Morgunblaðið - 31.08.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLADID, ÞRIDJUDAGUR 31. ÁGÚST,19«2
21-
ÍA varö bikarmeistari í knattspyrnu 1982, en liöiö sigraöi Keflavík 2—1 í úrslitaleik á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Úrslitaleikurinn var hörkuspennandi
og vel leikinn oft og tíöum, eöa eins og bikarúrslitaleikir eiga aö vera. Sigþór Ómarsson og Árni Sveinsson skoruðu mörk ÍA eftir aö Ragnar Margeirsson
haföi náö forystunni fyrir ÍA. Á stóru myndinni hér að ofan má sjá kampakáta Skagamennina aö leik loknum, en auk leikmannanna eru á myndinni
knattspyrnuráösmenn og aörir aöstandendur liðsins. Á litlu myndinni hampar fyrirliðinn, Siguröur Lárusson, bikarnum. Sjá bls. 24—25. Ljóm. EmM*.
Magnús til Belgíu:
Skrifaði undir
samning við
lið Tongaren
— Ég er búinn að
vera í Belgíu síðustu
fjóra daga hjá Tongaren
en það er 1. deildar lið í
Bclgíu. Mér leist vel á
allar aðstæður hjá liðinu
og var mjög ánægður
með samning þann sem
mér var boðið, og skrif-
aði undir til eins árs hjá
liðinu, sagði Magnús
Bergs sem aö undan-
lornu hefur verið að at-
huga sinn gang varðandi
samningstilboð frá liðum
í Belgíu. Magnús var áð-
ur með Borussia Dort-
mund.
Magnús sagðist flytja
til Belgíu á næstu dögum
og hefja þar æfingar með
liði Tongaren. Magnús
sagði að liðinu hefði
gengið illa í fyrstu leikj-
um sínum í deildinni.
—ÞR.
Magnús Bergs.
Eðvarð tvíbætti
Islandsmetið
Kðvarð Þ. Eðvarðsson frá Njarð-
vík náði glæsilegum árangri á Evr-
ópumeistaramóti unglinga í sundi
fyrir helgina. í undanrásum synti
Eðvarð 200 metra baksund á 2:19,01
mín., bætti íslandsmet Huga Harð-
arsonar sem sett var 1979, en það
var 2:19,61.
Komst Eðvarð í úrslitakeppnina
og í henni bætti hann íslandsmetið
enn, synti nú á 2:18,94, og nældi sér
í 13. sætið á mótinu. Á mótinu, sem
haldð er í Innsbruck i Austurríki, er
annar íslenskur keppandi, Guðrún
Fema Ágústsdóttir, en henni tókst
ekki eins vel upp og Eðvarð. Hún
komst ekki í úrslitakeppnina.
• Eðvarð Þ. Eðvarðsson.
Mjög góður árangur íslenska
kvennalandsliðsins í Noregi
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu lék við norska landslið-
ið um helgina í Evrópukeppninni.
Leikurinn fór fram í Tönsberg i Nor-
egi og lyktaði leiknum með jafntefli,
hvort lið skoraði tvö mörk.
Ásta B. Gunnlaugsdóttir,
markakóngur frá Beiðabliki, skor-
aði fyrsta mark leiksins á 12. mín.
eftir að norsku stúlkurnar höfðu
sótt mjög stíft að marki Islend-
inganna fyrstu mínúturnar.
Norska liðið náði síðan að jafna
nokkrum mín. síðar er þær fengu
vítaspyrnu sem var skorað örugg-
lega úr. En Rósa Valdimarsdóttir
náði forystunni aftur fyrir Island
fyrir leikhlé með marki úr víta-
spyrnu, eftir að Laufey Sigurðar-
dóttir hafði verið felld inn í teig.
Jöfnunarmark Noregs kom síð-
an á 10. mín. síðari hálfleiks og
var það mikið glæsimark. Bylm-
ingsskot af löngu færi söng í ís-
lenska netinu. Mörkin urðu ekki
fleiri, en norska liðið sótti mun
meira það sem eftir var. íslend-
ingarnir vörðust hetjulega og gáfu
ekkert eftir, og verður að telja
þennan árangur þeirra mjög
glæsilegan, þegar tekið er tillit til
þess að þetta er aðeins annar
landsleikur íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, og
Noregur er með eitt besta liðið í
heiminum í dag.
