Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
50 áfa kirkjuafmæli — vígsla safnaðarheimilis:
Kirkjuhátíð í Siglufirði
SiglufjörAur skartaði sínu fegursta, er haldið var upp á
hálfrar aldar kirkjuafmæli og vígt nýtt safnaðarheimili
dagana 28. og 29. ágúst sl. Blátær himinn, hvítkrýnd og
sólgyllt fjöll, haustlitir í náttúru og stafalogn. Og hugurinn
var hlýr, bæði hjá heimafólki og heimkomnum, og segja
má að veðurfar og hugarfar hafi búið þessum hátíðardög-
um fagra umgjörð.
lengi var sóknarprestur og sveit-
arhöfðingi í Siglufirði.
Safnaðarheimilið, sem er á
kirkjuloftinu, þar sem áður var
gagnfræðaskóli, var vígt 28. ág-
úst, fullbúið. Ekkert skorti á,
utan lyftu, sem til stendur að
koma upp í kirkjunni, til að auð-
velda öldnum og hreyfihömluð-
um uppgöngu á kirkjuloftið. En
einnig hún er í augsýn. Að baki
liggur mikið átak, sjálfboða-
vinna og gjafaframlög sem sókn-
arnefnd, systrafélag og ekki sízt
sóknarpresturinn, séra Vigfús
Þór Árnason, höfðu yfirstjórn á.
Klúbbar, félög, fyrirtaeki og ein-
stakiingar tóku þátt í samátak-
inu. Og árangurinn er óvenju
vönduð og glæsileg starfsað-
staða, sem þjóna á safnaðar- og
men n i ngarstarf i.
Biskupinn yfir íslandi, herra
Pétur Sigurgeirsson, vígði safn-
aðarheimilið, en vígslubiskup
Ilólastiftis, séra Sigurður Guð-
mundsson og fimm fyrrverandi
sóknarprestar Siglfirðinga, sr.
Óskar J. Þorláksson, sr. Ragnar
Fjalar Lárusson, sr. Kristján
Róbertsson, sr. Rögnvaldur
Finnbogason og sr. Birgir Ás-
geirsson, auk núverandi sókn-
arprests, sr. Vigfúsar Þórs
Árnasonar, tóku þátt í athöfn-
inni, auk mikils fjölmennis bæj-
arbúa og burtfluttra Siglfirð-
inga, er gerðu ferð sína heim í
tilefni kirkjuafmælisins.
Vígsludagskráin samanstóð af
sálmasöng, víxllestri biskups og
safnaðar, ritningarlestri, sem
fyrrv. prestar og fleiri önnuðust
og bæn. Flutt var hátíðarljóð
Vilhjálms frá Skálholti í tilefni
vígslu Siglufjarðarkirkju 1932.
Kynnt var afmælisrit kirkjunn-
ar, hið vandaðasta verk, sem
Páll Helgason ritstýrði. Kirkju-
kór Siglufjarðar söng nokkur lög
undir stjórn Guðjóns Pálssonar,
organista, m.a. „Blessuð sértu
sveitin mín“, lag séra Bjarna
Þorsteinssonar, tónskálds, sem
Ávörp fluttu: Kristine Þor-
steinsson, formaður sóknar-
nefndar, Ingibjörg Hinriksdótt-
ir, læknanemi og fyrrverandi fé-
lagi í Æskulýðsfélagi kirkjunn-
ar; Anna Magnúsdóttir, varafor-
maður Systrafélagsins; Ólafur
G. Einarsson, alþingismaður,
sem mælti fyrir hönd „árgangs
1932“, þeirra sem fæddust í
Siglufirði á vígsluári kirkjunnar,
Kristíne Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar í Siglufirði, Páll Helgason, ritstjóri afmælisrits kirkjunnar,
Helgi Hafliðason, arkitekt, Helgi Ólafsson, verkfræðingur, og Birgir Guðlaugsson, verktaki. Kristíne þakkaði
þessum fjórmenningum, sem reyndar eru fermingarbræður úr fyrsta fermingarhóp sr. Ragnars Fjalars í
Siglufirði, þeirra þátt í gerð safnaðarheimilisins og kirkjuafmælinu.
Biskupinn yfír íslandi,
herra Pétur Sigurgeirs-
son, biskupsfrúin, Sól-
veig Ágeirsdóttir, sr.
Óskar J. Þorláksson, sr.
Ragnar Fjalar Lárus-
son, sr. Kristján Ró-
bertsson, sr. Rögnvald-
ur Finnbogason og sr.
Birgir Ásgeirsson.
(Mynd Kr.M.)
Sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju: llinrík Andrésson, Jón Dýrfjoró, Krístíne Þoretein
Björnnson og (<uójón Pálason, orjanuti og söngstjóri.
, presthjónin í SiglufírÓi f
. Vijffús Þór og frú Elín, Jónas
(Mynd Kr.M.)
(Mynd Kr.M.)
og gerðu för sína heim, færandi
hendi, á fimmtugasta aldursári
sínu og hennar; Halla Haralds-
dóttir, listakona og sr. Vigfús
Þór Árnason, sóknarprestur
Siglfirðinga.
„Árgangur 32“, eða „jafnaldr-
ar kirkjunnar", eins og viðkom-
endur vóru kallaðir, færðu henni
að gjöf fagurt málverk af sr.
