Morgunblaðið - 13.08.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1982
27
• Sigurrtur Pétursson hefur forystu
í meistaraflokki, en Ragnar Óíafs-
son og Björgvin Þorsteinsson eru
hvorugur langt undan. Sigurður mið-
ar hér út pútt en hinir tveir eru í
baksýn. Mynd þessa tók Guðjón i
GrafarholtKvellinum í gjer.
Leikur „Shuggie“
aftur í Skotlandi?
Jóhannes „Shuggie" Eðvaldsson
„Ég er í rauninni að ákveða
framtíð mína núna,“ segir Jó-
hannes. „Ég vil vera áfram í Skot-
landi, en hvort það verður í
knattspyrnunni eða ekki verður
tíminn að skera úr um. En ég veit
að ég get enn orðið að gagni fyrir
lið hér. Ég er í leikæfingu eins og
er, og þá hef ég æft einn síðan ég
kom aftur, þannig að ekki tæki
langan tíma að komast aftur i
fulla æfingu." — SH
EFTIR að meistaraflokkarnir höfðu
ieikið 36 holur á Landsmótinu í gær
var Sigurður Pétursson, GR, enn
með forystuna í karlaflokki. Hann
náði þó ekki eins góðum árangri og
fyrsta daginn, en þá fór hann á vall-
armeti, eins og við sögðum frá í g»r.
Hann lék á 46 höggum og er því á
146 höggum samanlagt.
Ragnar Ólafsson GR, skaust upp
fyrir Björgvin Þorsteinsson frá Ak-
ureyri í g»r, Björgvin var í öðru s»t-
inu eftir fyrsta daginn á 73 höggum,
en í gær lék hann á 77 höggum og er
því með 150 samanlagt. Hann er í
þriðja sætinu. Ragnar lék best
þeirra allra í g»r og fór hringinn á
73 höggum, eða tveimur yfir pari, og
er hann nú með 148 samanlagt.
Keppnin er nú hálfnuð hjá
meistaraflokkunum og lýkur
henni á laugardaginn. Þeir þrír
sem nú eru í efsta sætinu í karla-
flokki eru greinilega sigurstrang-
legastir, þó engan veginn sé hægt
að spá um úrslit strax.
10 efstu menn í meistaraflokki
karla eru þessir:
1. Sigurður Pétursson, GR 146
2. Ragnar Ólafsson, GR 148
3. Björgvin Þorsteinsson, GA 150
4. —5. Jón H. Guðlaugsson, NK 156
Hilmar Björgvinsson, GS 156
6.-8. Hannes Eyvindsson, GR 158
Sveinn Sigurbergsson, GK 158
Þorbjörn Kjærbo, GS 158
9. Magnús Jónsson, GS 159
10. Sigurður Sigurðsson, GS 160
íslandsmeistarinn í kvenna-
flokki, Sólveig Þorsteinsdóttir,
GR, tók heldur betur við sér í gær
og skaust upp að hlið Ásgerðar
Sverrisdóttur sem var best eftir
fyrsta daginn. Sólveig fór fyrstu
18 holurnar á 92 höggum, en Ás-
gerður notaði aðeins 85. í gær lék
Sólveig síðan á 83 höggum, 7 betur
en Ásgerður, sem fór á 90. Eru
þær því báðar með 175 högg. Þór-
dís Geirsdóttir sem var önnur eft-
ir fyrsta daginn, vermir nú þriðja
sætið með 178 högg samanlagt. Én
hér kemur röð efstu keppenda í
flokknum:
1.—2. Sólveig Þorsteinsd., GR 175
1.—2. Ásgerður Sverrisd., GR 175
3. Þórdís Geirsdóttir, GK 178
4. Jakobína Guðlaugsd., GV 186
5. Kristín Pálsdóttir, GK 187
Fyrsti flokkur kvenna er einnig
hálfnaður með mótið, búinn að
leika 36 holur. Þrjár efstu eru þær
sömu og í gær en röð þeirra hefur
breyst. Ágústa Dúa Jónsdóttir,
GR, sem var fyrst á 87 höggum,
notaði 10 höggum meira í gær, og
er nú í þriðja sæti á 184 höggum.
