Morgunblaðið - 08.09.1982, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.09.1982, Qupperneq 32
STEINAKRÝL - málningin sem andar Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982 Mörg æðstu störf hjá borg- inni sameinuð Veruleg hagræðing og markvissari skipun embætta, segir Davíð Oddsson TILLAGA fra borgarstjora um breytingar a stjórnsýslu og tilfærslur embsett- ismanna innan borgarkerfisins var lögð fram á fundi borgarráðs i gær. Samkvæmt tillögum þessum verður breyting á nokkrum embættum innan borgarkerfísins og færast nokkrir æðstu embættismenn innan borgarkerfis- ins á milli starfa. I fyrsta lagi eru breytingarnar þær að í fjármáladeild verður sam- einuð hagsýsludeild og embætti borgarhagfræðings og niður fellur hið gamla embætti borgarhagfræð- ings og embætti hagsýslustjóra. Þessi enibætti verða sameinuð í embætti framkvæmdastjóra fjár- mála- og hagsýsludeildar. í öðru lagi lúta breytingarnar að því, að skipta upp embætti borgarlögmanns, þann- ig að undir hið gamla embætti falli öll málflutningsstörf á vegum borg- arinnar og fyrirtækja borgarsjóðs. breytingar þessar þýddu að mörg æðstu störf í borgarkerfinu yrðu sameinuð, en undir þessi embætti heyrði margt starfslið og myndu breytingarnar þýða einföldun stjórnkerfisins og fækkun starfs- manna þegar fram í sækti. Þó væri ekki gert ráð fyrir beinum uppsögn- um. Davíð taldi að í þessum breyt- ingum fælist veruleg hagræðing og markvissari skipun embætta og einnig væri þetta liður í tilfærslu æðstu embættismanna innan borg- arkerfisins. Kguert JónMHon Jón (,. Krúftjánmon Hjorleifur B. Kvaran Kröflusvæðið: Mvndin var tekin fyrir skömmu i Bjarnarflagi, en þar hafa verið nokkrar hræringar síðustu daga, en nú hefur dregið úr landrisi og skjálftum á þessu svæði. Dregiö hefur úr landrisi IINDANFARNA daga hafa jarð- skjálftar mælzt við Kröfluvirkjun, kringum Leirhnjúk og suður í Bjarn- arflag. Síðasta sólarhring hægði landris mjög á sér svo og skjálfta- virkni, að sögn Hjartar Tryggvason- ar umsjónarmanns mælitækja við Kröflu, er Mbl. ræddi við hann seint i gærkvöldi. Sagði Hjörtur, að ekki væri Ijóst hvað það boðaði, en venjulega væri það undanfari einhverra umbrota. Sagði Hjörtur, að fólk væri ofurlítið órólegt vegna þessa, en væri þó enn við vinnu í Kröfluvirkjun. Almanna- varnanefnd Mývatnssveitar og starfsmenn Kröfluvirkjunar væru því í viðbragðsstöðu og fylgzt væri með mælum allan sólarhringinn. Engu frestað nema beiðni komi frá stjórnvöldum — segir Kristján Ragnarsson vegna áskorunar Útvegs- mannafélags Þorlákshafnar um frestun á stöðvun flotans „ÞAÐ ER MJÖG örðugt að breyta þessari ákvörðun vegna þess, að menn eru byrjaðir að haga rekstri skipa sinna með hliðsjón af þessu stoppi. Því er þetta mjög örðugt og meðan engin beiðni um frest hefur borizt frá stjórn- völdum verður engu frestað," sagði Kristján Ragnarsson, formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, meðal annars er Morgunblaðið bar undir hann áskorun Útvegsmannafélags Þorlákshafnar um að fresta stöðvun flotans. Morgunblaðið innti Steingrím Hermannsson einnig eftir því í gær, hvort til þess kæmi, að ríkisstjórnin óskaði sams konar frests, en hann vildi ekki tjá sig um það. Morgunblaðinu hefur borizt sam- þykkt, sem Útvegsmannafélag Þor- lákshafnar samþykkti á fundi sín- um síðastliðinn mánudag og er hún á þessa leið: „Útvegsmannafélag Þorlákshafn- ar skorar á stjórn og trúnaðar- mannaráð LÍÚ, að veita 7 daga lengri frest áður en til stöðvunar flotans kemur, í trausti þess að það leiði til farsællar lausnar á þessu máli. Þá sagði Kristján Ragnarsson ennfremur eftirfarandi: „Okkur barst þessi samþykkt í morgun og kom þetta nokkuð á óvart, því það var margrætt hvenær stöðva bæri flotann. Formaður Útvegsmannafé- lags Þorlákshafnar á sæti í trúnað- armannaráði LÍÚ og greiddi sam- þykkt þess og stjórnarinnar um stöðvun flotans atkvæði. Þessi af- staða hefur verið borin undir fjöl- marga og virðast þeir sammála um það að það komi ekki til að breyta þessari dagsetningu að óbreyttum aðstæðum. Til þess að svo verði, verðum við að sjá að það sé verið að fjalla um málið af alvöru og fá sannfæringu fyrir því að það hefði einhvern tilgang að fresta þessu. Við höfum ekki séð það enn.