Morgunblaðið - 25.08.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.08.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982 19 Borgarfulltrúum fækkað í 15: Svavar staðfesti fækkun FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA, Svavar Gcstsson, hcfur staðfcst þá ákvörðun borgarstjórnar Reykja- víkur að borgarfulltrúum verði fækkað í 15. Bréf þar að lútandi barst borg- arráði Reykjavíkur í gær og var það undirritað af Hallgrími Dalberg ráðuneytisstjóra. Breyt- ingin tekur gildi við næstu sveit- arstjórnarkosningar, árið 1986. Borgarstjórn tók ákvörðun um fækkun borgarfulltrúa fyrr í sumar, en þeim var fjölgað af vinstri meirihlutanum sem við völd var 1978 til 1982. INNLENT Forsætisráðherrafrúrnar á tískusýningu. Forsætisráöherrafrú Dana skoðar íslenskan fatnað FRÚ Ingrid Jörgensen, eiginkona danska forsætisráðherrans Anker Jörgensen, sem nú er í opinberri heimsókn hér á landi, heimsótti á mánudag íslenskan Heimilisiðnað í fylgd frú Völu Thoroddsen. Skoðuðu forsætisráðherrafrúrn- ar tískusýningu á íslenskum fatn- aði, handprjónuðum peysum, handofnum kjólum unnum af Guðrúnu Vigfúsdóttur og batik- kjólum unnum af Katrínu Ágústs- dóttur. Einnig voru sýndir silfur- skartgripir eftir Jens Guðjónsson. Frú Jörgensen var mjög hrifin af hinum íslenska fatnaði að sögn Guðbjargar Hannesdóttur hjá Is- lenskum Heimilisiðnaði. Leiðrétting í VIÐTALI Mbl. við Dagfinn Tveito slæddust þær meinlegu villur inn í við- talið, að hann var titlaður formaður í stað framkvæmdastjóri Norske Hage- selskapet. Kinnig misritaðist á einum stað það í stað þar svo að úr urðu setningabrengl, á að vera „I>ar sem erfitt er að ra'kta ...“ Kinnig er talað um að Tveito sé að láta af störfum sem formaður, sem er rangt, þar sem hann er framkvæmdastjóri. Núverandi formaður er Odvar Nordli fyrrv. for- sætisráðherra Noregs. Nafn Jóns l’álssonar formanns Garðyrkjufélags Islands misritaðist í myndatexta. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessum mistökum. VICTOR 9000 viðskiptatölvan Valkostur hinna vandlátu! Farmanna- og fiskimannasamband Islands: Sýna má allt að 8 mismunandi statasett á skerminum í einu, og 6000 stafi. 16-bita Intel 8088 örtölva. RAM-minni er 128-896 Kb. MSDOS, CP/M-86, UNIX og UCSD stýrikerti Disketturými er minnst 1,2 Mb á tveim 5 1/4 tommu diskettum, en mest 2,4 Mb. Byggja má I inn harðan disk 10 Mb í stað annars diskettu- drifsins. 104 lyklar, þar af 10 forritanlegir. Allir islensku bókstafirnir. Laust lyklaborð. TDLVUBUDIN HF Skipholti 1. Simi 2 5410 V0. Victor 9000 er þekkt í Evrópu undir nafninu Sirius I Meginorsaka vandans að leita hjá ríkisstjórninni sjálfri STJORN Farmanna- og fiskimanna- sambands Islands mótmælti á fundi sem haldinn var á mánudag bráða- birgðalögum og yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar um efnahagsaðgerðir. ÁÍyktun FFSÍ er svohljóðandi: „Farmanna- og fiskimannasam- bandið sér sig knúið til að mót- mæla þeim bráðabirgðalögum og yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um efnahagsaðgerðir sem nú hafa séð dagsins ljós. FFSÍ er og verður á móti því að gengið sé á gerða kjarasamninga og þeir skertir með lögboði. Sú ákvörðun að fella niður helming verðbóta 1. desem- ber nk., auk þeirrar skerðingar sem verður af völdum „Ólafslaga", gengur þvert á þá samninga sem aðilar vinnumarkaðarins, laun- þegar og atvinnurekendur, hafa nýverið komið sér saman um. Fráleitt er að sett sé ákveðið há- mark á fiskverð er nema skal hækkun verðbóta á laun hinn 1. desember 1982. Með ákvörðun slíks hámarks er í raun verið að ganga framhjá