Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
ÍA VARÐ BIKARMEISTARI í knattspyrnu 1982 um helgina, er liðið sigraöi
ÍBK 2—1 í hörkuspennandi úrslitaleik. Sannkallaöur bikarleikur þar sem
spenna og barátta var í algleymingi frá upphafi til enda og til að krydda allt
saman, hörkugóð knattspyrnutilþrif beggja liða oft og tíðum. Betra liðið
vann, á þvi getur varla verið vafi, ef aðeins er miðað við marktaekifæri hefðu
Skagamenn þess vegna getað unnið stærri sigur. En Suðurnesjamennirnir
börðust grimmilega og áttu sín augnablik og spretti. Það var því frekar við
hæfi að IA ynni nauman sigur frekar en hitt. IA varð þama bikarmeistari í
annað skipti, tíundi úrslitaleikur liðsins. Félagið tapaði átta fyrstu úrslita-
leikjum sínum, en hefur nú unnið tvo i röð.
Það var ljóst strax í upphafi, að
allt stefndi í mikinn hörkuleik.
Skagamenn tóku frumkvæðið
fljótlega, léku vel saman úti á vell-
inum, en barátta var mikil á báða
bóga. Strax á 2. mínútu náði ÍA
mjög efnilegri sóknarlotu, en skot
Sigurðar Jónssonar í lok hennar
fór af varnarmanni í horn. Kefl-
víkingarnir sóttu í sig veðrið
næstu mínúturnar og tvívegis með
stuttu millibili voru þeir hárs-
breidd frá því að taka forystuna í
leiknum. Fyrst á 11.' mínútu, er
Davíð Skagamarkvörður missti
klaufalega frá sér fyrirgjöf Rún-
ars Georgssonar frá vinstri. Þá
munaði hársbreidd að hann færði
Ragnari Margeirssyni dauðafæri á
silfurbakka. En Davíð bætti fyrir
mistökin aðeins mínútu síðar, Óli
Þór renndi knettinum þá til Ragn-
ars sem var í dauðafæri, en Davíð
varði hörkuskotið snilldarlega.
En Skagamenn tóku völdin á ný
og voru nokkrum sinnum nærri
því að skora áður en ÍBK náði for-
ystunni á 31. mínútu. Keflvíkingar
björguðu í horn er Sigurður Lár-
usson var ágengur og hætta skap-
aðist einnig eftir hornspyrnuna.
Þá átti Sveinbjörn Hákonarson
glæsilegan einleik á 19. mínútu
sem endaði með því að nokkrir
Skagamenn fengu gott skotfæri.
Allir drógu þó úr hófi fram að
spyrna á markið og hættan hvarf
því sem dögg fyrir sólu. Á sömu
mínútu komst Guðbjörn Tryggva-
son einn inn fyrir vörn ÍBK, en
missti knöttinn of langt fram
fyrir sig þannig að Þorsteinn
Bjarnason náði að hoppa á hann
og góma.
En svo skoruðu Keflvíkingar og
kom markið í kjölfarið á vaxandi
sóknarþunga liðsins. Markið var
afar glæsilegt. Óli Þór Magnússon
var með knöttinn skammt frá
endalínu hægra megin og renndi
honum út til Magnúsar Garðars-
sonar. Magnús lyfti knettinum að
fjærstönginni og þar tók Ragnar
Margeirsson einkar glæsilega við
honum, spyrnti þrumuskoti við-
stöðulaust í netið hjá ÍA. Skaga-
menn tóku kipp við mótlætið og
sóttu mun meira allt til leikhlés.
Eftir eina mjög góða sóknarlotu á
40. mínútu skallaði Guðbjörn rétt
yfir mark ÍBK eftir fyrigjöf Svein-
bjarnar, en Skagamenn jöfnuðu
svo verðskuldað á 44. mínútu.
Stórglæsileg sókn endaði með því
að Sveinbjörn sendi knöttinn inn í
vítateiginn til Sigþórs Ómarsson-
ar og hann lyfti knettinum mjög
laglega yfir úthlaupandi mark-
vörðinn. Júlíus Pétur Ingólfsson
kom aðvífandi og hjálpaði knett-
inum síðustu sentimetrana, en séð
úr blaðamannastúkunni virtist
knötturinn vera kominn yfir lín-
una áður en Júlíus ýtti við honum.
Markið því eign Sigþórs.
