Morgunblaðið - 31.08.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
23
Haraldur Ólafsson:
„Var með 4.-5. sætið í höndunum"
HeimsmeisUramót unglinga í lyft-
ingum 1982 fór fram dagana 6.—15.
ágúst í Sao Paulo í Brasilíu. Á síd-
ustu stundu var mótið flutt frá fyrir-
huguðum keppnisstað, Rio de Jan-
eiro, til Sao Paulo, sem er stærsta
borg Brasilíu með um 13 millj. íbúa.
Borgin stendur mjög hátt yfir sjó
og er um 430 km sunnan við Rio,
loftslagið er mjög milt á þessum
árstima eða um 18—20°C. Þrátt
fyrir mjög lélega skipulagningu og
vöntun á tækjabúnaði, auk annarra
erfiðleika, hófst mótið á réttum
tíma, þ.e. fyrsti keppnisdagur var 7.
ágúst og var þá keppt í 52 kg flokkn-
um. Til keppni sendu 32 þjóðir kepp-
endur og voru þeir alls 144, að auki
voru aðstoðarmenn og þjálfarar með
hverjum hóp. Leyfilegt var að senda
10 keppendur til keppni frá hverri
þjóð, en einungis 5 þjóðir sendu fullt
lið.
Keppni fór þannig fram að keppt
var í einum flokki á dag, sem skipt
var í tvo undirflokka og var keppt í
fyrri Dokknum milli 5 og 8 en í hin-
um síðari á milli 8 og 11.
Hér á eftir fara úrslit (lokkanna
og eru eingöngu sýnd 3 efstu sætin.
Yngsti keppandinn var 14 ára
— ÉG NÁÐI 6. sæti í jafnhendingu,
lyfti 155 kg. sem er nokkuð frá mínu
besta. Ég hef lyft mest 168, sagði
Haraldur Ólafsson frá Akureyri,
sem nýlega er kominn heim af
heimsmeistaramóti unglinga í lyft-
ingum í Brasilíu, er blm. spjallaði við
hann.
Roda í
efsta sætið
RODA JC og Feyenoord halda enn
forystunni i hollensku deildarkeppn-
inni í knattspyrnu, en liðin unnu
bæði leiki sina í 3. umferðinni um
helgina og hafa því enn fullt hús
stiga, 6 stykki hvort félag. Roda
vann stærsta sigurinn og er því í
efsta sætinu með bestu markatöl-
una. Jon Eriksen (2), Jan Raven,
Leo Degens og Jan Cremer skoruðu
mörk liðsins í 5—1 sigrinum gegn
Groningen. En lítum á úrslit leikja:
Roda JC — Groningen 5—1
Pec Zwolle — AZ’67 Alkmaar 0—2
Tvente — Willem 2. 0—0
Nec Nijmegen — FC Utrecht 2—1
PSV Eindhoven — Feyenoord 1—3
Sparta — Helmond Sport 1—2
Excelsior — Fortuna Sittard 1—0
Nac Breda — GAE Deventer 0—0
Haarlem — Ajax 0—2
Feyenoord kom verulega á óvart
með hversu auðveldlega liðið
burstaði hið sterka lið PSV. Peter
Houtman (2) og Ruud Gullit skor-
uðu mörk liðsins, en Jurrie Kool-
hof svaraði fyrir PSV. Ajax skor-
aði eitt mark í hvorum hálfleik,
Willem Kieft í fyrri hálfleiknum,
en danski leikmaðurinn Jesper
Olsen þegar komið var yfir venju-
legan leiktíma. Þá sigraði Alk-
maar lið Pec Zwolle 2—0 með
mörkum Pier Tol og Rick Talan.
Sem fyrr segir hafa Roda og
Feyenoord 6 stig hvort félag, en
síðan koma 6 félög með 4 stig
hvert, Ajax, Excelsior, PSV, Gron-
ingen, Alkmaar og Nec. Tvö lið
hafa enn ekki hlotið stig, Pec
Zwolle og UEFA-bikar þátttak-
andinn FC Utrecht.
Góð forysta
Víkings
Viking frá Stavangri sigraði
Hamkam 4—1 á útivelli í 17.
umferð norsku deildarkeppninn-
ar í knattspyrnu um helgina og
hefur því þriggja stiga forystu er
fimm umferðum er ólokið. Úrslit
leikja urðu þessi:
Bryne — Vaalerengen 1—0
Hamkam — Viking 1—4
Lilleström — Frederikstad 4—0
Mjöndalen — Rosenborg 1—0
Moss — Molde 4—1
Sogndal — Start 2—1
Viking hefur 23 stig að 17 um-
ferðum loknum, en síðan koma
fjögur lið, öll með 20 stig hvert.
Það eru Lilleström, Mjöndalen,
Bryne og Hamkam. Meistarar
síðasta tímabils, Vaalerengen,
hafa 19 stig, þannig að mikið má
gerast ef liðið ver titilinn.
