Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
Minning:
Soffía Benedikts-
dóttir — Minning
Fædd 8. október 1951
Dáin 21. ágúst 1982
Soffía fæddist að Ytri-Veðrará í
Önundarfirði. Hún var dóttir
hjónanna Aðalheiðar Bergþóru
Líkafrónsdóttur og Benedikts
Guðmundssonar. Soffía var næst-
elst af fjórum systkinum en þau
eru Sigurlína María, elst, og síðan
Soffía, sem nú er horfin af lífs-
sviðinu, og næst yngstur er Þor-
steinn, en yngstur er Gunnar Lík-
afrón. Soffía giftist 5. ágúst 1976
Sigurði Margeirssyni. Strax í
bernsku komu fram hjá Soffíu
sérstæðir hæfileikar friðelskandi
manneskju. Hæfileikar sem allir
gátu öfundað hana af, að skipta
aldrei skapi og trúa alltaf og vona
það fegursta og besta sem til er í
lífinu sjálfri sér og öðrum til
handa. Fórnfýsi, tillitssemi og
óeigingirni voru hennar aðals-
merki. Öll eigum við okkar vonir
og þrár og það átti Soffía líka, að
vona alltaf að úr öllum vandræð-
um leystist hversu óyfirstíganleg-
ir sem erfiðleikarnir virtust vera.
Það var hennar trú. En svo svört
getur nóttin orðið að jafnvel feg-
urstu sálir blikna og þá svörtu
nótt upplifði Soffía sem varð
henni svo ofviða að enginn lífs-
máttur gat staðist hversu bjartur
og fagur sem hann var. Fregnin
um dauða frænku minnar kom
eins og reiðarslag. Hvað hafði
skeð? Af hverju hún? Hún sem
Lýsi og mjöl hf.:
Óskar eft-
ir 1 millj.
kr. bæjar-
ábyrgð
FOR.SVARAR Lýsis og mjöls hf. í
llafnarfirði hafa óskaö eftir bæjar-
ábyrgð að upphæð 1 millj. kr. til að
unnt verði að hefja rekstur fyrirtækis-
ins á ný, en sem kunnugt er hefur
starfsemin legið niöri um hríð vegna
fjárskorts.
Að sögn Guðjóns Ólafssonar hjá
bæjarsjóði Hafnarfjaðar, hefur
bæjarráð ekki tekið afstöðu til
þessarar beiðni. Aðspurður kvaðst
Guðjón ekki geta sagt til um hve-
nær það yrði gert.
Þokkaleg
síldveiði
frá
Grindavík
SÍLDVEIÐAR í lagnet hófust
fyrir nokkru og eru þær nú
stundaóar frá Grindavík og
Norður- og Austurlandi.
Að sögn Markúsar Guð-
mundssonar í sjávarútvegs-
ráðuneytinu hafa veiðarnar
gengið vel frá Grindavík og
síldin þar þokkalega feit og
fryst í beitu. Norðanlands og
austan hefur síldin verið mag-
urri og nánast ekkert verið
veitt af henni enn. Heildar-
kvóti er á síldveiðum í lagnet.
átti svo margar óuppfylltar óskir
og hún sem bar svo fallegar og
bjartar vonir í brjósti sér. Hefðum
við samtíðarfólk hennar getað að-
stoðað hana við að uppfylla ein-
hverjar af óskum hennar? Ef við
hefðum sýnt óeigingirni og til-
litssemi? Hver getur svarað?
Dauðinn spyr engan að hvenær
eða hvar hann knúir dyra. Hann
kemur þegar honum hentar og oft
án nokkurrar viðvörunar. Soffía
var aðlaðandi, góð og friðelskandi
manneskja, hlýleg í viðmóti og
hafði bætandi áhrif á alla sem
kynntust henni. Ég þakka Soffíu
Dagbjört þau kynni sem ég hafði
af henni sem því miður voru alltof
stutt, en mikið var hægt að læra
af manngæsku hennar. Ég votta
foreldrum hennar, systkinum og
öðrum aðstandendum dýpstu sam-
úð mína.
Faöir okkar.
andaöist 29. ágúst.
JÓHANN EIRÍKSSON
fré Þönglaakéla viö Hofsós,
Alda K. Jóhannsdóttir,
Einar P. Jóhannsson,
Haraldur Jóhannsson.
+
SIGRlÐUR JAKOBSDÓTTIR,
sem lézt á Elllhelmlllnu Grund 21. ágúst, veröur jarösungln frá
Fossvogskírkju mlövikudaginn 1. sept. kl. 16.30.
Ingimar Jónasson,
Sigrún Guömundsdóttir.
