Morgunblaðið - 13.08.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982
21
Lokakvöld í íþróltasal Hlíðardalsskóla í Ölfusi. Þá koma foreldrar í heim-
sókn.
Sumarbúdir Hlíð-
ardalsskóla 1982
getur verið mjög brýnt að gera
breytingar á húsnæði, sem auð-
velda fólki með takmarkaða ferli-
getu að komast um húsið erinda
sinna. Eins og með aðra þjónustu
stofnunarinnar er ekki krafist
greiðslu fyrir nauðsynlegar breyt-
ingar af þessu tagi, hins vegar er
óskað framlaga sem fólk á auðvelt
með að greiða, svo sem vegna efn-
iskaupa. Vinnan er að sumu leyti
unnin af iðnaðarmönnum, að öðru
leyti koma sjálfboðaliðar við sögu.
Innkaupaferðir. Farið er með
eldra fólk sem þess óskar aðra
hverja viku í verslunarferðir.
Þessar ferðir eru tímafrekar,
sækja þarf hvern skjólstæðing og
skila heim, og að jafnaði er farið
með fólk í smærri hópum. Sendi-
bifreið mötuneytanna er notuð til
þessa síðdegis, og er það ástæðan
fyrir því að ekki er hægt að bjóða
upp á þessa þjónustu vikulega.
Að tryggja rétt
hins aldraða
Málsvari (ombudsman). Starfs-
fólk og sjálfboðaliðar heimsækja
reglulega aldrað fólk sem dvelst á
elliheimilum eða langlegudeildum,
samkvæmt sérstakri áætlun.
Þetta fólk ræðir við hina öldruðu
um hag þeirra og kynnir sér hvort
þörf sé annarrar þjónustu, kemur
fram fyrir hönd hinna öldruðu
gagnvart stjórnendum stofnan-
anna og fylgir eftir rétti þeirra sé
á hann gangið. Einnig kanna
málsvarar hvort önnur þjónusta
en dvöl á viðkomandi stofnun sé
skjólstæðingnum fyrir bestu.
Þessa getur verið sérstök þörf þar
sem um elliheimili eða sjúkra-
deildir er að ræða, sem rekin eru
af einkaaðilum og hafa því hags-
muna að gæta af því að viðkom-
andi dveljist sem lengst, svo fram-
arlega sem hann getur borgað.
Málsvari heimsækir skjólstæðing
sinn vikulega, og mjög oft þarf
hann að koma fram af fullri ein-
urð gagnvart ættingjum hins aldr-
aða, þar sem hagsmunir hins aldr-
aða og ættingja fara oft á tíðum
ekki saman og vilji ólíkur.
Mat á þjónustuþörf fer fram á
mjög skipulagðan hátt. Fimm
starfsmenn auk deidarstjóra
svara hverri beiðni eða fyrirspurn
um þjónustu með því að heim-
sækja viðkomandi. Mjög er al-
gengt að eldra fólk veigri sér við
að leita aðstoðar annarra en
þeirra sem það þekkir persónu-
lega, svo sem barna sinna. í mörg-
um tilfellum á það þó hins vegar
rétt á ýmiss konar þjónustu sem
það ef til vill þarfnast. Félags-
ráðgjafar heimsækja þá sem óska
þjónustu, kynna þeim hvað til
boða stendur, kanna efnahag og
greiðslugetu, kanna þörf viðkom-
andi fyrir þjónustu og gera áætlun
í samráði við skjólstæðing sinn.
Það hefur sýnt sig að þessi ráðgjöf
bætir mjög alla þjónustu við aldr-
aða og bætir nýtingu þjónustunn-
ar. Áætluninni er síðan fylgt eftir
með eftirliti, sem áður hefur verið
greint frá.
Næringarráðgjöf. Næringarfræð-
ingur og félagsráðgjafar starfa
saman að næringarráðgjöf. Að því
er varðar heimsendan mat og mat
í mötuneytum stofnunarinnar er
matseðill sérstaklega saminn fyrir
hvern mánuð og þess gætt að
máltíðirnar svari öllum þörfum
um rétta næringu. En auk þess er
reynt að ná til eldra fólks, sem
fært er um að elda sinn eiginn
mat, þar sem algengt er að eldra
fólk hneigist til einfaldari matar-
gerðar og fæðan verði þar af leið-
andi einhæfari og skorti því frek-
ar nauðsynleg næringarefni. Sér-
staklega er þetta algengt hjá eldra
fólki sem missir maka, en heldur
búskap áfram á eigin spýtur.
