, hvern-
ig Ólafur Ragnar Grímsson
hefur stundað þráhring-
ingar í blaðamenn til að
troða sjálfum sér og sjón-
armiðum þar inn i fjöl-
miðla, undir yfirskini
frétta, þó tilgangurinn sé
sá einn að koma annarleg-
um sjónarmiðum á fram-
færi og baða sjálfan sig í
ótímabæru fréttaljósi.
Meira segja hið fræga Sov-
étblað, Pravda, vitnar á
stundum í Mr. Ó. Gríms-
son, sem heimildarmann á
íslandi, þegar ýjað er að
kjarnavopnum á Kefla-
víkurflugvelli og álíka fjar-
stæðubulli. Hinsvegar fara
ekki sögur af því að Mr. Ó.
Grímsson hafi talað máli
„íslenzkra gaffalbita" í
Sovétríkjunum.
Sarita, ný
skáldsaga
ÚT ER komin islenzk skáldsaga,
„Sarita". Sagan fjallar um stefnu-
lausa ævintýraleit tveggja íslenzkra
sjómanna á erlendri grund. Ævin-
týraleit þeirra breytist síðan á
örlagaríkan og óvæntan hátt og með-
al annars flýja þeir félagar á svin-
týralegan hátt úr fangelsi í Suður-
Ameriku.
Höfundur bókarinnar er 28 ára
íslenzk
komin út
gamall Isfirðingur, Ólafur Þ.
Olafsson, sem stundað hefur sjó-
inn um nokkurt skeið, bæði á
fiskiskipum og kaupskipum. Hann
gefur bókina, sem er pappírskilja,
sjálfur út og er þetta fyrsta
skáldsaga hans en áður hafa birzt
kvæði eftir hann í blöðum. Hellu-
prent prentaði bókina.
Sauðárkrókur:
. v»jrg.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33
Simi 20560
EFÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
100 ára afmælis Jóns
Þ. Björnssonar minnst
Sauðárkrókur, 12. ágúst.
NÆSTTKOMANDI sunnudag 15.
igúst verður þess minnst hér á
Sauðárkróki, að eitt hundrað ár
eru liðin frá fæðingu Jóns Þ.
Björnssonar frá Veðramóti, sem
um áratugaskeið var skólastjóri
barna- og unglingaskólans hér.
Jón var oddviti Sauðár-
krókshrepps í röska tvo áratugi
og tók auk þess mikinn þátt í
félagsmálum. Fyrir störf sín var
Jón kjörinn fyrsti heiðursborg-
ari Sauðárkrókskaupstaðar.
Hann lést í Reykjavík 1964.
Afmælisins verður minnst við
almenna guðsþjónustu við Sauð-
árkrókskirkju sem hefst kl. 10.30
I « t ♦« .« , t tl 1« .♦ \ <- V ! S I i; l I
f.h. á sunnudag og kl. 14 verður
athöfn í barnaskólanum þar sem
afhjúpuð verður brjóstmynd af
Jóni sem Guðmundur Elíasson
myndhöggvari hefur gert. Er
þess vænst að sem flestir gamlir
vinir og nemendur Jóns verði
þar viðstaddir.
Kári.