„Krýp ég nú ad kromi þínum,/ Kristur Jenú,
Drottinn minn./ Illaðinn óUl eymdum mínum/
undir krotwinn flý ég þinn,/ þar ad friða tuerða
sál,/ sárra harma slokkva bál,/ brot mín Guði
bljúgur játa,/ bresti mína og syndir gráta.
Drottinn Jesú, athvarf á ég ekkert nema
kro.HNÍnn þinn,/ undir honum einum má ég/ and-
ann hrellda friða minn./ Án hans mundi allt mitt
ráð/ eymd og glötun vera háð,/ án hans vcri’ eg
harmi hrelldur,/ hræðilegum píslum seldur."
Sálmur.
Bjarney Ólafsdóttir
+
Faöir minn, tengdafaöir og afi,
JENS GUDJÓN JENSSON,
er andaöist fimmtudaginn 26. ágúst veröur jarösunginn frá Lang-
holtskirkju miövikudaginn 1. september kl. 1.30.
Gunnar Péll Jónsson, Nanna Artúrsdóttir
og börn.
+
Móöir okkar,
MARGRÉT STEINSDÓTTIR,
Langholtsvegi 3,
Borgarspitalanum aöfaranótt 28. ágúst.
lést
Óskar Ingimarsson,
Ingibjörg Ingimarsdóttir,
Magnús Ingimarsson.
+
Faöir okkar,
GUNNLAUGUR ÁGÚST JÓNSSON,
bílaklæöningarmaöur, Laugateig 8,
fré Skógi é Rauöasandi,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. sept. kl. 15.
Móeiöur, Jóna og Gyða Gunnlaugsdœtur.
+ Móöir mín og amma okkar, EYÞÓRA THORARENSEN, + ÁSTA JÓNSDÓTTIR
er látin. fré Laugabóli veröur jarösett í heimagrafreit aö Laugabóli laugardaginn 4. sept-
Louise Erna Thorarensen, Henrik Thorarensen, ember. Athöfnin hefst meö húskveöju kl. 14.00.
Þór Thorarensen, Henrik Eyþór Thorarensen. Axel Kristjénsson.
+
Faöir minn,
SIGURJÓN Á. SIGURDSSON,
Vífilsgötu 24,
lést í Landspítalanum aöfaranótt 28. ágúst. Jaröarförin veröur
auglýst siöar.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Kjartan Sigurjónsson.
+
Stjúpi minn.
JÚNÍUS G. INGVARSSON
fré Kélfholti,
til heimilís aö Tryggvagötu 8B, Selfossi,
lézt í Sjúkrahúsi Suöurlands 28. ágúst.
Jaröarförin fer fram laugardaginn 4. sept. kl. 2 frá Selfosskirkju.
Fyrir hönd vandamanna,
Siguröur ó. Sigurösson.
+ JÓN SIGURDSSON,
rennismiöur.
Heióargeröi 17, Reykjavík,
er látinn. Sveiney Guömundsdóttir,
Helgi Kr. Jónsson, Óskar Jónsson,
Edda Guörún Jónsdóttir.
+
Elskulegur eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
KARL EÐVARÐ BENEDIKTSSON,
Skarösbraut 13, Akranesi,
lést í Borgarspítalanum 28. ágúst.
Pélína Siguröardóttir,
Erla Karlsdóttir, Alfreð Viktorsson,
Sigþóra Karlsdóttir, Þóröur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
INGIMUNDUR ÞORGEIR ÞÓRARINSSON,
Túngötu 18, Patreksfiröi,
lést aö heimili sínu 25. ágúst.
Jarösett veröur frá Patreksfjaröarkirkju fimmtudaginn 2. septem-
ber kl. 14.00.
Svafa Gíaladóttir,
Gísli Þór Þorgeirsson,
Sólrún Þorgeirsdóttir,
Dagný Björk Þorgeirsdóttir, Guöjón Guömundsson
+
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
OLIVER GUDMUNDSSON,
Ferjubakka 10,
lést í Landakotsspítala 29. ágúst.
Léra Einarsdóttir,
Eövarö G. Oliversson, Ósk Skarphéöinsdóttir,
Sigríöur Oliversdóttir, Árni G. Finnsson,
Guöbjörg S. Oliversdóttir, Þórir A. Sigurbjörnsson,
Sigurbirna Oliversdóttir, Þórir K. Guömundsson
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
ÞORLÁKURGUÐJÓNSSON,
matsveinn,
Brunngötu 12, ísafiröi,
sem lést 25. ágúst veröur jarösettur frá isafjaröarklrkju miöviku-
daginn 1. september kl. 2.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaö. Þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Slysavarnafélag íslands.
Fyrir hönd vandamanna,
Ágústa Ebeneserdóttir og börn.
Lokað
í dag frá kl. 12 vegna jarðarfarar Jakobs V. Hafstein.
Solnaprent sf.