Þar sem Skagamenn voru
komnir á markabragðið, fengu
þeir sér annan bita í upphafi síð-
ari hálfleiks. Það var gull af
marki, Sveinbjörn sendi fyrir
markið frá hægri, Guðbjörn var
við fjærstöngina og skallaði knött-
inn til Árna Sveinssonar sem
skoraði með viðstöðulausu skoti í
bláhornið. Skagamenn léku nú við
hvern sinn fingur, léku bráðvel
saman og hvert tækifærið rak
annað um hríð. Á 47. mínútu var
Guðbjörn hársbreidd frá því að
skalla í netið og nokkrum mínút-
um síðar var Sigurður Jónsson í
dauðafæri eftir glæsilega send-
ingu Árna Sveinssonar, en hikaði
of lengi. Sveinbjörn náði reyndar
góðu skoti í sömu sóknarlotu, en
Þorsteinn varði vel. Á næstu mín-
útunum brenndi Árni sjálfur af
dauðafæri og Þorsteinn markvörð-
ur hirti síðan knöttinn af tám
hans eftir að samleikur hans og
Júlíusar Ingólfssonar hafði opnað
vörn ÍBK upp á gátt. Á sömu mín-
útu átti Ragnar Margeirsson
feiknarlegt þrumuskot í þverslá
hjá ÍA og kom skot það eins og
skrattinn úr sauðarleggnum. Ann-
ars fór Ieikurinn dálítið að dofna
úr þessu. Reyndar átti Sveinbjörn
opið færi eftir enn eina snilldar-
sendingu Árna Sveinssonar, en
skaut yfir markið. Og Þorsteinn
varði vel annað skot hans undir
lok leiksins. Hinum megin gerðist
fátt markvert, utan að Davíð varði
vel eitt hörkuskot, það vantaði
brodd í sóknaraðgerðir ÍBK þó svo
að liðið léki ekki síður en IA vel
úti á vellinum oft og tíðum.
Eins og fram kemur á öðrum
stað í texta þessum, var lið ÍA vel
að sigrinum komið. Vörn liðsins er
þétt og markvarsla Davíðs hefur
stórbatnað er á sumarið hefur lið-
ið, en hann var afar óöruggur
framan af. Framfarir hans sáust
best í undanúrslitaleiknum gegn
Víkingi, en þá varði hann hvað
eftir annað snilldarlega. Miðlína
liðsins er að margra dómi sú besta
á landinu og ef ekki gengi jafn illa
að skora og raun hefur borið vitni,
myndi fátt standa í veginum fyrir
liði IA. Lið sem sýna jafn góða
knattspyrnu og ÍA eiga skilið að
vinna til verðlauna og réttlætinu
því fullnægt með bikarsigri þess-
um. Bestu menn liðsins að þessu
sinni voru þeir Árni Sveinsson og
Sveinbjörn Hákonarson, en báðir
sýndu margoft snilldartakta. Júlí-
us og Sigurður Jónsson áttu mjög
góða spretti og Guðbjörn og Sig-
þór börðust vel. Sérstaklega var
Guðbjörn drjúgur og þáttur hans í
sigurmarkinu stór. Vörnin var ör-
ugg með Sigurð Lárusson fyrirliða
í fararbroddi.
Lið ÍBK á hrós skilið fyrir
frammistöðu sína, því án tveggja
góðra liða verða leikir ekki eins
spennandi og skemmtilegir og um-
ræddur úrslitaleikur. Styrkur lið-
sins er fyrst og fremst fólginn í
jafnræði leikmanna þess, enginn
sérstakur sker sig úr. Mest bar þó
á Þorsteini markverði og Ragnari
Margeirssyni.
Sem sagt, góður leikur og góð
stemmning. Góður dómari Magn-
ús V. Pétursson og línuverðir Sæv-
ar og Þorvarður. Vinsamleg
ábending þó til hátalaramanna.
Gaman væri að lesin væru upp
rétt nöfn leikmanna, eins mætti
segja áhorfendum hver skoraði,
hver kom inn á og svo framvegis.
— gg-
• Hér á opnunni er myndsjá frá úrslitaleik bikarkeppni KSÍ, en þar áttust við ÍA og ÍBK eins og kemur fram á
síðum blaðsins. IA sigraði 2—1, eftir að ÍBK hafði komist i 1—0. Á myndinni hér að neðan er knötturinn á
leiðinni í mark IBK á siðustu minútu fyrri hálfleiks. Júlíus Pétur Ingólfsson er að ýta knettinum á leiðarenda,
en Sigþór Omarsson hafði sent knöttinn framhjá markverði ÍBK. A efri myndinni stóru hlaupa Skagamenn
kampakátir með bikarinn. Þekkja má f.v. Sigurð Lárusson, Sigþór Omarsson, Júlíus Pétur Ingólfsson, Svein-
björn Hákonarson og Bjarna Sigurðsson.
Á stóru myndinni að neðan fær George Kirby, þjálfari ÍA, flugferð, en leikmenn ÍA „tolleruðu“ hann í
leikslok. Loks er lengst til hægri baráttumynd úr leiknum sjálfum, Guðjón Þórðarson og Óli Þór Magnússon í
háloftadansi. Lj6m Emjlíll
Skagamenn bikarme
— Unnu ÍBK verðskuldað í I