Morgunblaðið - 31.08.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
5
Magnús Sigurjónawn, foraeti rjórðungsþings FSN, Áakell Einarason, fram-
kvæmdastjóri og Bjarni Aðalgeirason, fráfarandi formaður.
Mynd: Stcfán Pedersen
Landshlutasamtök
fylgist með endur-
skoðun stjórnarskrár
Fjórðungsþing Norðlendinga,
sem háð var á Sauðárkróki
26.—28. ágúst sl., ályktaði fyrst og
fremst um atvinnumál, þ.á m. um
orkuðiðnað í fjórðungnum í
tengslum við Blönduvirkjun,
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga og um breytta stöðu lands-
byggðarinnar. „Fjórðungsþingið
telur nauðsynlegt," segir í ályktun
um síðast talda atriðið, “að mynd-
uð verði samstaða landshluta-
samtaka til að fylgjast með endur-
skoðun stjórnarskrár og kosn-
ingalaga og kannaðar verði leiðir
til að draga úr röskun á stöðu
dreifbýlis, ef til kemur, með
stjórnarfarsaðgerðum um vald-
dreifingu á þjónustustarfsemi
ríkisins.“ Fjórðungsþingið fól
fjórðungsstjórn forgöngu málsins.
Formaður Fjórðungssambands
Norðlendinga var kjörinn Þórður
Skúlason, sveitarstjóri Hvamms-
tanga, til 2ja ára, en varaformað-
ur Helgi Bergs, bæjarstjóri, Akur-
eyri. Auk þeirra vóru kjörnir í
fjórðungsráð: Jón ísberg, sýslu-
maður, Blönduósi, Lárus Ægir
Guðmundsson, sveitarstjóri,
Skagaströnd, Jóhann Salberg
Guðmundsson, sýslumaður,
Skagfirðinga, Magnús Sigurjóns-
son, forseti bæjarstjórnar, Sauð-
árkróki, Óttar Proppé, bæjar-
stjóri, Siglufirði, Jón E. Friðriks-
son, bæjarstjóri, Ólafsfirði, Stefán
Jón Bjarnason, bæjarstjóri, Dal-
vík, Bjarni Aðalgeirsson, bæjar-
stjóri, Húsavík, Siguður Gizurar-
son, sýslumaður Þingeyinga, og
Björn Guðmundsson Lóni,
N-Þingeyjarsýslu. Auk fjórð-
ungsráðs kaus þingið milliþing-
anefndir, sem starfa að einstökum
málaflokkum milli fjórðungs-
þinga.
Næsta fjórðungsþing verður
haldið að Raufarhöfn að ári.
Júfius Kr. Valdimarsson, framkvæmdastjóri:
Eðlileg norræn sam-
vinna að leita til Dan-
merkur eftir vinnuafli
„ÞAÐ hefur verið mjög erfitt að fá
fólk til starfa í fiskvinnslu hér á landi
og því fannst okkur hjá Vinnumála-
sambandi Samvinnufélaganna eðli-
legt að leita eftir því til Danmerkur
fremur en að leita eftir þvi hinu meg-
in á hnettinum eins og verið hefur
undanfarin ár. Það er enn ekki Ijóst
hvort af þessu verður, en það kemur í
Ijós síðar,“ sagði Júlíus Kr. Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri, í sam-
tali við Morgunblaðið, er hann var
inntur eftir þvi hvers vegna það stæði
til að fá fólk frá Danmörku til vinnu i
frystihúsum Sambandsins.
Sagði Júlíus, að haft hefði verið
samband við vinnumiðlunaryfir-
völd í Danmörku, sem bent hefðu á
fiskibæi og væri þar helzt um Ála-
borg og Esbjerg að ræða. Hjá vinn-
umiðlun þessara staða hefði verið
beðið um 52 starfsmenn alls og
væri ætlunin að fólkið ynni í frysti-
húsum á Grundarfirði, Suðureyri,
Bíldudal og Vopnafirði, en þar væri
vandi að fá fólk til starfa yfir vetr-
artímann.
Júlíus sagði ennfremur, að ekki
væri ljóst hvort Danirnir vildu
koma hingað, það væri reyndar
talsvert atvinnuleysi á þessum
stöðum, en það yrði bara að koma í
ljós hvort þeir sættu sig við störfin
og þau kjör, sem í boði væru. Mikill
áhugi væri meðal manna hér heima
á því, að það tækist að fá hingað
starfsfólk frá Norðurlöndunum,
enda hlyti það að vera eðlilegt að
samvinna væri á milli íslendinga
og annarra Norðurlandaþjóða eftir
að hinn sameiginlegi norræni
vinnumarkaður var opnaður.
Músikleikfimin
hefst mánudaginn 20. september.
Styrkjandi og liökandi æfingar fyrir
konur á öllum aldri. Byrjenda- og
framhaldstímar. Tímar í húsi Jóns
Þorsteinssonar, Lindargötu 7.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma
13022.
*
Nýtt efni sem límir og þéttir í senn.
T ré, plast, stál og steypu, úti og inni,
- allan ársins hring.
Pottþétt og auðvelt í notkun.
GLERBORG HF
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIROI - SÍMI 53333
bjóöum viö landsmönnum að eignast
íslensku DBS reiðhjólin á einstökum vildarkjörum.
Veittur veröur 20% staögreiösluafsláttur eða 15%
afsláttur meö 1000 kr. útborgun og eftirstöövar á
allt aö 4 mánuöum.
Ejfljjn ahnÁt FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670