Helstu
áhyggjuefnin
Ráðgjöf er veitt bæði eldra fólki
og fjölskyldum, þeim sem áhyggj-
ur hafa af því hvernig hinum öldr-
uðu muni reiða af á eigin spýtur.
Helstu áhyggjuefnin eru einmana-
leiki, fjármál, viðhald og umsýsla
húsnæðis, sambandsleysi við fjöl-
skylduna, sjúkdómar og dauðsföll.
Eldra fólki, sem vill glíma við
vandamál sín í svokölluðum
stuðningshópum, er gefinn kostur
á vikulegri ráðgjöf. Félagsráðgjaf-
ar hafa þessa ráðgjöf með hendi,
með aðstoð sérfróðs fólks í hinum
einstöku tilfellum.
Upplýsingar og tilvísanir. Eins og
gefur að skilja er mjög erfitt fyrir
eldra fólk að átta sig á allri þeirri
mismunandi þjónustu sem því
kann að standa til boða. Sérstök
deild sér um að samræma þá þjón-
ustu, koma upplýsingum um
skjólstæðinga og þarfir þeirra.
Oftast er um trúnaðarmál að
ræða, þannig að aðeins nauðsyn-
legustu upplýsingum er komið á
framfæri við aðrar deildir eða
aðrar stofnanir, en þess er gætt að
skjólstæðingarnir fái upplýsingar
um alla þá þjónustu sem þeim
kann að standa til boða. Til að
auðvelda það er gefið út mánað-
arlega sérstakt fréttablað.
Sjálfboðastörf. Aldrað fólk er
ekki einungis þiggjendur. Það hef-
ur líka mikið að gefa, hafi þjóðfé-
lagið skilning á því að þiggja af
því. Það er kannski skilningsleysi
á þessu gagnkvæma hlutverki,
sem veldur því að við höfum búið
til hugtakið öldrunarvandamál.
Eins og áður hefur verið getið, er
stærstur hluti þeirra sjálfboðaliða
sem starfa að þjónustu við aldrað
fólk, sem sjálft er komið yfir þau
aldursmörk, sem vinnumarkaður-
inn viðurkennir. Margt af þessu
fólki er afskaplega jákvætt, dug-
legt, heilsuhraust og skilningsríkt.
Það notar sína starfsorku til að
hjálpa hinum, sem af heilsufars-
ástæðum eða af öðru getuleysi er
hjálpar þurfi í elli sinni.
Sjálfboðaliðar fá greiddan bens-
ínkostnað og fæðiskostnað sé þess
þörf, en að öðru leyti þiggja þeir
engin laun. Flestir starfa við
dreifingu matar, en margir við
símavörslu, minniháttar skrif-
stofustörf, húsaviðgerðir eða sem
málsvarar, svo nokkuð sé nefnt.
Tiltölulega auðveldlega gengur að
afla sjálfboðaliða til flestra
starfa.
Vinnumiðlun. Menn sem missa
vinnu sína eftir 55 ára aldur, eiga
yfirleitt í miklum erfiðleikum með
að fá vinnu eftir það. Sérstakur
starfsmaður hefur haft með hönd-
um það hlutverk að reyna að
hjálpa þessu fólki við að fá vinnu,
en slíkt gengur ekki vel núna, þeg-
ar atvinnuleysi í Michigan er það
hæsta í öllum Bandaríkjunum.
Önnur þjónusta. Lán eða fjár-
hagsaðstoð er í sumum tilvikum
veitt þegar þörf er brýn. Bæði get-
ur verið um að ræða lán á hjálp-
artækjum vegna fötlunar eða
sjúkdóma, eða peningalán um
lengri eða skemmri tíma. Sérstak-
ur neyðarsjóður er fyrir hendi til
að veita fjárhagsaðstoð í einstaka
tilfellum. Þá veitir Upjohn-lyfja-
fyrirtækið, sem hefur aðalstöðvar
í Kalamazoo, heimild til þess að
gefa lyf í neyðartilvikum.
