Morgunblaðið - 25.08.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982
3
Kýrin við „hestaheilsu"
MEÐFYLGJANDI myndir voru teknar af kúnni sem skorin var
upp vegna meltingartruflana, en í ljós kom að hún hafði étið 8
kíló af baggaböndum. Á annarri myndinni sést skurðurinn á síðu
kýrinnar, en á hinni er Helgi á Úlfsstöðum með baggaböndin,
sem öll eru í einum hnút. Leifði ekkert af því að hnúturinn
kæmist út um skurðinn. Að sögn er kýrin við „hestaheilsu".
Góðar sölur
í Bretlandi
l'RJU íslenzk fiskiskip hafa selt afla
sinn í Bretlandi það sem af er þessari
viku. Fengu skipin yfirleitt gott verð
fvrir fiskinn.
Á mánudag seldi Helgi S GK 73,2
lestir í Grimsby. Heildarverð var
1.145.000 krónur og meðalverð 15,63
krónur. Sama dag seldi Hrafn GK
106,3 lestir í Hull. Heildarverð var
1.675.500, meðalverð 15,75 krónur. í
gær seldi svo Vörður ÞH 81,2 lestir í
Hull. Heildarverð var 1.385.400 og
meðalverð 17,07 krónur.
Dallas aftur
á skjáinn
í OKTOBKK hefjast að nýju sýningar
í sjónvarpi á framhaldsþættinum vin-
sæla, Daílas, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk hjá sjónvarp-
inu í gær. Ákveðið er að vetrar-
dagskráin hefjist heldur fyrr en venju-
lega, eða 1. október. Aðrar nýjungar
sem nú þegar eru ákveðnar cru þær að
einn fréttaspegill verður í viku hverri,
á fostudögum, en á þriðjudögum verð-
ur fréttaþáttur með þeim atburðum
sem eru efst á baugi hverju sinni.
Ákveðið er að Löður haldi áfram og
með vetrardagskránni koma sígildir
þættir eins og barnaefni á miðviku-
dögum og Stundin okkar á sunnudög-
lim
Fjórðungsþing
Norðlendinga
á Sauðárkróki
FJÓRÐIJNGSÞING Norðlendinga
verður haldið á Sauðárkróki
26.—28. ágúst nk. Fundarstaður
verður Gagnfræðaskólinn á Sauð
árkróki. Þingsetning verður á
fimmtudagskvöld 26. ágúst kl. 8 e.h.
Á fimmtudagskvöld verður
fjallað á sérstökum fundi þingsins
um atvinnumál á Norðurlandi.
Framsögumenn verða Gunnar
Ragnars, forstjóri, sem ræðir um
stóriðnað með tilliti til orkunýt-
ingar, sem undirstöðu stærri iðn-
þróunar og Björn Dagbjartsson,
forstjóri Rannsóknarstofnunar
fiskiiðnaðarins, sem ræðir um
matvælaiðnað, nýjar leiðir í nýt-
ingu afurða til lands og sjávar.
Páll Hlöðversson, tæknifræðing-
ur, ræðir um almennan iðnað og
þá einkum framleiðsluiðnað. Guð-
mundur Sigvaldason, landfræð-
ingur, fjallar um þjónustu- og
viðskiptastarfsemi og áhrif þess-
ara starfsgreina og þá einkum
ríkisgeirans á búsetu og atvinnu-
þróun. Ávörp munu flytja full-
trúar vinnumarkaðarins, sem
stóðu að atvinnumálaráðstefnu
Fjórðungssambands Norðlendinga
í vetur. Síðan verða almennar um-
ræður. Bjarni Aðalgeirsson for-
maður Fjórðungssambands Norð-
ledinga mun kynna tillögu, sem
lögð verður fyrir þingið um at-
vinnumál og aðgerðir í þeim efn-
um.
Eftir hádegi á föstudag 27. ág-
úst verður sérstakur fundur á
Fjórðungsþinginu, sem fjallar um
verkefnaskiptingu á milli ríkis og
sveitarfélaga. Egill Skúli Ingi-
bergsson, fyrrverandi borgar-
stjóri, formaður samninganefndar
ríkisins og Sambands ísl. sveitar-
félaga um verkefnaskil ríkis og
sveitarfélaga, heldur framsögu
um verkefni nefndarinnar og
verkefnaskiptingu almennt.
Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri í
Stykkishólmi, sem á sæti í nefnd
er endurskoðar sveitarstjornar-
lögin hefur framsögu um sveitar-
stjórnarkerfið og þær hugmyndir,
sem koma til meðferðar við endur-
skoðun sveitarstjórnarlaga. Jón G.
Tómasson formaður Sambands ísl.
sveitarfélaga mun flytja ávarp á
þessum fundi, sem m.a. fjallar um
störf sambandsins á þessum
vettvangi. Áskell Einarsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins mun hafa framsögu fyrir
tillögu, sem lögð verður fyrir
Fjórðungsþing og fjallar um verk-
efnamál og um samstarf sveitar-
félaga.
Nýkomið frá Danmörku.
Verðlaunahús Bo Bedre frá FLEXPLAN
á sýningunni Fjölskyldan og heimilið ’82.
SKJÓLBÆR SF.
Borgartúni 29
Sími29393
flexplan