Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
Leikið gegn Hollendingum á morgun:
Hollensk knattspyrna er
hátt skrifuð í heiminum
Á morgun miðvikudag leika ís-
lendingar landsleik í kanttspyrnu
gegn Hollendingum. Leikur þessi er
liður í Evrópukeppni landsliða. Leik-
urinn fer fram á Laugardalsvellinum
og hefst kl. 18.30.
Hollendingar standa nú á tíma-
mótum i sambandi við landslið sitt í
knattspyrnu. Þeir eru byrjaðir að
byggja upp nýtt landslið undir stjórn
þjálfarans Kees Rijvers, sem ætlar
að byggja upp öflugt landslið fyrir
heimsmeistarakeppnina 1986 i ('ol-
ombíu.
Margir litríkir leikmenn hafa nú
þegar leikið sinn síðasta landsleik,
eins og Johann Neeskens, Johann
('ruyff, Ruud Geels, Johnny Rep og
Kees Kist, svo einhverjir séu nefnd-
ir. Allt eru þetta leikmenn, sem hafa
haldið merki Hollands á lofti undan-
farin ár.
Til íslands koma nokkrir kunnir
leikmenn, sem eru í hópi bestu
knattspyrnumanna Evrópu. Þar
má fyrstan nefna Willy Van der
Kerkhof, tvíburabróðurinn leikna,
sem lék með Hollendingum í HM í
V-Þýskalandi 1974 og í Argentínu
1978, þar sem HoJlendingar höfn-
uðu í öðru sæti.
Simon Tahamata, sem leikur
með Standard Liege, kemur einnig
með hollenska liðinu. Tahamata er
talinn einn snjallasti sóknar-
leikmaður Evrópu — mjög fljótur
og leikinn spilari. Aðrir kunnir
leikmenn eru Van der Korput, sem
leikur með Torínó á Ítalíu og Met-
god, sem leikur með Haarlem.
Nýr leikmaður hjá Nottingham
Forest kemur hingað til landsins.
Það er Hans van Briuklen. Aftur á
móti koma þeir Frans Thijssen
(Ipswich) og Arnold Miihren
(Manchester United) ekki.
Hollendingar binda miklar von-
ir við nýja landsliðsþjálfarann og
hafa þeir trú á að hann muni gera
stóra hluti fyrir HM í Colombíu
1986. Það var mikið áfall fyrir
hollenska knattspyrnu, að landslið
Hollands komst ekki til Spánar.
Það var mál manna í Hollandi, að
of margir „útbrenndir" leikmenn
hafi verið í landsliðinu. Því var
tekin upp sú stefna, að byggja upp
landslið — frá grunni. Hollenska
landsliðið sem leikur hér á Laug-
ardalsvellinum, er góð blanda af
reyndum leikmönnum og ungum
og efnilegum leikmönnum, sem
eiga eftir að láta mikið að sér
kveða í framtíðinni.
Hollensk knattspyrna hefur
verið mjög hátt skrifuð í heimin-
um og segja menn að hún sé góð
blanda af knattspyrnu frá S-Am-
eríku og Evrópu. Hollendingar eru
þekktir fyrir sóknarknattspyrnu,
þannig að áhorfendur eiga ekki að
vera sviknir á Laugardalsvellin-
um.
Holland hefur tvisvar leikið hér
á Laugardalsvellinum. 1976 unnu
Hollendingar sigur 1:0 yfir íslend-
ingum í fjörugum leik, sem 10.210
áhorfendur sáu.
Hollendingar unnu svo 4:0 á
Laugardalsvellinum 1979. Þá skor-
uðu tveir af þeim leikmönnum,
sem koma nú með liðinu, mörk.
Það eru þeir Metgod og Willy van
der Kerkhof. 10.350 áhorfendur
sáu leikinn.
Það má segja að nú sé runninn
upp tími fyrir landsliðsmenn ís-
lands að hefna.
