Morgunblaðið - 13.08.1982, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982
Honolulu:
Orsakir spreng-
ingar eru ókunnar
Honolulu, 12. á(pÍ8t. AP.
YFIRVÖLD eru nú að reyna að grafast fyrir um orsakir
sprengingarinnar er varð í farþegarými Jumbo-þotu Pan Am-
flugféiagsins sem var á leið frá Tokyo til Honolulu í gær, en
einn maður lét lífið og 15 slösuðust.
Hópur sérfræðinga er nú á leið
frá Washington til Honolulu til að
aðstoða við rannsóknina, en um
borð í vélinni voru 285 farþegar.
Reynt verður að ákvarða gerð
sprengjunnar í þeim tilgangi að
reyna að komast nær því hver
gæti hafa komið henni fyrir, en
sérfræðingar eru fullvissir um að
ekki var um tæknibilun að ræða.
Vélin sem lagði upp frá Hong
Kong hafði þriggja klukkustunda
viðdvöl á flugvellinum í Narita,
áður en lagt var af stað til Hono-
lulu. Lögregluyfirvöld í Narita
hafa því skipulagt rannsókn þar,
sem miðar að því að grafast fyrir
um það hverjir komu þar um borð
í vélina, jafnt farþegar sem
starfsmenn.
Sprengjunni hafði verið komið
fyrir undir sæti 16 ára gamals
japansks drengs og við sprenging-
una kom gat á gólf farþegarýmis
vélarinnar auk þess sem loftþrýst-
ingur hennar lækkaði mjög.
Óeirðir í Póllandi
Varsjá, Póllandi, 12. á|pwL AP.
UM ÞAÐ BIL 1000 manns kölluöu ókvæðisorð að yfirvöldum
eftir jaröarför sonar og tengdadóttur verkalýðsleiðtogans
Marian Jurczyk fyrr í þessari viku í Szczecin, samkvæmt
heimildum er bárust í dag.
Jurczyk, fyrrum yfirmaður
skipasmíðastöðvarinnar í Szczec-
in, var leystur úr varðhaldi til að
vera viðstaddur jarðarför sonar
síns, Adam, og tengdadótturinnar,
Dorota, sem fór fram á þriðjudag.
Bee Gees
í starfshlé
l»ndon 12. ágúst. AP.
BEE GEES, breska popphljóm-
sveitin sem samdi tónlistina í
„Saturday Night Fever“ er nú
um það bil að taka sér starfshlé
nastu átján mánuðina, sam-
kvæmt upplýsingum frá Barry
Gibb, elsta bróðurnum í tríóinu.
„Okkur fannst þetta tíma-
bært. Eg er að fara að gefa út
sólóplötu og sömu sögu er að
segja um Robin. Þess vegna
munum við ekki koma fram
sem hljómsveit fyrr en á árinu
1984,“sagði Gibb áður en hann
sté upp í flugvél á leið til Flórí-
da í morgun.
Bee Gees , Barry og tvibura-
bræður hans, Maurice og Rob-
in, hafa skipað efstu sæti vin-
sældalistanna beggja vegna
Atlantshafsins nú um tveggja
áratuga skeið.
Þetta eru fyrstu víðtæku mót-
mælin sem sagt er frá í pólskum
blöðum frá því er miklar óeirðir
voru á sama stað í byrjun maí-
mánaðar, er fjöldi ungmenna
gerði uppreisn gegn lögreglu og
réðist að henni.
Þessi mótmæli nú koma í kjöl-
far þess að verkalýðsleiðtogar
Samstöðu hafa lagt til að haldið
verði uppi mótmælum síðari hluta
þessa mánaðar til að láta enn einu
sinni í ljós andstöðu við herlögin
sem hafa nú staðið í níu mánuði.
Samkvæmt blöðum í Póllandi
mun Dorota hafa látist af sárum
er hún hlaut er hún féll út um
glugga á þriðju hæð húss þann 5.
ágúst sl., en Adam framið sjálfs-
morð fimm klukkustundum eftir
andlát hennar.
Að jarðarför þeirra lokinni
munu viðstaddir eða a.m.k. 700
manns, hafa flykkst í miðborgina
og kallað ókvæðisorð að yfirvöld-
um. Lögreglan dreifði mannfjöld-
anum án þess að beita ofbeldi, en
handtók u.þ.b. 30 manns,sam-
kvæmt því er blaðið Glos Szcec-
inski segir í dag.