Ágústa Guðmundsdóttir er nú
komin í fyrsta sætið, en hún var
önnur eftir fyrsta daginn, var þá á
88 höggum. í gær fór hún á 90
Leikur til úrslita í tíunda sinn
Sigurður
skoraði
sigurmarkið
RANGHERMT var í Morgunblað-
inu í gær, að Guðbjörn Tryggvason
hafi skorað sigurmark ÍA á síðustu
mínútu undanúrslitaleiks ÍA og Vík-
ings í fyrrakvöld. Það var hinn
trausti miövörður liðsins, Siguröur
Lárusson, sem skoraði markið dýr-
mæta og er hann beðinn velvirð-
ingar á mistökunum.
JÓHANNES Eðvaldsson, eða
„Shuggie" eins og aðdáendur Celtic
kölluðu Búbba er hann lék með lið-
inu, hefur mikinn áhuga á því að
leika á ný í Skotlandi. Morgunblað-
inu barst í g»r nýleg úrklippa úr
einu útbreiddasta blaði Glasgow,
Evening Times, þar sem Jóhannes
greinir frá þessu í viðtali.
Blaðið segir að Jóhannes hafi nú
snúið aftur til Skotlands í von um
að halda knattspyrnuferli sínum
áfram. „Ég hafði alltaf í huga að
snúa aftur til Skotlands hvort sem
var,“ segir hann. „Ég seldi ekki
einu sinni húsið mitt þegar ég fór
frá Celtic. Það var staður sem ég
vissi að ég myndi snúa til á ný.“
Jóhannes segir ennfremur að
sér hafi alltaf líkað mjög vel við
skota. Þeir hafi tekið sér mjög vel
í byrjun og það hafi auðveldað
sérmikið að laga sig að aðstæðum
hjá Celtic. „Allir voru mjög vina-
legir við mig, og ég mun aldrei
gleyma hvernig fólk kom fram við
mig þann tíma sem ég spilaði hér.“
Þá segir Búbbi að Cathy, kona
sín, sé skosk og sonurinn Jóhannes
sé einnig fæddur þar, þannig að
hann hafi ákveðnar taugar til
landsins.
Blaðið segir að á síðasta keppn-
istímabili hafi liði hans, Hannov-
er, naumlega mistekist að tryggja
sér sæti í Bundesligunni.
„Kannski ég hefði verið þar um
kyrrt eitt keppnistímabil til við-
bótar ef við hefðum farið upp. En
það tókst ekki, og auk þess langaði
mig aftur til Skotlands, og konu
mína einnig að sjálfsögðu,“ segir
Jóhannes.
Þá kemur fram í blaðinu að að-
eins séu örfáar vikur síðan
Edvaldsson hætti að leika, og að
hann sé nú tilbúinn í slaginn á
næsta keppnistímabili, „ef — og
þau gera örugglega — skosk lið
sýna honum áhuga.“ Fram kemur
að Hannover, sem fékk hann ekki
til að vera áfram, krefst ekki mjög
mikils fyrir hann, og hvaða úr-
valsdeildarlið sem er ætti að hafa
efni á því að kaupa hann.
úrslita í tiunda skiptið frá því að
keppni þessi hóf göngu sína árið
1960. 22 úrslitaleikir hafa fariö fram
og munar engu að Skagamenn hafi
verið i öðrum hverjum leik.
Fljótt á litið virðast Skagamenn
því hafa átt miklu bikarliði á að
skipa og má það að nokkru leyti til
sanns vegar færa. En athyglisvert
er, að þrátt fyrir að hafa leikið níu
sinnum til úrslita, hefur ÍA aðeins
einu sinni unnið bikarinn, en átta
sinnum tapað úrslitaleiknum. Og
það var ekki fyrr en síðast er ÍA
lék til úrslita, árið 1978, að liðið
vann loks, sigraði þá Val 1—0 í
úrslitum.
Ef við rekjum feril ÍA í úrslit-
unum fram á þennan dag, þá lék
liðið fyrst til úrslita árið 1961,
tapaði þá 3—4 fyrir KR, sem
reyndar vann þessa keppni fimm
fyrstu árin, þar af þrívegis eftir
úrslitaleiki gegn ÍA. Liðin léku
einnig til úrslita 1963 og 1964, KR
sigraði í bæði skiptin, fyrst 4—1
og síðan 4—0. 1965 var ÍA enn í
úrslitunum, en tapaði nú 3—5
fyrir Val: Skagamenn léku til úr-
slita í 5. skiptið árið 1969 og
mættu þá ÍBA, en töpuðu 1—2.
Árin 1974, 1975 og 1976 léku
Skagamenn síðan til úrslita, en
það voru fastir liðir eins og venju-
lega, 1974 tapaði liðið 1—4 fyrir
Val, 1975 0-1 fyrir ÍBK og 1976
0—3 fyrir Val. Loks gerðist undrið
árið 1978, ÍA lék til úrslita gegn
erkifjandanum Val og sigraði loks
1-0.
