Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 32
32
KRISTINN GUÐNASON Hl.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982
Mynd þcssa tók Snorri Snorrason í sumar þegar verið var að vinna við
loðnuskipið Beiti NK 123 í Slippstöðinni á Akureyri. Á skipið var sett
togrenna, eins og sést á myndinni og einnig settar í það saltfiskverkun-
arvélar og er hann þvi búinn til togveiða jafnhliða fyrri útbúnaði.
Skipulagsbæklingar um
Hafnarfjörð gefnir út
SVO SEM áður hefur komið fram í
fréttum hefur að undanfórnu mikið
verið unnið að skipulagsmálum á
vegum liafnarfjarðar. Bæjarstjórn
hcfur samþykkt nýtt aðalskipulag til
ársins 2000 og nýtt skipulag miðbæj-
ar. í maí sl. var efnt til viðtækrar
kynningar á skipulagstillögunum.
Skipulagstillögurnar hafa nú verið
gcfnar út í bókarformi og fást í
bókaverslunum í Hafnarfirði svo og
á bæjarskrifstofunum.
Þá hefur bæjarstjórn látið gera
kynningarbækling í máli og
myndum um Hafnarfjörð. Bækl-
ingurinn ber nafnið „Hafnarfjörð-
ur, bærinn í hrauninu" og er gef-
inn út á fjórum tungumálum: ís-
lensku, dönsku, ensku og þýsku.
Bæklingnum hefur verið dreift til
ferðaskrifstofa og hótela. Einnig
liggur hann frammi á bæjarskrif-
stofunum og í bóka- og ritfanga-
verslunum í Hafnarfirði.
(KrélUlilkynnin*.)
íoð*n*
Aðeins 4 bílar af 15 luku þessari hörðu keppni, við hinar erfiðustu aðstæður.
Akstursleiðin var 1500 km. löng. Það er örugglega einsdacmi að settur er í
Rallakstur alveg óbreyttur bíll eins og hann kemur frá verksmiðjunum með
aðeins 75 hestafla vél eins og BMW 315 bíllinn er. Það hlýtur að teljast
stórkostlegt afrek að komast í gegn um allar þessar akstursleiðir án nokkurra
bilana og ná öðru sæti á móti sérútbúnum Rall bílum, sýnir þetta glöggt hversu
sterkbyggðir, öruggir og traustir BMW bílarnir eru.
Samtök um náttúmvemd á Norðurlandi:
un og hval- og selveiðar
reynt yrði eftir megni að draga úr
landspjöllum ef haldið verður
áfram við þessa óheppilegu virkj-
unartilhögun.
A aðalfundinum voru sam-
þykktar þrjár ályktanir og fylgja
þær hér á eftir:
Ályktun um álver í Eyjafirði
Aðalfundur Samtaka um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, haldinn
að Árgarði í Skagafirði dagana 21.
og 22. ágúst 1982 mótmælir fyrir-
hugaðri byggingu álvers við Eyja-
fjörð, vegna mengunarhættu og
þeirrar félagslegu röskunar sem
slíkt stórfyrirtæki veldur.
Fundurinn telur að hætta á
náttúrufarslegri og félagslegri
röskun verði minni af völdum
smærri iðnfyrirtækja. Fundurinn
bendir enn fremur á að Eyjafjarð-
arsvæðið á völ margra annarra og
betri iðnaðarkosta en álbræðslu,
og skorar á stjórnvöld að skapa ný
atvinnutækifæri, án þess að grónu
og heilbrigðu atvinnulífi sé stefnt
í tvísýnu.
Ályktun um
Blönduvirkjun
Aðalfundur SUNN 1982 átelur
harðlega þau vinnubrögð sem
opinberir aðilar hafa viðhaft
gagnvart heimamönnum við sam-
ráð og samningagerð í Blöndumál-
inu.
Fundurinn harmar að við end-
anlega afgreiðslu Alþingis um
virkjun Blöndu skyldi ekki tekið
fullt tillit til náttúruverndar með
rannsóknum og stíflugerð við
Sandárhöfða. Fundurinn leggur
áherzlu á að ef stíflað verður við
Reftjarnarbungu, verði lónsstærð
aldrei meiri en 220 GL og öll
mannvirki við það miðuð.
Þess er ennfremur vænst að
stjórnvöld landsins læri af því
öngþveiti, sem Blöndumálið hefur
skapað, og taki strax breytta
stefnu í virkjunarmálum.
Þess er krafist að við undirbún-
ing virkjana á vatnasvæði Hér-
aðsvatna og annarra vatnsfalla
landsins, verði náttúruverndar
gætt til hins ýtrasta strax í upp-
hafi.
