Morgunblaðið - 25.08.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1982
31
B-keppnin 1985
haldin í Noregi
NORÐMENN hrepptu mótshald
B-keppninnar í handknattleik, en
úthlutunina fengu þeir á þingi IHF
í Lundúnum um helgina. Island
sótti um að halda umrædda
B-keppni, sem haldin verður 1985,
og var mál manna að landinn ætti
góða möguleika að hreppa hnossið.
Frétt þessi er byggð á frásögnum
norskra blaða sem fjalla um út-
hlutunina til handa Norðmönnum,
en þau skýra frá þvi og hafa eftir
Carl Wang, stjórnarmanni hjá
IHF, að íslcndingar hafi dregið
umsókn sína til baka og því hafi
gengið greiðlega fyrir Noreg að fá
sína umsókn samþykkta.
Vegna þessa, munu Norðmenn
ekki þurfa að leika fyrir sæti
sínu í keppninni. B-keppnin gæti
orðið merkileg að þessu sinni, en
3. heimurinn sem svo er stund-
um kallaður, Asía, Afríka o.fl.,
mun eiga fleiri fulltrúa, en
handknattleikur ku vera á mik-
illi uppleið vtða í löndum þar.
Arnór lykilmaður
í sigri Lokeren
2.UMFERÐ belgísku deildarkeppn-
inar í knattspyrnu fór fram um sið-
ustu helgi og gekk „íslensku" liðun-
um misjafnlega. Best gekk hjá Lok-
eren og Waterschei, betur þó hjá
fyrrnefnda liðinu, sem vann meist-
ara Standard Liege afar sannfær-
andi. Arnór Guðjohnsen þótti leika
frábærlega í leiknum og belgískir
fjölmiðlar voru ósparir á lofið, töldu
hann besta leikmann vallarins. Vel
gekk einnig hjá Waterschei, Lárusi
Guðmundssyni og félögum, stórsigur
gegn FC Liege. En hvorki Arnóri né
Lárusi tókst að skora. Úrslit leikja
urðu annars sem hér segir:
Lokeren — Standard 2-0
Beerschot — Waregem 2-1
Tongeren — Winterslag 0-2
FC Brugge — Lierse 2-0
Anderlecht — Molenbeek 2-0
Searing — Cercle Brugge 1-1
Waterschei — FC Liege 4-0
Kortrijk — Antwerp 2-1
Ghent — Beveren 1-1
Eftir tvær umferðir eru Ander-
lecht og Beerschot efst með fjögur
stig hvort félag. Síðan koma eigi
færri en 12 félög með 2 stig hvert
og eru þar á meðal, Lokeren og
Waterschei. Sævar og félagar hjá
Cercle hafa aðeins eitt stig.
Ul-keppni FRÍ
HIN ÁRLEGA unglingakeppni
FRÍ verður haldin næstkomandi
laugardag og sunnudag, 28. og 29.
ágúst. Eru það breyttir keppnis-
dagar frá því sem áður var ákveð-
ið. Keppni þessi er boðsmót þar
sem 6 bestu í hverri grein í land-
inu er boðið til keppninnar.
Keppnin fer fram á Laugar-
dalsvellinum og hefst kl. 14.00 á
laugardaginn og verður síðan
framhaldið kl. 10.00 á sunnu-
dagsmorgun.