Rosberg með forystu
FINNSKI kappaksturskappinn
Keke Rosberg sigraöi í svissneska
Grand Prix-kappakstrinum um helg-
ina og náði þar með forystunni í
stigakeppninni. Hann hefur nú 42
stig, en annar er hinn franski Didier
Pironi sem ekki keppir meira á
þessu tímabili að minnsta kosti,
enda stórslasaður eftir óhapp á dög-
unum. Pironi hefur 39 stig. Þó svo
að Rosberg hafi forystu, er þetta
fyrsti sigur hans í 42 Grand Prix-
Rússar heimsmeist-
arar í körfubolta
SOVÉTMENN tryggðu sér um helg-
ina heimsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik, er þeir sigruðu Banda-
ríkjamenn í úrslitaleik keppninnar
95—94. Leikurinn var mjög jafn og
munaði minnstu að Bandaríkja-
mönnum tækist að komast yfir á
lokasekúndunni, er skot frá Rivers
skoppaði á körfuhringnum.
á Sundvold, sem sendi hann áfram
á Rivers, en skot hans skoppaði á
hringnum en vildi ekki ofan í. Sig-
ur Rússa var því í höfn.
Anatoli Myhkine hjá Rússum
var stigahæstur í leiknum með 31
stig. Rivers var stigahæstur hjá
Könum með 24 stig, Sundvold var
með 16 og Wiggins með 14.
keppni og i fyrsta skiptið í 32 ára
sögu þessa kappaksturs að Finni
vinnur.
Nú eru aðeins tvær umferðir
eftir og sú næsta er í Monza á
Italíu og sagði Rosberg eftir sigur-
inn: „Eg hugsa ekki svo langt fram
í tímann að ég sjái mig sem sigur-
vegara, ég hugsa nú aðeins um
Monza og að standa mig vel þar.
Munurinn er enn það lítill á mér
og næstu keppendum að ég hef
ekki ráð á að telja mér sigur vísan.
Alain Prost frá Frakklandi og
Niki Lauda frá Austurríki voru í
2. og 3. sætunum og þeir eru í 3. og
4. sætum stigakeppninar, Prost
með 31 stig, en Lauda með 30 stig.
I fjórðu og fimmtu sætunum í
Frakklandi (svissneski Grand
Prix var einhverra hluta vegna
haldinn þar) urðu þeir Nelson
Piquet frá Brasilíu og Riccardo
Patrese frá Ítalíu.
Rosberg ók 304 km á 1:32:41,087
klst., en það er 196,8 km hraði á
klukkustund. Mesti hraði hans
mældist á 2. hring, er hann náði
meðalhraðanum 202,735 km á klst.
Enginn með 12 rétta
Bandaríkjamenn leiddu (49—47)
í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var
jafn, en rúmum 8 mín. fyrir leiks-
lok náðu Sovétmenn forystu og
héldu henni þar til leikurinn var
flautaður af.
Rússar léku mjög mikið inn í
teiginn á sína háu menn í leiknum,
og komust Kanarnir í slæm villu-
vandræði. Jim Thomas fékk sína
4. villu um miðjan fyrri hálfleik,
og í upphafi þess síðari fengu Jeff
Turner og Carr báðir sína fjórðu.
Er fjórar og hálf mínúta var
eftir af leiknum var staðan 86—79
fyrir Rússa. Kanarnir pressuðu þá
stíft á þá, og komu þeim alveg úr
jafnvægi. Þeir náðu að minnka
muninn, og var hann aðeins eitt
stig, 95—94, og er níu sekúndur
voru eftir náðu þeir boltanum eft-
ir uppkast. Honum var þeytt fram
Kr. 15.940,- fyrir
11 rétta
í FYRSTU leikviku Getrauna eftir
sumarhlé kom enginn seðill fram
með 12 réttum, en 6 seðlar reyndust
vera með 11 rétta leiki, og var vinn-
ingur fyrir hvern kr. 15.940.-. Alls
komu fram 78 raðir með 10 réttum
og var vinningurinn fvrir hverja röð
kr. 525.00.