— í snöruninni ætlaði ég að byrja
á 127 kg. en vildi síðan lækka byrj-
unarþyngdina niður í 125 kg. en
fékk það ekki. Það var ekkert sam-
band við stangamennina, og mikið
var um vesen og leiðindi þarna á
mótinu. Þeir voru ekki einu sinni
alveg klárir á reglunum, sagði Har-
aldur. Annars var þetta ágætis ferð,
og ég græddi mikið á henni. En ég
var agalega svekktur, ég var með
4.—5. sætið í höndunum en klúðraði
því.
Að sögn Haraldar var allt skipulag
á mótinu mjög lélegt og fram-
kvæmdin alls ekki nógu góð. —
Einn finnsku keppendanna sagði að
þjóðir Suður-Ameriku fengju örugg-
lega ekki að halda þetta mót næstu
50 árin, sagði Haraldur, og hlýtur
það að gefa vel í skyn hvernig
ástandið var.
Ólafur bróðir Haraldar fór með
honum sem aðstoðarmaður á mótið,
og hefur hann skrifað meðfylgjandi
grein fyrir Morgunblaðið, og tók
hann einnig myndirnar.
— SH.
52 kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Suleimanov N. Bul. 110,0 140,0 250,0
2. Terzinski N. Bul. 110,0 132,5 242,5
3. Suriyaman M. Ind. 100,0 125,0 225,0
Mikla athygli vakti að sigurvegarinn í þessum flokki var aðeins 14 ára
og 6 mánaða gamall, en elstu keppendur voru 20 ára. Alls voru keppend-
ur 12 en þar af féllu 4 úr keppni.
56 kg fl. Snörun Jafnh. Samt.
1. Dimitrov N. Bul. 107,5 142,5 250,0
2. Runming L. Kín. 110,0 135,0 245,0
3. Hara T. Jap. 107,5 135,0 242,5
Alls voru 15 keppendur í flokknum og þar af féllu 4 úr keppni.
60 kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Topurov S. Bul. 125,0 155,0 280,0
2. Willey D. Engl. 117,5 147,5 265,0
3. Kerek I. Ung. 115,0 150,0 265,0
Hér vinnur Englendingurinn Ungverjann á eigin líkamsþyngd, en
hann var 50 kg léttari. Alls voru í flokknum 16 keppendur, þar af féllu 5
úr keppni.
67,5 kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Galabarov V. Bul. 152,5 182,5 335,0
2. Martinenko S. Sovét. 127,5 170,0 297,5
3. Grönman J. Finl. 137,5 160,0 297,5
Sigurvegarinn í þessum flokki snaraði 153,5 kg sem er heimsmet ungl.
og fullorðinna, einnig átti hann mjög góða tilraun við 190,5 kg í jafn-
hendingu, en heimsmetið er 190,0 kg. Alls voru í flokknum 20 keppendur,
þar af féllu 3 úr.
75 kg. n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Li Sergei Sovét. 155,0 195,0 350,0
2. Boev N. Bul. 155,0 190,0 345,0
3. Kuznietsov. Sovét. 150,0 185,0 335,0
, ----------- -------------’ --------» —
I þessum flokki var eini keppandinn frá Islandi, Haraldur Ólafsson.
Hann féll úr í snörun, gat ekki lyft 127,5 kg í þremur tilraunum, en lenti
í 7. saeti í jafnhendingu, lyfti 155,0 kg sem er 12 kg frá hans besta
árangri.
Alls voru í flokknum 22 keppendur, þar af féllu 2 úr.
82,5 kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Arsamakov I. Sovét. 170,0 215,0 385,0
2. Isaoka R. Jap. 157,5 185,0 342,5
3. Barsi L. Ung. 145,0 172,5 317,5
Sigurvegarinn í þessum flokki setti alls 3 heimsmet, fyrst 206,0 kg í
jafnhendingu, síðan bætti hann um betur og lyfti 215,0 kg. Einnig setti
hann heimsmet í samaniögðum árangri 385,0 kg. Keppendur voru alls 19
og enginn féll úr.
90 kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Petrov D. Bul. 175,0 217,5 392,5
2. Solodev V. Sovét. 175,0 215,0 390,0
3. Coelho F. Port. 140,0 175,0 315,0
Búlgarinn í þessum flokki setti nýtt heimsmet í jafnhendingu 217,5
kg. Alls voru 15 keppendur í flokknum, þar af féllu 2 úr.
100 kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Radev R. Bul. 170,0 225,0 395,0
2. Bokfi J. Ung. 150,0 190,0 340,0
3. Mazedi A. Iran 147,5 180,0 327,5
I þessum flokki þótti sigurstranglegastur Alexander Medoev
landi, hann snaraði 172,5 kg en var svo óheppinn að falla úr í j
ingu. Alls voru í flokknum 11 keppendur, þar af féll 1 úr.
no kg. n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Osikovski V. Bul. 175,0 220,0 395,0
2. Yurishcenko Y. Sovét. 160,0 215,0 375,0
3. Jacso J. Ung. 157,5 202,5 260,0
Alls voru 8 keppendur í þessum flokki.