“ Sjá vióul vió Steingrím Hermannsson á bls. 2. Guðmundur J. á fundi með hafnarverkamöimum: „Skuldbind mig ekki til að greiða at- kvæði á móti bráðabirgðalögunum“ GUÐMUNDUR J. Guðmundsson skýrði frá afstöðu sinni til bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar á fundi með hafnarverkamönnum í hádeginu í gær. Þar sagði hann m.a.: „Ég skuldbind mig ekki til að greiða atkvæði á móti bráðabirgðalögunum þegar þing kemur saman. Guðmundur kvað ástæðu þess að hann hafi í fyrsta sinn lýst yfir afstöðu sinni til pólitískra aðgerða á vinnustaðafundi þá að í fjölmiðlum hefði verið greint frá að undanförnu áskorunum verkafólks um að hann greiddi atkvæði á móti lögunum. Samt hefði engin áskorun þess efnis verið send til hans sjálfs. Því hefði hann þurft að kynna sér þær í blöðum. Guðmundur J. Guðmundsson á fundi með hafnarverkamönnum í gær. Ljóflmjnd K.E. en jafnframt stofnað embætti fram- kvæmdastjóra lögfræði- og stjórn- sýsludeildar og undir það falli al- menn lögfræðistörf, önnur en þau sem falla undir embætti borgarlög- manns, þ.e. almennar lögfræðilegar athugasemdir, umsagnir og álits- gerðir, auk þess sem stjórnsýsla ýmisskonar, samkvæmt nánari ákvörðun borgarstjóra, fellur undir þetta embætti. I þriðja lagi fellur embætti vinnumálastjóra niður, en þess í stað stofnað embætti starfs- mannastjóra með víðtækara starfs- sviði, sem annast öll mál starfs- manna, þ.á m. launamál, ráðninga- mál, símenntun, endurmenntun og fleira. Lóðanefnd verður lögð niður og verkefni hennar falin embætti skrifstofustjóra borgarverkfræð- ings. I framhaldi af tillögu um þessar breytingar var gerð tillaga um eftir- farandi breytingar á mannaráðning- um: Jón G. Tómasson, sem verið hef- ur borgarlögmaður, verður borgar- ritari í stað Gunnlaugs Péturssonar, sem óskað hefur eftir lausn frá emb- ætti fyrir aldurs sakir. Magnús Óskarsson, vinnumálastjóri, verður borgarlögmaður. Björn Friðfinns- son, fjármálastjóri, verður framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar, Eggert Jónsson, borgarhagfræðingur, verður fram- kvæmdastjóri fjármála- og hag- sýsludeildar, með embættistitlinum borgarhagfræðingur. Jón G. Krist- jánsson, skrifstofustjóri borgarverk- fræðings, verður starfsmannastjóri og Hjörleifur B. Kvaran verður skrifstofustjóri borgarverkfræðings. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að Á fundinum, sem um 50 manns sátu, kvað Guðmundur efnahag þjóðarinnar mun verri en 1978 þegar ríkisstjórn Geirs Hall- grimssonar ákvað að gera ráð- stafanir sem m.a. lutu að launa- skerðingu. Ennfremur væri nú ætlunin að skerða einungis einu sinni verðbætur á laun um helm- ing eða 1. des. nk., en 1978 átti að gera slíkt hið sama á þriggja mán- aða fresti. Þá hefðu þjóðartekjur farið vaxandi á árinu 1978 og verð á útflutningsvörum verið gott. Á þessu ári væri hins vegar gert ráð fyrir að þjóðartekjur minnkuðu um 5—6%. Einnig kæmi til loðnu- bresturinn og 16—17% minni þorskafli en í fyrra. Af þeim sök- um hefði verið nauðsynlegt að grípa til þessara aðgerða. Ekki kvaðst Guðmundur vera viss um hvort Alþingi samþykkti bráðabirgðalögin, en ef breytingar yrðu á þeim mundi hann endur- skoða afstöðu sína. Síðan kvaðst Guðmundur óttast ef hann greiddi atkvæði á móti lögunum að að- gerðir sigldu í kjölfarið sem væru verkafólki í óhag. Hann hefði t.d. enga tryggingu fyrir því að vísi- talan yrði þá ekki skert meir en bráðabirgðalögin segðu til um. Guðmundur kvað ennfremur bæði Sjálfstæðis- og Alþýðuflokk ekki vera á móti kjaraskerðing- unni, sem fælist í þessum bráða- birgðalögum. Og vildu sjálfstæð- ismenn jafnvel ganga lengra i þessum efnum. Ennfremur sagði Guðmundur að þeir erfiðleikar sem steðjuðu nú að þjóðinni ættu ekki aðeins að bitna á verkafólki heldur líka á öðrum. Og fyrir því mundi hann beita sér. Nokkuð var um framíköll með- an Guðmundur flutti tölu sína og mátti glögglega ráða að margir fundarmanna voru ekki á sama máli og hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.