Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 Útlitsteikning Bjarna Öskarssonar að Dvalarheimili aldraðra að Reykhólum Byrjað á dvalarheimili aldraðra að Reykhólum Miöhúsum. 29. ágÚNt. SÍDASTLIDINN fostudag var byrjað á grunni fyrir dvalarheimili aldraðra i Austur-Barðastrandarsýslu á Reykhól- um. Raektunarsambandið og Guð- mundur Hjartarson, Reykhólum, gefa þá vinnu. í júní 1979 var kosin nefnd að tilstuðlan Sigurbjörns Seinssonar, læknis í Búðardal, til að kanna viðhorf aldraðra til vistheim- ilis í sýslunni. Þessi nefnd vann að gagnasöfnun og kannaði alla hugs- anlega möguleika án þess að gera sér mynd fyrirfram og leita síðan aðeins að þeim upplýsingum sem féllu inn í þá umgjörð. Um síðastliðin áramót gerðu nær öll félög í Reykhóla- og Geiradals- hreppi, ásamt báðum hreppsnefnd- um, með sér félag um sjálfseign- arstofnun, sem heitir Dvalarheimili aldraðra í A-B. Fulltrúaráð kaus sér stjórn, og er séra Valdimar Hreiðarsson formað- ur hennar. Bjarni Óskarsson, bygginga- fulltrúi, Laufási, Borgarfirði, hefur gert teikningar að dvalarheimilinu og er heimilið ætlað fyrir 14 vist- menn í 10 íbúðum, og byggt verður í áföngum. Nú í haust er ætlunin að steypa grunninn og gera húsið fokhelt næsta ár, og helst meira ef hægt er. — Sveinn Leiðrétting: Leigt ekki keypt í KRKTT Mbl. um eigendaskipti á Naustinu hf. í Reykjavík misritaðist að Omar Hallsson og eiginkona hans, sem taka við rekstri Naustsins nk. miðvikudag, hefðu fest kaup á hús- eigninni við hliðina á Naustinu, þ.e. húsnæðinu þar sem verzlun Geirs Zoega hefur verið í áratugi. Hið rétta er að þau hjón hafa tekið húsnæðið á leigu og hyggjast reka þar veitinga- og fundaaðstöðu. Hið sama er að segja um húsnæð- ið sem Naustið er í. Það verður áfram í eigu fyrri eigenda þó Ómar taki við rekstri Naustsins hf. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessari misritun. ÞAKRENNUR úr plasti eöa stáli? Platisol er lausnin Plátisol þakrennur, niðurföll og tilheyrandi er framleitt úr 0,7 mm þykku galv. stáli sem er húðað meö PVC efni í lit. • Meö þessari aðferð hefur rennan styrk stálsins og áferð plastsins. • Efnið er einfalt í uppsetningu. • Viö seljum það og þú setur það upp án þess að nota lím eða þéttiefni. • Hagstætt verð. Kaupið þakefniö hjá fagmanninum W) Lindab Plátisol Þakrennukerfi framtíöarinnar Langholt 19, fegursti garðurinn í ir í Keflavík, eigendur Sóldís Björnsdóttir og Svavar Tjörvarsson. Ljómn. Mbl. Einar Fahir. Verðlaun veitt fyrír feg- urstu garða Keflavíkur Kenavík, 29. ágútit. 1982. Dómnefnd skrúðgarða og um- hverfis fyrir Keflavík árið 1982 hefir nýlega lokið störfum. Á ferð nefndarinnar um bæinn í sumar hefur verið unnið að fegrun bæjar- ins í vor og í sumar, bæði af ein- staklingum í görðum og húsum sínum og einnig hefur Keflavík- urbær gert stórátak í lagningu gangstíga og ræktun viðsvegar um bæinn og hefur útlit bæjarins tekið umskiptum til hins betra á fáum árum. Hinir ötulu og smekkvísu garðeigendur í Keflavik hafa nú fyrir löngu afsannað gamla vantrú að enginn fagur gróður gæti vaxið í Keflavík. Norðannæðingurinn, stundum svolítið blandaður sjávar- roki, er slæmur fyrir veikbyggðan gróður en það leiðir af sér að gjarnan reisa garðeigendur mannhæðar háar girðingar eða veggi til að skýla gróðrinum. Fyrir vali dómnefndar sem fegursti garðurinn í Keflavík í ár varð garðurinn að Langholti 19, eign hjónanna Svavars Tjörv- arssonar og Sóldísar Björnsdótt- ur. Garðurinn er um það bil 10 ára gamall að sögn Sóldisar og hafa þau hjón unnið sjálf að öllu leyti við byggingu garðsins, sá fyrir og rækta öll sumarblóm sjálf. Hirðing og snyrting garðs- ins er með afbrigðum góð, gras- fletir og kantar í bestu umhirðu, en það vegur þungt á metaskál- unum hjá dómnefndinni. Þá var frú Steinunni Har- aldsdóttur, Sóltúni 16, veitt við- urkenning fyrir mjög fallegan gamalgróinn garð sem hún hefur ræktað af natni um áraraðir. Þar er mjög gróskumikill gróð- ur, eftirmynd af gömlum bónda- bæ með burstir tvær og rósa- garður með tveggja metra háum rósum en Steinunn er einhver mesti rósaræktandi á Suðurnesj- um og þó víðar væri leitað. Viðurkenningu fyrir nýbyggt verslunarhús hlaut „Blómastofa Guðrúnar" að Hafnargötu 36a. Frú Guðrún hefir af mikilli elju- semi reist á aðeins tíu mánuðum myndarlegt verslunarhús og komið upp garði sem fátítt er á svo skömmum tíma. Húsið að Suðurgötu 9, eign hjónanna Ragnheiðar Skúladótt- ur og Sævars Helgasonar, byggt 1908. Hlaut viðurkenningu fyrir viðhald og endurbætur á eldra húsnæði en þeim fækkar nú óðum gömlu húsunum í Keflavík sem enn er búið í. — EFI. SuðurgaU 9, sem hlaut viðurkenningu fýrir viðhald og endurbætur á eldra húsnæði, eign Ragnbeiðar Skúladóttur og Sævara Helgasonar. Heildsala — smásala. BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitíó nánari upplýsinga aó Sigtúni 7 Simis29022 Ný sundlaug á Hvammstanga LAUGARDAGINN 4. september verður vígð á Hvammstanga ný sundlaug. Er hún 25 metra löng og II metra breið. Eru nýbyggðir bún- ingsklefar við hana, sem jafnframt verða búningsklefar fyrir tilvonandi iþróttahús, sem á að koma hinu megin við búningsklefána. Sundlaugin er steypt og settur plastdúkur innan í hana. Þá er hitapottur með nuddtækjum, vað- laug fyrir börn, sauna, hvíldar- herbergi og ljósabekkur. Að sögn Þórðar Skúlasonar sveitarstjóra á Hvammstanga hafa menn orðið að sækja sund inn á Laugabakka eða út að Reykjaskóla. Yrði þetta allt önnur aðstaða eftir að laugin væri kom- in. Hefði verið góð aðsókn af kon- um í ljósabekkinn og væru því konur á Hvammstanga brúnar og sællegar um þessar mundir. Vatn í laugina kemur frá Laugabakka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.