Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 3 Hjálparstofnun kirkjunnar: Landssöfnun til eflingar björgunar- störfum 2.—5. sept. DAGANA 2.-5. september nsstkom- andi ætlar Hjálparstofnun kirkjunnar i samvinnu við Slysavarnafélag ís- lands, Landssamband hjálparsveita skáta og Landssamband flugbjörgun- arsveita að standa fyrir landssofnun til þess að styðja við bakið á félögum hjálparsveita við endurnýjun fjar- skiptabúnaðar, en nú nýlega gengu í gildí alþjóðlegar reglur um fjarskipti sem hafa það í Tör með sér, að allar slysavarna- og björgunarsveitir lands- ins verða að endurnýja allan fjarskipt- abúnað sinn. Hér er um mjög fjár- freka endurnýjun að ræða sem björg- unarsveitunum er ofviða án almenns stuðnings, en Ijóst er að góður fjar- skiptabúnaður er nauðsynlegur til þess að björgunarsveitir megi uppfylla sem best hið mikilvæga hlutverk er þær hafa á hendi i þjóðfélaginu. Helsti munurinn á þeim talstöðv- um sem áður hafa verið notaðar, svonefndum millibylgjustöðvum, og metrabylgjustöðvum (á ensku VHF) sem björgunarsveitirnar eru nú að fá er í fyrsta lagi sá, að á metrabygiju er hægt að úthluta fé- lögum og reyndar öðrum einkarás- um og hafa stjórn á notkun þeirra, en á millibylgju eru mjög fáar rásir til ráðstöfunar og verður því oft mikið álag á þeim og þegar slys hef- ur borið að höndum hefur því oft verið erfitt að koma skilaboðum eða upplýsingum til skila. í öðru lagi er lítið sem ekkert um truflanir á metrabylgjurásum, m.a. vegna þess að útbreiðslusvæði þeirra er minna og takmarkast að verulegu leyti við fjallasýn eða sjóndeildarhring, en á millibylgju berast sendingar víða um og jafnvel erlendis frá og valda truflun á notkun rásanna hér á landi. Á gefnu þjónustusvæði eru metrabylgjustöðvarnar bæði örugg- ari og hljóðlátari. Landssöfnunin fer þannig fram að dreift verður Hendinni, mál- Vegaskemmdir við Kreppuárbrú Mikil flóð hafa orðið undanfarin dægur í ánum Jökulsá á Fjöllum og Kreppu, og hafa orðið miklar skcmmdir á veginum við Kreppu- árbrú, sem er um 50 kílómetra frá Möðrudal á Fjöllum. Vegagerðarmenn á Austurlandi hafa unnið við að fylla upp í skarðið er Kreppa gróf við brúna, en skemmdir af þessu tagi verða oft í vatnavöxtum á þessum slóð- um. gagni Hjálparstofnunarinnar, inn á öll heimili landsmanna, en það inni- heldur upplýsingar um söfnunina auk fræðandi efnis um félögin sem að söfnuninni standa. Blaðinu fylg- ir umslag sem fólk getur sett fram- lög sín í og sent til Hjálparstofnun- ar kirkjunnar, komið því til við- komandi sóknarprests eða afhent það félögum björgunarsveitanna sem verða með söfnunarfötur við bensínstöðvar og verslanir um land allt söfnunardagana. Á meðan söfnunin stendur yfir ætla slysavarna- og björgunarsveit- irnar að standa fyrir kynningu á ýmsu úr starfi sínu. Áætlað er að sýna fallhlífarstökk, björgun í björgunarstól og sig niður háa byggingu o.fl. eftir því sem veður leyfir. Ásgrímur Björnsson, erindreki SVFÍ, kynnir metrabylgjutalstöð á blaðamannafundi sem haldinn var til að kynna fyrirhugaða landssöfnun. Við borðið sitja Tryggvi Páll Friðriksson, formaður Landssambands hjálparsveita skáta, Sigurjón Heiðarsson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, Gunnlaugur Stefánsson, fræðslufulltrúi Hjálp- arstofnunar kirkjunnar og Haraldur Henrysson, forseti Slysavarnafélags íslands. * Ahrif olíuverðshækkunar á útgerð: Útlitið aldrei verra — segir formaður Utvegsmannafélags Vestfjarða í tilefni olíuverðshækkunarinnar sem ríkisstjórnin kunngerði með bráöabirgðalögunum leitaði Mbl. álits nokkurra útgerðarmanna á stöðu útgeröarinnar. „Það er útilokað að við getum haldið áfram til lengdar við nú- verandi