Keflvíkingarnir hafa verið
hógværari í bikarkeppninni, að-
eins tvisvar leikið til úrslita, þar
af einu sinni gegn ÍA eins og fram
kemur hér að framan. En hitt
skiptið lék liðið til úrslita gegn
Fram árið 1973 og tapaði 1—2.
Næst á eftir ÍA hefur Fram komið
oftast við sögu í úrslitum þessarar
keppni, eða átta sinnum. Valur og
KR hafa sjö sinnum leikið til úr-
slita, KR raunar átta sinnum, en
B-lið félagsins gerði sér lítið fyrir
og komst í úrslit árið 1968, en tap-
aði 1-2 fyrir ÍBV.
- Rg-
/
Sigurður Lárusson
höggum og er með 178 samanlagt.
Jónína Pálsdóttir, GA, færist upp
um eitt sæti, er nú önnur á 179
höggum. Hún var í þriðja sætinu
eftir 18 holur með 90 högg.
Keppendur í 1. flokki kvenna
eru níu og röð þeirra sem hér seg-
ir:
1. Ágústa Guðmundsdóttir, GR178
2. Jónína Pálsdóttir, GA 179
3. Ágústa Dúa Jónsdottir, GR 184
4. Guðrún Eiríksdóttir, GR 191
5. Lóa Sigurbjörnsdóttir, GK 199
6. Hanna Gabríelsdóttir, GR 200
7. Guðfinna Sigurþórsd., GS 204
8. Elísabet Möller, GR 218
9. Laufey Karlsdóttir, GR 225
Keppni lauk í þremur flokkum í
gær. Var þar um að ræða 1., 2. og
3. flokk karla. íslandsmeistari í 3.
flokki varð Arnar Guðmundsson,
GR, á 378 höggum og annar var
Sveinn J. Sveinsson, GOS, á 379.
Tveir urðu jafnir í 3.-4. sæti,
Ólafur Guðjónsson, og Þorsteinn
Lárusson, báðir GR, á 380 högg-
um, og sigraði Ólafur í bráðabana.
Einar Gunnar Einarsson, GR,
varð í fimmta sæti á 381 höggi.
Þarna sést að keppnin í 3. flokki
hefur verið mjög jöfn. Keppnin í 2.
flokki var hins vegar ekki alveg
eins jöfn, því þar sigraði Ómar
Kristjánsson með yfirburðum,
notaði 10 höggum minna en næstu
tveir menn. Hann fór á 346, en
Bergur Guðnason og Jón Ó.
Carlsson, báðir GR, fóru á 356.
Léku þeir siðan bráðabana og
hafði Jón betur í honum. Hlaut
hann því 2. sætið.
í 1. flokki bar Stefán Unnars-
son, GR, sigur úr býtum. Fór hann
holurnar 36 á 320 höggum, og ann-
ar varð Sæmundur Pálsson, GV, á
323. Keppni í þessum flokki var
mjög spennandi og eftir 2. daginn
voru til að mynda þrír efstir og
jafnir. Voru það Sæmundur, Stef-
án og Jóhann Benediktsson, GS.
Voru þeir allir á 163 höggum. Stef-
án hafði síðan náð forystunni eftir
þriðja daginn og hélt henni.
Nú, úr því fékkst ekki skorið í
gærkvöldi hver hreppti þriðja
sætið í flokknum. Þórhallur Páls-
son, GA, og Jóhann Benediktsson,
GS, voru báðir á 326 höggum, en
ekki var unnt að heyja bráðabana
þar sem of dimmt var orðið er þeir
luku keppni. Bráðabaninn verður
leikinn í dag. Háldán Karlsson,
GK, varð fimmti á 327 höggum,
Gunnar Finnbjörnsson, GR, sjötti
á 329 og sjöundi varð Jóhannes
Árnason á 330. — SH.
ÞEGAR Sigurður Lirusson skoraði
annað mark ÍA á elleftu stundu og
tryggði Skagamönnum sigur yfir
Víkingi og scti { úrslitum bikar-
keppni KSI i fyrrakvöld, niði félagið
þar með þeim ifanga að leika til
Skagamenn fagna marki og óska þess vafalaust að fi slíkt tækifæri í
úrslitaleiknum gegn ÍBK.
SHUGGIE WANTS
RETURN TICKET
Sigurður enn
með forystu