íio kg n. Snörun Jafnh. Samt.
1. Penev V. Bul. 175,0 225,0 400,0
2. Maslev V. Sovét. 160,0 225,0 385,0
3. Kovacs I. Ung. 170,0 197,5 367,5
Búlgarinn átti tilraun við heimsmet, 231,0, kg en hún mistókst.
í stigakeppni þjóðanna var Búlgaría númer 1 með 337 stig, í öðru sæti
voru Rússar með 240 stig og Kínverjar lentu í 3. sætinu með 171 stig.
íslendingar fengu 4 stig fyrir jafnhendinguna og lentu í 24. sæti af 28,
en 4 þjóðir fengu ekkert stig.
• Haraldur Ólafsson og yngsti keppandi mótsins, Sulemanov, 14 ára gam-
all. Hann sigraði í 52 kg flokki.
Fimm íslenskir frjáls-
íþróttamenn keppa á EM
í Aþenu 6.—12. sept.
Evrópumeistaramótið í frjálsum
íþróttum, hið 13. í röðinni, fer fram í
Aþenu dagana 6. til 12. september
næstkomandi. Fyrsta mótið var háð í
Torino á Ítalíu 1934 og það næsta í
París 1938. Mótið féll niður 1942, en
1946 fór það fram í Osló og var ís-
land með í fyrsta sinn eins og frægt
er og Gunnar Huseby varð Evrópu-
meistari í kúluvarpi. íslendingar
hafa tekið þátt í öllum Evrópu-
meistaramótum síðan, oft með frá-
bærum árangri og ávallt hefur
árangurinn verið vel viðunandi. í
Brtisscl 1950 varði Gunnar Huseby
EM-titil sinn og Torfi Bryngeirsson
varð Evrópumeistari í langstökki og
Örn Clausen hlaut silfurverðlaun í
tugþraut. Vilhjálmur Einarsson varð
þriðji í þrístökki 1958. Á mótunum
1962 og 1978 voru íslenskir kepp-
endur í úrslitum, þó að ekki ynnu
þeir til verðlauna. Nýr og glæsilegur
leikvangur verður tekinn í notkun í
sambandi við mótið og hann tekur
um 80 þúsund áhorfendur.
Fimm íslenskir keppendur taka
þátt í mótinu í Aþenu, þau Jón Dið-
riksson, Þórdís Gísladóttir, Óskar
Jakobsson, Oddur Sigurðsson og
Einar Vilhjálmsson.
Sigur Þróttar í
2. deild öruggur
HEIL umferð var í 2. deildinni í
knattspyrnu um helgina og gerðist
það þá markverðast, að Reykjavik-
ur-Þróttur innsiglaði öruggan sigur
sinn í deildinni með því að sigra
Einherja á Vopnafirði. Iátum á leik-
ina:
Einherji — Þróttur R 0—2
Þróttur hafði nokkra yfirburði í
fyrri hálfleik og þá skoraði liðið
bæði mörk sín. Sverrir Pétursson
skoraði fyrra markið, en það síð-
ara skoraði Júlíus Júlíusson. í síð-
ari hálfleik gekk hvorki né rak hjá
liðunum og urðu mörkin ekki
fleiri.
FH — UMFN 1—0
FH heldur enn í smávon um að
komast upp í 1. deild eftir að hafa
borið sigurorð af UMFN á Kapla-
krikavellinum. Leikurinn þótti
þokkalegur, en eina mark leiksins
og sigurmark FH skoraði Pálmi
Jónsson nærri miðjum fyrri hálf-
leik.
Völsungur — Þróttur N.
3—0
Staða Þróttar er fremur vonlítil
eftir stórtap á Húsavík. Völsung-
arnir eru hins vegar nokkuð ör-
uggir um að halda sæti sínu.
Heimaliðið hafði talsverða yfir-
burði í leiknum og hefðu mörkin
getað orðið fleiri ef betur hefði
verið á spilunum haldið. Kristján
Kristjánsson skoraði eina mark
fyrri hálfleiks og bætti síðan öðru
marki við áður en upp var staðið
og var það þriðja mark Völsunga.
Annað markið skoraði Jónas Hall-
grímsson.
Reynir — Skallagrímur
1—0
Reynir sigraði Skallagrím í
fremur lélegum leik í Sandgerði
um helgina. Hjörtur Jóhannsson
skoraði eina mark leiksins og sig-
urmark Reynis í fyrri hálfleik og
getur fátt komið í veg fyrir að
Borgarnesliðið falli í 3. deild.
KnaHspyrnaI
f ittti iini wmmmmmmmmm^
llþrólilrl