Verðlagsráði sjáv- arútvegsins og þeim forsendum sem gert er ráð fyrir lögum sam- kvæmt að Verðlagsráð starfi eftir. Sú grein bráðabirgðalaganna sem fjallar um ráðstöfun geng- ismunar er sett þar inn án nokk- urs samráðs við hlutaðeigandi samtök sem ýmist fá eða fara á mis við þann gengismunahagnað er þar um ræðir. Er ljóst að þar er ekki nema tæpt á þeim vandamál- um sem herja á útgerðina og sjó- mannastéttina, m.a. vegna þess aflabrests sem orðið hefur. Örfín grafík, 800 x 400 punktar. Skerminn má forrita þannig að hann hafi 80 stafi í 25 línum eða 132 stafi í 50 línum. Stafir á skermi geta verið ýmist grænir eða svartir, skærir, mattir eða undirstrikaðir. Skermurinn er á liðamótum þannig að unnt er að snúa honum á ýmsa vegu til þæginda. Sérstök húð minnkar glampa og endurkast. „Arangursríkar stjórnunaraðferðir“ REKSTRARSTOFAN mun á morg un efna til námskeiðs, sem ber yfir- skriftina „Árangursríkar stjórnunar- aðferðir**, en námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja og stofnana og verður haldiö að Hótel Loftleið- um. Fyrirlesarinn á námskeiðinu verð- ur Bandarikjamaðurinn E.H. Hart- mann, en hann er yfirmaður Mayn- ard Management Institute i Banda- ríkjunum og situr í stjórn fyrirtækis- ins H.B. Maynard & Co. Hjá fyrir- tækinu, sem er eitt virtasta ráðgjafa- fyrirtæki Bandaríkjanna, starfa í dag liðlega 300 starfsmenn. E.H. Hartmann hefur langa reynslu sem fyrirlesari og rágjafi, bæði heima og crlendis. J. Ingimar Hansson, fram- kvæmdastjóri Rekstrarstofunnar mun setja námskeiðið klukkan 13.30. Síðan verður leitað svara við spurningunni: „Hver er hin raun- Leiðrétting í GREIN um vanda innlends skipaiðnaðar, sem birtist í Mbl. í gær, misritaðist í sambandi við endurnýjunarþörf fiskiskipaflot- ans árafjöldinn. Átti þar að standa 1982—1987. Miðast því sú endurnýjunarþörf fiskiskipa sem nefnd var í greininni við næstu 5 ár. verulega framleiðni fyrirtækisins eða einstakra deilda þess?“ Farið verður yfir einfalda og snjalla að- ferð til að meta afköst fyrirtækis eða einstakra deilda. Með sérstök- um spurningalista og einföldum athugunum geta yfirmenn metið stöðu fyrirtækis síns. Tekið er til- lit til nýtni, aðferða og afkasta. Þá verður fjallað um lykilinn að aukinni framleiðni. Útskýrðar eru nokkrar samstæðar aðferðir, eink- um varðandi skipulagningu og undirbúning verka. Sýnd er upp- bygging verkbókhalds sem leiðir í ljós skipulagningarstig fyrirtæk- isins. Þá verða kynntar aðferðir við gerð staðla og notkun þeirra við skipulagningu, eftirlit og mark- miðasetningu. Sýnd verða upplýsingakerfi, sem gefa stjórnendum nauðsyn- legt yfirlit yfir virkni fyrirtækis- ins. Gerð er grein fyrir meðhöndl- un og notkun þeirra upplýsinga sem hvað mestu skipta um afköst starfseminnar. Loks verður gefið yfirlit yfir margar aðferðir, sem beitt er til útgjaldalækkunar án skerðingar á þjónustu eða gæðum. Aðferðirnar eru einkum notaðar við stjórnun- ar- og skrifstofustörf. Lögð er áherzla á þær forsendur sem skapa þarf til að ná sem beztum árangri. Þau vandamál sem ríkisstjórnin á nú við að glima má að hluta rekja til minni afla það sem af er árinu 1982 miðað við metaflaárið 1981. Meginorsaka vandans er þó að leita hjá ríkisstjórninni sjálfri. Hún hefur ekki reynst þess megn- ug að taka á efnahagsvanda þjóð- arinnar á þann hátt að ekki þurfi stöðugt að beita þeim úr sér gengnu úrræðum sem gengisfell- ing og launaskerðing er, þar sem gengisskráning sýnir ekki annað en hvernig til hefur tekist við stjórnun efnahagsmála innan- lands."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.