Óskari J. Þorlákssyni, sem lengi
var sóknarprestur í Siglufirði en
síðar dómkirjkuprestur í
Reykjavík. Halla Haraldsdóttir
færði kirkjunni að gjöf iistaverk,
unnið í gler, sem hún nefndi
bæn. Safnaðarheimilinu bárust
fjöldi annarra gjafa, m.a. altar-
iskross í minningu hjónanna
Þóru Björnsdóttur og Guðlaugs
Gottskálkssonar.
Hátíðarguðsþjónusta var síð-
an í Siglufjarðarkirkju sl.
sunnudag. Biskup íslands pre-
dikaði, en vígslubiskup og sex
prestar aðrir þjónuðu fyrir alt-
ari.
Systrafélag kirkjunnar veitti
af rausn í hinu nýja safnaðar-
heimili báða hátíðardagana og
bæjarstjórn Siglufjarðar bauð
sóknarnefnd og fleirum til há-
degisverðar að Hótel Höfn síðari
daginn.
Fimmtugsafmæli Siglufjaröar-
kirkju og „árgangs 32“:
Rúmlega 50 manns
halda sameiginlegt
fimmtugsafmæli
FJÖRUTÍU og fimm einstaklingar,
fæddir á vígsluári Siglufjarðar-
kirkju, 1932, skírðir i kirkjunni
það ár og fermdir þar 1946, gerðu
ferð sína til Siglufjarðar á 50 ára
vígsluafmæli kirkjunnar og héldu
þar hálfrar aldar afmæli sitt og
hennar.
„Árgangur 32“ færði Siglufjarð-
arkirkju fagurt málverk af sr.
Óskari J. Þorlákssyni, sem lengi
var sóknarprestur í Siglufírði en
síðar dómkirkjuprestur í Reykja-
vík, unnið af Ragnari Páli Einars-
syni, listmálara. Ólafur G. Einars-
son, alþingismaður, afhenti mál-
verkið, fyrir hönd „jafnaldra kirkj-
unnar", við vígslu nýs safnaðar-
heimilis 28. ágúst sl„ en jafnframt
talaði fyrir hönd „árgangsins"
Kristjana Heiðberg Guðmunds-
dóttir.
í máli þeirra kom m.a. fram að
73 einstaklingar vóru upphaf-
lega í þessum „árgangi". Fjögur
eru látin. Af þeim 69, sem eftir
lifa, eru 12 búsett í Siglufirði í
dag, en 45 gerðu ferð tína til
Siglufjarðar, þar af 6 búsettir
erlendis, austan hafs og vestan.
Makar vóru margir með svo hóp-
urinn var um 80 manns.
Hugmyndina að þessari för
átti Sigríður Angantýsdóttir,
sem hringdi í nokkra siglfirzka
jafnaldra, búsetta á höfuðborg-
arsvæðinu, og stefndi þeim til
Ragnar Páll Einarsson, listmálari,
með mynd sína af sr. Óskari J.
Þorlákssyni, fv. sóknarpresti í
Siglufirði, síðar dómkirkjupresti.
fundar í miðborginni. Það mót
var hið sögulegasta, enda höfðu
ýmsir tilkvaddra ekki sézt frá
æskudögum. En árangurinn varð
ánægjuleg ferð norður í Siglu-
fjörð, þar sem haldið var upp á
sameiginlegt . fimmtugsafmæli.
Fimmtíu ára
vígsluafmœli
Siglufjarðarkirkju
28. ágúst 1982
Forsíða afmælisdagskrár Siglu-
fjarðarkirkju.
Miðstöð „árgangsins", meðan
hann dvaldi á æskuslóðum, var
íþróttamiðstöðin að Hóli í Siglu-
firði.
Þessi „árgangur" sótti nám á
kirkjuloftinu þar sem safnað-
arheimilið er nú, en þar var
gagnfræðaskóli í hans uppvexti.
Sr. Óskar J. Þorláksson, sem
skírði þennan hóp og fermdi, og
vann síðar mörg prestverkin
fyrir, bæði í Siglufirði og
Reykjavík, var jafnframt
stundakennari við gagnfræða-
skólann, og hann er greinilega
minnisstæður þessum fimmtugu
„fermingarbörnum".
Ólafur G. Einarsson, alþingis-
maður, sagði m.a., er hann af-
henti málverkið af sr. Óskari:
„Það er okkur öllum sérstakt
fagnaðarefni, að sr. Óskar og
kona hans, frú Elísabet Árna-
dóttir, eru hér á meðal okkar í
dag. Við þökkum þér, sr. Óskar,
allar liðnar stundir, fyrir hand-
leiðsiu þína ýmiss konar á fyrstu
árum okkar. Sú handleiðsla hef-
ur orðið okkur hollt veganesti á
lífsleiðinni. Við biðjum þér og
þínum blessunar og erum þakk-
lát fyrir að fá með þessum hætti
að láta í Ijós hug okkar til þín og
þessa guðshúss ...“
Síðan las hann gjafabréf, und-
irritað af 66 „jafnöldrum" kirkj-
unnar. Eiginkona sr. Óskars, frú
Elísabet Árnadóttir, afhjúpaði
síðan málverkið, sem valinn
verður veglegur staður í kirkj-
unni.