Morgunblaðið - 08.09.1982, Síða 1
56 SÍÐUR
197. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Schliiter myndar
minnihlutastjórn
Kaupmannahöfn 7. september, frá frétta ríUra Mbl. Ib Björnbak og AP.
MARGRÉT Danadrottning gaf í dag formanni íhaldsflokksins, Poul SchKit-
er, grsnt Ijós á myndun fjögurra flokka minnihlutastjórnar.
Myndun þessarar ríkisstjórnar,
sem taka mun við af minnihluta-
stjórn Anker Jörgensen, er sögu-
leg hvað það snertir að þetta er í
fyrsta skipti á þessari öld sem
íhaldsflokkurinn stendur að
myndun stjórnar og persónulegur
sigur fyrir Poul Schliiter.
Stjórnarmyndun þessi nú kem-
ur nokkuð á óvart þar sem talið
Poul Schliiter formaður
flokksins og tilvonandi forsætisráð-
berra.
var að Venstre-flokkurinn myndi
ekki sætta sig við að forsætisráð-
herraembættið lenti í höndum
íhaldsflokksins, en þeir hafa nú
viðurkennt að Poul Schluter nýtur
mikils trausts bæði meðal al-
mennings og leiðtoga Sósíaldemó-
krata sem er stjórninni mikils
virði.
Sósíaldemókrataflokkurinn er
stærsti flokkur Danmerkur með
60 þingsæti af 179, en Anker Jörg-
ensen ákvað síðastliðinn fimmtu-
dag að segja af sér embætti þar
sem fjárlagafrumvarp hans fékk
ekki atkvæði neins annars flokks á
þinginu.
Poul Schluter og Henning
Christophersen, leiðtogi Venstre-
flokksins, komu sér saman um
myndun þessarar minnihluta-
stjórnar síðla í gærkvöldi, en hún
mun njóta stuðnings Mið-Demó-
krataflokksins og Kristilega þjóð-
arflokksins og einnig sækja stuðn-
ing til Framfaraflokks Mogens
Glistrup og Radikalaflokksins.
Hin nýja stjórn mun taka við
völdum á föstudag, en hennar bíða
gífurlegir efnahagserfiðleikar til
lausnar og eru fréttaskýrendur í
Danmörku varfærnir er þeir tjá
sig um líkur hennar til lausnar
vandanum.
Líbanir ítreka kröfu
um að allur erlendur
herafli verði á brott
Beirút, Fez, Damaskus, 7. september. AP.
LÍBÖNSKUM herdeildum var í dag
fagnað ákaft af borgurum er þeir tóku
yfír gæslu sem áður var í höndum
vopnaðra sveita vinstrimanna, í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir hugsan-
lega árás ísraela.
í framhaldi af því mun síðan líb-
anski forsætisráðherrann, Shafik
Wazzan, hafa sótt heim bandaríska
sendiherrann í Beirút og farið fram
á að stjórnvöld í Washington beiti
áhrifum sínum og þrýsti á að Isra-
elar dragi herlið sitt til baka sem
fyrst frá Beirút, en það er í sam-
ræmi við þá samninga er bundu
endi á stríðið og sérlegur sendimað-
ur Bandaríkjanna í þessari deilu,
Philip F. Habib, átti sinn þátt í að
móta.
Á meðan sitja leiðtogar Araba-
ríkjanna á fundi í Fez í Marokkó og
hugleiða hugsanlegar friðartillögur
í Miðausturlöndum í fyrsta skipti
frá stofnun ríkis ísraels.
Fundurinn hófst formlega í gær,
mánudag, en ekki hafa verið gefnar
út neinar upplýsingar um það
hvernig viðræður þar hafa snúist,
en talið er fullvíst að innrás ísraela
í Líbanon og eftirleikur hennar sé
aðalumræðuefnið.
Líbanon hefur farið fram á það
við fundinn að krefjast þess að aílur
erlendur herafli verði á brott frá
Líbanon án tafar, en tillögum Reag-
an Bandaríkjaforseta varðandi
framtíð Palestínumanna á bökkum
ánnar Jórdan hefur verið vel tekið
af mörgum Arabaríkjum sem þekkt
eru fyrir hógværð, en þeim hefur
verið hafnað af ísraelsstjórn og
Arabaríkjum þeim er eru harðari í
afstöðu sinni.
