Morgunblaðið - 15.08.1982, Side 13

Morgunblaðið - 15.08.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982 49 í Biblíusamtalinu á sunnudagsmorgninum var tjaldið þéttsetið, cins og sjá má. í messunni á sunnudeginum var veðrið það gott, að menn sátu í grasinu fyrir utan tjaldið og alt arisgestir krupu í grasið við tjaldskörina. Líklega hafa fyrstu messur, sem sungnar voru á Þing völlum, farið fram í tjöldum. Útimessa á Þingvöllum Flestir kannast við það á hátíð- um úti við um sumartímann, að prestar eru fengnir til þess að tala á helgistundum. Eru þeir uppi á palli og tala þar í hljóðnema. En alþýða manna heldur áfram að rabba saman og krakkar ganga með sín stereótæki með dynjandi popptónlist. Almcnnt. Það sem presturinn er að segja fer fyrir ofan garð og neðan hjá flestum, þar sem presturinn nær ekki eyr- um mótsgesta. Um verzlunarmannáhelgina var helgihald á Þingvöllum með nokkuð öðru sniði en verið hefur. Þar var farið með heigihald út til fólksins á tjaldstæðin, skammt frá þjónustumiðstöð- inni, á svokölluðum Leirum. Kallaði Heimir Steinsson, Þing- vallaprestur, starfshóp úr Grensáskirkju í Reykjavík til þess að aðstoða við helgihaldið þessa miklu ferðahelgi. Tjaldað var stóru tjaldi á Leirunum, þar sem flest dagskráratriði fóru fram. Byrjað var á laugardegi með almennum söng og ávarpi Heim- is. Síðan var farið í gönguferð um söguslóðir undir leiðsögn hans og endað á Lögbergi, þar sem fáni var dreginn að húni, og ættjarðarsöngvar sungnir. I framhaldi af því var tónlistar- dagskrá í tjaldinu, þar sem flutt- ir voru trúarlegir söngvar. Söng- hópur úr Grensáskirkju undir stjórn Þorvalds Halldórssonar annaðist alla tónlist um helgina. Var um kvöldið almenn sam- koma. Örn Jónsson, djákni úr Grensáskirkju, talaði, vitnis- burðir voru fluttir, mikið sungið, og vildi ferðafólkið halda áfram, langt fram á nótt, þegar dagskráin var búin. Svo vel tókst til með þessa samkomu. Á sunnudagsmorgun var kom- ið saman fyrir hádegi og flutt svokallað Biblíusamtal undir stjórn Ingólfs Guðmundssonar kennara. Niðurlag 9. kapítula Lúkasarguðspjalls var tekið fyrir og rætt af ýmsum aðilum í Ijósi fortíðar, nútíðar og fram- tíðar. Var það vel til þess fallið á þessum mikla sögustað. Helgihaldi lauk síðan með messu í tjaldinu og altarisgöngu. Flutt var „ný tónlist", sem svo er kölluð. Er þar um að ræða messu, þar sem farið er í öllu eftir helgisiðabók kirkjunnar. En í stað hefðbundinna sálma, þá er flutt tónlist af léttara tag- inu. Hefur tónlistin komið frá þeirri vakningu, sem hér hefur verið undanfarið og starfað af miklum þrótti með Halldóri Gröndal í Grensáskirkju og víð- ar. I þessari messu, sem staðar- prestur og Örn djákni sáu um ásamt sönghóptium, komu á 2. hundrað til altaris. Veður eins og bezt var á kosið þessa helgi, og dreif fólk að tjaldinu um leið og tónlistin barst til eyrna þeirra, sem gistu hjólhýsi og tjöld á svæðinu. Er áætlað, að mörg hundruð manns hafi tekið þátt í helgihaldinu. Virtist fólki líka þessi ný- breytni vel, sem marka má af virkri þátttöku í söng og flutn- ingi messunnar, að ekki sé talað um þátttöku í altarisgöngunni, sem var mikil og gleðileg. Mikill mannfjöldi var á Þingvöllum þessa helgi eins og venja er, og höfðust menn misjafnt að. Enda tilgangur og markmið með för á svona stað margvísleg. En það vakti athygli þeirra, sem stóðu að helgihaldinu, hversu gott næði fékkst, þrátt fyrir að dagskrá færi fram fyrir opnum tjöldum mitt í iðukasti mann- fjöldans, sem dvaldi á Þingvöll- um umrædda helgi. — pþ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.