Morgunblaðið - 31.08.1982, Side 29

Morgunblaðið - 31.08.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 37 læra betur Norðurlandamálin, sérstaklega finnsku og íslensku," sagði Ulrika Frandsen, 28 ára gamall bókasafnsfræðingur frá Vestur-Berlín. Ég hafði áður lært finnsku, sænsku og forníslensku við há- skólann í Vestur-Berlín og dönsku á lýðháskólanum í Askov. Aðspurð kvað hún megin kosti Norræna lýðháskólans í Kungálv vera þá, að maður gæti gert hvað sem er, spilað á píanó á nóttunni, umgeng- ist margt fólk, eða verið einn, því að hver nemandi hefði sinn eigin bústað. Þá væri keramikverkstæði á staðnum og þar gæti maður gert það sem manni dytti í hug. „Mig hafði aldrei dreymt um að ég gæti spilað á fiðlu, en það lærði ég hér,“ sagði Ulrika og kvað það næst vera á dagskrá hjá sér að fara til íslands. Götuleikhús „Veturinn 1976—77 var ég nem- andi hér við leiklistardeildina í Kungálv og kom hingað strax eftir menntaskólanám í Kópavogi," sagði Kormákur Bragason, sem stundar nú nám við leiklistar- háskólann í Osló. „Það árið voru hér 9 íslend- ingar. Það var erfitt fyrst, því ég var ekkert of sleipur í dönsku. Ég tók það ráð að tala ekki íslensku i 2 mánuði, en þá hafði ég náð góð- um tökum á dönskunni. Ég tek nú þátt í leiklistarhóp Norræna lýðháskólans, Friðar- vagninum, og til stendur að Árni Pétur Guðjónsson og fleiri frá 'H' jff Kormákur Bragason Krakaleikhópnum í Kaupmanna- höfn leggi Friðarvagninum lið í sumar. Friðarvagninn var með leiksýn- ingu á Avenyen, aðalgötu Gauta- borgar, í vor. Þá fóru leiklistar- hópar mikla göngu um borgina, með músik og leikþáttum, til þess að mótmæla niðurskurði stjórn- valda á framlögum til menning- armála. Einnig sýndi Friðarvagninn leikverk við setningu hinnar sögu- frægu friðarsamkomu á Ullevi- leikvanginum í Gautaborg 15. maí sl. Þar komu saman 500 þúsundir Norðurlandabúa, til þess að hvetja til friðar í heiminum. Þetta mun vera stærsta samkoma, sem nokk- urntíma hefur verið haldin á Norðurlöndum." Úr menntaskóla í Bangla Desh „Af áhuga á leiklist kom ég hingað til Kungálv," sagði Krist- ina Helena Offedal frá Noregi. „Ég hafði heyrt um leiklistar- deildina hér og stunda nú nám við þessa deild. Áður hafði ég tekið leiklist sem valfag í amerískum menntaskóla í Bangla Desh. Um 30 nemendur eru í leiklist- ardeildinni. Unnið er í hópum, sem fást jöfnum höndum við ieikhússögu, akróbatik, lát- bragðsleik og spuna. Frá og með næsta skólaári verður boðið upp á nýjan möguleika, leiksmiðju, fyrir þá sem lokið hafa við grunnnám- ið.“ Kristina kvaðst mundu sækja um leiklistarskóla í Noregi eftir dvölina í Kungálv, eða stunda leiklist í frístundum. Message skólaritvelar Message skólaritvélarnar eru byggöar eftir gömlu góðu skólaritvélaformúlunni: — níðsterkar til þess að þola misjafna meðhöndlun — með leturborði sem sýnir flesta af möguleikum fullkomnustu rafmagnsritvélar — í tösku sem þolir veður og vinda — og á verði sem allir ráða við. Dæmið gekk upp. Message eru sterkar, full- komnar og ódýrar skólaritvélar. Þið eruð velkomin í heimsókn til okkar til þess að sannreyna útkomuna. ■J-í' .. ^ SKRIFSK DFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 — Sími 20560 — Pósthólf 377 Reykjavík ÓSA Hvemig vœri að bregða sér í sólariandafeið í október og móla svo húsið þegar þú kemur heim! Þú færð allar upplýsingar um STEINAKRÝL hjá MÁLNINGU h/f og hjá öllum helstu málningarverslun- um landsins. STEINAKRÝL - málningin sem andar má/ning STEINAKRÝL, nýja útimálningin frá Málningu h/f gerir þér kleift að mála svo að segja á hvaða árstlma, sem er. Fimm til sex stiga frost hefur ekkert að segja, ef þú ert I hlýjum fötum. Þú getur málað með STEINAKRÝLII allt að 10 stiga gaddi.Málningin þornar meira að segja I slydduskúr fljótlega eftir málun. Þú færð þér bara kaffibolla á meðan skúrin gengur yfir. Athugaðu málið hjá næstu ferðaskrifstofu - og málaðu svo seinna með STEINAKRÝLI. Og hvað með þessa eilífu flögnun? - Með STEIN- AKRÝLI geturðu málað beint á duftsmitandi flöt án þess að eiga flögnun á hættu. STEINAKRÝL hefur auk þess þann sérstaka eiginleika að hleypa i gegnum sig raka úr múrnum en er samt þétt fyrir rigningu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.