rekstrarskilyrði," sagði Vilhelm Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyrar. „Ráðherra hafði verið með hugmyndir um 20% lækkun olíuverðs, og ég læt það ósagt hvort það hefði nægt, en svo gengur þetta í öfuga átt; þ.e. olíu- verðið hækkar. Það er því einung- is spurning um hvað við getum haldið starfseminni áfram lengi við núverandi aðstæður. Og það skiptir ekki máli hvort einstakl- ingar eða félög eiga í hlut,“ sagði Vilhelm. „Þetta er fráleitt ástand og það liggur á borðinu að eitt- hvað verður að gerast. Og hugs- anlega verður það í kjölfar nýrra upplýsinga frá Þjóðhagsstofnun sem munu vera væntanlegar," sagði Vilhelm að lokum. Stöövast sjálfkrafa „Dæmið liggur svona fyrir: Frá áramótum þegar flotinn fór af stað hefur fiskverð hækkað tvisv- ar sinnum samtals um 18%, en svartolían um 68,6% á sama tíma,“ sagði Gísli Jónasson út- gerðarmaður í Vestmannaeyjum. „Hver sem skoðar þessar tölur sér að í þessu er ekkert samræmi, en það er nauðsynlegt til að halda starfseminni gangandi. Og þó að 14% fiskverðshækkun sé tekin með í dæmið, sem ákveðin til að togararnir kæmust á miðin, gerir það samtals um 32% meðan svartolían hefur hækkað um 68,6% eins og áður sagði. Það er því augljóst að það er ekki langt í að þetta stöðvist sjálfkrafa við þessar aðstæður,“ sagði Gísli. Stefnir í stöðvun veiða „Útlitið er mjög slæmt; það hefur aldrei verið verra,“ sagði Guðmundur Guðmundsson for- maður Útvegsmannafélags Vest- fjarða er blm. Mbl. ræddi við hann. „Olíukostnaðurinn var orð- inn fjórðungur af brúttóverð- mætinu og það er of stór hluti til að reksturinn geti gengið eðli- lega. Og ekki hefur þetta batnað. Óhjákvæmilega stefnir í stöðvun veiða. í raun kemur ekkert annað til greina nema eitthvað verði að gert. En nú hefur LÍÚ boðað til fundar á fimmtudag þar sem ég reikna með að þessi mál skýrist eitthvað svo að ég held að ég spari mér frekari umfjöllun þangað til,“ sagði Guðmundur. DæmiÖ gengur ekki upp „Dæmið gengur ekki upp leng- ur. Það er ekki unnt til langframa að reka útgerð þegar olíuverð er 25—50% af verðmætinu,” sagði Haraldur Sturlaugsson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Har- alds Böðvarssonar og Co. á Akr- anesi. „Það er ófært að útgerð- armenn þurfi ávallt að vera í varnarstöðu þegar þessi mál ber á góma. Og ljóst er að verði ekki tekið á málum mun atvinnuleysi vaxa til muna hér á landi. Það kemur fyrst niður á sjávarpláss- unum þar sem fólk má minnst við því. Þar hafa sjómenn nú þegar tapað vegna minni þorskafla. Einnig má nefna loðnuveiðibann- ið þrátt fyrir að það fari ekki að hafa veruleg áhrif fyrr en með haustinu. Þá finnst mér tími til kominn að fólk á Stór-Reykjavík- ursvæðinu vakni til lífsins. Fyrir þær sakir að það er í minni snert- ingu við útgerðina kemur vand- inn seinna við það. Og það hefur sýnt sig að stjórnmálamennirnir virðast koma fáu í verk nema skilningur íbúanna þar sé fyrir hendi,“ sagði Haraldur að lokum. Pkffips Þú getur reitt þig á Philips frystikistur... Þegar þú kaupir frystikistu er þaö til geymslu á matvælum um lengri tíma. Hun veröur því að vera traust og endingargóö. Þar kemur Philips til móts við þig meö frystikistur, sem hægt er að reiöa sig á. Phiiips frystikistur eru klæddar hömruöu áli. Philips frystikistur gefa til kynna með sérstöku aðvörunarljósi, ef frostiö fer niður fyrir 15°. Philips frystikistur hafa lykillæsingu. Philips frystikistum fylgja 2—3 lausar grindur. Philips frystikistur hafa Ijós í loki. Philips frystikistur fást í stæröunum 260 I. — 400 I. Philips viögeröarþjónustu getur þú treyst. Þú kaupir Philips ffyrir framtíðina. heimilistæki hf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.