Ajax hof titil-
vörnina með sigri
IIOLLENSKA knattspyrnustórveld-
ið Ajax hóf titilvörn sína í deildar-
keppninni um helgina með afar
sannfærandi hætti. Liðið mætti Go
Ahead Eagles frá Deventer og sigr-
aði örugglega 4—1. I>að var stærsti
sigur fyrstu umferðarinnar og hefur
Ajax því þegar tekið forystuna. Pet-
er Boeve náði forystunni fyrir Ajax
snemma í leiknum, en Ernirnir jöfn-
uðu snarlega. Áttu leikmenn Ajax í
miklu basli í fyrri háifleik, en í síðari
hálfleiknum gekk til muna betur. I>á
skoruðu Gerard Vanenburg, Sören
Lerby og danski nýliðinn Jan Molby
fyrir Ajax. Johan Cruyff lék ekki
með Ajax, hann stríðir enn við
meiðsli á fæti sem hann fékk á síð-
asta keppnistímabili. Úrslit leikja í
fyrstu umfcrðinni hollensku urðu
sem hér segir:
Pec Zwolle — FC Groningen 1—3
Tvente — Roda JC 0—3
Nijmegen — AZ ’67 Alkmaar 2—0
Sparta — FC Utrecht 2—1
Excelsior — Feyenoord 2—3
NAC Breda — Helmond Sport4—2
Haarlem — Fortuna Sittard 0—0
Ajax — GAE Deventer 4—1
PSV Eindhoven — Willem 2. 2—0
Segja má að Feyenoord hafi far-
ið í heilan hring síðustu árin. Tvö
af mörkum liðsins gegn Excelsior
skoruðu Wim Van Hanegem,
gamla kempan sem gerði garðinn
frægan hjá Feyenoord en kom síð-
an víða við, og Peter Houtman,
framherjinn, sem vék á sínum
tíma fyrir Pétri Péturssyni og
kom einnig víða við. Báðir komnir
til Feyenoord á ný.
Einhver merkilegustu úrslit
umferðarinnar var ósigur Alk-
maar gegn NEC, en þeir Van Zinn-
en og Henk Grim skoruðu mörkin.
Þá sáu þeir Hallvar Thoresen og
Jurrie Koolhof um mörk PSV gegn
Willem 2.
Getrauna- spá MBL. í2 2 JO o 1 s i 1 æ 1 I I 5 1 6 News of the World £ ! Æ SAMTALS
1 X 2
Aston Villa — Sunderland X i 1 \ X 1 4 2 0
Brighton — Ipswich X 2 . 2 2 2 X 0 2 4
Coventry — Southampton i X X 1 1 X 3 3 0
Liverpool — WBA í 1 1 1 1 1 6 0 0
Man. Utd. — Birmingh. í 1 1 1 1 1 6 0 0
Norwich — Man. City í X 1 1 1 X 4 2 0
N. County — Swansea X 2 1 2 2 2 1 1 4
Stoke — Arsenal 2 X 2 2 2 X 0 2 4
Tottenham — Luton X 1 1 1 1 1 5 1 0
Watford — Everton 1 1 X X X 2 2 3 1
West Ham — N. Forest 1 1 1 X X 1 4 2 0
Grimsby — Leeds 1 2 2 X 1 1 3 1 2
SfioairOaKUigjiUKr
Vesturgötu 16,
Blaðburðarfólk óskast! -
Austurbær Meðalholt Vesturbær Garðastræti Granaskjól Upplýsingar í síma 35408
Úthverfi Selvogsgrunnur. Logaland Tunguvegur, Holtasel. lilnbtíi
sími 13280.
AUÐVITAÐ GETUR BANG & OLUFSEN FRAMLEITT
HLJÓMTÆKI EINS OG ALLIR HINIR — EN ÞÁ
HEFÐIR ÞÚ EKKI ÞENNAN GLÆSILEGA VAL-
KOST,
BEOSYSTEM 2400
Við erum rígmontin að geta boðið þessi glæsilegu hljómtæki, sem
eru einstök á fleiri en einn hátt. Útlitið er augnayndi, en bættu
við háþróaðri tækni sem tryggir afburða hljómgæði og ofan á það
svo fjarstýringu sem gerir þér kleift að stýra og stilla tækið
þannig, að þú njótir hljómlistarinnar sem best.
Komdu, sjáðu, hlustaðu, og okkur
er ánægja að sýna þér tækin.
Bang&Olufsen