Þórsarar nokkuð öruggir
upp eftir sigur á Fylki
ÞORSARAR frá Akureyri lögðu
Fylki að velli í 2. deildinni í gær-
kvöldi á Laugardalsvellinum og
standa þá mjög vel að vígi í keppn-
inni um 2. sætið í deildinni. Þeir eru
mcð 21 stig fyrir tvo siðustu leikina,
FH er með 18 og Reynir S 17. Þór
þarf þvi aðeins eitt stig úr síðustu
tveimur leikjunum, gegn Þrótti R í
Reykjavík og Skallagrími fyrir norö-
an til að tryggja sér annað sætið, þar
sem þeir eru með mun hagstæðari
markatölu en FH.
Guðjón Guðmundsson skoraði
bæði mörk Þórs í gær og komu
þau bæði í fyrri hálfleiknum. Þór
Ragnar sigraði Sig-
urð í bráðabana
RAGNAR Ólafsson sigraði i Af-
rekskeppni Flugleiða í golfi sem
fram fór á Nesvellinum um helgina.
Var keppni afar spennandi, en Ragn-
ar hafði ekki sigur fyrr en á annarri
braut bráðabana sem hann háði við
Sigurð Pétursson, félaga sinn úr GR.
Eftir 72 holur voru þeir félagar jafn-
ir með 292 högg hvor og kom því til
bráðabanans. Fyrstu holuna léku
báðir á einu undir pari, en á annarri
braut hafði Ragnar betur og fór með
sigur af hólmi.
Þriðji varð Sveinn Sigurbergs-
son GK á 294 höggum, en hann
sigraði Gylfa Garðarsson í bráða-
bana, en Gylfi lék einnig á 294
höggum. Björgvin Þorsteinsson
lék á 295 höggum og hafnaði í 5.
sæti, Óskar Sæmundsson GR varð
svo sjötti á 297 höggum.
Elnkunnagjöfin
LIÐ Fram:
Guðmundur Baldursson 6
Þorsteinn Þorsteinsson 6
Trausti Haraldsson 6
Sverrir Einarsson 7
Marteinn Geirsson 7
Halldór Arason 6
Valdimar Stefánsson 6
Viðar Þorkelsson 5
Árni Arnþórsson 5
Guðmundur Torfason 7
Hafþór Sveinjónsson 5
Einar Björnsson (vm) 5
LIÐ Víkings:
Ögmundur Kristinsson 6
Kagnar Gíslason 6
Magnús Þorvaldsson 6
Aðalsteinn Aðalsteinsson 5
Stefán Halldórsson 7
Jóhannes Bárðarson 6
lóhann Þorvarðarson 6
()mar Torfason 7
Sverrir Herbertsson 5
Gunnar Gunnarsson 6
Heimir Karlsson 7
i*órður Marelsson (vm) 5
Llf) ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason 7
Kristinn Jóhannsson 5
Ingiber Óskarsson 6
Rúnar Georgsson 6
Gísli Eyjólfsson 6
Sigurður Björgvinsson 6
Einar Ásbjörn Ólafsson 7
Magnús Garðarsson 5
Ragnar Margeirsson 6
Óli Þór Magnússon 6
Daníel Einarsson 4
LIÐ ÍBV:
Páll Pálmason 8
Viðar Elíasson 6
Örn Oskarsson 7
Þórður Hallgrímsson 5
Valþór Sigþórsson 5
Snorri Rútsson 5
Sveinn Sveinsson 5
Jóhann Georgsson 5
Sigurlás Þorleifsson 7
Kári Þorleifsson 6
Omar Jóhannsson 6
var mun betri aðilinn fyrir hlé, en
liðið hafði þá talsverðan vind í
bakið.
í seinni hálfleiknum snerist
dæmið við. Fylkismenn sóttu
talsvert meira, og fengu þeir
nokkur góð færi, en Eiríkur Ei-
ríksson stóð sig vel í marki Þórs
og hleypti knettinum aldrei í net-
ið. Upp úr miðjum hálfleiknum
komu norðanmenn aftur inn í leik-
inn af alvöru, og hefðu þeir getað
aukið forystu sína. Ekki hefði það
þó verið sanngjarnt skv. gangi
leiksins.
Eftir leikinn er staða Fylkis
orðin ansi slæm í deildinni, liðið
er aðeins með 12 stig eins og
Skallagrímur, en Þróttur N. er
neðstur með 11.
—SH.