Jurczyk ásamt Walesa og öðrum
helstu verkalýðsleiðtogum lands-
ins hafa verið í haldi frá því her-
lög tóku gildi og voru ekki meðal
þeirra 1227 sem leystir voru úr
haldi þann 21. júlí síðastliðinn.
Tom McClean vel fagnað af eiginkonu sinni, Jill, er hann kom til Land’s End í Englandi.
Á þriggja metra skútu á
51 degi yfir Atlantshafið
LjhmPh Knd, Knglandi, 12. ágúift. AP.
OFURHUGINN Tom McClean
kom í dag að landi í Land’s End í
Englandi á 3 metra skútu sinni eft-
ir 51 dags ferðalag yfír Atlankshaf-
ið. Er þetta mettími á svo litlu fleyi
i austurátt yfir hafíð. Fyrir 14 árum
sigldi maður á tæplega tveggja
metra langri skútu vestur yfir haf-
ið en sú ferð tók 85 daga. Fyrra
metið á sambærilegum báti, var 54
dagar. McClean sagðist hafa kom-
ist 20 dögum fyrr að landi ef ekki
hefði komið til kröftugur mótvind-
ur á miðri leið.
McClean var hinn borubratt-
asti er hann kom að landi og
sagði fréttamönnum að sér hefði
ekki leiðst hót á siglingunni á
milli þess, sem hann saup á
kampavíni og tók á móti kossa-
flaumi frá fagnandi eiginkonu
sinni. Hins vegar hefði honum
verið tekinn að leiðast dósamat-
urinn, sem hann hafði meðferðis
og ennfremur var hann farinn að
þrá að geta gengið um.
McClean er ekki með öllu
óvanur Atlantsálum. Hann reri
yfir hafið einn síns liðs árið
1969, fyrstur manna. Ekki sakar
e.t.v. að geta þess, að hann rekur
skóla í Skotlandi fyrir fólk, sem
hefur áhuga á að læra hvernig
komast á af við hinar ólíklegustu
aðstæður.
SINDRA
Ka
mm
STALHR
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PR0FÍLPÍPUR
ni im h—M—ini—iac=ii=3 Euaczin
Fjölmargir sverleikar.
Borgartúni31 sími27222
Mannfræðingar þjarka
enn um „týnda hlekkinn“
AtlanU, Georgíu, 12. ágúst AP.
ÞEKKTUR mannfræðingur, Donald
Johanson, hefur skýrt frá þvi, að
steingervingar, sem fundust í Austur-
Afriku á síðasta áratug, séu næstir því
að vera „týndi hlekkurinn", þ.e. vera
sem að hluta var maður og að hluta api,
í þróunarsögu mannsins.
Johanson fann sjálfur „Lucy“, en
svo hefur steingervingur af eins
metra hárri beinagrind verið nefnd-
ur. Höfuð steingervingsins líktist
mest höfði á simpansa, en búkurinn
líktist mannslíkama. „Lucy“ er talin
Skotið á sendi-
*
ráð Israela
(áuatemalaborg, 12. ágúsL AP.
MENN Á vörubílspalli hófu skyndilega
skothríð á sendiráð ísraela í Guate-
malaborg í gærkvöld og sprengdu síð-
an sprengju um 300 metrum frá sendi-
ráðinu. Engan sakaði, en skemmdir
urðu talsverðar.
Öryggisverðir skutu á byssumenn-
ina á móti og tókst að hrekja þá á
brott. Ein rúða brotnaði í sendiráð-
inu, en nærliggjandi hús urðu fyrir
meiri skemmdum.
vera 3—4 miiljón ára gömul og
mannfræðingar hafa lengi deilt um
hvort hún líkist meira apa eða
manni.
Deilurnar um uppruna og tegund
steingervingsins hafa staðið allt frá
því hann fannst snemma á síðasta
áratug. Johanson heldur fast við
sína skoðun, að hér sé um veru ná-
tengda manninum að ræða. „Vissu-
lega er höfuðið líkara því sem gerist
á öpum, en frá hálsi og niðurúr er
líkaminn miklu líkari því sem gerist
hjá manninum, eins og við þekkjum
hann úr þróunarsögunni."
Johanson heldur því ennfremur
fram, að „Lucy“ hafi gengið upprétt,
en þeirri kenningu hefur nýlega ver-
ið hafnað alfarið af mannfræðing-
um, sem hafa einbeitt sér að beina-
byggingunni og komist að þeirri
niðurstöðu, að útilokað sé að veran
hafi gengið upprétt.
ERLÉNT