Haft er eftir einum helsta sam-
starfsmanni Yasser Arafat í dag að
leiðtogafundur Araba ætti að „taka
ákvörðun, ekki um að viðurkenna
Ísraelsríki, heldur eyða því“, en yf-
irlýsing þessi mun vera lýsandi
fyrir öfgastefnu innan PLO gagn-
vart ísrael og birtist í blaðinu A1
Qabas í Kuwait.
Svissneskur lögreglumadur sést hér fara með fulla körfu matar að pólska sendiráðinu,
klæddur skotheldum fatnaði frá toppi til táar.
Taka pólska sendiráðsins í Bem:
Framlengdu frestinn
um 48 klukkustundir
Bera, Virsjá. 7. september. AP.
MENN ÞEIR ER hafa haft pólska sendiráðið í Sviss á valdi sínu á annan
sólarhring lengdu i kvöl frest þann er þeir hafa gefíð pólskum yfírvöldum til að
afíétta herlögum þar í landi um 48 klukkustundir, en þeir höfðu áður tilkynnt að
þeir myndu sprengja sjálfa sig og gísla sina í loft upp klukkan 10 i fyrramálið.
Svissnesk lögregla stækkaði i kvöld það svæði er hún hafði áður lokað af vegna
öryggisástæðna kringum pólska sendiráðið og er talið líklegt að það hafí verið gert
vegna hugsanlegrar innrásar í sendiráðið til að frelsa hina níu gísla sem enn eru
þar i haldi hjá vopnuðum mönnum er segja sig vera pólska andkommúnista og
krefjast þess að bundinn verði endi á herlögin í Póllandi.
Herstjórnin í Póllandi sendi síðan
í kvöld svissneskum yfirvöldum
beiðni um að fá að senda „sérstakan
hóp“ til Bern til að hjálpa til við
frelsun gíslanna sem haldið er í
pólska sendiráðinu þar af vopnuðum
andkommúnistum, en ekkert hefur
heyrst um viðbrögð svissnesku
stjórnarinnar við tilboði þessu.
Mennirnir, sem munu vera fjórir,
létu í dag lausar tvær eldri konur, en
talsmaður stjórnarinnar í Sviss í
þessu máli vildi ekki tjá sig frekar
um það hvort hann teldi þetta vera
merki þess að staðan í málinu væri
eitthvað að breytast.
Frá Varsjá hafa borist þær fregn-
ir að þarlend yfirvöld hafi tilkynnt
„að þau hafi gefið leyfi sitt fyrir því
að svissnesk lögregla fari inn í land-
helgi sendiráðsins" og munu þau
Hér sést hvar konurnar tvær er settar voru lausar i dag ganga á brott frá pólska
sendiráðinu, en þar eru enn níu manns í haldi.
hafa lagt áherslu á að þessu umsátri
lyki sem fyrst. Einnig munu pólsk
yfirvöld hafa líkt mönnum þessum
er sendiráðið tóku í gær við öfga-
menn úr röðum óháðu verkalýðsfé-
laganna Samstöðu.
Einn leiðtoga Samstöðu sem er í
útlegð hefur í því sambandi tilkynnt
að hún sé í engu viðriðin mál þetta
og bætti því við að sendiráðstaka
þessi sé verk hryðjuverkamanna sem
vinni gegn hagsmunum pólsku þjóð-
arinnar.
Þessi gíslataka eru fyrstu mót-
mæli þessarar tegundar við herlögin
í Póllandi.
Lögreglumenn og sérþjálfaðar
sveitir búnar alvæpni vakta svæðið
sem sett hefur verið í herkví.
Pólska stjórnin hefur skipulagt
sveitir manna sem hafa það hlutverk
að verjast árásum sem þessum á
sendiráð landsins erlendis, en það
var gert samkvæmt skipun Jaruz-
elski eftir að kunnugt varð um sendi-
ráðstökuna í Bern.
Hundur stökk yfir
Berlínarmúrinn
Berlín, 7. september. AP.
HUNDUR sem stökk yfir Berlín-
armúrinn og var „handtekinn" af
austur-þýsku lögreglunni var skil-
að til eigenda sinna í Vestur-
Berlín í dag og var hann þá við
„ágæta heilsu“ að þeirra sögn.
Hundurinn, Ninja, mun hafa
tekið undir sig heljarstökk er
hann var staddur á útsýnispalli
nokkrum í Vestur-Berlín á
sunnudag með þeim afleiðingum
að hann lenti í eystri borgar-
hlutanum og þangað var hann
síðan sóttur í dag með mikilli
viðhöfn.