Staðan
EIT’IR leik I*órs og Fylkis í gær-
kvöldi er staðan þannig í 2. deild-
inni:
Þróttur R. 16 11 4 1 25:7 26
Þór A. 16 7 7 2 32:15 21
FH 16 6 6 4 18:20 18
Reynir S. 16 3 7 6 21:15 17
Völsungur 16 5 5 6 20:19 15
Njarðvík 16 5 4 7 22:25 14
Einherji 16 6 2 8 21:25 14
Fylkir 16 1 10 5 12:1812
Skallagrímur 16 4 4 8 16:26 12
Þróttur N. 16 4 3 9 7:23 11
Wells úr leik
ALAN Wells, skoski spretthlaupar-
inn frábæri, hefur dregið sig út úr
breska frjálsíþróttalandsliðinu sem
keppir á Evrópumeistaramótinu í
Aþenu í næsta mánuði og er það
mikið áfall fyrir breska liðið. Hann
varð fyrir meiðslum fyrr á þessu ári
og hefur átt erfitt uppdráttar síðan.
Nú telur hann sig ekki eiga mögu-
leika á því að komast í viðeigandi
æfingu tímanlega. Wells sigraði í
100 metra hlaupi á móti nokkru í
Edinborg á laugardaginn. Tími hans
var 10,43 sekúndur, besti tími hans
á þessu ári.
• Einn snjallasti leikmaður hollenska landsliðsins er Simon Tahamata sem
leikur með SUndard Liege. Tahamata er talinn einn besti sóknarleikmaður í
Evrópu í dag, fljótur og leikinn leikmaður.
Víðir er efstur í
úrslitakeppninni
Víðir — KS veitt verðlaun fyrir sigur í 3.
Úrslit í 3. deild
Siglfirðingar sóttu Garðmenn -
heim sl. sunnudag í úrslitakeppni í 3.
deildar. Fór leikurinn fram á „gras-
vellinum" úti á Garðskaga og lauk
með jafntefli, 1—1. Víðismenn spil-
uðu gegn norðan strekkingi í fyrri
hálfleik og eftir 3 mínútur lá boltinn
í marki KS. Björgvin Björgvinsson
skoraði markið utan frá endamörk-
um vallarins en þó innan vítateigs.
Hefir markmaður KS trúlega talið
öruggt að hann myndi gefa fyrir
markið í stað þess að skjóta. Þrem
mínútum siðar bjargaði KS á linu
eftir mikinn darraðardans við mark
þeirra.
KS-liðið fór nú að koma meira
inn í leikinn undan vindinum og
áttu þeir mörg góð tækifæri tii að
jafna. Þó virtust Víðismenn eiga
hættulegri færi og á 38. mínútu
áttu þeir skot á stöng.
Síðari hálfleikur var varla haf-
inn þegar KS hafði jafnað. Áttu
þeir ágæta sókn sem Ivar Geirs-
son batt endahnútinn á. Síðari
hálfleikurinn var svo meira og
minna þóf á miðjum vellinum, lítt
spennandi fyrir hina fjölmörgu
áhorfendur sem aldrei hafa verið
fleiri þegar Víðir hefir spilað í 3.
deildinni.
Áður en leikurinn hófst voru ;
deildinni í sumar, en Víðir vann
A-riðilinn og KS vann B-riðilinn.
Víðir er efstur í úrslitakeppn-
inni með 7 stig. Tindastóll frá
Sauðárkróki hefur 5 stig, KS,
Siglufirði, 4 stig og Selfoss rekur
lestina með ekkert stig. Selfyss-
ingar eiga eftir að fá bæði norðan-
liðin í heimsókn og Víðir á eftir
báða útileiki sína en þá vantar eitt
stig úr þeim leikjum til að spila í
annarri deild að ári. Víðir hefir
ekki tapað stigi á útivelli í sumar.
A.R.
Bæjakeppni
í frjálsum
BÆJAKEPPNI í frjálsíþróttum milli
Hafnarfjarðar (FH) og Kópavogs
(UBK) verður haldin á Kópavogs-
velli fimmtudaginn 2. september og
hefst keppni kl. 18. Keppt veröur í
átta greinum karla og jafn mörgum
greinum kvenna. Tveir keppendur
verða í hverri grein frá hvoru bæjar-
félagi.
Frjðlsar Ibröltlr
v-......... .. J
«1