Morgunblaðið - 31.08.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
25
lörkuspennandi úrslitaleik
Sagt eftir leikinn
Sigurður Lárusson:
— Eg get nú bara ekki lýst því
hvað ég er ánægður. Ég er alveg
himinlifandi, sagði Sigurður
Lárusson, fyrirliði Skagamanna,
eftir að hann hafði tekið við bik-
arnum fyrir hönd sinna manna.
— Þetta er það fyrsta sem ég
vinn á 11 ára ferli og mér fannst
svo sannarlega kominn tími til.
Þetta var erfitt eins og ég bjóst
við en sigurinn var sanngjarn.
Við áttum að geta skorað fleiri
mörk, en þeir áttu að vísu góð
færi líka.
— Það var ofsaleg barátta í
liðinu hjá okkur. Kirby er alveg
frábær að ná upp góðri stemmn-
ingu á réttum tíma. Annars var
ég næstum viss um að við mynd-
um vinna eftir að við slógum
Víking út, sagði Sigurður að lok-
um. _ SH.
George Kirby:
— Mér fannst leikurinn góður
og skemmtilegur. Við fengum að
sjá þrjú falleg mörk og dómar-
inn var góður. Mér fannst leikur-
inn nokkuð jafn en áður en þeir
náðu forystunni höfðum við al-
veg átt spilið, og ég vissi að ef
við næðum ekki að jafna fyrir
hlé gæti þetta orðið erfitt, sagði
Englendingurinn George Kirby,
þjálfari Skagamanna.
— Annars hefði allt getað
gerst ef þversláarskot Ragnars
hefði farið inn. Enginn veit
hvernig leikurinn hefði þá end-
að. — SH.
Magnús V. Pétursson:
— Það eru auðvitað allir leik-
ir erfiðir, en það var mjög gam-
an að enda ferilinn á þessum
leik, sagði Magnús V. Pétursson,
sem dæmdi úrslitaleikinn. Var
þetta siðasti stórleikur Magnús-
ar sem dómara, en hann lætur
nú af störfum sem landsdómari
vegna aldurs. Magnús fékk
marga blómvendi að gjöf fyrir
leikinn og var ekki að sjá að
blómin færu illa í hann þar sem
dómgæsla hans í leiknum var
mjög góð.
— Sigur Akurnesinga var
sanngjarn, sagði Magnús, en
með smáheppni hefðu Keflvík-
ingar þó getað unnið leikinn.
Hann var það jafn. —■ SH.
Jón Gunnlaugsson:
— Já, nú er ég ákveðinn í að
hætta. Ég er búinn að vera í
þessu í 14 ár og mér finnst þetta
góð stund til að hætta. Ég hef
unnið 4 Islandsmeistaratitla og
tvisvar orðið bikarmeistari og
mér finnst þetta orðið ágætt,
sagði Jón Gunnlaugsson, gamla
kempan í liði Skagamanna, eftir
leikinn.
— Þetta var sanngjarn sigur
hjá okkur en það var greinilega
mikil þreyta i Keflvíkingunum
vegna leikjanna í vikunni. Þeir
voru farnir að gefa eftir um
miðjan fyrri hálfleik og í síðari
hálfleik, sagði Jón. — SH.
Sigþór Ómarsson:
— Það var nú kominn tími til
að vinna eitthvað. Við höfum
ekkert unnið síðastliðin fjögur
ár, eða síðan við komum „norð-
anmennirnir" svokölluðu, ég og
Siggi Lár. og Kristján Olgeirs og
Bjarni markvörður, sagði Sigþór
Omarsson.
— Þetta er mjög góður endir
á keppnistímabilinu, sem er
raunar ekki búið enn, en ég verð
að segja að þetta er stórkostlegt
fyrir Kirby. Liðið hefur ekki
unnið til verðlauna síðan hann
var hér 1978 er þeir unnu bikar-
inn. Svo kemur hann hér aftur
og vinnur bikarinn aftur. Það er
glæsilegt, því nú er mjög lítið
eftir af mannskapnum sem lék
þá, sagði Sigþór. — SH.
Davíð Kristjánsson:
— Það var nú eiginlega bara
slys að ég byrjaði aftur, sagði
Davíð Kristjánsson, markvörður
Skagamanna, eftir leikinn. Eins
og menn muna meiddist Bjarni
Sigurðsson aðalmarkvörður
þeirra í sumar, og tók Davíð þá
fram skóna að nýju og hóf að
leika með liðinu. Hefur hann
staðið sig mjög vel og þrátt fyrir
að Bjarni sé orðinn góður af
meiðslunum hefur hann ekki náð
stöðu sinni í liðinu aftur.
— Ég veit nú ekki hvort ég
verð með næsta ár, ég er ekki
búinn að gera það upp við mig,
sagði Davíð. Þetta var frekar
léttur leikur af minni hálfu, ég
hafði frekar lítið að gera. En ég
var alltaf öruggur um að við
myndum vinna. Það virðist oft
ganga betur hjá okkur eftir að
við höfum fengið á okkur mark,
og ég var alls ekki hræddur eftir
að Ragnar náði forystunni fyrir
þá. — SH.
Karl Hermannsson:
— Þetta var sanngjarn sigur
Akurnesinga, en mínir menn
léku langt undir getu. Við höfum
spilað tvo leiki í vikunni og
strákarnir eru mjög þreyttir.
Það er aðalástæðan fyrir því að
þeir spiluðu ekki betur, sagði
Karl Hermansson, þjálfari
Keflvíkinga, eftir leikinn.
— Enginn af þessum strákum
hefur leikið svona leik áður;
þetta er stærsti leikurinn á ferl-
inum og mér finnst alveg fár-
ánlegt hjá mótanefnd að hliðra
ekki leikjum okkar í vikunni til.
Við erum með meidda menn eftir
þá leiki, og t.d. urðum við að
deyfa tvo menn okkar vegna
magakvala í leiknum. Ástæðan
fyrir því er engin önnur en
þreyta, sagði Karl. — SH.