Ályktun um hvalveiöar
og selveiðar
Aðalfundur SUNN haldinn i
Árgarði í Skagafirði, dagana 21.
og 22. ágúst 1982, minnir á nýlega
samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins um samdrátt í hvalveiðum og
hvalveiðibann árið 1986. Telur
fundurinn sjálfsagt að fara að til-
mælum ráðsins og skorar á ríkis-
stjórnina að lýsa samþykki sínu
og undirbúa lagasetningu í sam-
ræmi við það, ennfremur að efla
rannsóknir á hvölum, sem grund-
vallað geti skynsamlega nýtingu
þeirra í framtíðinni.
Fundurinn fagnar þeim skyn-
samlegu og mannúðlegu viðbrögð-
um sem heimamenn á Rifi á Snæ-
fellsnesi sýndu, er hvalavaða hljóp
þar á land 20. þessa mánaðar.
Jafnframt lýsir fundurinn furðu
sinni á þeirri drápsherferð, sem
hafin var sl. vor gegn selum við
strendur landsins, fyrir forgöngu
Hringormanefndar. Er þess kraf-
ist að þetta fjöldadráp verði stöðv-
að nú þegar og lög sett hið allra
fyrsta, til að slíkir atburðir endur-
taki sig ekki.
Fundurinn telur brýnt að stór-
auka fræðslu um dýrategundir
lands og sjávar, um samskipti
þeirra og skynsamlega nýtingu á
þeim, ella getur svo farið að við
hljótum þann vafasama heiður að
útrýma fleiri tegundum en geir-
fuglinum.
«!«i.ysin(;asíminn kr: ítí
22480
AÐALFUNDUR Samtaka um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, SUNN, var
haldinn í Árgarði í Skagafirði laug-
ardaginn 21. og sunnudaginn 22. ág-
úst i fógni veðri við sæmilega að-
sókn. í tengslum við fundinn var far-
ið í skoðunarferð fram Austurdal,
allt fram að Ábæ og var farið yfir
Jökulsána á kláfnum við Skatastaði.
í ferðinni voru skoðuð ýmis athyglis-
verð náttúrufyrirbæri, svo sem fá-
gætar eða þroskamiklar plöntur,
berglög og bergtegundir ásamt hol-
um í berglögin eftir stóra trjáboli.
Á laugardag var haldin kvöld-
vaka með skagfirsku efni. Björn
Egilsson, Sveinsstöðum, sagði frá
uppruna Sveins Pálssonar, læknis
og náttúrufræðings, sem fæddur
var á Steinsstöðum og ennfremur
sagði hann frá Örlygsstaðabar-
daga, en hann var háður þarna í
nágrenninu þennan sama mánað-
ardag og vikudag fyrir 744 árum.
Þá las Hjörleifur Kristinsson á
Gilsbakka ljóð eftir Hjörleif
Jónsson. Hróðmar Jónsson stjórn-
aði almennum söng og sagði ferða-
sögu af nokkrum skagfirskum
hagyrðingum upp á Hofsafrétt. Þá
var einnig lesin frásaga eftir Hall-
grím Jónasson, kennara, og loks
söng Jóhann Már Jóhannsson í
Keflavík nokkur lög við mikla
hrifningu áheyrenda.
í stjórn SUNN eru Árni Steinar
Jóhannsson, Akureyri, Áslaug
Kristjánsdóttir, Hrísey, Bjarni
Guðleifsson, Möðruvöllum, Guð-
mundur Gunnarsson, Akureyri og
Jón Fornason, Haga. Á fundinum
var mikið fjallað um Blönduvirkj-
un og fyrirhugaða virkjun Hér-
aðsvatna. Kom fram almenn
óánægja með það hvernig unnið
hefur verið að undirbúningi
Blönduvirkjunar og einnig kom
fram ótti við að svipuð vinnubrögð
yrðu enn viðhöfð við undirbúning
virkjana á vatnasviði Héraðs-
vatna. Flestir eða allir fundar-
manna töldu að virkjun Blöndu
eftir tilhögun I með stíflu við
Reftjarnarbungu væri mikið áfall
fyrir náttúruvernd, vegna þess að
Blöndu hefði mátt virkja á annan
veg til verndar gróðurlendi. Hins
vegar var lögð á það áhersla að
imeygöul
þér meó
síöustu
iætin!
Orlof aldraðra
23. september Grikkland. Ör-
fá sæti laus.
2. september Portoroz. Biö-
listi, 3. vikna feröir, dvöl á
hóteli meö hálfu fæöi. Farar-
stjóri: Ásthildur Pétursdóttir.
Rimini
9. sept. Örfá sæti laus
daga.
11
Grikkland
2. sept. biölisti. 23. sept. Örfá
sæti laus.
Portoroz
2. september. Biölisti.
Toronto
2. sept. 11 dagar örfá sæti
laus.
Amsterdam
Flug og bíll, verö frá 4.600.-
Flug og hótel í 4 daga. Verö
frá 5.220.-
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆT) 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Ályktanir um álver í
Eyjafirði, Blönduvirkj-