KINS OG undanfarin ár voru sumar-
búóir starfræktar aó Hlíóardalsskóla.
í þetta sinn voru þær frá 14. júní til 15.
júlí. Knn sem fyrr var Birgir Guó-
steinsson sumarbúóastjóri.
Börnin koma í hópum, 60 í senn.
Dvalartími hvers hóps er 10 dagar.
Sum börn dvelja þó allan tímann, 30
daga. Hverjum hóp er skipt í 10
manna hóp. Hver 10 manna hópur
fær sinn foringja úr starfsliðinu, og
eru þessir foringjar ábyrgir hver
fyrir sínum hóp. Hóparnir hafa við
margt að vera. Má þar nefna föndur,
sund, íþróttir margs konar, inni, og
útileiki, gönguferðir, söng, fræðslu
um grundvallaratriði kristinnar
Aðhlynning
IÐUNN Solvelg Jöhannðdöttir
„Aðhlynning
aldraðra“
Bók eftir Solveigu
Jóhannsdóttur
IÐUNN hefur gefió út bókina Aó-
hlynning aldraóra eftir Solveigu Jó-
hannsdóttur hjúkrunarkennara. „Bók
þessi veitir víðtæka fræóslu um ýmis-
leg vandamál og sjúkdóma sem fylgt
geta ellinni og hvernig vió skuli brugó-
ist." segir m.a. í frétt frá útgefanda.
Bókin skiptist í fimm aðalkafla sem
heita: Öldrunarfræði, Heilsuvernd,
Ellisjúkdómafræði, Aðhlynning
aldraðra og Hjúkrunar- og dvalar-
heimili aldraðra. Settar eru fram
ýmsar spurningar og verkefni sem
vekja til umhugsunar um málefni
aldraðra og benda á leiðir til um-
ræðna um þau. í bókinni eru margar
skýringarmyndir sem Rut R. Sigur-
jónsdóttir hjúkrunarkennari hefur
gert.
Ennfremur segir: „Aðhlynning
aldraðra er öðrum þræði samin sem
kennslubók handa sjúkraliðanem-
um, en mun jafnframt reynast
gagnleg öllum sem sinna sjúkum
gamalmennum, hvort heldur er á
heimilum eða öldrunardeildum. Þá
er þess vænst að aldraðir geti sjálfir
haft mikil not af lestri bókarinnar."
Solveig Jóhannsdóttir hefur verið
kennari við Hjúkrunarskóla íslands
i mörg ár og við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti frá því hann tók til
starfa. — Aðhlynning aldraðra er
180 bly. Oddi prentaðt.'*’ -------
trúar, smíðar, trjáplöntun, skyldu-
störf ofl.
Lokakvöld var hjá hverjum hóp.
Þá koma foreldrarnir til þess að
sækja börnin. Er þá haldin kvöld-
vaka, þar sem börnin standa að
flestu því, sem fram fer. Þar er sýnt
allt það, sem búið hefur verið til og
flutt margt af því, sem þar hefur
verið lært. Voru hart nær 300
manns á staðnum síðasta kvöldið.
^VÉLADEILD
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
Hofðabakka 9 f 85539
Fylgst með þeirri þjónustu sem
veitt er eldra fólki í lítilli borg í
Bandaríkjunum til að gera því
kleift að búa sem lengst á eigin
vegum og utan stofnana
Öldungaráóió er fulltrúasamkoma þeirra sem njóta þjónustu Senior Servic-
es. Þaó kemur saman einu sinni i mánuói og tekur ýmsar minniháttar
ákvaróanir, en gerir aó öéru leyti tillögur til stjórnar stofnunarinnar.
Heimsending matar er umfangsmesti þáttur þjónustu vió aldraóa í heima-
húsum. Þrjár máltíóir á dag, þar af ein heit máltíó, alla sjö daga vikunnar,
eiga aö tryggja fullnægjandi næringu. Sjálfboóaliöar sjá um dreifinguna.